Morgunblaðið - 23.01.1954, Qupperneq 1
41, árgangur.
18. tbl. — Laugardagur 23. janúar 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sjálfstæðismenn neyddu Framsóknarflokkinn til fylgis
við smáíbúðarlánin
Ahaldahús bæjarins
Á mynd þessari sjás’t nokkur af öflugum og stórvirkum tækjum, sem bærinn notar. Sjást þarna
yélskóflur og kranabílar. Er þetta aðeins lítill hluti af vélaeign bæjarins, en allar framkvæmdir á
yegum bæjarfélagsins eru leystar af hendi með fullkomnustu tækjum. Á bls. 9 er samtal við Sig-
jnund Halldórsson, forstjóra Áhaldahússins um það hlutverk, sem sú stofnun gegnir í bæjarlífinu og
hve vel hefur tekizt með öruggri stjórn að lækka reksturskostnaðinn. (Ljósm.: S. Vignir).
Heimdallur
KL. 2 e.h. í dag verður fundur I
fulltrúaráði Heimdallar í félags-
heimili V.R. — Áríðandi að full-
trúar mæti stundvíslega.
Erlendar fréttir í stuttu máii
• LUNDÚNUM, 22. jan. — For- ’ ríkisráðherrar Vesturveldanna
sætisráðherra Austurríkis sagði eru nú allir komnir til Berlínar
í ræðu í dag, að þrátt fyrir að og ætla að halda með sér fund,
Austurríkismenn litu vonaraug- áður en ráðstefnan hefst á mánu-
um til væntanlegs Berlínarfund- J dag. — Molotov er væntanlegur
ar væru þeir ekki of bjartsýnir
um árangurinn, því að þeir hefðu
orðið fyrir svo mörgum vonbrigð-
um á undan förnum árum. Utan-
Yfirkjörstjórn neitar ú breyta
framboðslista „Þjóðvarnar^
; Horfir til upplausnar í liði hennar.
VFIRKJÖRSTJÓRN Reykjavíkur hefur nú komist að þeirri niður-
stöðu að sig bresti heimild til þess að verða við ósk Bárðar Daníels-
sonar um að má nafn hans út af framboðslista hins svokallaða
,.JÞjóðvarnarfIokks.“ En eins og kunnugt er hafði Bárður óskað
þess og flokkur hans „fallist á“ þau tilmæli.
KRAFA „ÞJÓÐVARNAR" —
MÓTMÆLI ALÞÝÐU-
FLOKKSINS
Yfirkjörstjórn tók þetta mál
fyrst til meðferðar á fundi sín-
um í fyrradag. Lýstu þá umboðs-
jnenn Sjálfstæðisflokksins, Fram
SÓknar og kommúnista því yfir,
að þeir létu það með öllu afskipta
laust, hvort nafn fyrrgreinds
frambjóðanda yrði máð út af
lista „þjóðvarnar“ eða ekki. Um-
boðsmaður „Þjóðvarnarflokks-
ins“, Bergur Sigurbjörnsson,
krafðist þess hinsvegar eindregið
að nafn Bárðar Daníelssonar yrði
samkvæmt ósk hans strikað út af
F-listanum. Umboðsmaður Al-
þýðuflokksins mótmælti því
harðlega.
Yfirkjörstjórn tók á þessum
fundi ekki afstöðu til málsins en
afstaða umboðsmanna flokkanna
var bókuð.
BREYTING AÐEINS HEIMIL
EF FRAMBJÓÐANDI DEYR
í gær, kl. 6 síðdegis, kom yfir-
kjörstjórn síðan saman til fund-
ar að nýju. Kvað hún þá upp úr-
skurð sinn um málaleitan Bárð-
ar Daníelssonar. Er kjarni úr-
skurðarins á þessa leið:
„Samkvæmt síðustu máls-
grein 18. gr. laga um sveitar-
Framh. á bls. 5.
Bréfleg yfirlýsing eins af þing-
mönnum Framsóknarffokksins
Tímaklíkan notar aðstoðina við íbúða-
byggingar Reykvíkinga sem rógsmál á
hendur SjáIfstæðsflokknum út um land.
í TÍMANUM þann 19. janúar s. 1. birtist grein með þversíðu-fyrir-
sögn um að „forganga Framsóknarmanna um smáíbúðalánin hafi
veitt 400 Reykvíkingum möguleika til að byggja“. Er birt hér
mynd af þessari fyrirsögn Tímans.
Þessari yfirskrift um „forgöngu“ Framsóknarmanna væri hægt
að svara með mörgum tilvitnunum í Alþingistíðindi og önnur op-
inber skjöl, sem sýna svo ljóslega sem verða má, að þarna áttu
Sjálfstæðismenn forgönguna, en þó er miklu handhægara að vitna
beint í orð eins af þingmönnum Framsóknarmanna, Páls Zóphonías-
sonar, þar sem þætti þess flokks er lýst á einfaldan en ljósan hátt.
til Berlínar á morgun.
