Morgunblaðið - 25.04.1954, Síða 1
16 síður og Lesbók
41. árgangur.
93. tbl. — Sunnudagur 25. apríl 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kochlovs, !igregluforin§ja:
íaimfæringarkra!
konu minnar
eigin
Forsefahjónin og sænsku konungshjénin
iíis sagði:
Þú skalf e
HINN 18. febrúar s.l. ákvað
rússnsski lögregluíoringinn
Nikolai Khokhlov endanlega
að óhlýðnast fyrimælum yfir-
manna sinna um a'ð mvrða
útlaga Rússann Georgy Okolo-
vich. Hann gekk heim til
mannsins, sem hann átti að
myrða og sagði honum alla
söguna.
Georgy Okolovich, sem er
náinn samstarfsmaður Alex-
anders Truehnovich, sem fyrir
skömmu var rænt í Berlín, lét
sér ekki bregða. Hann hefur
lifað landflótta síðustu ár og
í baiáttu sinni gegn ógnar-
stjórn kommúnista hefur hann
vanizt því að lifa í hættn,
stundum með flugumenn
Moskvavaldsins á íiælum sér.
Okclovich gerði öryggislög-
reglu Vesturveldanna aðvart,
en bað Khokhlov að láta sem
ekkert hefði í skorizt enn um
sinn, en láta t. d. sækja morð-
tólin á sinn ákveðna stað.
TVEGGJA MANAÐA
RANNSÓKN
Daginn eftir gekk Khoklhlov á
fund öryggislögreglu Vesturveld-
anna. Á rúmlega tveimur máii-
uðum, er síðan eru liðnir hafa
æðri fulltrúar bæði bandarísku,
brezku og vestur-þýzku leynilög-
reglunnar átt ýtarleg samtöl og
yfirheyrslur yfir Khokhlov lög-
regluforingja til að sannprófa,
hvort frásögn hans hafí við rök
að stvðjast. En svo furðuleg og
óhugnanleg var frásögn hans, að
það var erfitt að trúa henni. En
Framh. á bls. 2
SAIGON, 24. apríl frá Reuter.
ILLAR fréttir berast nú frá
Dien Bien Phu. Hefur upp-
reisnarmönnum Viet Mính
tekizt að hrekja Frakka úr
ýmsum varnarstöðvum þeirra
við virkisbæinn. Náðu þeir
meðal annars stórum hluta
annars flugvallar borgarinn-
ar, en þar hefur vígvöllurinn
verið undanfarnar vikur. —
Kristjáni hershöfðingja tókst
þó að styrkja varnirnar á
þessu svæði, þó gagnáhlaup
manna hans mistækjust.
Fréttastofa Viet Minh til-
kynnti hinsvegur að varnir
Frakka við Dien Bien Phu
væru nú í molum. Mönnum
Viet-Minh hefði tekizt að
hrekja Frakka úr stöðvum
þeirra og náð af þeim miklum
hluta þess landssvæðis er
Frakkar áður voru umkringd-
ir á.
morðingi"
virur
Mynd þessi var tekin af íslenzku forsetahjónunum og sænsku konungshjónunum í höll konungs. Á
myndinni sjást talið frá vinstri: Louise Svíadrottning, Dóra Þórhallsdóttir forseíafrú, Ásgeir Ásgeirs-
son forseti og Gústaf VI. Adolf Svíakonungur.
Finnsr tóku á móti forsetn ís-
lands nf hjnrtnhlýju og vinnrhug
Frá komu forsetans !il Heisingfors í gær
Helsingfors 24. apríl. Frá Páli Jónssyni.
VERNDUÐ af finnskum orustuflugvélum kom flugvél forseta
íslands og konu hans til Helsingfors í morgun. Finnlandsforseti
bauð þau hjartanlega velkomin er flugvélin var lent og íslenzki
þjóðsöngurinn var leikinn.
dáðst að Finnum og hve stóran
hlut þeir hafa lagt fram á mörg-
um sviðum, á sviði lista og
íþrótta, tækni og bókmennta, vís-
inda og í öllum athöfnum dag-
legs lífs. Bað hann síðan Guð að
blessa hina finnsku þjóð og höf-
úðstað hennar.
Á fréttamannafundinum í Bonn á finimtudag, þar sem Khokhlov
lögregluforingi sagði sögu sína opinbcrlcga, var hið útnefnda fórn-
ardýr lians, Georgi Okolovich, staddur. Blaðaljcsmyndarar báðu
þá um mynd af þeim saman og var þessi mynd þá tekin. Vinstra
megin er Okolovich, sem átti að myrða og hægra megin Khokhlov,
sem var skipað að fremja morðið. Takast þeir í hendur, enda eru
þeir orðnir vinir og hefur Khokhlov gengið i félag útlaga Rússa.
