Morgunblaðið - 14.04.1954, Side 16
Veðurúflif í dag:
Vaxandi S-A. — Skúrir
wjpnWaMííi
88. tbl. — Miðvikudagur 14. apríl 1954
Samningarnir
við Bandaríkin, sjá bls. 2.
Togari reynir að kom-
*
ast undan ísl. varðskipi
Var eltur 65 sjómílur á ha! úl og stanzaði
iyrst er kúluskot hafði hæl! yfirhygginguna
SÍBDEGIS s. 1. mánudag varð flugvél, sem var í gæzluflugi á
vegum Landhelgisgæzlunnar, vör við belgiskan togara að
veiðum innan fiskveiðitakmarkananna suður af Ingólfshöfða. —
Flugvélin gerði varðskipi þegar aðvart, en togarinn hélt til hafs.
Fr varðskipið náði honum neitaði hann að stöðva, þrátt fyrir
viðvörunarskot og gerði það fyrst, er kúluskot hæfði togarann.
•— Um þetta segir svo í frétt frá Landhelgisgæzlunni:
FLUGVÉL VARÐ
TOGARANS VÖR
Hinn 12. þ. m. um kl. 18 stað-
"'sstti flugvél í gæzluflugi á veg-
'um Landhelgisgæzlunnar, belg-
•iska togarann O. 316 rúmasjómílu
fyrir innan fiskveiðitakmörkin
við Ingólfshöfða. Gerði hún þeg-
-•ir einu varðskipanna aðvart um
þetta og bað það koma á vett-
vang. í sama mund hafði tog-
•arinn upp vörpu sína í skyndi
*®g stefndi á fullri ferð til hafs.
ELTUR í 5 KLST.
Flugvélin hélt þá áfram að
•'i.veima yfir honum og fylgdist
Tneð ferðum hans þar til varð-
jskipið náði honum um 5 klst. síð-
ír í 65 sjómílna fjarlægð suður
ar Ingólfshöfða.
NEITAÐI AÐ STANZA
Krafðist varðskipið þá að
togarinn stöðvaði ferð sína
strax, en hann neitaði. Skaut
varðskipið þá nokkrum skot-
j um að togaranum, fyrst laus-
um og síðar kúluskotum til
l viðvörunar, en þegar það bar
engan árangur, þá kúluskoti
á sjálft skipið. Hæfði sú kúla
| yfirbyggingu togarans aftan
við stýrishúsið og fór I gegn
um hann. Stöðvaði þá togar-
inn ferð sína og var skipstjóri
hans fluttur um borð í varð-
skipið. Ekkert tjón eða meiðsli
urðu á mönnum.
Varðskipið er á leið til hafnar
með togarann.
Nefnd lil að rannsaka
hag fogara-
útgerðarinnar
SAMEINAÐ Alþingi kaus í gær
7 manna nefnd samkvæmt tillögu
ríkisstjórnarinnar til að rannsaka
hag togaraútgerðarinnar og
benda á leiðir til úrbóta.
í nefndina voru kosnir Björn
Ólafsson alþm., Davíð Ólafsson
fiskimálastjóri og Ólafur Björns-
son prófessor, allir af lista Sjálf-
stæðismanna. Af lista Framsókn
arflokksins voru kosnir Hermann
Jónasson alþm. og Jóhannes
Elíasson lögfræðingur. Af lista
Alþýðuflokksins var kjörinn
Emil Jónsson alþm., en Lúðvík
Jósefsson alþm. af hálfu komm-
únista.
Fjárveiting til nýs stjórn-
arráðs og Skáiholtskirlíju
Þingsáíykfunarfillaga á Álþingi
OLAFUR THORS forsætisráðherra og Steingrímur Steinþórsson
landbúnaðarráðherra fluttu sameiginlega í gær svohljóðandi
tillögu til þingsályktunar:
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að verja úr ríkissjóði
á árinu 1954 eða leggja til hliðar á því ári: 1. 2 millj. kr. til þess
•að reisa nýtt stjórnarráðshús í Reykjavík og 2. 1 milljón kr. til
•kirkjubyggingar í Skálholti.
STJÓRNARÁÐIÐ
Ólafur Thors forsætisráðherra
ífylgdi tillögunni úr hlaði með
mokkrum orðum. Hann kvað öll-
lam ljósa þá erfiðleika, sem hús-
næðisvandræði æðstu stjórnar
landsins hefðu í för með sér.
