Morgunblaðið - 14.04.1954, Side 12

Morgunblaðið - 14.04.1954, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 14. apríl 1954 12 Kommúnistar senda fram angan og óreyndan mannskap HANOI, 13. apríl: — Formælandi írönsku herstjórnarinnar sagði í kvöld, að setuliðið í virkisbæn- um Dien Bien Phu byggist við þriðju stórsókn uppreistarmanna að bænum á hverri stundu. Eru þeir nú albúnir til stórræða og hafa nægileg vopn og vistir til að fylgja sókn sinni eftir. Þykir engum vafa bundið, að sókn verði hafin áður en Genfar- ráðstefnan kemur saman 26. þ.m. enda muni uppreistarmenn nú leggja allt kapp á að ná bænum, ef það skyldi verða til að mýkja Vesturveldin við beinið. Formælandi franska hersins segir, að mikill hluti hermanna kommúnista séu ungir og óreynd ir menn. — Reuter-NTB. Hlíf segir upp samningum HAFNARFIRÐI — Verkamanna félagið Hlíf í Hafnarfirði hélt fund s.l. mánudag og var þar samþykkt eftirfarandi tillaga: „Fundur haldinn í Verkamanna félaginu Hlíf mánud. 12. apríl 1954 telur svo miklar líkur fyrir yfirvofandi aðgerðum er rýri kaupmátt launanna, sem verka- lýðurinn verði að mæta með nýj- um kaup og kjarasamningum, að ófært sé að framlengja núver- andi samninga, er binda verka- lýðinn í 6 mánuði, með þeim uppsagnarákvæðum, sem þar eru. Ályktar fundurinn að segja beri upp samningum til þess m.a. að hafa þá lausa, svo verkalýð- urinn geti hafið nauðsynlegar aðgerðir ef aðstæður krefja.“ Þá var á fundinum rætt um fyrirhugaðar lagfseringar á Verkamannaskýlinu, og sam- þykkt álit frá nefnd, er skipuð hafði verið til þess að gera til- lögur um lagfæringar. Að lokum var rætt um 1. maí hátíðahöldin, og voru fundar- menn einhuga um að gera þau sem glæsilegust. — Kveimasíða Framh. af bls. 7 buxur. Piltarnir eru sjaldnast í vandræðum með slíkt, þeir geta haft með sér stakar buxur og notað svo skíðapeysuna. En hlýja og þægilega inniskó verða allir að muna eftir að hafa með sér. Ef þið hlýðið þessum ráðum, kemur ekkert ykkar kvefað úr páskaferðalaginu. Malik kominn aftur LUNDÚNUM, 9 apríl — Jakob Malik, sendiherra Rússa í Bret- landi, er kominn aftur eftir all- langa dvöl heima. í dag ræddi hann við Eden, utanríkisráð- herra. LILLU kryddvörur eru ekta og þess vegna líka þær bezt. Við á- 5*,^* byrgjumst gæði. Biðjið t m I Ti.LL-KRYDD þegar Jþér gerið innkaug. Hákon Herbertsson Minningarorð Fæddur 14. október 1915. Dáinn 6. apríl 1954. HINN 6. apríl s. 1. andaðist eftir skamma legu í Landsspítalanum Hákon Herbertsson, skrifstofu- maður. Hákon var kominn af góðu og greindu fólki í báðar ættir. Var hann sonur þeirra hjóna, Her- berts heitins Sigmundssonar, prentsmiðjueiganda og Ólafíu Árnadóttur, sem bæði eru öllum Reykvíkingum kunn að góðu einu. Frú Ólafía varð fyrir þeirri þungu sorg að missa mann sinn 14. apríl 1931, þá í blóma lífs- ins. Enn er vegið í sama knérunn og er nú einn sona hennar kall- aður á brott og til moldar bor- inn á dánardegi föður síns. Hákon Herbertsson var fædd- ur 14. október 1915 og varð því aðeins 38 ára. Hann varð snemma efnis piltur, gekk í Verzlunar- skóla íslands og að námi loknu starfaði hann hart nær alla ævi við fyrirtæki móður sinnar, Bóka verzlun Sigurðar Kristjánssonar og Herbertsprent. Munu margir minnast hinnar einstöku lipurð- ar, er hann sýndi viðskiptavin- um fyrirtækisins. Hákon var mjög greindur mað- ur og glöggur, tápmikill og óvenju duglegur starfsmaður. Hann var glaðlyndur en þó um leið dulur, kímmn en alltaf græskulaus. Hann var fríður mað ur, hár og spengilegur og ein- stakt snyrtimenni. Er Hákon var unglingur átti hann við vanheilsu að stríða, og reyndi þá og raunar oft síðar á karlmennsku hans. Er mér kunn- ugt um að oft gekk hann eigi heill til skógar, en hann kvart- aði aldrei og bar sína bagga möglunarlaust. Hákon var allsstaðar vel lið- inn, og samstarfsmenn hans dáðu hann allir. Hann, sem oft