Morgunblaðið - 16.05.1954, Page 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 16. maí 1854
Se^tuguE1 h dag:
Páll Jónsson frétlarítari
Morgimblaðsins í Höfn
PÁLL JÓNSSON frá Höskulds-
stöðum, fréttaritari Mbl. í
Kaupmannahöfn er sextugur í
dag. Hann tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum í Reykjavík ár-
ið 1915 og stundaði síðan hag-
fræðinám við Hafnar-háskóla. En
sakir fjárskorts gat hann ekki
haldið áfram námi og fékk sér
atvinnu við ríkisjárnbrautirnar
dönsku. Starfar hann þar enn í
dag við eftirlaunadeild þeirra,
samhliða fréttastarfinu.
Meðan hann stundaði nám
reyndist hann frábær námsmað-
ur bæði hér heima og við háskóla j
námið, enda er r.ákvæmni og j
samvizkusemi eitt aðaleinkenni í
fari hans.
1 Hann gerðist fréttaritari Mbl.
fyrir nálega 30 ár'um og hefur '
haft það starf á hendi adtaf síð- j
an, nema að sjáifsögðu féllu þau
ár úr meðan sambandslaust var
héðan við Danmörku. Jafnframt
skeytasendingum hefur hann að
staðaldri skrifað fréttagreinar fyr
ir blaðið um margskonar efni
bæði um það er gerist með Dön-
um og önnur almenn tíðindi.
Þegar hann ræðir um hagfræði-
leg efni í greinum sínum, kemur
það jafnan í Ijós í því hve glögg-
ar þær eru, að hann hefur enn
miklar mætur á þessari fræði-
grein. En allar eru greinar hans
fræðandí og skemmtilegar eins
og lesendum blaðsins er kunnugt.
Páll Jónsson er kvæntur
danskri konu, myndarlegri og
mikilhæfri, og ber hið vistlega
aeimili þeirra hjóna á Kajerödvej
35 í Birkeröd þess ljósan vott.
Starfsfólk Morgunblaðsins send
ir Páli Jónssyni hugheilar þakk-
ir á þessum afmælisdegi hans
fyrir framúrskarandi örugga og
verðmæta þjónustu þessi mörgu
ár, sem blaðið og lesendur þess
íafa notið þjónustu hans, ekki
5Ízt fyFÍr árvekni hans og sam-
vizkusemi í hvívetna og óskar
íonum þess af heilum hug, að
olaðið megi fá að njóta aðstoðar
hans enn um langan aldur.
V. St.
Við lá að Elliða
yrði líka lagt
SIGLUFIRÐI, 15. maí: — Þegar
togari Siglfirðinga, Elliði, kom af
veiðum fyrir nokkrum dögum,
gengu úr skiprúmi 10 menn. Virt-
ust þá allar horfur á, að útgerð
togarans myndi stöðvast. Hér hef-
ur hinn togarinn okkar, Hafliði,
legið undanfarnar vikur.
Elliði komst út aftur, því 10
menn af áhöfn Hafliða fóru á
skipið, til þess að rekstur togar-
ans myndi ekki stöðvast. Hér er
lítið um atvinnu um þessar
mundir. — Stefán.
— Söncjskemmfun
Framh. af bls. 2
lögin Den farende svend eftir
Karl Or Runólfsson og Land-
kjenning eftir E. Grieg með ein-
söng Sverris Pálssonar, Alþýðu-
ómar (flokkur rímnalaga) eftir
Áskel Snorrason, með einsöng
Egils Jónassonar, og Gamli Jói
eftir Fonter, með einsöng Eiríks
Stefánssonar og loks sem aukalag
f sól og söng eftir Jóhann O.
Haraldsson.
Var kórnum ágætlega fagnað,
og bárust; söngstjóranum blóm.
— Sérstakíega vakti hin djúpa og
þróttmikla rödd hins unga ein-
söngvara Eiríks Stefánssonar,
athygli,
Þá kom Geysir fram á sviðið
og söng undir stjórn Árna Ingi-
mundarsonar lögin Kvöldklukk-
an eftir Björgvin Guðmundsson,
O, hve ljómar, finnskt þjóðiag,
Vögguvísa eftir B. Gjerström,
Fuglinn í fjörunni, eftir Jón Þór-
arinsson og Vor, eftir Strauss sem
aukalag. —- Sérstök ástæða er til
að fagna hinum unga og mjög
efnilega söngstjóra, sem nú í
fyrsta sinn stjórnar kórnum og
tekur við af föður sínum, Ingi-
mundi Árnasyni. — Var Árni
ákáft hylltur af áheýrendum, og
var auðséð, að hann með þessu
bætti enn hróður sinn sem vin-
sæll hljómlistarmaður. — Bæði
honum og systur hans, Þórgunni
Ingimundardóttur, hinum smekk-
vísa undirleikara, bárust blóm-
vendir,
Sameiginlega sungu kórarnir
lögin íslands Hrafnistumenn eft-
ir Jóhann Ó. Haraldsson, og ís-
land eftir Sigurð Þórðarson undir
stjórn Árna, og Þér skýla fjöll
eftir Björgvin Guðmundsson og
Hanna litla eftir Pál H. Jónsson
undir stjórn Áskels.