í>au væru til vansæmdar út á
*við og aukinna útgjalda og erfið-
leika allskonar fyrir ótal aðila
inn á við. — Hann minnti á sam-
3>ykkt ríkisstjórnarinnar 1. febr.
hí. 1. um að hefjast handa um
’byggingu stjórnarráðs á lóð rík-
^ssjóðs milli Bankastrætis og
Amtmannsstígs. Og þessi þings-
•‘ályktunartillaga um fjárveitingu
‘•til þess væri fram komin henn-
ar vegna.
SKÁLHOLT
Um Skálholtskirkju sagði for-
sætisráðherra m. a. að fyrir dyr-
um stæði 1956 að minnast veg-
lega 900 ára afmælis Skálholts-
stóls og við það tækifæri myndi
verða hér margt erlendra kirkju-
gesta. Ósæmandi væri fyrir hina
ísl. þjóð að hafa eigi fyrir þann
•tíma byggt upp kirkju þessa
gögufræga st-aðar. Mæltist» hann
eindregið til að tillagan yrði
samþykkt. — Tillögunni var vís-
að til síðari umræðu og átti hún
að fara fram í nótt.
Mef-aðsókn að
5kugga-Svein! á Ak.
AKUREYRI, 13. apríl: — Hér á
Akureyri hafa nú verið 13 sýn-
ingar á Skugga-Sveini og hefir
í öll skiptin verið uppselt löngu
fyrirfram.
Mun þetta vera einsdæmi að
svo greitt hafi gengið sala að-
göngumiða að sýningum Leik-
félags Akureyrar. Er allt útlit
fyrir að Skuggi ætli að slá met
í aðsókn.
Engar sýningar verða nú um
helgidagana, en á miðvikudaginn
síðastan í vetri, verður næsta sýn
in. Er þegar farið að panta að-
göngumiða á þá sýningu.
Gera má ráð fyrir að sýning-
um fari að fækka úr því, enda
hafa nú um 4200 manns séð leik-
inn. — H. Vald.
Húsaleigufrum-
varpið og ríkisborg-
ararélturinn dög-
uðu uppl
Á FUNDI NeSri úöMstr i gær-
kveldi voru getðzcr sv» veiga-
miklar breytingar á frumvörp-
unum um húsaleiga «sg vritingu
ríkisborgararéttar aS baeði frum-
vörpin döguðu nppL V'«ni þau
endursend Efri deiM, en þar
vannst ekki tími Iff þess að taka
þau til meðferðar a& œýja.
Eins og kunnugt er hafa mikl-
ar deilur staðið um hósaleigulög-
in á Alþingi undanfarcð.
Lóan
MAÐUR nokkur, Gunnar Sæ-
mundsson til heimilis að Háteigs-
veg 28, hringdi á ritstjórnarskrif
stofu blaðsins í gær og kvaðst
hafa séð týær lófur í garðinum
hjá sér í gær.
Er það ætíð góðs viti, þegar
fréttist um komu lóunnar, því þá
getur maður verið viss um að
sumarið er ekki langt undan,
enda nú liðið að sumarmálum.
Dr. Magnús Z. Sig-
urðsson dvaldist hér
Deildir Alþingis luku
störfum í gærkveldi
Akureyri gefur Reykjavík áiftahjón
Reykjavíkurbæ barst gjöf í gær frá Akureyri. Voru það álftahjón,
er að undanförnu hafa verið á fuglatjörninni á Akureyri, en önn-
ur álftahjón eru eftir á tjörninni nyrðra. Samkomulagið var
ekki sem bezt. f gær var þessum fögru fuglum sleppt hér við
Tjörnina og þar munu þcir vcrða til prýðis og bæjarbúum til
augnayndis. Einnig gaf Akureyri Reykjavík grágæsahjón. — Mynd
þessa tók ljósmyndari Mbl. síðdegis í gær i Tjarnargarðinum, er
álftunum var sleppt.
Dr. MAGNÚS Z. Sigurðsson
verzlunarerindreki Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna á meg-
inlandi Evrópu hefur dvalizt hér
á landi undanfarna viku til við-
ræðna við Sölumiðstöðina og
aðra aðila hérlendis um viðskipta
málin. Hann mun væntanlega
hafa farið flugleiðis í morgun, en
sem kunnugt er hefur hann sölu-
bækistöðvar í Hamborg.
GlæsileglmelílOOm
HAFNARFIRÐI — Helga Har-
aldsdóttir (KR) setti nýtt íslands
met á sundmóti, sem haldið var
í Sundhöll Hafnarfjarðar í gær-
kvöldi. Synti hún 100 m bak-
sund á 1,20,4 mín., sem er mjög
glæsilegt met. Fyrra metið átti
Kolbrún Ólafsdóttir, og var það
1,22 mín. —G.E.