var sjúkur, var alltaf boðinn og bú- inn til að rétta hjálparhönd, létta undir með öðrum og taka á sig annarra störf. Enda er hans nú mjög saknað af samstarfs- mönnum hans. Síðasta árið, sem Hákon lifði, var hann skrifstofumaður hjá Metcalfe, Hamilton, Smith, Beck Cos. á Keflavíkurflugvelli. Reynd ist hann þar sem annars staðar prýðis starfsmaður, og svo sagði hann sjálfur, að sér hefði hvergi liðið betur en undir stjórn hins ágæta húsbónda síns, Mr. Schem- ber, sem reyndist Hákoni alltaf sem einlægur og traustur vinur, þó að vandalaus væri. Vil ég fyrir hönd móður hans þakka Mr. Schember og öðrum sam- starfsmönnum Hákonar, amerísk- um og íslenzkum, allar hinar mörgu góðu stundir, er hann átti með þeim. Það sem einkum einkenndi Hákon var það, hve grandvar hann var og góður drengur, svo góður að engan fremur en hann mundi ég hafa kosið mér sem bróður. Slíkir menn eru alltaf hamingjusamir og þurfa aldrei neinu að kvíða. Við, ástvinir þínir Hákon og mörgu vinir, sem kveðjum þig í dag, munum sakna þín sárt, kæri vin. Við sem þekktum þig lengst og kynntumst þér bezt munum sakna þín mest. En þyngstur harmur er þó kveðinn að móður þinni, sem engum unni meir en þér. Um leið og við þökkum þér allar samverustundirnar biðjum við öll guð að blessa þig, kæri Hákon minn. Á. M. J. Ólafur Sigurðsson skákmeisfari Hafnarfjarðar HAFNARFIRÐI — Skákmóti Hafnarfjarðar er nú lokið. Keppt var í þremur flokkum, og voru þátttakendur 14, þar af 6 í meist- araflokki. Urðu úrslit þau, að Ólafur Sigurðsson varð skákmeist ari Hafnarfjarðar, hlaut 4V2 v. af 5 mögulegum. 2.—3. urðu þeir Jón Kristjánsson og Sigurgeir Gíslason með 3V2 v. hvor. 4. Sig- urður T Sigurðsson með 2 v, 5. Aðalsteinn Knudsen IVi v. Þórir Sæmundsson hlaut engan vinn- ing. — í fyrsta skipti er nú keppt um bikar, sem vinnst þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. Á skírdag fara 10 skákmenn frá félaginu upp á Akranes og keppa þar á 10 borðum. —G.E. Norskur selfangari fekinn í Dmnbshafi OSLÓ, 13. apríl: — Norska sendi ráðið í Moskvu hefir tjáð norska utanríkisráðuneytinu, að Rússar hafi tekið norska selveiðiskipið. Maiblómið fyrir ólöglegar veiðar í Dumbshafi. Enda þótt skipstjór- inn kæmi fyrir rússneskan dóm- stól 7. apríl, hefir ekkert af hon- um frétzt fyrr en nú, og skildu menn heima í Noregi sizt í, hví ekki fengist framar samband við talstöð skipsins. Norska sendiráðið í Moskvu reynir hvað það getur að ná tali af skipstjóra selfangarans. DAMSIEIKUR ! ■ að Þórscafé í kvöld kl 9. ■ Hijómf reit Björns R. Einarssonar. ; ■ ■ Aðgöngumiðar seldir frá kl Z—7. ; ■ Karlakórinn Fóstbræður SUÐURNES J AMENN! ■ ■ ; Kvöldvaka. ■ ■ í Samkomuhúsi Njarðvíkur, í kvöld 14. apnl. klukkan 8,30 e. h. ■ ■ Fjölbreytt skemmtiskrá. Dansað til klukkan 2. ■ 9 Aðgöngumiðar við innganginn. ■ ■ ! — Bezía skcmmtun ársins. — Dansleikur ■ ■ ! í Tjarnarcafé í kvöld klukkan 9. ■ ■ ! IILJÓMSVEIT Jósefs Felzman. ■ Söngvari Ragnar Bjarnason. ; Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6. UTBOÐ ; Tilboð óskast í að byggja allt að 7 sprengiefnageymslur. ; ■ ■ I Teikningar og útboðslýsingar liggja frammi í skrifstofu ! ; bæjarverkfræðings, Ingólfsstræti 5. Bæjarverkfræðingurinn í Reykjavík. ■ ■ ........................................... '4ARKÚ* mte JU JANIE, DO VOU TVflWK VOUB OTTERS CAN GET OUS CAMERA LENS FROM THB "'nF MAVBs, AU'rriv...BUT WE KGET fT (TVCRV- SHOULD HAVS SO*aBTHInS UKE A LENS TO SHOW THEM BEFORE WE SEND fHEJ-A DOWN/J thins...; ll öe sack in A JIFFY/ 1) — Hanna, heldurðu að otrarn-1 2) — Það getur verið, Siggi, enj 3) Nú veit ég, hvað ég gei*i. Bíð- ir þínir geti fundið lmsuna okkar. við verðum að sýna þeim eitthvað| ið þið augnablik. Isem líkist linsunni. 4) — Seinna: Þessi iitlu box eru svipuð linsunni. — Ágætt, fáðu xnér annað þeirra, . _

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.