Morgunblaðið - 04.04.1954, Page 7

Morgunblaðið - 04.04.1954, Page 7
Sunnudagur 4. apríl 1954 MORGUNBLAÐIÐ 7 A LÍKA í VERALDARSÖGUNNI GRÚNTER hershöfðingi, yfir- maður herafla Atlantshafsríkj- anna í Evrópu, komst svo að orði í okt. í haust: ,,Það er ánægju- 3egt að geta skýrt ykkur frá, að herafli okkar er nú tvisvar til þrisvar sinnum meiri en hann var, þegar Eisenhower hershöfð- ingi kom til Evrópu 1951. Mestar hafa framfarir orðið í flughern- um, sem var því miður lítils meg- andi upphaflega og veldur okkur jafnvel áhyggjum enn í dag. Útgjöld aðildarríkjanna til landvarna hafa og aukizt veru- lega. Hækkunin hefur orðið mest í Bandaríkjunum. í hinum aðild- arríkjunum hafa þau tvöfaldazt. Flest þeirra hafa lengt herþjón- ustutímann. Varnir okkar í Evrópu styðjast aðallega við vel þjálfaðan land- her. Tiltækt er og nokkurt vara- lið, sem hægt er að beita þegar, er árás hefur verið gerð. Harð- snúinn flugher er til aðstoðar. Þessi viðbúnaður ætti að gera okkur kleift að vígbúa varalið okkar. Og langfleygar vélflugur er hægt að senda til atlögu langt inn í lönd árásarþjóðanna, þar sem þær eyða iðjuverum þeirra og öðrum veigamiklum mann- virkjum. .. .“ LYKILL AÐ FRI0I Eftir seinustu heimstyrjöld höfðu lýðfæðisríkin fengið sig fullsödd af stríði. Ósk þeirra og von var sú, að Sameinuðu þjóð- irnar reyndust heilladrjúgar til að greiða friðinum götu, svo að þeir, sem unnu stríðið ynnu og friðinn. í trausti þessa lögðu lýð- ræðisþjóðirnar allt kapp á afvopn un. Bráðlega kom þó á daginn, að Rússar fóru ekki að dæmi þeirra. Herafli þeirra var í engu rýrður frá því, sem þurfa þótti á styrjaldartímum. Ekki nóg með það; þeir hófu sleitulausan áróð- ur gegn lýðræðisríkjunum, sem höfðu verið samherjar þeirra í styrjöldinni. Þeir stefndu hags- munum og áliti S. Þ. í voða með því m. a. að beita neitunarvaldi sínu eftir geðþótta. Og Rússar gengu feti framar. Eftir því sem tímar liðu fram brutu þeir Austur-Evrópuríkin undir sig hvert -á fætur öðru, gleyptu þau með húð og hári. Lýðræðisríkjunum hraus hugur við þessum aðförum. Þeim duld- ist ekki, að taka þurfti í taum- ana og það umsvifalaust eða verða að gjalti ella. Ef svo héldi áfram sem horfði, yrðu örlög Vestur-Evrópu innan skamms þau sömu og landanna fyrir aust- an járntjald. Eitthvað varð tii bragðs að taka, en það var ekki á færi neinnar einnar þjóðar að stemma stigu við ásælni herveld- isins í austri. Friðarsinnaðar þjóð ir hlutu að sverjast í fóstbræðra- lag; þar og ekki annars staðar var fólginn lykill friðarins. FYRIR 5 ÁRUM Til að sýna, að þetta eru ekki staðhæfingar úr lausu lofti gripn- ar, skal hér drepið á atriði, sem ekki verða vefengd. Fyrir fimm árum, er Atlants- hafsbandalagið var stofnað, áttu Rússar á að skipa 175 fullþjálf- uðum herfylkjum, 20 þúsund vél- fiugum og stórum kafbátaflota fyrir utan nokkurn herafla í hjá- ríkjunum. Rússaveldi var albúið til styrjaldar, svo að það hefði getað gert hættulega árás á Vest- ur-Evrópu umsvifalaust. Brússel-bandalagið, Bretland, Frakkland, Belgía, Holland og Luxemburg, var stofnað 1948. — Samanlagður herafli þess var um 10 herfylki og 400 vélflugur. Sjó- herinn var að vísu nokkuð öfl- ugur, en þó að skipakostur Brússel-bandalagsins væri skárri en Rússa, þá var sjóherinn alls ekki undir það búinn að taka á móti þeirri hættu, sem stafaði frá vélflugum Rússa, tundurdufl- um og kafbátum. IVfERKILEG ÞRÓUN Á FIMM ÁRA veigamestu