Morgunblaðið - 03.01.1954, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 03.01.1954, Blaðsíða 9
Sunnudagur 3. janúar 1954 MORCVNBLAÐIÐ 9 VÉR ÍSLENDINGAR megum kveðja árið, sem nú er að enda sitt skeið með þakklát- um huga. Hér hefir verið góðæri til lands og sjávar, gróður jarðar óvenju mikill og nýting víðast í bezta lagi, sjávarafli mikill, ef frá er skilin Norðurlandssíldin, verðlag yfirleitt gott og sala gengið greiðlega. Undantekning- arlítið hafa menn haft nóg að starfa og flestir borið venjufrem- ur mikið úr býtum. Hefir ver- aldlegur velfarnaður þjóðarinnar aldrei meiri verið. —★— í grein um galdrabrennur á íslandi, sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins fyrir rúmum mánuði segir frá því, að í lok 17. aldar hafi allir þingmenn orðið sammála um svohljóðandi lýs- ingu á hag landsins: „Að um allt land hafi yfirgeng- ið á næstliðnum vetri stór neyð óg landplága upp á fjúk og frost, krapaveður og jarðbönn í langan tíma, svo í sérhverju héraði hafi margir menn til neyðst sinn kvik fénað að fella og niðurskera láta. t>ar til f iskleysi við sjóinn í f lestum veiðistöðvum öllu meir en fyrir- farandi ár, svo fólkið til sveit- anna kann þar af lítið eða ekk- ert sér til bjargar innkaupa fyrir utan tros og fiskahöfuð, sökum þess að þeir, sem við sjókantinn búa, verða þann fisk, sem fengið hafa, til kaupmannanna inn að setja fyrir sína áliggjandi nauð- syn, svo sem er mjöl og veiðar- færi, járn og skipaviður, en þeir uppi á landinu hljóta daglega með að nægjast mjólk undan þeim allfáu kúm og ám, sem lífs á þessum hallærisvetri afkom- ust. Auk þess hefir hér í landi ein stór sótt og óvenjulega þung- ur sjúkdómur á legið, sem sig daglega um sveitirnar og við sjávarsíðuna útbreiðir og mikinn manndauða orsakar, svó fólkið er enn daglega þar og þar niður að hrynja, auk þeirra vesalinga, sem allvíða eru í hungri og vesöld út- slokknaðir“. Hér er ekki verið að lýsa hin- um sögukunnustu hörmungum svo sem Svartadauða, Stórubólu, Móðuharðindum eða öðrum við- líka eldraunum, sem þjóðin varð að þola. Hér segir aðeins með látlausum orðum frá hversdags- legum þrengingum, sem þjóðin öðru hverju átti við að búa vegna harðinda, aflabrests, grasleysis eða annars ófarnaðar og getu- og varnarleýsis, fátæktar og fá- mennis í viðureigninni við þess- ar þrengingar. En þó er þetta ömurleg og átakanleg raunasaga. —★— Ég fór að hugleiða hvernig svipað árferði myndi nú bitna á mönnum og hverníg annáll þess myndi hljóða. Líklega eitthvað á þessa leið: „Vetrarhörkur hafa verið í meira lagi. Bændur urðu að taka fé sitt snemma á gjöf. Hey voru því víða á þrotum í vetrarlok, þótt fóðurbætisgjöf hafi verið óvenju mikil. Fiskigengd var lítil á grunnmiðum og afli því víða rýr á smábáta. Þá hefir og inflú- enza geisað víða um byggðir iandsins". Sennilega hefði svo verið bætt við, að skiðafæri hefði verið af- bragðs gott víðast um landið. —★— Það er að sönnu rúm hálf þriðja öld liðin frá því er sögu- lokin voru um örlög þeirra „vesalinga, sem allvíða eru í hungri og vesöld út slokknaðir“. En nú er lika öldin önnur. Nú búa íslendingar við betri