Morgunblaðið - 03.01.1954, Side 11

Morgunblaðið - 03.01.1954, Side 11
Sunnudagur 3. janúar 1954 MORGUNBLAÐIÐ 11 Þorkelsdóttir Á MORGUN, mánudaginn 4. janúar verður til moldar borin að Kálfatjarnarkirkju, ekkjan Elín Ingibjörg Þorláksdóttir frá Bræðraparti í Vogum í Vatns- leysustrandarhreppi. Hún andað- ist hinn 23. des. s.l. Elín var fædd að Minna-Knarr- árnesi í Vatnsleysustrandar- hreppi 26. nóv. 1860. Voru for- eldrar hennar hjónin Þorlákur Bjarnason og Þuríður Benedikts- dóttir. Var Þorlákur Strandar- ingur en Þuríður kona hans ætt- uð úr Norðurlandi. Stóðu að þeim dug- og þrekmiklar bændaættir, til sjávar og sveita. Þau Þorlákur og Þuríður áttu 6 börn, 4 syni, Bjarna, Sigurð, Árna og Benedikt og 2 dætur, Elínu Ingibjörgu, sem hér er minnst, og Ingibjörgu, sem er nú ein á lífi af þeim systkinum, 83 ára gömul og dvelur nú á Elli- heimili Hafnarfjarðar. Var hún yngst þeirra systkina. Öll komust systkini þessi til fullorðinsára og voru hið mesta atorku- og dugnaðarfólk, enda í æsku uppalin við það að starfa og kynnast erfiðleikum og við- horfi til líðandi stundar. Elín átti alla ævi heima í Vatns leysustrandarhreppi. Fyrst á æskuheimili sínu í Minna-Knarr- arnesi, svo í vinnumennsku á nokkrum stöðum, en árið 1890 foyrjar hún búskap með unnusta sínum Guðmundi Bjarnasyni. Voru þau fyrst í vinnumennsku að Minni-Vogum en fluttu árið 1896 að Bræðraparti í Vogum og fojuggu þar óslitið, þar til Guð- mundur andaðist árið 1928. Guðmundur var ættaður frá Valdastöðum í Kjós. Hann var framúrskarandi atorku- og dugn- aðarmaður, og sótti fast sjóinn, enda aflasæll og heppinn for- maður um tugi ára og stjórnari svo góður að org fór af. Guð- mundur átti þó erfitt með starf því svo þjáði hann gigtveiki, að mörg árin síðustu, sem hann réri gekk hann til skips við tvo stafi <og varð að láta hjálpa sér í sjó- klæðin. Mun Elín, kona hans oft .hafa verið þar með í verki og aðstoðað mann sinn með sínum mikla dugnaði, eins við sjávar- verkin, sem við búskapinn. Síðustu árin sem Guðmundur lifði var Bjarni sonur hans með skip hans og heppnaðist mjög vel. Guðmundur andaðist 3. jan. 1928 og tók þá Bjarni við útgerð- xnni. Hafði hann þá fengið sér nýtt skip, trillubát af sex manna farsstærð. En Bjarna átti ekki lengi við að njóta. Hann fórst á skipi sínu með allri áhöfn í ofsa veðri hinn 12. marz sama ár. Var hann þá kvæntur fyrir hálfum ír ánuði hinni ágætustu konu Guð- rúnu Benediktsdóttur frá Suður- koti í Vogum. Þetta var mikill og sár harmur fyrir Elínu að missa mann sinn og son á svo sviplegan hátt, með stuttu milli- foili. En þarna kom fram hvílík hetja Elín var á stund harma og hættu. Með sínu mikla jafnaðar- geði, öruggri trú og von á drott- inn æðraðist hún ekki, heldur huggaði og hughreysti, starfaði og lifði fyrir sína nánustu ætt- íngja og vini. Þau Guðmundur og Elín áttu 4 börn, dó eitt þeirra í æsku og Bjarni drukknaði, sem áður segir. Á lífi eru: Þuríður, húsfreyja í Stóra-Knarrarnesi, gift Ólafi Péturssyni og. Guðbjörg ekkja Guðmundar sál. Kortssonar er lézt árið 1951. Eina dóttur átti Elín áður en hún giftist, Björgu, sem búsett er í Reykjavík. Þá óiu þau einnig upp dótturson sinn Guðmund Ólafsson, sem nú býr t Bræðraparti. Vorið 1928 fluttu þau Guðbjörg