mála, unz allir geta. við unað. Markmiðið er líka sama hjá. ÆVI ATftANTSHAFSBANÐALAGSIMS Palais de Chaillot í hjarta Parísarborgar, þar sem eru aöalstöðvar Atlantshafsbandalagsins. Þannig var þá umhorfs, þegnr Atlantshafssáttmálinn var undir- ritaður í Washington fyrir 5 árum eða 4. apríl 1949. Þjóðir hafa sama metnað fyrir hönd herja sinna og mæður hafa fyrir hönd barna sinna. Og á liðn- um öldum hefur enginn fengið öðrum þjóðum stjórn herja sinna nema slíkt væri knúið fram með vopnavaldi. í fyrsta skipti í ver- aldarsögunni gangast frjálsar þjóðir nú undir það af frjálsum vilja á friðartímum. Svo sérstæð er eindrægni Atlantshafsríkj- anna. Þetta hefur gert kleift að ganga frá sameiginlegum áætlunum, það hefur gert kleift að halda sameiginlegar heræfingar aðild- arríkjanna á landi, í lofti og á legi. Mönnum skyldi ekki koma á óvart, þó að í þvílíkum sam- tökum mætti fá því orkað, sem áður þótti óhugsandi. MIKLU HEFUR VERIÐ ÁORKAÐ Raunin er líka sú, að þau 5 ár, sem sáttmáli Atlantshafsríkjanna hefur staðið, hefur herafli þeirra eflzt meir en menn óraði fyrir. Engu að síður er liðsafli þeirra ónógur, og her Rússaveldis er þann dag í dag mun sterkari og eflist óðum. Enginn getur örugglega sagt fyrir um fyrirætlanir þeirra, en svo mikið er víst, að möguleikar þeirra til að hefja árásarstríð með góðum árangri hafa stórum þorrið undanfarin 5 ár. Enn hafa Rússar á að skipa 175 herfylkjum að minnsta kosti, 20 þúsund vélflugum og miklum kafbátaflota, sem þeir leggja mik- ið kapp á að auka. Þó að þessar tölur sýni ekki aukningu þetta 5 ára skeið, hefur herinn tvimæla- laust styrkzt stórum. Rússar hafa lagt megináherzlu á að endur- nýja hergögn sín og búa heri hjáríkjanna nýtízku vopnum og þjálfa þá. í herjum þeirra eru nú j að líkindum 70—80 herfylki. Atlantshafsríkin hafa nú á að skipa 75 herfylkjum og 4500 vél- flugurri. Gerðir hafa verið 125 ný- ir flugvellir og unnið er að fleir- um. Sjóher þeirra er miklu öfl- ugri en Rússa, þegar kafbátaflot- inn er undanskilinn, en sjóhcr bandamarma stafar enn sem fyrr mikil ógn frá Rússum. VARNARSAMTOK EN EKKI ÁRÁSAR Hvað sem þessum tölum líður, þá er víst, að Atlantshafsríkhi hafa eflzt ótrúiega mikið á 5 ár- um. Seinustu árin hefur verið lögð meiri áherzla á dug herafl- ans en höfðatölu hermanna og fjölda vopna. Herlið og varalið hefur verið þjálfað til þrautar og vopnabúnaður allur bættur, og það endurnýjað, sem úrelzt hafði. Sérstaka athygli hafa vak- ið æfingar með ný vopn þar á þetta í samræmi við markmiö bandalagsins — að fæla ágeng ar þjóðir frá því að gera árás og stofna til þriðju heimstyrj- aldarinnar. Það er í innsta eðli sínu varnarsamtök. EINN HUGUR, EITT MARKMIÐ Einingin er meginstyrkur At- lantshafsríkjanna og aðalsmerki. Vitaskuld ber margt á góma, sem allir eru ekki sammála um. Það fylgir hverri fjöiskyldu, að fólkið greini á um menn og málefni. En í meginatriðum getur aldrei orð- ið verulegur ágreiningur. Það er líka athyglisvert, að engum mál- efnum, sem aðildarríkin varða í heild, er ráðið svo til lykta, að hvorki í smáu né stóru er gert öll séu þau ekki á einu máli. Hér ráð fyrir, að vopnum eða her- þarf ekki neitunarvald, heldur er afla verði beitt til árásar. Er unnið að lausn viðkvæmustu og meðal meðferð kjarnorkuvopna, sem notuð hafa verið við her- æfingar á seinustu misserum. Eitt einkennir allan þennan viðbúnað öðru fremur. Hann er allur miðaður við varnir, MMl