AVARP FORSETA BÆJAR-
STJÓRNAR HELSINGFORS
Þá ávarpaði forseti bæjarstjorn
ar Helsingfors, Lauri Ahos aðal-
ritstjóri, forsetahjónin. — Hann
kvað það Helsinforsborg og Hels-
ingforsbúum mikill heiður og
ánægja að taka á móti forseta
hins norræna lýðveldis sem gesti
Síðan sagði hann m. a.:
Hið nýja, tíu ára gamla lýð
veldi hefur sannað það, hvers
smáþjóð er megnug, þegar hún
hefur öðlazt fullt sjálfstæði og
getur að frjálsu helgað krafta
sína stjórnlegri, menningarlegri
og efnalegri þróun á grundvelli
fornra erfða og þjóðarsögu.
Meir en tvö þúsund kílómetra
fjarlægð aðskilur ísland og Finn-
land, og þó er báðum þjóðum
ljóst, að þær eru nánum böndum
tengdar innan samfélags nor-
rænna þjóða. Saga íslands er,
engu síður en saga Finnlands.
saga þungrar reynslu. Því betur
j skilja þessar þjóðir hvor aðra í
dag'. Og gagnkvæmur skilningur
' þeirra í milli mun aukast við
| örari viðskipti undanfarinna ára
á sviði viðskipta og menningt r.
S
AVARP
FORSETA ÍSLANDS
Forseti íslands þakkaði þessi
ávarpsorð og kvað það gleðja sig
að mæta í Finnlandi svo góðum
skilningi og öruggri þekkingu á
Islendingum og viðleitni þei'rra,
sem að mörgu leyti svipar mjög
til athafna Finna.
En þó að mörgu svipi saman
milli þessara útvarða Norður-
landa, hélt Ásgeir Ásgpipsson
áfram, getum við ekki annað en
MOTTAKAN
Á FLUGVELLINUM
Þarna á flugvellinum tóku á
móti forseta íslands æðstu menn
Finnlands og 18 hershöfðingjar
stóðu heiðursvörð.
Ekið var í bílum til forseta-
hallarinnar, þar sem hermenn
stóðu heiðursvörð og á leiðinni
til hallarinnar stóðu víða hópar
barna og fullorðinna og veifuðu
íslenzkum fánum. Forsetahjónin
sátu hádegisverðarboð finnska
iorsetans.
Samtímis sat utanríkisráðherra
íslands boð Torngren utanríkis-
ráðherra Finna. Fluttu báðir ut-
Framh. á bls. 12
Genfarráðstefnan á morgun:
VandaMálin blasa þegar
við fulltrúunum mörgn
Genf 24. apríl frá Reuter.
FULLTRÚAR fimmveldanna, sem sitja eiga Genfarráðstefnuna,
eru nú ýmist komnir til Genfar eða eru á leið þangað. Þar hefst
í. morgun ráðstefna, sem hundruð milljóna manna binda við vonir
um frið. Öllum undirbúningi að ráðstefnunni er nú lokið.
1 OG 2 I ROÐ
Forsætisráðherra Kína, Chou
En Lai, sagði við komu sína til
Genfar, að ef fulltrúar þátttöku-
ríkja legðu sig fram ætti að vera
hægt að leysa tvö höfuðvandamál
Asíulanda — Kóreumálið og
Indo-Kínadeiluna.
Nokkru síðar kom Molotof full-
trúi Rússa til Genfar. Hann vildi
ekkert við blaðamenn ræða eða
koma neinu á framfæri á annaa
hátt.
BÍDA ÁTEKTA í PARÍS
í París eru þeir Eden, Bidault
og Dulles ásamt utanríkisráð-
herrum ýmissa þeirra landa, er
her áttu í Kóreu og sitja því
Genfarráðstefnuna samkvæmt
ákvörðun Berlínarfundarins. —■
Þeir ræddu sín á miili í dag um
ýmis þau mála er koma til með
að einkenna Genfarfundinn.
HVAD SKEÐUR
Vandamálin blasa þegar við.
Ekki er enn samkomulag um
hver verða á forseti ráðstefn-
unnar, né heldur um það
hvaða ríki eiga að sitja fund-
ina um Indó-Kinamálið. Dull-
es lét það skýrt í ljós í dag að
hann teldi rangt og hann
mundi ekki fallast á að Kína
hefði jafna aðstöðu við stoj-
veldin fjögur. Eden og Bidault
eru á sömu skoðun.