Morgunblaðið - 16.05.1954, Side 4
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 16. maí 1954 j
' 4
TriBfltifaátur
Nýr fjögra tonna trillubát-
ur til sölu.
Upplýsingar í síma 81453
Danskt skatthol
til sölu og sýnis næstu daga
á Húsgagnavinnustofunni
Njálsgötu 65, sími 4023 og
6798.
*
Ibúð óskast
Barnlaus hjón óska eftir
íbúð strax eða 1. júní. Fyr-
irfram greiðsla, ef óskað
er. Uppl. í síma 6089.
Mjög lítið notuð
Remingtan
ferðaritvél
til sölu. Upplýsingar að
Blönduhlíð 13, efstu hæð,
klukkan 10 til 1 árdegis.
Vélameistara á millilanda-
skipi vantar
2|a herb. íbúð
Má vera í risi. Upplýsingar
í síma 3946.
1—2ja heirb. íbúð
í eða utan við bæinn, ósk-
ast til leigu sem fyrst. —
Tvennt i heimili. Sími fylg-
ir. Uppl. í síma 7902.
Dömur í Keflavíík
Hárgreiðslukona verður
með I. fl. olíupermanent
mánudag og þriðjudag. —
Uppl. að Klapparstíg 6,
uppi.
Rílfl
Til sölu 5 manna bifreið,
! ’36 módel, í góðu lagi. Verð
15.000 kr. Upplýsingar í
síma 5826 í kvöld kl. 6—8.
Vil kaupa
Lóð eða húsgnmn
í smáíþúðahverfi eða Kópa-
vogi. Tilboð sendist á afgr.
Mbl., merkt: Smálóð — 126,
fyrir 21. þ. m.
214 tonns
Sendiferðabíll
til sölu, ný standsettur, til
sýnis á Nýju Sendibílastöð-
inni kl. 1—5.
ÍBIJÐ
Vil kaupa litla íbúð, milli-
liðalaust. Útborgun kr. 30
þús. Tilboð sendist Mbl.,
merkt: Strax — 129.
Ungur maður óskar eftir
HERBERGI
helzt í Miðbænum. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir
þriðjud., merkt: Reglusam-
ur — 121.
Ford
módel 1930 með 6 manna
húsi til sýnis og sölu á
Birkimel 8, í dag.
EIMGLiSH
ELECTRIC
HEIMILIS-
VÉLARN/VR
hafa náð meiri útbreiðslu
hérlendis heldur en nokkur
önnur tegund heimilisvéla,
og ástæðan er einfaldlega
sú, að húsrnæðurnar hafa
kunnað að meta verð og
gæði þessara traustu heim-
ilistækja.
Hrærivélar,
með og án hakkavéla.
Þvottavélar,
með og án suðu.
Strauvélar,
tengdar á þvottavélina.
Laugavegi 166.
íbúðaskipti
Þriggja herbergja íbúð á
hitaveitusvæðinu, helzt efri
hæð, óskast í skiptum fyrir
íbúðarhæð í Skjólunum, 109
fermetra, 4 herbergi og eld-
hús (auk hi kjallara og bíl-
skúrs). Upplýsingar í síma
7457.
BRAGGI
Vel innréttaður, hálfur,
braggi á góðum stað í bæn-
um, til sölu. Þeir sem á-
huga hafa á kaupunurn,
geri svo vel og geti hugs-
anlegrar útborgunar, og
leggja nöfn sín og heimil-
isföng inn á afgr. Mbl. fyr-
ir þriðjudagskvöld, merkt:
Laus strax — 122.
— Dagbók
í dag er 136. dagur ársins.
Árdegislæði kl. 4,24.
Síðdegisflæði kl. 16,52.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki, sími 1760.
Helgidagslæknir er Skúli Thor-
oddsen, Fjölnisvegi 14, sími 81619.
I.O.O.F. 5 = 13651610 = III.
I.O.O.F. 3 s 1365178 =
Kaupið mæðrablóm í dag!
• Afmæli •
INíræður verður á morgun,
mánudag, Samúel Jónsson frá
Isafirði. Hann býr nú hjá dóttur
sinni og tengdasyni að Silfur-
túni 6.
Áttræð er í dag frú Kristín
Hreinsdóttir, Barónstíg 53, ekkja
Erlendar Jónssonar, verkstjóra í
íshúsinu Isbirninum hér í bæ.
« Bruðkaup *
í dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Óskari Þor-
lákssyni ungfrú Guðlaug Halla
Jónsdóttir, Baldursg. 29, Reykja-
vík, og Einar Guðlaugsson, bóndi
að Skaftafelli í Öræfasveit. Heim-
ili ungu hjónanna verður að
Skaftafelli.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Óskari Þorláks-
syni ungfrú Ásta Sigríður Einars-
dóttir og Hólmsteinn O. Stein-
gi'ímsson bankaritari. Heimili
þeirra er að Hólmgerði 5, Kópa-
vogi.
