Morgunblaðið - 11.02.1954, Side 8

Morgunblaðið - 11.02.1954, Side 8
MORGdNBLAÐIÐ Fimmtudagur 11. febr. 1954 Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavfk. Framkv.stj.: Sigfúa Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgöarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurfiur Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, simi 3049. Auglýsingar: Árni Garfiar Kristlnsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreifisU. Austurstræti 8. — Sínii 1600 Askrrft&rgjald kr. 20.00 á mánuði Inrianlands. í lausasölu 1 krónu eintakifi. Hvar er nu 300-800% framleiðsluauknmgini? ÚR DAGLEGA LÍFINU KOMMÚNISTABLAÐIÐ hér skýrði frá því fyrir nokkru að forseti rússneska verzlunarráðs- ins het'ði skrifað grein í rússneska tímaritið „Nýr sannleikur!!“ Þar sagði hann að Sovétríkin væru reiðubúin að kaupa vörur í Vest- urlöndum fyrir 260 milljarða kr. (260,000,000,000,00 kr.) á næstu þremur árum. Jú, vestrænar þjóðir hafa orðið þess varar að undanförnu að Rússar eru reiðubúnir að kaupa. Skyndilega með einu vald- boði hefur stíflu verið hleypt úr fljóti og umboðsmenn Rússa ganga um öll lönd og bjóðast til að kaupa og kaupa. Það er að visu fátt, sem Rússar geta boðið í staðinn svo að þess í stað hafa þeir flutt geysimikið magn af gulli á markað til Vestur-Evrópu. Hefur gullið „þessi auðvalds- málmur“ eins og kommúnistar kalla hann, nú komið í góðar þarfir fyrir ,öreigaríkið“!! ★ Þa3 er rétt að athuga lítið eitt nánar, hvaða varning Rússar kaupa aðallega í Vest- urlöndum: Við sjáum þá, að það er sama sagan allsstaðar. Þeir kaupa matvæli og fatnað. Af íslendingum kaupa þeir fisk í tali tugþúsunda tonna. Af Dönum kaupa þeir land- búnaðarafurðir, af Argentínu- mönnum kaupa þeir korn og af Bretum kaupa þeir stór- vírkustu matvælaframleiðslu- tæki. sem þekkjast, — togara. ★ Þannig kaupa Rússar nú urn gervallan heim matvæli eða mat- vælatæki fyrir tugi og hundruð milljarða króna. Það er ekki vit- að til að þessi auknu matvæla- kaup Rússa í Vestrænum lönd- um stafi af neinni tilfærslu, að Rússar séu að hætta að kaupa matvæli í öðrum löndum. ★ Hvernig stendur þá á þessu. Hafa ekki rússneskar hag- skýrslur og blað kommúnista hér á landi, án afláts skýrt frá því að matvælaframleiðslan í Rússlandi sé að aukast um 300—800%. Væru þessar rúss- nesku hagskýrslur réttar ættu Rússar nú að framleiða tals- vert meiri matvæli en þeir sjálfir hafa þörf fyrir. Sam- kvæmt hagskýrslunum ættu þeir að geta séð öllum heim- inum fyrir matvælumH ★ En Rússland og rússneska þjóðin er annað og meira en pennastrik á línuritum og hag- skýrslum. Rússneska þjóðin er staðreynd, sem valdhafarnir í Moskva verða að reikna með að sé til í holdi og blóði. Hún þarf sitt viðurværi til þess að lifa. Um langt árabil hefur það vér- ið ljóst, að rússneska þjóðin hef- ur búið við mjög þföngan kost. Þar hefur verið stórkostleg van- framleiðslukreppa, svo að nálgazt þefur hungur. Valdhafarnir hafa algerlega skellt skollaeyrunum við þessu og barið niður óánægju fólksins með sívaxandi kúgun. í upplausninni í Rússlandi s. 1. ár varð kurr fólksins svo mikill að hinir nýju valdhafar óttuðust að sjóða myndi upp úr. Og því eru matvælakaupin aukin. Hvernig sem á þetta er litið geta menn ekki