ÍSBWÍ öllum: gagnkvæmar varnir, vel- megun aðildarríkja og efling-: efnahagslegra og menningarlegra viðskipta þeirra. Hernaðarlega vinna ríkin sameiginlega að þvi að koma sér upp svo sterkum vörnum, að engin þjóð sjái sér hag í að hefja árásarstríð. En eC viðbúnaður þeirra skyidi ekki nægja til að fæia herskáar þjóðisr frá árás, þá eru aðildarríkin reiðu. búin að verjast sameiginlega me5 púðri og stáli. UNDANSLÁTTUR STOFNAR GRIÐUM í HÆTTU Heyrzt hafa raddir um, að vi'ð- búnaður bandalagsins væri ærinn. orðinn og því væri óhætt að láta hér staðar numið. Ríkisstjórnir Atlantshafsríkjanna og aðrir þeir, sem hnútum eru kunnugir, vita þó betur. Það, sem áunnizt hefur j til eflingar friðinum er að veru- I legu leyti að þakka tilveru banda- lagsins. Samvinna aðildarríkj- | anna hefur að vísu lyft Grettis- j taki, skapað. flóðgarða þar, sem. j elfur eyðingarinnar gat áðui~ ‘ beljað fram fyrirstöðulaust, glætt samheldni og samhug, þar sem. óvinir sáu áður von til sundrung- ar. En hernaðarbáknið í austri heldur áfram að blása út, og unr leið og dregið yrði úr viðbúnaði, mundi það vaxa samtökum frjálsra þjóða yfir höfuð. Hnefinn. er reiddur yfir álfunni. Reynslan. hefur margsannað okkur, að ekk- ert getur tálmað því, að höggið ríði af nema krepptur hnefi lýð- ræðisþjóðanna. Eða muna menn til þess, að nazistar og kommún- istar hafi vílað fyrir sér að rjúfa griðin, ef þeir sáu sér hernaðar- legan ávinning í því? Hitt er svo alkunna, að lýðræð- isríkin biða þeirrar stundar með óþreyju, að þeim verði óhætt að draga úr vígbúnaði sínum. Þeim dylst ekki, að eftir því sem varið er minna fé til hervarna verður auðið að veita meira fé til þeirra mála, sem skapa fólkinu hagsæld og hamingju. Þær eru á einu máli um, að allt kapp skuli lagt á afí draga úr viðsjám og togstreitu i heiminum og grípa hvert tæki- færi, sem býðst, til að varða leið- ina til friðar í sátt og bróðerni allra þjóða. SÖNN ÞJÓÐAFJÖLSKYLDA Ismay lávarður, aðalriiari At- lantshafsbandalagsins sagði i ræðu s.l. sumar: „Þegar tilrætt verður um At- lantshafsbandalagið, er oftast tal- að um herafla þess; af því má þé ekki draga þá ályktun, að þetta. sé venjulegt hernaðarbandalag á gamla visu. Því fer fjarri. Því er, eins og Churchill orðaði það, ekki. aðeins ætlað að verja hendur sín- ar fyrir snögglegri árás, heldur er því skapað að glæða framfarir þjóða á ókomnum árum. Og sátt- máli Atlantshafsríkjanna gerir ráð fyrir, að aðildarríkin myndi, er tímar líða, sanna þjóðafjöl- skyldu, þar sem hugur og hönd tengist til sameiginlegra átaka, þar sem hver hjálpar öðrum i öllum greinum álþjóða viðskipta, jafnvel þótt árásarhættan í heim- inum hafi hjaðnað að nokkru, jafnvel þótt hún verði alveg úr sögunni.“ Þessi mynd af æðstu stjórnendum Atlantshafsbandalagsins var tekin í desember í vetur í aðalstöðvunum í París. Þarna eru sam- an komnir utanríkisráðherrar allra 14 aðildarrikjanna, landvarna- ráðherrar, fjármálaráðherrar, fastir fulltrúar Atlantshafsráðsins, forseti ráðsins og aðalritari bandalagsins. Dr. Kristinn Guð mundsson, utanríkisráðlierra íslands, er nálægt miðju á myndinni. Bækur bunduar í fiskroð NORSKT útgáfufyrirtæki heíur ákveðið að binda 40 þúsund ein- tök af bók nokkurri í skinneftir- líkingu úr fiskroði. Hefur fisk- skinns-verksmiðja verið sett á fót i Norður Noregi og er það miklu ódýrara en venjulegt bók- bandsskinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.