• Hjónaefni •
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Helga Steindórsdóttir og
Ólafur Stefánsson, bæði frá Akur-
eyri.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Edda Magnúsdóttir
frá Hrauni og Guðni Jónsson
kennari, Reykjanesi.
• Skipafréttir •
Eimskipafélag íslands h.f.:
Brúarfoss fer í kvöld kl. 20,00 á-
leiðis til Rotterdam og Hambörg-
ar. Dettiföss fór frá Leningrad
13. þ. m. til Kotka og Raumo.
Fjalfoss fór í gær frá Hamborg
til Antwerpen, Rotterdam, Hull og
Reykjavíkur. Goðafoss fór í gær
til Portland og New York. Gullfoss
fór frá Leith í fyrradag til Kaup-
mannahafnar. Lagarfoss fór frá
Seyðisfirði í fyrradag austur um
land til Reykjavíkur. Reykjafoss
kom í fyrradag frá Hull. Selfoss
fór frá Reykjavík 8. þ. m. til Köb-
mandskær, Álaborgar, Gautaborg-
ar og Kristiansand. Tröllafoss er
í Reykjavík. Tungufoss fór frá
Bergen í gær til Gautaborgar og
Kaupmannahafnar. Katla kom til
Reykjavíkur í fyrradag frá Akur-
eyri. Vatnajökull kom 13. þ. m. frá
New York.
Skipaúlgerð ríkisins:
Hekla var á Akureyri í gær-
kvöldi á vesturleið. Esja fer á
morgun vestur um land í hring-
ferð. Herðubreið fer á þriðjudag-
inn austur um land til Bakkaf jarð-
ar. Skjaldbreið er á Húnaflóa á
austurleið. Þyriíl verður væntan-
lega á Raufarhöfn í dag.
• Flugferðir •
Loflleiðir h.f.:
Hekla, millilandaflugvél Loft-
Ieiða, er væntanleg til Reyk.javík-
ur kl. 11,00 í dag frá New York.
Gert er ráð fyrir, að flugvélin fari
héðan kl. 13,00 til Stafangurs,
Oslóar, Kaupmannahafnar og
Hamborgar.
Flugfélag Islands h.f.:
Innanlandsflug: 1 dag er ráð-
Kosningar í Kópavo§i
Lag: Tíu litlir negrastrákar.
í Kópavogi er eins og stendur allt á ferð og flugi
og flestir vona í þetta sinn, að kosningarnar dugi.
En þjóðviljinn er vondur af því verið er að kjósa.
Hann ann ekki þeim löndum, sem lýðræðinu hrósa.
Og þessvegna er honum löngu kulnað kommabrosið:
Hann veit að Rútur fellur, ef það verður oftar kosið.
f
En Tíminn bindur mikla von við Hannes félagsfræðing,
þótt flestir aðrir telji þetta vera lítinn gæðing.
Og sigurvonir Þórðar kváðu sífellt vera að tregðast.
Því hvað verður um manninn, ef blýantarnir bregðast?
Og loksins vil ég segja það — í slysavarnarskyni,
að sjálfsagt er að hafa gát á Karli Guðmundssyni.
HÖRÐUR
gert að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Skógasands og Vestmanna
eyja. Á morgun eru áætlaðar flug-
ferðir til Akureyrar (2 ferðir),
Bíldudals, Fagurhólsmýrar, Horna
fjarðar, Isafjarðar, Kirkjubæjar-
klausturs, Kópaskers, Patreks-
fjarðar og Vestmannaeyja. Flug-;
ferð verður frá Akureyri til Kópa-
skers.
Millilandaflug: Gulfaxi er vænt-
anlegur til Reykjavíkur frá Osló
og Kaupmannahöfn kl. 18,00 í
dag. Flugvélin fer til Prestvíkjir
og London kl. 8,30 í fyrramálið.
Segulbandsupptaka S.K.T.
á skemmtuninni í Austurbæjar-
bíói síðasta vetrardag, þegar úr-
slitin í danslagakeppninni voru
birt, verður reynd í samkomusaln-
um á Fríkirkjuvegi 11 (Bindindis-
höllinni) í kvöld um kl. 10 á fundi
I.Q.G.T.-kórsins. — Þeir, sem að-
ild áttu að skemmtun þessari, s. s.
höfundar, söngvarar og hljóðfæra-
leikarar, eru velkomnir.
Kvenfélag Neskirkju
hefur kaffisölu í Sjálstæðishús-
inu í dag frá klukkan 2.
17. maí hátíð
verður í samkomusal Hjálpræð-
ishersins á mánudaginn kl. 8,30.