gengið fram- hjá því, hvort sem þeir eru kommúnistar eða ekki, að þessi stórkostlegu matvæla- kaup Rússa í öðrum löndum eru sönnun þess að á undan- t förnum árum hlýtur að hafa verið gífurlegur matvælaskort ur í Sovétríkjunum. Við vit- um það um leið að þetta hung- ur þjóðarinnar hefur verið á- kveðið og fyrirskipað blákalt af valdhöfunum. Nú um stund- arsakir hafa valdhafarnir ákveðið að bæta skuli úr skort inum en þjóðskipulag marx- ismans er slíkt að hvenær sem er, fyrr en varir geta þessir sömu valdhafar fyrirskipað I með einu pennastriki að rúss- neska þjóðin verði enn á ný að herða á sultarólinni. Tveir flokkar — fveir bæjarstjórar!! FYRIR bæjarstjórnarkosningarn- ar lýstu Alþýðuflokksmenn í Hafnarfirði hátíðlega yfir, að ef þeir töpuðu meirihluta sínum í bæjarstjórn myndu þeir aldrei ganga til samvinnu við kommún- ista, þó að þeir hefðu oddaað- stöðu. Kosningadagurinn leið og úr- slitin urðu kunn. Alþýðuflokkur- inn hafði í fyrsta skipti í áratugi glatað meirihluta sínum í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar. Sjálfstæð- ismenn fengu nú jafnmarga bæj- arfulltrúa og hann en kommún- istar vógu salt á milli hinna tveggja aðalflokka. Þá hófst stríðið milli andans og holdsins innan Alþýðuflokks- ins í Hafnarfirði. Annarsvegar voru yfirlýsingarnar frá kosn- ingabaráttunni, um að aldrei skyldi unnið með kommúnistum. Hinsvegar hin sterka þrá eftir að halda völdunum og geta hald- ið áfram að skipa í stöður og embætti. Og gat nokkur, sem þekkir sögu Alþýðuflokksins á íslandi, hins mikla bitlingaflokks, verið í vafa um hver niðurstaðan yrði? Áreiðanlega ekki. i Niðurstaðan varð svo sú, að kratarnir í Hafnarfirði sömdu við kommúnista um stjórn bæjarins. Tveir bæjarstjórar voru kjörnir, annar krati, hinn kommúnisti. Tveir flokkar — tveir bæjar- stjórar. Hvernig hefði farið ef fjórir flokkar hefðu verið í bræð- ingnum, eins og orðið hefði ef glundroðaliðið í Reykjavík hefði sigrað? Þá hefðu borgarstjórarn- ir líklega orðið fjórir!!! ÖLDUM saman hafa „úlfa- börn“ eða fósturbörn annarra dýra verið hugstætt viðfangsefni manna. Við rekumst jafnvel á efnið í goðafræðinni, sjálfur Seif- ur var fóstursonur dýrs. í bernsku nærðust þeir líka á úlfa- mjólk Rómúlus og Remus, stofn- endur Rómaborgar. Kipling vissi, hvað hann söng, þegar hann skóp Mowgli, sem' „úlfur fóstraði, slanga kenndi og1 sótti hollráð til fílsj*‘ Upphafs- maður Tarzan-ævintýranna, Edg- l/?Ö, afrorn ar Rice Burroughs, fór ekki ó- svipaðar slóðir. O—•—O ÖLD EFTIR ÖLD hafa komið fram kynjasögur um „dýrabörn“, en misjafnar eru þær mjög að gæðum og sennileik. Seinasta saga af þessu tagi er um úlfa- drenginn Ramu, sem nú dvelst ULi andi ábrij^ar: Hin nýja sambræðsla komm únista og Alþýðufloksins i Hafnarfirði mun áreiðanlega verða Hafnfirðingum hvöt til þess að herða enn sóknina fyrir hreinum meirihluta Sjálfstæðismanna í bæjar- stjórn kaupstaðarins. Al- menningur í bænum mun telja bæjarfélag sitt hafa lítinn sóma af forystu kommúnista í samvinnu við hina yfir- gangssömu afturhaldsklíku Alþýðuflokksins, sem nú hef- ur ekki lengur möguleika á að stjórna Hafnarfirði ein. Lítil saga frá Akranesi. FRÉTTARITARI Mbl. á Akra- nesi, hann Oddur, sem við öll þekkjum, hefir skrifað mér eftirfarandi: ) „Á laugardaginn var komu drengir inn til mín og spurðu mig, hvort ég vildi líta á það, sem þeir hefðu meðferðis. Ég gekk út. Voru þeir með pappa- kassa, bundinn á sendisveinshjól. Ég skygndist ofan í kassann og sá á botninum tvo gullfallega æðarblika. Það sópaði að þeim, þarna hlið við hlið á kassabotn- inum. En fjötur hafði verið lagð- ur á þessa frjálsu herra hafsins. Vængfjaðrir þeirra og búkfiður smitaði allt af olíu. Æðarfugli skolaði á land. VIÐ tókum þá í fjörunni", sögðu drengirnir, um leið og þeir lögðu af stað heim til sín. Þar þvoðu þeir blikana úr sápu- vatni, en það bar engan árangur, svo að þeir skiluðu þeim aftur niður í flæðarmál. Um daginn, í briminu og storminum, skolaði miklu af æð- arfugli á land hér á Akranesi, bæði að sunnanverðu og einnig upp í sandinn vestur í Sundi. — Voru sumir dauðir og sumir lif- andi. En alla hafði olían fjötrað. Oddur“. Frostið til viðbótar. ÞETTA er sama sagan sem hér hefur verið að gerast í ' Reykjavík að undanförnu. Vafa- laust hefur fuglinn, sem rekið ! hefur á Akranesi hrakið héðan | að sunnan, þar sem olíubrákin í kring um höfnina hefur valdið hinu mesta fári meðal sjófugl- anna. Það er víst erfitt viður- eignar fyrir okkur' mennina að gera nokkuð hér til bjargar, en hörmulegt er þetta með blessaða fuglana, ekki sízt nú, síðustu daga, þegar frostgaddurinn kem- ur til viðbótar. Don Camillo — Fernandel. HÉR er bréf frá „Gosa“. Hann hælir Don Camillo á hvert reipi, en setur út á tiltæki Nýja bíós: „Velvakandi góður! Hafir þú ekki enn séð Don Camillo í Nýja bíói, ræð ég þér og öðrum, sem ekki hafa séð þessa mynd, eindregið til að láta hana ekki fara fram hjá þér. — Þessi kvikmynd er ein hin allra skemmtilegasta, sem hér hefur sézt í langa tíð. Kvikmyndahús bæjarins ættu að kosta kapps um að fá sem flestar myndir með hinum óviðjafnanlega „leik- ara með hestandlitið“ en svo er skopleikarinn Fernandel stund- um kallaður í heimalandi sínu, Frakklandi, þar sem hann er elskaður og dáður að verðleikum — eins og reyndar alls staðar annars staðar. — Hann hefur farið sigurför um heiminn, enda þarf maður ekki annað en að sjá sem snöggvast hina elskulegu ófríðu ásjónu hans til að komast í gott skap. Hléð á skökkum stað. EN það er eitt, sem mig langar til að setja út á í sambandi við sýningu Don Camillos í Nýja bíói: Hléð um miðja myndina er á mjög svo óheppilegum stað — eða í miðri fótboltakeppninni milli flokka Don Camillos og Pepponis borgarstjóra. Eða svo var það að minnsta kosti, í þetta skipti, sem ég sá myndina. Yfir- leitt hafa kvikmyndahúsin það að reglu að hafa hléð í mynd- inni, þegar spenningur hennar stendur sem hæst og er það stundum gott þannig. Þó er það ekki einhlítt. Skemmdi skrítluna. ÞAÐ getur þvert ó móti orðið til að spilla dramatískum áhrifum myndarinnar — og þarna, í Don Camillo, skemmdi það greinilega þessa fyrirtaks- skrítlu myndarinnar — fótbolta- kappleikinn. Því að, ég fyrir mitt leyti leit á hann einmitt, sem skrítlu eða brandara, sem áhorf- andinn fylgist alls ekki með af sama spenningi og venjulegri fót- boltakeppni, þó að það ætti hins vegar greinilega við um þá Don Camillo og Pepponi sjálfa, sem stríðið stóð á milli — þeir tóku hana alvarlega. — Ég held sem sagt, að Nýja bíó hafi