Morgunblaðið - 16.03.1954, Page 4
1
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 16. marz 1954
I Komb. Trjésmíðavélar
Útvegum með stuttum fyrirvara allar tegundir af tré-
smiðavélum, sambyggðar og sérbyggðar frá Danmörku
og Þýzkalandi.
Fyrirliggjandi: Varahlutir í flestar teg. trésmíðavéla.
LUOVIG STORR & CO-
Keftvíkingar!
Tízkusýning verður þriðjudags- og miðvikudagskvöld
kl. 9 í Bíókaffi. Aðgöngumiðar á sama stað.
Sýndir verða kjólar, dragtir og annar kvenfatnaður
frá verzluninni Bezt, Vesturgötu 3. Reykjavík.
Hattar frá Hattabúð Reykjavíkur, Laugavegi 10
Hárgreiðslu og snyrtingu annast snyrtistofa
frú Idu Jensson, Keflavíkurflugvelli.
i
Hiismæðrafélag Heykjavíkur
heldur fund miðvikudaginn 17. þ m. kl 8,30 e. h. í Borg-
artúni 7. — Rædd verða ýihs áhugamál heimilanna.
Sjúkrasamlagið — Kjötið
heimsending o. fl.
Avextirnir — Mjólkur-
Húsmæður mætið, og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
Æ
IHIKIL VEiMMUN
k GIPSONIT-ÞILPLOíHM
Sökum þess að Gipsonit-þilplötur eru nú ekki lengur
á bátalista hefir orðið veruleg verðlækkun á þeim. —
Gipsonit-þilplötur, sem áður kostuðu kr. 85.00, kosta nú
kr. 67,10. Lækkunin nemur því 21%.
Gæði Gibsonit-þilplatnanna eru alveg óbreytt. Þær
eru eldtraustar, veita mikla einangrun gegn kulda, eru
hljóðeinangrandi og breyta sér ekki við breytingar á
rakastigi Ioftsins. Þær eru pappaklæddar beggja vegna,
undir málningu eða veggfóður.
Þær eru mjög auðvcldar í notkun og geta því
ófaglærðir menn auðveldlega unnið við uppsetn-
ingu þeirra.
Þeir, sem ætla að nota þilplötur til einhverskonar inn-
réttinga eða breytinga ættu að kynna sér kosti Gipsonit-
þilplatnanna.
Leiðarvusir á íslenzku um notkun Gipsonit-
þilnlatnanna fæst í skrifstofunni. Sendur út á
land í pósti, ef óskað er.
Verksmiðjan hefur nú einnig hafið framleiðslu á götuð-
um hljóðeinangrunarplötum í loft og á veggi.
PÁLL ÞORGEIRSSON
Laugavegi 22 — Símí 6412.
— Dagbék
Kjöfskorlur Hannibals
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur að undanförnu kvartað sáran yfir kjöt-
skortinum, og er svo að sjá að hann komi einkum þungt niður
á flokksforustunni.
I
1
Málgagnið hans Gylfa er löngum laglegt blað, j
þótt lesendanna hópur sé víst knappur.
Svo virðist sem það kenni nú kjötskorti um það,
hvað kempan Hanníbal er orðinn slappur.
4
Já, sárt ég kenni í brjósti um slíkan heiðursmann, I
og samúð minni lýsa þessar vísur. I
En getur ekki l'Iokkurinn fiskað nóg í hann?
Hann fæst þó löngum við að draga ýsur. B.
I dag er 75. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 3,49.
Síðdegisflæði kl. 16,16.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki, sími 1618.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni,' sími 5030.
□ EDDA 59543167 — 1.
RMR — Föstud. 19.3.20. — VS
— Atkv. — Hvb.
I.O.O.F. = Ob. = IP. =
1353168%
n------------------------□
. Veðrið .
í gær var hæg breytileg átt um
land allt, léttskýjað norðanlands
og austan, en þoka suðvestanlands.