kjör en flest ar aðrar þjóðir veraldar, jafnt um fæði sem klæði og jafnvel líka húsakost, þótt enn sé stórra átaka þörf einmitt í þeim efnum. Skal ég ekki fjölyrða um það, sem flestir vita, að nú hefir á hálfri öld verið ræktað meira land en áður á 10 öldum. Þjóðin hefir eignazt mikinn flota fuUkominna iTieiiii hennar til að standa vörð um fengið frelsi Þfóðirelsið og athafnafrelsið óaðskálionkega samofið Ulvarpsévarp fiíafs Thcrs forsæiisráSherra fiuH í iíkisiífvsrpiS é gamlárskvöld örlögum genginni kynslóða, held- ur baráttan um farsæld og frelsi að sjálfsögðu áfram, því sú bar- átta er ©g verður jafngömul þjóð- inni sjálfri. —★— En viðfangsefnin eru ný og vandinn annar. Vér þurfum ekki lengur að deila við Dani um rétt vorn til þess að fara sjálfir og einir með stjórn allra málefna vorra, held- ur að gæta þess þjóðfrelsis, er véi höfum sótt í hendur Dana. Vér þurfum ekki framar að óttast að harðindi leiði til hor- fellis, heldur þurfum vér að verj- ast því, að velsæld leiði til of- metnaðar og ofmetnaður til falls. —★— Að þjóðfrelsi íslendinga sækja nú m. a. tvær hættur. Önnur staf- ar af því að segja má, að ger- byltingin á sviði samgangna og hernaðartækni hafi flutt ísland í hlaðvarpa jafnt austurs og vesturs. Island getur því hvenær sem er orðið fórn á altari alheims átaka. Telja sumir, að þá þætt- ina í örlagaþræði íslendinga spinni aðrir og fari því bezt á, að vér leiðum hest vorn hjá þeim málum. Aðrir, og þeir eru miklu fleiri, teija hinsvegar, að þó vér séum litlir séum vér samt ekki þýðingarlitlir. Vér séum þvert á móti vegna legu landsins svo þýð ingarmiklir, að hugsanlegt sé, að heimsfriðurinn velti á því, að varnarieysi íslands freisti ekki hugsanlegs árásaraðila til átaka, sem hann ella hefði ekki stofnað til. Og þeir telja víst, að komi til átaka sé a. m. k. mjög sennilegt, að öflugar iandvarnir á íslandi auki líkur fyrir sigri mannhelgi j og þjóðfrelsis, og dragi jafnframt Olafur Thors, f og stórvirkra fiskiskipa í stað árabátanna, myndarlegan kaup- skipaflota og vélar og tæki til iðnaðar, sem engan óraði fyrir til skamms tíma. Hafa íslending- ar með þessu skapað sér lífvæn- leg atvinnuskilyrði, sem reynzt hafa og reynast munu örugg vopn í viðureigninni við þær þrengingar, sem áður felldu eigi aðeins búpening manna, heldur og landsfólkið sjáift. En auk þess sem tæknin hefir tryggt flestum þeim iífsviðurværi, sem vilja og geta unnið, þá er það fulikomið efamál, að nokkurs staðar á byggðu bóli eigi menn jafn ör- uggt skjól gegn elli, sjúkdómum, slysum eða hvers konar óhöppum sem einmitt hér á landi, þegar saman eru talin lagalegur kröfu- réttur þegnsins á hendur þjóð- télaginu eða stofnunum þess, að- stoð sú, sem hið opinbera oftast með sérstökum aðgerðum lætur í té, ef harðindi, aflabrestur eða önnur stærri óhöpp steðja að og loks leynd og ijós hjálp í landi kunningsskapar, vináttu og frændsemi. —★— Hér skal ekkert um það stað- hæft hvort þjóðin kahn að meta þau kjör, sem hún á við að búa. En víst er um það, að margur myndi meta meir sitt hlutskipti, ef hann íhugaði oftar hverra kosta þeir áttu völ, sem á