misskilið þetta atriði myndarinnar. Gosi“. „Lang-snúin“ fyrir „longplaying“. EG hefi fengið nýja uppástungu um þýðingu á „longplaying", orðið „lang-snúin“ — langsnúin hljómplata — langsnúnar hljóm- plötur. Áður hefur verið stungið upp á orðum eins og „seinagangs- plata“ og „langspilsplata“ o. fl. Hvað finnst öðrum um þessa nýju tillögu? Hvað er langlífi? Lífsnautnin frjóva, alefling andans og athöfn þörf. Margoft tvítugur meira hefur lifað svefnugum segg, er sjötugur hjarði. (Jónas Hallgrímsson) Ómaklegt lof og peninga- fölsun er tvennt hvert öðru skylt. í sjúkrahúsi í borginni Lucknow í Indlandi. Læknar þeir, sem drenginn stunda, eru yfirleitt á einu máli um, að Ramu sé ósvik- inn úlfadrengur. Ef til vill fæst aldrei úr því skorið til fullnustu. O—•—O MINNA má á nokkrar gamlar frásagnir af þessu tagi eins og söguna um írska drenginn, sem fæddist upp með sauðkindum. Stúlka frá Salzborg á að hafa alizt upp með svínum. Til er líka saga um dreng, sem greifingi á að hafa alið upp. íslenzkar þjóðsögur ganga ekki heldur fram hjá þessu efni með öllu. í einni segir frá umkomu- lausri unglingsstúlku, sem gekk með lömbum á afrétti sumar- langt. Sögur um verúlfa og ýms- ar álagasögur bera stundúm svipaðan keim. O—•—O ÞVÍ verður ekki neitað, að á þessari öld hafa komið fram „fósturbörn" apa og annarra dýra, en nákvæm rannsókn hefir tíðum leitt í ljós, að brögð voru í tafli. Hafa líka ýmsir kunnir menn orðið til að vefengja, að nokkur „úlfabörn" séu til og kalla slíkt hjal firru eina. O—•—O FYRIR röskum áratug var uppi fótur og fit víða um heim vegna frásagna um dreng, sem átti að hafa náðst úr úlfahópi í Mia- wanna í Indlandi. Hann gó eins og hundur og beit gras. Þegar vísindamenn neituðu, að úlfa- drengir hefðu nokkurn tíma ver- ið til, reis upp gamall brezkur liðsforingi, sem dvalizt hafði í Indlandi árum saman. Hann full- yrti, að ,,úlfabörn“ væru næsta algeng í Indlandi. O—•—O KUNNUR vísindamaður. dr. Helmuth Gottschalck, reit fyrir nokkrum árum grein um þessi mál í Kristeligt Dagblad. Kvað Kamala lepur mjólk eins og hvolpur. hann sagnir um „úlfabörn“ eiga við rök að styðjast. Segir hann, að indverskir veiðimenn og skóg- arhöggvarar hafi oftsinnis fundið þessi börn í frumskógunum. Flest þeirra hafi fundizt í Oudh-héraði. Þar er loftslag hagstætt. Bent er á það í greininni, að ýmis stór dýr eins og úlfar og apar séu ekki hrædd við ungbörn. Auk þess eru margar mæður áfjáðar í að ganga ungum annarra dýra í móðurstað. Börn hverfa svo að hundruðum þúsunda skiptir inn í frumskógana, og ekki er frá- leitt að hugsa sér, að einhver þeirra haldi lífi í fóstri hjá úlf- um, baviönum og öðrum villi- dýrum. O—•—O STÚLKAN Kamala er flestum „úlfabörnum kunnari. Hún lifði til 1929. Prestur í Midnapore ól önn fyrir henni. Hún tók upp mannasiði, en lagði þó ekki nið- ur ,,úlfsýlfrið“ þrisvar á sólár- hring, kl. 22, 1 og 3. Bergen Evans prófessor hefir manna skarplegast gagnrýnt sög- ur um ,,úlfabörn.“ Kemst hann m. a. svo að orði í bók sinni: Náttúrufræði heimskunnar, að úlfar séu gersneyddir allri kímni, „þeir hafa yfirleitt ekki áhuga á neinu öðru en hráu kjöti“. En prófessorinn er líka kunnur a£ að vera mikill efasemdarmamur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.