• FRAKKAR hafa sett lið á
land á Annam-ströndinni
Indó-Kína og hafa uppreistar1-
menn ekki veitt viðnám enn.
• FRAKKAR hafa sent spænsku
stjórninni mótmæli vegna at-
burðanna í spænsku Marokkó,
undan farna daga. — í dag
söfnuðust stúdentar fyrir fram-
an sendiráð Breta í Madrid og
kröfðust þess, að Gíbraltar yrði
sameinað Spáni.
• Varaforseti Júgóslavíu, Mil-
ovan Djilas, sem fyrir skömmu
var rekinn úr kommúnistaflokki
landsins, getur ekki komið i heim
sókn til Norðurlanda, eins og ráð
hafði verið fyrir gert. |
s
• í dag setti þrýstiloftsfluga
nýtt hraðamet á leiðinni Lund-
únir-Karthún í Súdan. — Flug-
leiðin er um 5000 km. og var
vélin 6 tíma og 24 mínútur að
fara hana. — Fyrra metið var
14 klst. og 25 mín.
NTB-Reuter. !
UMBURÐARBREF PALS
P. Z. skrifar kjósendum í N.-'
Múlasýslu gjarnan löng og ítar-
leg bréf fyrir kosningar og ligg-
ur eitt slíkt fjölritað bréf fyrir,
sem hann sendi nú á s.l. sumri.
Bréfið er margar síður á lengd.
Þar er Páll að lýsa því hvernig
Framsóknarmenn hafi hugsað um
hagsmunamál sveitanna, en alltaf
þurft að láta Sjálfstæðismenn fá
annað „í staðinn“, handa kaup-
stöðunum og þá sérstaklega
Reykjavík. í þessu sambandi seg-
ir Páll m. a.:
„-------við náðum fé í Bún-
aðarbankann, en URÐUM jafn-
framt að auka aðstreymið að
Reykjavík, með meira fé fest i
bygginga þar o. s. frv.“ (Leturbr.
Mbl.)
Þetta var þá öll „forgangan" að
dómi eins af þingmönnum Fram-
sóknar. Flokkurinn ,,varð“ að
ganga að þeim neyðarkosti að
„auka aðstreymið" að Reykjavík“
með því að ganga ekki beinlínis
á móti því að aukið fé fengizt til
húsabygginga í Reykjavík.
Skýrari yfirlýsingu er ekki
unnt að fá um hugarfar þing-
flokks Framsóknar, þegar um
það var að ræða, að fé yrði veitt
til húsabygginga í Reykjavík.
En það er ekki nóg með, að
Framsóknarþingmaðurinn greini
frá óvild Framsóknar í garð
málsins, heldur gerir hann smá-
íbúðalánin beinlínis að rógsmáll
á hendur Sjálfstæðisflokknum
meðal kjósenda á Austurlandi.
Fólki, úti um land, er aðstreym
ið til Reykjavíkur viðkvæmt mál
sem veldur því erfiðleikum, ekki
síður en Reykvíkingum sjálfum
og er því hér um hægan leik að
ræða af hálfu P. Z.
Þingmaðurinn segir nefnilega,
að fénu til húsabygginganna hafi
verið varið til þess að „auka að-
streymið að Reykjavík“. Nú er
það vitað, að byggingar í Reykja-
vík hafa á undanförnum árum
hvergi nærri fullnægt þörfum
bæjarbúa sjálfra, þó ekkert að-
streymi kæmi til greina, og þarf
ekki að orðlengja um þá firru, að
ekki þurfi eða megi byggja hús
í Reykjavík, vegna þess, að slíkt
auki aðstreymið til bæjarins.
Slík kenning, sem kemur frfci
hjá P. Z., að halda ætti Reykvík-
ingum í heljarklóm húsnæðis-
skortsins með því að veita þeim
ekki fé til bygginga, til þess eins
að varna því, að nokkur mann-
eskja gæti flutt til bæjarins, er
svo hrakleg, að um hana þart
engin orð að hafa.
Það ætti að minnsta kosti að
vera fullljóst, að slíkt og þvílíkt
samrýmist því ekki, sem „Tim-
inn“ segir, að Framsóknarflokk-
Framh. á bls 2.
lUykÞwlfc, þriMtbixetea lfc WS*.
Forganga Framsóknarmanna um smáíbúðalánin veitti
400 Reykvíkingum möguleika til að byggja
i
í byggingar þar o.s.sfrv
Efri myndin er af forsíðufyrirsögn Tímans um „forgöngu“ Framsóknar um smáíbúðalánin, en
neðri myndin er af kafla úr bréfi framsóknarþingmannsins, sem segir að flokkur sinn hafi verið
þvingaður til að vera ekki á móti lánum til húsbygginga í Reykjavík.