Morgunblaðið - 12.02.1954, Page 16
Veðurúflif í dag:
Allhvass eða hvass A. og SA.
Rigning öðru hverju.
Iðnmáfasfefnunin
Sjá grein á blaðsíðu 9.
35. tbl. — Föstudagur 12. febrúar 1954.
Sjómannafélög úfi á landi
ekki mólfallin neyðarráð-
sföfununum vegna fegaranna
fcncjin breyfing enn á afsföðu Sjómaimafél. Rvíkur
ENN hefur stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur ekki endurskoðað
«fstöðu sína gagnvart andstöðu sinni við að færeyskir sjómenn verði
láðnir á togarana vegna manneklu. — Aftur á móti hafa sjómanna-
íélög í þrem kaupstöðum, þar á meðal í Hafnarfirði, ekki snúizt
gegn þessari neyðarráðstöfun vegna togaraútgerðarinnar í landinu.
f HAFNARFIRÐI, NESKAUP-
STAÐ OG SEYÐISFIRÐI
Hin fjandsamlega afstaða
stjórnar Sjómannafélags Reykja-
víkur verður enn furðulegri eftir
að kunnugt varð að Sjómannafé-
lag Hafnarfjarðar, sem haft hefur
írá-öndverðu - mjög nána sam-
vinnu við Sjómannafélag Reykja-
víkur hefur ekki samþykkt mót-
atgerðir gegn togaraútgerðinni
þar syðra. Auk Hafnarfjarðar
hafa sjómenn í Neskaupstað og
austur á Seyðisfirði, ekki gert
samþykktir er leggi bann við því,
að Færeyingarnir fái að starfa á
togurum þeím, sem gerðir eru út
frá þessum kaupstöðum.
Sjómannafélagsstjórnirnar í
þessum bæjum, munu ekki hafa
viljað taka á sig þá ábyrgð, sem
hlýtur af því að leiða, að snúast
öndverðir gegn ráðstöfun, sem
gerð er í neyðartilfelii tii að geta
haldið togaraflotanum á veiðum
út nýbyrjaða vetrarvertíð. Ráðn-
ing Færeyinganna er bundin við
það tímabil.
Islenzkt og sænsk! kvik*
myndafélag vinna samsn að
kvikmyndun Söfku Völku
UM ÞESSAR mundir berast góðar fregnir um að fremstu rithöf-
undar okkar íslendinga hljóti viðurkenningu erlendis með því að
«crlend kvikmyndafélög telja skáldsögur þeirra góðar til kvikmynd-
unar. Fyrir nokkrum dögum var skýrt frá því að þýzkt kvikmynda-
félag hefði ákveðið að kvikmynda skáldsögu Kristmanns Guð-
jnundssonar, Morgun lífsins. Og nú berast fregnir af því að sænskir
kvikmyndatökumenn séu væntanlegir hingað til lands í næstu viku
til að leggja síðustu hönd á undirbúningin að kvikmyndun Sölku
Völku eftir Halldór Kiljan Laxness.
Alþingi kemur sam-
an 9. ofeí. n. k.
í DAG afgreiddi Alþingi sem lög
’rumvarp um samkomudag reglu
egs Alþingis 1954. — Samkvæmt
jví kemur reglulegt Alþingi sam-
>n til fundar 9. okt. n. k. hafi
'orseti íslands eigi tiltekið ann-
n samkomudag fyrr á árinu.
Samkvæmt. áður gildanai lög-
tm átti reglulegt Alþingi að
;oma saman 15. febrúar. Sýnt er
ið þessu þingi er nú stendur
/éfðúr ekki lokið fyrir þann tíma
ag ber því nauðsyn til að ákveða
nnan samkomudag.
Frú Guðrúr. Jónasson, íormaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvatar
afhendir frú Auði Auðuns, forseta bæjarstjárnar Reykjavíkur gjöf-
ina frá Hvatarlconuin. — (Ljásm. Pétur Thomsen).
Fjöl mennuriundur
Hvatar s.l. miðvihudag
Frú AuSur Auðuns, íorseti bæjar-
stjómor hyilt á fmi(!mum
S.L. MIÐVIKUDAGSKVÖLD hélt Sjálfstæðiskvennafélegið Hvöt
fyrsta fund sinn eítir kosningasigurinn. Á fundinum talaði m. a.
frú Aðurur Auðuns, forseti bæjarstjórnar, og var frúin óspart hyllt
af fundarkonum, sem voru mjög fjölmennar.