und- anförnum öldum hafa byggt þetta land eða gerði sér grein fyrir því, að meira en helmingur mannkýns sveltur heilu eða hálfu hungri. En hvað sem um þetta má rsætisraöherra segja er mönnum holt að hug- leiða, hvaða öfl hafa verið að verki og valdið því, að Islend- ingar hafa á skömmum tíma kom izt frá hörmungum og hungur- dauða til bjargálna og jafnvel velsældar. Það má segja þá sögu langa, þvi að það er saga þjóðar- innar. En það má líka segja hana í fáum orðum. Um margar og dimmar aldir hafði erlend áþján drepið athafnaþrá og framtak hins íslenzka kynstofns í dróma. En eftir að frelsisbaráttan hófst á öndveðri siðustu öld og allt fram til þess, að lýðveldið var endurreist 1944, leysti hver nýr sigur þessi öfl úr læðingi og aldrei urðu framfarirnar risa- vaxnari en einmitt fyrsta áratug inn eí'tir að stjórnin fluttist inn í lanaið og nú síðustu 10 árin, hinn fyrsta áratug hins endur- reista íslenzka lýðveldis. Þetta er rödd sögunnar. Hún lofsyngur brjóstfylkingu frelsis- baráttunnar og hina nýju land- námsmenn athafnalifsins. Hún segir í'rá því, að það sé þjóðfrels- iö og athafnaírelsið hvort um sig og óaðskiljaniega samtvinnað, sem fært hafi íslendingum fram- farirnar og þá velmegun, sem þeir nú búa við. Hún brýnir fyrir þjóðinni að glata ekki f jöregginu og eggjar þjóðina og forystumenn liennar Iögeggjan að bregðast ekki skvldunum. íslendingum ber að hlusta á þessa rödd og hlýða fyrirmælum liennar. Þeim ber að láta sér skiljast, að enda þótt þjóðin þurfi ekki framar að sæta ömurlegum úr þeim hættum, sem íslending- um stafi af skelfingum nýrrar heimsstyrjaldar. Það er þessi grundvallar skoð- un lýðræðisflokkanna, sem réði því, að íslendingar árið 1949 gerðust aðilar að varnarbanda- lagi hinna frelsisunnandi vest- rænu þjóða, Atlantshafsbanda- laginu. Og það var vegna þess, að horfur á að heimsfriðurinn héldist, versnuðu, að lýðræðis- flokkarnir tveim árum síðar af raunsærri dómgreind, fólu Bandaríkjunum að verja landið á vegum Atlantshafsbandalags- ins. Tóku menn þá vitandi vits á sig vandkvæðin, sem ævinlega leiða af dvöl erlends varnarliðs í landinu, til þess með þeim hætti að freista þess að bægja frá þjóð- inni og jafnvel mannkyninu öllu ómælanlegum hörmungum nýrr- ar gereyðingar styrjaldar. —★— Oss Islendinga greinir að vísu á um með hverjum hætti vér helzt fáum varizt yfirvofandi ógnum hernaðarátaka. — En vér erum á einu máli um, að svo geti farið, að erlend bára flæði yfir ísland og færi land og lýð í kaf. En slíkt hið sama má segja um flestar menn- ingarþjóðir veraidarinnar. Það er að sjálfsögðu þjóðleg skylda vor að gera allar þær skynsamlegar varnarráðstafanir, sem vér höf- um vit á og getu til, en hitt er engu síður áríðandi að vér forð- umst að láta óttann við það, sem vér litlu fáum um ráðið, skyggja á þau sannindi, að hver er sinnar liamingju smiður. Oss ber því vandlega að forðast að láta vitn- eskjuna um það hversu litlu vér forystu- ráðum um margt, er mestu skift- ir, lama þrótt vorn og baráttu- hug þar sem og þegar sigurhorf- urnar velta á eigin afrekum. Þetta boðorð verðum vér í, heiðri að hafa, því ella vegum