1 Reykjavík var hiti 5 stig kl.
14,00, 7 stig á Akureyri, 6 stig á
Galtarvita og 6 stig á Dalatanga.
Mestur hiti hér á landi í gær kl.
14,00 mældist 9 stig á Kirkjubæj-
arklaustri og kaldast 3 stig í
Stykkishólmi.
1 Londorí var hiti 4 stig um há-
degi, —- 3 stig í Höfn, 6 stig í
París, 0 stig í Osló, 2 stig í Stokk-
hólmi og 8 stig í Þórshöfn í Fær-
eyjum.
□ ---------------------D
• Bruðkaup •
Á sunnudaginn voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Árelíusi
Nielssyni ungfrú Esther Sighvats
dóttir og Kristján Jónsson. Heim-
ili þeirra er að Langholtsvegi 204.
Nýlega hafa verið gefin saman
í hjónaband af séra Árelíusi Níels-
syni ungfrú Rannveig Magnús-
dóttir og John Brink. Heimili
þeirra er að Karfavogi 42.
Ennfremur nýlega ungfrú
Þuríður Fanney Sigurjónsdóttir
og Hallriór Karlsson trésmiður.
Heimili þeirra er að Grettisg. 84.
Einnig af' séra Árelíusi s. 1.
laugardag ungfrú Margrét Þor-
björg Jafetsdóttir og Óskar Óiafs-
son. frá • Hurðarbaki, Hvalfirði.
Heimili þeirra er að Skipasundi 39.
Ennfremur sama dag ungfrú
Elín Þórunn Malmquist og War-
ren H. Smith frá Long Island,
New York. Heimili þeirra verður
í New York.
Ennfremur sama dag ungfrú
Sessel.ja Þóra Veturliðadóttir,
Langholtsvegi 106, og Glenn Cus-
ter frá Missouri. Heimili þeirra
verður: 4039 North Main Street,
Clinton, Missouri.
. Aímæli •
Þorsteinn Jónsson, kópavogs-
hæli, er 75 ára í dag, 16. marz.
75 ára er í dag Guðrún Sigurð-
ardóttir, Miðtúni 84.
65 ára er í dag Gísli Sæmunds-
son frá Ögri við Isafjarðardjúp,
nú til heimilis að Mímisvegi 2 A.
. Alþingi •
Efri deild: 1. Búnaðarbanki Is-
Drekkið TE
DREKKIÐ GOTT TE
Drekkið Mazawattce te.
Heildsölubirgðir:
H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT
Sími 82790; þrjár línur.
lands; 3. umr. 2. Skipun læknis-
héraða; 1. umr. 3. Skipun læknis-
héraða; 1. umr.
Neðri deild: 1. Kosning þriggja
fulltrúa og jafnmargra varafull-
trúa, allra úr hópi þingmanna, í
Norðurlandaráð. 2. Sala jarða í
opinberri eigu; 3. umr. 3. Fyrn-
ingarafskriftir; 1. umr. 4. Eignar-
nám, erfðafesturéttindi í Dalvík-
urhreppi; 1. umr. 5. Fuglaveiðar
og fuglafriðun; frh. 2. umr. 6.
Vátryggingarfélög fyrir fiskiskip,
2. umr. 7. Atvinna við siglingar;
2. umr.
. Flugferðir .
1 dag eru ráðgerðar flugferðir
til Akureyrar, Bildudals, Blöndu-
óss, Egilsstaða, Flateyrar, Sauð-
árkróks, Vestmannaeyja og Þing-
eyrar. Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar, Hólmavík-
ur, ísafjarðar, Sands og Vest-
mannaeyja.
Sólheimadrengurinn.
Afhent Morgunblaðinú: Þakk-
lát móðir 25 krónur. A. G. 50 kr.
Húsmæðrafélagsfundur um
áhugamál heimilanna.