Samkoman fer fram á norsku!
Aðalfundur
Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík hefst að aflokinni
messu kl. 3,30 e.h. í kirkjunni
í dag.
Gjafir og' áheit til Hallgríms-
kirkju í Reykjavík.
Frá S.J. 50 kr. Frá svéitakonu
100 kr. Fr: E.Sv. 100 kr. Til minn-
ingar um Guðlaugu Jónsdóttur
3000 kr. Frá sveitamanni 100 kr.
Frá Þ.E. 500 kr. — Samtals 3850
krónur. — Kærar þakkir. — Séra
Jakob Jónsson.
-f
Auglýsing.
Vörufjósið opnað er,
allar rósir þrotnar,
en „sinu“ og kósu“ seljum vér
í sólarljósi sprottnar.
Simbi.
Kvenstúdentafélag íslands
heldur fund í Breiðfirðingabúð
kl. 8,30 annað kvöld, mánudaginn
17. maí. Guðrún Helgadóttir flyt-
úr erindi um handritamálið; sýnd
verður kvikmynd frá þingi al-
þjóðasambands háskólakvenna s. 1.
sumar.
Aðalfundur Þorsteins
Ingólfssonar.
Sjáll'stæðisfélagið Þorsteinn Ing-
ólfsson í Kjósarsýslu heldur aðal-
fund sinn fiinmtudaginn 2. maí
næst komandi að Kléhergi kl. 2
e. h. — Ekki 20. þ. m. eins og
getið var um í hlaðinu 13. þ. m.
Félag ísl. rithöfunda.
Aðalfundur félagsins vei'ður
haldinn í Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar í dag kl. 2 e. h.
Munið eftir mæðrum ykkar
í dag, á mæðradaginn, og
kaupið mæðrablómið!
Bifreiðaskoðunin.
Á morgun, mánudag, eiga að
koma til skoðunar bifreiðar nr. R-
1501—-1650.
Hvöt,
sjálfstæðiskvennafélagið, heldur
fund í Sjálfstæðishúsinu á þriðju-
dagskvöldið, 18. þesa mánaðar, kl.
8,30 e. h. Rædd verða félagsmál,
gamanvísnasöngur, sýndar skugga
myndir frá afmælish.finu í vetur.
Kaffidrykkja.
• Utvarp •
11,00 Messa í Hallgrímskirkju.
13,15 Erindi: Ólafur Hjaltason
biskup á Hólum (Magnús Már
Lárusson prófessor). 15,15 Miðdeg-
istónleikar (plötur). 16,15 Frétta-
útvarp til íslendinga erlendis.
18.30 Barnatími (Hildur Kalman).
19.30 Tónleikar: Mischa Elman
leikur á fiðlu (plötur). 20,20 Tón-
leikar (plötur). 20,35 Erindi:
Kiistin trú og barnavernd; I.
(Gisli Jónsson alþm.). 21,00
Finnskir tónleikar (-útvarpað frá
Þjóðleikhúsinu). Flytjendur: Sin-
fóníuhljómsyeitin undir stjórn
Jussi Jalas, Antti Koskinen óperu
söngvari, Karlakórinn Fóstbræður
undir stjórn Jóns Þórarinssonar.
1 upphafi tónleikanna flytur
Bjarni Benediktsson menntamála-
ráðhera ávarp. a) „Karelia“, for-
leikur eftir Sibelius. b) „En saga“
op. 9 eftir Sibelius. c) Karlakórs-
lög eftir Sibelius og Toivo Kuula.
í hljómleikahléinu um kl. 21,45, les
Steingerður Guðmundsdóttir leik-
kona úr ritverkum Einars Jóns-
sonar myndhöggvara. — d) Þrír
þættir úr „Kalevala“-svítu eftir
Uuno Klami. e) Sönglög með
hljómsyeitarundirleik eftir Leevi
Madetoja og Sibelius. f) „Fin-
landia" op. 26 eftir Sibelius.
Mánudagur 17. maí:
19,00 Skákþáttur (Bald. Möller)'.
19,30 Tónleikar: Lög úr kvikm,
(plötur). 20,20 Útvarpshljómsv.
(Þór. Guðm. stjórnar). 20,40 Uin
daginn og veginn (Frú Lára Sig-
urbjörnsdóttir). 21,00 Einsöngur:
Sig. Jónsson frá Isafirði syngur;
Fr. Weisshappel aðstoðar. 21,20
Erindi: Ævintýrið um Timothei
(Á. G. Eylands stjórnarráðsfulltr.y
21,45 Hæstaréttarmál (Ilákort
Guðm. hæstaréttarritari). 22,10
Útvarpsagan: „Nazareinn". 22,35
Dans- og dægurlög: Liselotte Mal-
kowsky o. fl. syngja (plötur).