vér að aff þjóðfrelsinu innan frá. —★— Margir óttast, að þjóðfrelsinu stafi voði af óeiningunni og glund roðanum í þjóðlífinu og sívax- andi kröfuhörku manna. Vissu- lega er bessi ótti ekki með öllu ástæðulaus, en ef menn kunna skil á því, sem á veltur munu þú engin stórslys af hijótast. Vér, sem í stjórnmálunum stöndum, segjum stundum: Það er tilgangslaust að eyða æfinni í slitulaust strit, og erjur stjórn- málabaráttunnar. íslendingar-eru að eðlisfari svo óstýrlátir, að þeir fást ekki til að hlíta forystu manna, sem þeir þó treysta og hafa falið að kynna sér málin og finna úrlausn þeirra. En þetta er ekki rödd sannleik- ans, heldur rödd þolleysisins. Brugðust kjósendur 1944 þegar loks hafði tekizt að fá þá, sem bíða vildu eftir viðræðum við Dani að styrjaldarlokum til þess að falla frá sérstöðu sinni, og foryztumenn allra flokka fylktu sér um endurreisn lýðveldisins? Hefir þjóðin brugðist í deil- unni um landhelgina? Er það ekKÍ einmitt með óveigj anlegum vilja allra sannra ís- lendinga, rótföstum í siðferðileg- um og lagalegum rétti, sem oss mun áður en lýkur lánast að vinna bug á andstöðu fámenns hóps öflugra eiginhagsmuna- manna og takast að eyða því, sem enn er eftir að vanþekkingu hinnar brezku vinaþjóðar á hög- um vorum, þörfum og rétti? Hafa ekki Islendingar undan- tekningarlítið verið einhuga í sókninni á hendur Dönum um heimflutning handritanna, deilu, sem Islendingar eru að vinna, vegna þess að þeir hafa sín megin. réttlætið og Dani, en móti enga nema fáeina feyskna danska fúa- lurka og framhleypni og óhátt- vísi einstaka íslendings. Þessi dæmi og mörg önnur sanna að þegar stjórnmálaleið- togarnir eru sammála, fyigir þjóðin þeim nær óskipt. —★— „En hvernig stendur þá á því, að þetta litla þjóðfélag logar svo oft í sundrung og úlfúð?“ spyrja menn. „Er það vegna þess, að forystumennirnir bregðist skyldu sinni?“ Nei. Það stafar af hinu, að eðli málsins samkvæmt eiga forystumennirnir svo sjaldan sam leið í stjórnmálunum. Menn, skiptast einmitt í flokka vegna. grundvallar ágreinings í þjóð- málum, svo sem eftir viðhorfi hvers og eins til þess með hverj- um hætti muni auðið að draga sem mest í þjóðarbúið og hvernig björginni beri að skipta þannig, að í bráð og lengd verði sem bezt séð fyrir þörfum þjóðarinn- ar. I þessum efnum og fleirum er djúp staðfest miili manna og flokka, sem aldrei verður brúað, þótt stundum sé látið kyrrt liggja um skeið, ef flokkar þurfa að vinna saman á þingi og í stjórn. landsins. Islendingum er því hvorki kleift né hollt að komast hjá deilum, þótt hóf sé bezt á hverj um hlut. Þetta er óhagganleg staðreynd. En í skjóli hennav tefla menn og flokkar svo tafli sínu eða refskák.' Þannig heimta •menn t. d. lækkun skatta, en, hækkun ríkisútgjalda, lækkun framleiðslukostnaðar en hækkað kaupgjald, hærra fiskverð en minni bátagjaldeyri o. s. frv., og fer þá oft eftir því hvort þeir bera ábyrgðina eða eru í stjórn- arandstöðu. Mun þessa sama gæta víða um lönd og er ekki um að sakast meðan hófs er gætt. Allt veltur á því, aff upp úr Framh. á bls. 10.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.