Þorsleins
SANDGERÐI. 11. febr. — Rjörg-
unarsveit Valdimars Björnssonar
sem unnið hefur að því að koma
m.b. Þorsteini frá Dalvík á flot,
tókst að koma undir hann sliskj-
um í dag. Vonir standa til, að
hægt verði að draga bátinn á
flot i kvöld á flóðinu. Þorsteinn
rak upp fyrir viku síðan í álands-
veðri Ans og kunnugt er.
í gær voru allir bátar á sjó
hér og var afli þeirra frá 7—10
smálestir AHur aflinn sem barsc
á land í gær var tekinn til fryst-
ingar. —Axel.
Guðlaugur Rósinkranz, for-
rnaður kvikmyndafélagsins Eddu
skýrði Mbl. frá þessu í gær. En
liið íslenzka kvikmyndafélag
Edda og sænska kvikmyndafélag
íð Tonefilm hafa samstarf um
töku kvikmyndarinnar Sölku
Völku.
EOMA í NÆSTU VIKU
Kvikmyndatakan hefur verið
lengi í undirbúningi og í næstu
viku kemur hingað til lands kvik
myndastjórinn Arne Mattsson
ásamt þremur tæknileeum ráðu-
nautum, til þess að ganga endan-
lega frá undirbúningi kvik-
myndatökunnar. Seinni hluta
marz-mánaðar koma hingað kvik
myndatökumenn til að taka vetr-
armyndir og upp úr miðjum
maí-mánuði koma kvikmynda-
Jeikararnir og verða hér fram í
júlí-byrjun.
Undirbúningi í Stokkhólmi er
íúnnig lokið. Hefur verið komið
þar upp baðstofu og fleiri inni-
myndum og er byrjað að taka
próffilmur.
AÐALHLUTVERKIÐ
Einnig er ákveðið til fullnustu
hvaða leikendur fari með hlut-
yerkin. Því miður getur hin
íræga sænska leikkona Maj Britt
Nilsson ekki tekið að sér hlut-
verk Sölku Völku, vegna þess að
hún er upptekin við Vasa Teat-
ern. En í það hlutverk hefur ráð-
fiastr sænska leikkonan Gunnel
Broström, sem undanfarið hefur
leikið í Hollywood.
Kvikmyndin verður tekin í
Grindavík, Kjalarnesi og á Vest-
f;jörðum. En Arne Mattsson er
••inn kunnasti* kvikmyndastjóri
íyvía. M. a. stjórnaði hann töku
itvikmyndarinnar ,,Sumardans“
•og „Kárlakens Bröd“, en síðar-
pefnda myndin fjallar um árás
Rússa á Finnland veturinn 1939
—40. '
HaJIdór Kiljan Laxness
FLEIRI KVIKMYNDIR
Hið íslenzka kvikmyndafélag
Edda, sem hefur haft forgöngu
um að Salka Valka er kvikmynd-
uð að þessu sinni, hefur í hyggju
að láta kvikmynda fleiri skáld-
verk íslenzkra rithöfunda í sam-
ráði við Tone-Film. — Ekki
er samt enn afráðið hvaða
skáldsögur verða næst tekn-
ar til meðferðar. — Salka
Valka er ein vinsælasta skáldsaga
Halldórs Kiljan Laxness og les
höfundur hana nú sem framhalds
sögu i útvarpið.
Rómaborg. — Blað í Rómabarg
skýrir frá því, að Svíar hafi boð-
izt til að senda Píusi páfa nýtt
lyf, sem á að vera öruggt við
iiiksta. .
Eftir að formaður Hvatar, frú
Guðrún Jónasson, hafði sett fund-
inn og mælt nokkur orð til fund-
arkvenna og þaljkað þeim dyggi-
lega aðstoð þeirra í kosningun-
um, tók frú Auður Auðuns til
máls.
Þakkaði hún Hvatarkonum vel
unnið starf í kosningununum og
rakti í fáum orðum úrslit þeirra.
Benti hún á hve óheillavænlegt
það hefði verið fvrir höfuðborg-
ina, ef glundroðaflokkunum hefði
tekizt að bola Sjálfstæðismönn-
um frá stjórn brejarmálanna. —
„Samstarf“ minnihlutaflokkanna,
sagði frú Auður Auðuns, kom
bezt í Ijós við neíndarkosning-
arnar í bæjarstjórn, en þar gátu
þeir ekki komið sér saman um
neitt „ssmstarí", nema tveir
flokkar og má af því sjá, hversu
dýrkeypt það heíði verið ef Sjálf-
stæðismenn hefðu misst meiri-
hluto sinn.