Það má með sanni segja, að
þessi félagssamsöngur kóranna í
bænum sé merkur viðburður í
tónlistarlífinu hér, og ánægjulegt
til þess að vita, að þeir leggist á
eitt með að veita bæjarbúum
ánægjulega dagstund. Það sér á
hinum tærú röddum æskumanna
að það er síður en svo afturför
í sönglífi þessa kórabæjar, eins og
Akureyri hefir oft réttilega verið
nefndur. — Fréttaritarar.
Kjartan Oíafsson seifypr
RcM^farnor í Kópovogi í dag
Eístu menn il-L 1ST Æ M S
SEXTUGUR er í dag Kjartan
Ólafsson, f.v. bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, nú til heimilis Há-
teigsveg 42 í Reykjavík.
Hann er fæddur í Sandhóla-
ferju í Rangárþingi, en fluttist
snemma vestur í Árnessýslu, til
Stokkseyrar, ólst þar upp og varð
þar sem flestir aðrir að heyja
harða baráttu fyrir tilverunni,
oft við óblíð náttúruöfl og erfið
skilyrði, varð það honum sá skóii
er mótaði hann öðru fremur.
Á unglingsárunum gerðist
Kjartan virkur þátttakandi í
þeirri miklu félagslegu vakningu
sem varð með stofnun ungmenna-
félaganna, kom þar strax fram sú
félagshyggja er fylgt hefur hon-
um síðan.
Til Hafnarfjarðar fluttist
Kjartan árið 1920, sem verkamaff-
ur. Kynntist hann kjörum og að-
búnaði verkalýðsins og varð rétt-
lætiskennd hans, næm tilfinning
og skilningur á kjörum olnboga-
barna þjóðfélagsins til þess, að
hann gerðist eldheitur baráttu-
maður, fyrir bættum kjörum og
auknum rétti verkalýðsins og
sannarlega munaði um Kjartan
í þeirri baráttu.
.Vakti hann á sér athygli fyrir
drengilega framkomu, háttvísi
og framúrskarandi ræðumanns-
hæfileika. Það fór því eigi hjá
því að verkamenn sýndu honum
mar-gskonar trúnað, kusu hann í
samninganefndir, fulltrúa sinn á
Alþýðusambandsþing o. fl. og ár-
ið 1926 var hann kjörinn í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar og átti hann
þar síðan sæti í nærri aldarfjórð-
ung. I bæjarstjórninni kvað mjög
að Kjartani sem annars staðar,
átti hann hugmynd að og barðist
fyrir fjölda umbótamála, t. d. var
hann einn aðalhvatamaðurinn að
stofnun Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar, og átti sæti í stjórn henn-
ar um árabil.
Kjartan var fyrsti formaður
íþróttaráðs Hafnarfjarðar. og
fjöldi annarra trúnaðarstarfa hef
ur honum verið falinn, hann var
í gjaldeyris- og innflutningsnefnd
frá 1931 til 1943, í Trygginga-
ráði, bankaráði Landsbanka ís-
lands, Skipulagsnefnd fólksflutn
inga og framfærslumálanefnd
ríkisins.
Jósafat Líndal
Arnljótur Guðmundsson
Jón A. Sumarliðason
<t>-
KJÖRFUNDUR hefst í barnaskóla hreppsins kl. 10 f. h. — Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar listi Sjálfstæiðsflokksins, D-LISTINN,
hefir verið kosinn.
A Listi Alþýðuflokksins. B Listi Framsóknarflokksins X D Listi Sjálfstæðisflokksins. G Listi óháðra kjósenda.