Húsmæður! Munið fundinn hjá
Húsmæðrafélagi Reykjavíkur á
miðvikudaginn kl. 8,30 í Borgar-
túni 7, uppi. Þar verða rædd mörg
áhugamál heimilanna, svo sem
mjólkurheimsending, sjúkrasam-
lag, kjöt og ávextir.
Eskfirðingar-Reyðfirðingar
halda spilakvöid miðvikudaginn
L17. marz í Tjarnarkaffi kl. 8,30
síðdegis.
Ðansk kvindeklub
heldur fund í Aðalstræti 12,
uppi, í kvöld.
Félag'ið Berklavörn
Féiagsvist og dans í Tjarnar-
kaffi uppi í kvöld kl. 8,30.
Konur
í Kvenféiagi Kópavogshrepps
eru vinsamlega hvattar til þess að
taka þátt í hinu síðasta sauma-
námskeiði vetrarins, sem á að
byrja um miðjan mánuðinn.
BARIVAVAGN
Silver Cross barnavagn
(grár), vel með farinn, til
SÖlu. Góð barnakerra óskast
til kaups á sama stað. Uppl.
að Eiríksgötu 13.
ATVINNA
Ein til tvær ungar stúlkur
óskast til að sitja „modell“.
Umsækjandi þarf að vera
fallega vaxin. Góð borgun
fyrir hvern tíma. Tilboð
sendist blaðinu fyrir fimmtu
dagskvöld, merkt: „Atvinna
— 50“.
Pennavinur fyrir
húsmæður!
Blaðinu hefur borizt í hendur
bréf frá bandarískri húsmóður;
en hún óskar eftir að komast í
bréfasamband við íslenzka hús-
móður. Nafn hennar og hcimilis-
fang er: Mrs. E. Fichtner, 608
Date ave. Laurel, Montana, U.S.A,
Kvöldbænir í Hallgríms-
kirkju
verða á hverju virku kvöldi kl.
8 e. h. framvegis. (Á miðvikudags-
kvöldum eru föstumessur kl. 8,15).
Hafið Passíusálmana með.
• Útvarp •
20,30 Erindi: Ríki og kirkja Gísll
Sveinsson kirkjuráðsmaður og
fyrrum sendiherra). 21,05 Tón-
leikar Sinfóníuhljómsveitarinnar
(útvarpað frá Þjóðleikhúsinu).
Stjórnandi: Olav Kieliand. Ein-
leikari Árni Krist.jánsson. a)'
Píanókonsert nr. 4 í G-dúr eftir
Beethoven. 21,40 Passíusálmur
(26). 21,50 Fréttir og veðurfregn-
ir. 22,00 Framhald hljómsveitar-
tónleikanna í Þjóðleikhúsinu: b)'
Sinfónía nr. 6 í F-dúr (Pastoral-
sinfónían) eftir Beethoven. 22,45
Dagskrárlok.
Fimm mínúfna krossgáfa
SKÝRINGAR
Lárétt: 1 molar — 6 ennþá
— 8 skyldmenni — 10 nöldur —
12 kona — 14 óþekktur —- 15 röð
(skst.) — 16 ótta — 18 röddin.
Lóðrétt: — 2 spjót — 3 tveir eins
—4 fyrir innan — 5 sér eftir —
7 kvemannsnafn — 9 dý — 11
elska —■ 13 tónverks 16 tveir eins
— 17 bindindisfélag.
Lausn síðustu krossgátu.
Lárétt: — 1 smári — 6 Ara —
8 kór — 10 frú — 12 Akranes —
14 au — 15 FI — 16 ósk — 18
auðugra.
Lóðrétt: — 2 marr — 3 ár —•
4 Rafn — 5 skata — 7 músina
— 9 óku — 11 ref — 13 ausu —
16 óð — 17 G.G.
Rafsuðuvéi
P &II rotherandi, gengur
fyrir 220 volt 3 fasa straum,
50 rið, suðustraumur 260
amper, jafnstraumur, til
sýnis á
Raf tækjavinnustofu
HAUKS & ÓLAFS,
Mjölnisholti 14. Sími 6507.