Lauk frú Auður orðum sínum
með því að biðja tundarkonur
að rísa úr sætum og hrópa húrra
fyrir höfuðborginni.
SÓMI Í3LENZKRÆ KVENNA
Þá tók frú Guðrún Jónasson
til máls. — Þakkaði ’nún frú Auði
Au.ðuns vel unnin störf hennar,
en Auður hefur átt sæti í bæj-
arstjórn Reykjavíkur s.l. 6 ár.
Nú hefði Auði verið sýndur sá
verðskuldaði sómi að vera kosin
forseti bæjarstjórnar Revkjavík-
ur og væri hún fyrsta íslenzka
konan, sem þeirri sæmd yrði að-
njótandi.
Því næst íærði irún :’rú Auði
forkunnarfagran bréfhníf úr
silfri frá Sjálfstæðiskvennafélag-
inu Hvöt, en á hnífnum er mynd
af Ingólfi Arnarsyni, fyrsta land-
námsmanni íslands.
Frú Auður þakkaði gjolfina og
mælti hvatningarorð til íslenzkra
Sjálfstæðiskvenna, og sagðist
vona að sem flestar konur myndu
í framtíðinni verða vajdar til þess
að gegna trúnaðarstörfum fyrir
bæjarfélagið og ríkið.
FJÖRUGUR FUNDUR
Að því búnu las frú Soffía Ól-
afsdóttir, ritari Hvatar upp
kvæði, þá var leikþáttur, sem þær
Emelía Jónasdóttir, Áróra Hall-
dórsdóttir og Nína Sveinsdóttir
fluttu. — Að lokum var stiginn
dans og skemmtu fundarkonur
sér hið ’bezta.
Vísllölur ébreyitar
KAUPLAGSNEFND hefur reikn
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. febr.
s. 1. og reyndist hún vera 158
stig.
Ennfremur hefur kauplags-
nefnd reiknað út kaupgjalds-
vísitölu fyrir febrúar, með til-
liti til ákvæða 3. mgr. 6. gr.
laga nr. 22/1950, og reyndist hún
vera 148 stig. — Eru vísitölurnar
óbreyttar frá því sc'.i áður var.
Fulltrúi LÍÚ far-
inn íil aS ráða
Færeyinga
STJÓRN Sjómannafélags Reykja
víkur mun ekki hafa hreyft mót-
mælum eða sett fram kröfur um,
að færeyskir sjómenn verði ráðn-
ir á bátaflotann. Einnig þar er
hörgull á mönnum til starfa, þó
ekki muni manneklan vera eins
alvarleg og á togaraflotanum.
í gær fór til Færeyja á vegum
Landssambands ísl. útvegsmanna
Baldur Guðmundsson, formaður
Útvegsmannafélags Reykjavíkur.
í Færeyjúm á hann að hafa með
höndum ráðningar á bátaflotann.
HAFNARFJORÐUR
I iá.14
m & w
fliÍ4i Hi'
mtmfwm
m m. hé m
$
VESTMANNAE Y J AR
15. leiknr Hafnfirðinga:
J Hf8—f7
Stúdentafélagið ætlar
að halda gríimidansleik
STÚDENTAFÉLAG REYKJAVÍKUR hefur ákveðið að efna til
grímudansleiks stúdsnta á sprengidaginn, 2. marz n.k. Er þetta í
fyrsta skipti sem Stúdentafélagið heldur grímudansleik, og skemmti
leg nýbreytni að því.
Grímmlansleikurinn ver5-
ur haldinn í Sjálfstæðishús-
inu og rm:nu ýmis skemmti-
atrl'Si verða þar með líku
sniði og á kvöldvökum félags-
ins, þó að því breyttu að allir
skemmtikraftar verða að
sjáifsögðu grímuklæddir og ó-
þekkjanlegir.
Þar sem hér er um ný-
breytni að ræða og alltaf þarf
nokkurn undirbúning bæði
samkomugesta og fclagsins
með skreytingum o. fl. við
svo veglegt hóf, sem grímu-
dansleikir eru, þá hefur verið
ákveðið að láta áskriftalista
liggja frammi í bókaverziun
Sigfúsar Eymundssonar og á
Stúdcntagarðinum. Geta þeir
sem hafa í hyggju að koma á
grímudansleikinn skrifað sig
á listana fram til n.k. fimmtu-
dags.