dóttir Elínar og Guðmundur mað ur hennar að Bræðraparti og var Elín hjá þeim í Bræðraparti þar til Guðmundur dó, og naut þar hinnar beztu umönnunar, og síð- an með Guðbjörgu dóttur sinni til síðustu stundar. Dvöldu þær nú síðast í Hafnarfirði hjá Guð- mundi syni Guöbjargar. Var Elín rúmliggjandi hina síðustu mánuði og annaðist Guðbjörg móður sína af kærleika og fórn- fýsi. Með Elínu er fallin fiá mcrk kona og mæt. Af sjónarsviðinu er horfinn fuiltiúi hinnar eldri kynslóðar, sem lifði oft við erfið kjör og vissi ekki hvað þægindi voru, fyrr en á gamaisaldri, en sem óx og þroskaðist andlega og iíkamlega til guðstrúar og góðra verka, til fyrirmyndar í menningu veruleikans, að vera en ekki að sýnast. Eiín var kona tíguleg í allri framgöngu, djörf og háttprúð, með tnildan blæ, hjálpandi og huggandi, sál er ekki mildi vamm sitt vita en ölium gott gjöra. Munu margir minnast gestrisni þeirra E’inar og Guðmundar í Bræðraparti. Þó húsrúm væri þar ekki ýkjastórt þá var þar alltaf nóg rúm og hjartahlýja til að gera öilum gott. Elín var kona kirkjurækin og sótti kirkju að Kálfatjörn svo lengi sem heilsan leyfði og á síðastliðnu sumri gaf hún Kálfa- tjarnarkirkju höfðinglega gjöf til minningar um Guðmund mann sinn og Bjarna son þeirra. Sveitungar Elínar þakka henni af alhug fyrir samfylgdina á hennar löngu ævi og samfagna henni að hafa nú fengið hvíld frá störfum og gengið inr. í himneska jóladýrð Jesú-barns- ins; til meiri starfa Guðs um geim. Blessuð sé minning hennar. E. M. Verkamannafélagið Dagsbrún Dagsbrúnar fyrir börn, verður í Iðnó. þriðjudaginn 5. janúar kl. 4 e. h. Sala aðgöngumiða hefst mánudaginn 4. jan. kl. 2 e. h. í skrifstofu Dagsbrúnar. NEFNDIN ■■■■■•■■■iii* ■■■■■■■■■■■ Vélstjórafélag Islands Jólatrésskemmtun félagsins verður haldin sunnudaginn 10. jan. og hefst kl. 3,30 síðd. — Dansskemmtun fyrir fullorðna hefst kl. 9. Aðgöngumiðar seldir hjá: Lofti Ólafssyni, Eski- hlíð 23. Skrifstofu félagsins, íngólfshvoli og Þorkeli Sigurðssyni, Háteigsveg 30. Skemmtinefndin. - AUGLYSING ER GULLS IGILDI - BAY CITY — vinnuvélar BAY CITY — vinnuvélar eru heims- þekktar fyrir gæði og góð afköst. Fyrsta skurðgrafan, sem flutt var til landsins var af BAY CITY gerð. TOWMOTOR IHII THC OHC MAH CANG ^ F0RK LIFT TRUCKS onil TRACTORS Meginkostir TOWMOTOR eru: Sjálfvirk skifting. Hydraulisk stýring. Kæl- ing olíunnar, sem kemur í veg fyrir sótun. BAY CITY SHOVELS INC.. BAY CITY, Michigan TOWMOTOR CORPORATION Cleveland, Ohio. Skipaafgreiðslur og frystihús víða um land, nota LANSING BAGNALL flutninga og lyfti- tæki. ^Q^CP^Q^CP^Q^CP^Q^CP^Qr^CP^Q^CP^Q^CP^Q^CP^Q^sCP^Q^CP^Qs^C/ MANUFACTURAS DE CORCHO ARMSTRONG S. A. — Palamos — Spáni — Síærstu korkframleiðendur Spánar. Flytja út 45% allrar korkframleiðslu Spánar. Verksmiðjur í Algeciras — Palamos — Palafrugell og Sevilla. STOW steinsteypuherðarar (vibratorar) benzín og rafknúnir. Þeim fjölgar óðum, sem nota STOW steinsteypuherðara (vibratora), þegar steypt er, enda eykur það styrkleika steypunnar um 20%. Fyrsía flokks verksmiðjur tryggja yður rétt verð og réttar vörur. Þökkum viðskiptin GleðiSegt nýtt ár Pi Ss.C©> á liðna árinu Umboðs- og heildverzlun. Hamarshúsinu — Sími 7385.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.