Morgunblaðið - 05.03.1954, Page 12
12
MORGVTSBLAÐIÐ
Föstudagur 5. marz 1954
-Noregsbréf
Framh. af bls. 9.
samari um lausn deilunnar nú,
eftir að hún sá að hugur fylgdi
máli hjá kennurunum. Hlutað-
eigandi aðilar eru nú á samninga-
fundum og er búizt við því, að
lausn fáist eftir viku — í fyrsta
lagi.
Um njósnamálið er öllu haldið
leyndu, en rannsókn heldur
áfram og fjöldi manns hefur ver-
ið yfirheyrður, auk þeirra sem
sitja í gæzluvarðhaldi. Rússneska
sendiráðið í Osló hefur sent utan-
ríkisráðuneytinu kæru yfir því að
starfsmaður þess, Mesjevitinov,
sem hafði samband við aðalmann-
inn, sem handtekinn var fyrir
njósnir, hafi orðið fyrir hótunum
af hálfu Asbjörns Bryhns, yfir-
manns njósnalögregludeildarinn-
ar, sem hefði ráðlagt honum að
hypja sig úr landinu. Utanríkis-
ráðuneytið hefur svarað því að
ásökunin um hótunina sé röng,
en hins vegar furði það sig á því,
að starfsmaður sendiráðsins skuli
hafa haft mök lengi við menn,
sem nú séu undir ákæru fyrir
njósnir. Aðeins einn af þeim tólf,
sem settir voru í gæzluvarðhald,
hefur verið látinn laus aftur.
Vorsíldarveiðin hefur gengið
vel til þessa, þó að uppgripin séu
ekki eins mikil og af vetrarsíld
inni. Heildaraflinn af vetrarsíld
varð 9.639.455 hektólítrar, þar af
2.4 milljón hl. síðustu vikuna, en
hefur orðið mestur áður 6.746.000
hl. — árið 1951. Heildaraflinn
1951, sem var metár í síldveíð-
um, varð 9.548.000 hl. Hefur vetr-
arsíldaraflinn einn farið fram úr
metafla vetrar- og vorsíldarafla
samtals. — Þorskveiðarnar í Ló-
fót hafa hins vegar gengið heldur
stirt hingað til, eins og í fyrra.
Skúli Skúlason.
— Úr daglega lífinu
Framh. af bls. 8.
ört sem þeir gátu glös sín tæmt.
Gestunum var fylgt um anda-
lausa röð herbergja og sala í
Torloníahöllinni. Meðal veizlu-
gestanna voru konungar, greifar
og ríkiserfingjar víða að.
Sandras hefur nýlokið námi í
Englandi — og orðrómurinn segir
að hinn umtalaði konungur
Belgíu, Baudouin hafi tvívegis
heimsótf hina fögru 18 ára mey
— á laun.
- Passíusálmar
Framh. af bls. 11.
fer fram föstumessa að venjuleg-
um hætti í kirkjunni. Kvöidbæn-
in varir að jafnaði ekki lengur
en 20 mínútur.
______________Sbj. E.
-SagaV-íslendiitp
Framh. af bls. 8.
hvernig þeir námu land, byggðu
sér bjálkakofa en jukust síðan að
íþrótt og frægð, samlöguðust öðr-
um landnemum og hafa komið á
hjá sér allskonar menningarstofn
unum. Bókin kostar 3 dollara og
75 cent í Ameríku.
HJÖRTUR PJETURSSÚW
cand. oecon,
löggiltur endurskoðandi.
HAFNARVOLI — SlMI 3028.
Kindabjúgu — svið.
|j|
íSíiu/extút
KAÍLASKJÓLI 5 • SÍMI 82243
f Irognkelsaveiði að Iiefjast
HÚSAVÍK, 4. marz. — Um síðustu helgi gerði mikla fannkomu
hér norðanlands. Gerði svo mikla ófærð, að mjólkurbílar komust
ekki til Húsavíkur nema úr þeim sveitum, sem næst liggja.
Vegir í Mývatnssveit og í J
Reykjadal tepptu§t alveg á laug-
ardag og sunnudag, en á mánu-
daginn brutust nokkrir bílar það-
an með mjólk til Húsavíkur.
GÖTUR Á HÚSAVÍK
ÓFÆRAR
Miklir skaflar eru hér í kaup-
staðnum ,og eru göturnar ófærar
bílum. Aðalgata bæjarins, Garð-
arsbraut, er eina gatan sem um-
ferð hefur ekki stöðvast á í snjóa-
kastinu.
HROGNKELSAVEIÐI
AÐ HEFJAST
Hrognkelsaveiði er nú að hefj-
ast hér, en hún er stunduð hér
á hverju vori. Veiði hefur ekki
verið mikil ennþá, enda illmögu-
legt að láta netin liggja nema
stuttan tíma í einu vegna ótíðar.
- Kaffið
Framh. af bls. 1.
við. Hinsvegar gaf hún ekk-
ert loforð um það, að kaffi-
verðið skyldi alltaf haldast ó-
breytt, hvað sem gerðist á
heimamörkuðunum.