Guðm. G. Hagalín. Pétur G. Guðmundsson. Reinhardt Reinhardtsson. Þórður Þorsteinsson. Runólfur Pétursson. o. s. frv. Hannes Jónsson. Þorvarður Árnason. Eyjólfur Kristjánsson. Pétur M. Þorsteinsson. Gísli Guðmundsson. o. s. frv. Jósafat Lindal. Arnljótur Guðmundsson. Jón Sumarliðason. Gestur Gunnlaugsson. Sveinn S. Einarsson. o. s. frv. Finnbogi R. Valdimarsson. Ólafur Jónsson. Óskar Eggertsson. Gunnar Eggertsson. Haukur Jóhannesson. o. s. frv.
iHæfið snewima á kjörstað og kjósið Il-LISTAIVfN
í öllum þessum störfum hefur
hann sýnt ódrepandi áhuga og
dugnað, fyrir þann málstað, sem
alltaf hefur verið hans hjartans
mál, en það er bættur hagur og
aðbúð þeirra, er við erfiðust lífs-
kjör hafa átt að búa.
Þessa baráttu hefur Kjartan
háð af fullri einurð en áreitnis-
laust við andstæðinga sína. Bar-
áttuaðferð hans hefur ávallt ein-
kennst af drenglyndi og festu,
enda honum orðið mikið ágengt
og er Kjartan Ólafsson fyrir
löngu þjóðkunnur maður fyrir
mikil og vel unnin störf á sviði
opinberra mála.
Kona Kjartans er Sigrún Guð-
mundsdóttir frá Seljatungu,
prýðilega gefin og ágæt húsmóð-
ir. Hefur hún stutt mann sinn og
eflt til dáða í hvívetna. Heimili
þeirra er til fyrirmyndar og hef-
ur alltaf verið, hvort sem var í
þröngri íbúð fyrstu búskaparár-
anna eða í góðum húsakynnum
síðustu ára.
Börn þeirra eru Álfheiður
ekkja Guðna heitins Guðjónsson-
ar grasafræðings og Magnús rit-
stjóri Þjóðviljans.
Árið 1950 fluttist Kjartan til
Reykjavíkur, eftir 30 ára búsetu
í Hafnarfirði og held ég að eigi
sé ofsagt þótt sagt sé, að fáir ein-
staklingar hafi sett eins svip sinn
á Hafnarfjörð á því tímabili og
Kjartan Ólafsson.
Hafnfirzk alþýða á Kjartani
margt að þakka o.g hefur því
ástæðu til að bera fram þakkir
sínar til hans á sextugsafmælinu
og óska honum og fjölskyldu hans
alls hins bezta.
Hermann Guðmundsson.
í BLAÐI Hannesar Jónssonar,
„Kópavogstímanum", sem kom út
í gærkvöldi, reynir hann í smá-
letursgrein að bera á móti þeim
ummælum, sem höfðu voru eftir
honum hér í blaðinu í gær.
Á umræddum byggingarnefnd-
arfundi voru þeir mættir auk
Hannesar, Jón Sumarliðason,
Einar Júlíusson, Ingvi Loftsson
og Finnbogi Valdimarsson. Eftir-
greind yfirlýsing þessara fjög-
urra manna, tekur af öll tvímæli
um það, að rétt hafi verið frá
málum skýrt:
„Að gefni* tilefni viljum við
undirritaðir, sem staddir vorum
á byggingarnefndarfundi í Kópa-
vogi, sem haldinn var síðastlið-
inn sunnudag, taka fram að að-
alatriði þess, sem Hannes Jóns-
son félagsfræðingur sagði, var
það sem hér greinir:
J. Hann mundi sjálfur úthluta
lóðum, þar sem honum sýndist, en
bygginganefnd væri einungis
heimilt að samþykkja eða hafna
þeim teikningum, sem henni bær-
ust.
2. Hann tilkynnti bygginga-
nefnd að stefna hans væri sú, að
segja Öllufn leiguhöfum erfða-
leigulanda upp samningum og
svipta þá umráðarétti sínum.
Hann kvaðst leggja það til við
ráðuneytið, að byrjað yrði að
segja upp öllum erfðaleigulönd-
um vestan Hafnarfjarðarvegar".
Pilturiim
er á batavegi
PILTURINN sem slasaðist norður
á Sigiufirði í fyrradag, Hilmar
Guðmundsson, Hólavegi 12, var
heldur að hressast í gærdag, eftir
fallið mikla. Læknisrannsókn hef
ur leitt í ljós, að hann hefur ekki
beinbrotnað. — Félagi hans Tóm-
as Einarsson, Hvanneyrarbraut
78, marðist mikið.
Ranglega var það hermt, að
piltarnir hefðu fallið úr stólnum,
það var stóllinn sjálfur, sem þeir
stóðu báðir í, sem féll til jarðar.