Þingslit verSa f dag.
BÁÐAR DEILDIR Alþingis luku störfum í gærkveldi. Fundir
Neðri deildar hófust kl. 8,30 síðdegis og voru samtals haldnir
þrír fundir í deildinni um kvöldið. Síðasta fundinum lauk rúm-
lega kl. 10.
I NEÐRI DEILD |
Sigurður Bjarnason, forseti'
deildarinnar, þakkaði þingdeild-
armönnum ánægjulega samvinnu
við sig sem forseta á þessu þingi,
sem afgr. hefði mörg mikil fram- \
faramál. Árnaði hann þm. heil- (
brigðis og farsældar. Einar Ol-
geirsson þakkaði forseta góða og
röggsamlega fundarstjórn og á-
nægjulega samvinnu við þing-1
menn. Tóku þingmenn undir orð
hans með því að rísa úr sætum
sínum.
Kosningar í Sam. þingi
IGÆR FÓRU fram í Sameinuðu þingi kosningar í þrjár nefndir
og ráð sem samkvæmt þeim lögum er samþykkt hafa verið
síðustu daga ber að kjósa. Var það aðalmenn og varamenn í
Áfengisvarnaráð, 5 manna nefnd til að endurskoða lög Brunabótafél.
íslands og kosning 3 manna milliþinganefndar í heilbrigðismálum.
Úrslit kosninganna urðu þessi:
AFENGISVARNARAÐ
Magnús Jónsson frá Mel,
Kjartan Jóhannsson alþm.
Guðlaug Narfadóttir,
Kristinn Stefánsson.
Formaður er skipaður af ráð-
herra. — Til vara voru kjörnir:
Einar Ingimundarson alþm., Sig-
urður Ágústsson alþm.„ Gunnar
Árnason skrifst.stj., og Kristján
Benediktsson kennari.
ENDURSKOÐUN LAGA
BRUNABÓTAFÉL. ÍSLANDS
í þá nefnd voru kjörnir: Jón
Sigurðsson alþm. á Reynistað,
Jónas G. Rafnar alþm., Guðm, í.
Guðmundsson alþm., Guðm.
Guðlaugsson Akureyri, Vil-
hjálmur Jónsson lögfr.
MILLIÞINGANEFND í
HEILBRIGÐISMÁLUM
Aðeins einn listi kom fram og
voru á honum þessi nöfn: Kjart-
an J. Jóhannsson læknir og alþm.,
Esra Pétursson læknir, Alfreð
Gíslason læknir.
Reyfingsafli hjá
Hafnarfjarðarbátum
HAFNARFIRÐI — Línubátarnir
hafa aflað sæmilega síðustu tvo
daga. — í gær voru þeir með um
12—15 skipd., og var það heldur
jafnari og meiri afli en í fyrra-
dag. — Þeir reru allir aftur í gær.
Að öllum líkindum kemur að-
eins einn togari inn fyrir páska,
en það er Júní sem er væntanleg-
ur á laugardag. Hann er á salt-
fiskveiðum. — Afli hefir verið
mjög tregur hjá togurunum að
undanförnu, enda hin mesta ótíð
nú um langan tíma.
I EFRI DEILD
í Efri deild lauk fundum kl.
tæplega hálf ellefu. Höfðu þá
verið haldnir fjórir fundir í
deildinni um kvöldið. Forseti
deildarinnar, Gísli Jónsson,
kvaddi þingdeildarmenn, þakk-
aði þeim góða samvinnu og
minntist á þau merku mál, sem
gengið hefðu í gegn um deildina
á þessu þingi. Óskaði hann deild-
armönnum síðan gleðilegs sum-
ars og alls farnaðar.
Haraldur Guðmundsson ávarp-
aði forseta, flutti honum þakkir
fyrir góða samvinnu og tóku
þingmenn undir árnaðaróskir
hans með því að rísa úr sætum.
ÞINGSLIT í DAG
Er deildir höfðu lokið fundum
sínum hófst fundur í Sameinuðu
þingi. Gaf dr. Kristinn Guð-
mundsson, utanríkisráðherra þar
skýrslu þá, sem birt er á öðrum
stað hér í blaðinu.
Ennfremur fóru þar fram ýms-
ar kosningar. Stóð fundurinn
yfir fram á nótt. — Þingslit munu
fara fram síðdegis í dag.
Skákeinvígið ]
KR2STNES
VÍFILSSTAÐIR
9. leikur Kristness:
Kg8—e7
3