BLEKKINGAR
„ÞJÓÐVILJANS"
Þegar á þetta er litið verður
það auðsætt, að þegar „Þjóðvilj-
inn“ ber það á ríkisstjórnina í
gær, að hækkun kaffiverðsins sé
svik á samkomulaginu um lausn
verkfallsins veturinn 1952, þá er
það fullkomin blekking. Hækkun
kaffiverðsins er ekki frekar svik
á þessu samkomulagi en lækk-
un sykurverðsins er það. Ríkis-
stjórnin hét því aðeins að lækka
verð þessara vara með því að
fella niður tolla af þeim. Við það
loforð hefur hún staðið.
Geir Hallgrímsson
héraðsdómslögmuSur
Hafnarhvoli — Reykjavík,
Símar 1228 og 1164.
Annars er útlit fyrir góða hrogn-
kelsaveiði í vor ef gæftir verða.
SELVEIÐI
Talsvert hefur orðið vart við
sel hér upp á síðkastið. Er það
mest vöðuselur. Mun selveiði
einnig fara að hefjast hér, en hún
hefur undanfarin ár talsvert ver-
ið stunduð.
Bátar hafa lítið farið á sjó
þessa dagana, en þegar gefur, hef
ur afli verið góður. Trillubátar
hafa aflað allt að þrem tonnum
í róðri, þegar þeim hefur gefið
á sjó. — Fréttaritari.
Járnbraufarslys
í Pýrenafjðllum
SÍÐASTLIÐINN mánudag vildi
það slys til í Pýrenafjöllum, að
lítil fjallalest sem flutti skíðafólk
fór út af sporinu og hrapaði niður
í 500 metra djúpa gjá. Járnbraut-
arlestin var stödd í 1320 metra
hæð, þegar slysið varð. Nokkrir
farþeganna reyndu að kasta sér
út um glugga lestarinnar, þegar
hún tók að renna niður gjána,
en klemmdust við það milli lest-
arinnar og gjárveggsins, en gjáin
var mjög þröng, og biðu bana.
Leitarflokkar hafa unnið dag og
nótt við að leita hinna látnu og
slösuðu á gjárbotninum. Átta lík
hafa fundizt. Mjög erfið aðstaða
er til björgunar, þar sem kola-
myrkur er í gjánni og verður því
að nota Ijós við leitina. Slasað
fólk verður að bera á handbörum
langar leiðir til næsta sjúkrahúss.
Járnbrautarlest þessi var tann-
hjólalest, en þær eru mikið not-
aðar í fjöllunum til þess að flytja
skíðafólk þar sem mikill bratti
er í fjöllunum.
Fer til Bandaríkjanna.
AÞENA — Kanellopoulos, land-
varnarráðherra Grikkja, er lagð-
ur á stað í ferð til Bandaríkjanna,
þar spm hann mun ræða við
bandaríska hermálafulltrúa um
hervarnir Grikklands.
Ilf hárgreiðslustofa
Hefi opnað nýja hárgreiðslustofu að Laufásveg 2
(áður Lotus) sími 5799 — 5799.
Sigurbjörg Sveinsdóttir.,
IMauðungaruppboð
það, sem fram átti að fara í dag á hluta í eigninni
Skaftahlíð 9 hér í bænum, eign Hallgríms Hanssonar,
fellur niður.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík.
HLJÓMLEIKAR:
TANNER SYSTUR
K. K. SEXTETTliW
MUNNHÖRPUTRBÓIÐ
i •
l í Austurbæjarbíói
í kvöld
kl. 7 og 11,15
1
I
Aðgöngumiðasala
1
í Músikbúðinni,
Hafnarstræti 8 og ;
!■'
H
Austurbæjarbíói.
' M
Gömlu dansarnir
f kvöld klukkan 9.
Dansstjórar Sigurður Jörgensson og
Árni Norðfjörð
AÐGANGUR 15 KR.
9
GömBu dansarnir
BRHflRÐINGA^'é
í kvöld kl. 9.
IHjómsveit Svavars Gests. Söngvari Sigurður Ólafsson.
Dansstjóri Baldur Gunnarsson. — Aðgöngumiðar frá kl. 7.
Ársháfíð
Félags íslenzkra
hl j óðf æraleikara
verður haldin mánudaginn 8. marz kl. 6,30 e. h. í
Tjarnarcafé. — Félagsmenn vitji aðgöngumiða í
skrifstofu félagsins í dag og á morgun frá kl. 3—5.
NEFNDIN
MARKtl Ríttr H DtM
VHAt a wondebíjl bpeak...
Vi,EV CAN'T SMOOT AWOTHEE
FOOT OP FILM WITHOUT
'OH, HELLO, MISS GWEN...I'M
OM MV WAV TO PICK UP VOUE
FATHER AND MOTHEC2/
SADDLE UP CHAPM ANO
HEE ISI HEP. STALL
YOU GO, MACK...I WANT
CIDE AS SOON AS I
CHANSE CLOTl
? r . .
■^ÍAkJ. A.
. ■, v.. oSIi
• ?? .' v'ú•/ |
1) — Hvílík hundaheppni. Þeir
geta ekki tekið eina einustu
mynd, þegar linsan er týnd.
^jiJmsss:3É^MÉm
2) — Nú er allt í lagi. Nú geta I 3) — Ungfrú Gyða. Ég er að
þeir ekki lokið kvikmyndinni. fara niður í bæ að sækja pabba
'þinn og mömmu.
— Legðu reiðtygin á Glað. Ég
ætla að fara í útreiðartúr strax
og ég er búin að skipta um föt. ,