Morgunblaðið - 16.05.1954, Síða 6

Morgunblaðið - 16.05.1954, Síða 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 16. maí 1854 Se^tuguE1 h dag: Páll Jónsson frétlarítari Morgimblaðsins í Höfn PÁLL JÓNSSON frá Höskulds- stöðum, fréttaritari Mbl. í Kaupmannahöfn er sextugur í dag. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík ár- ið 1915 og stundaði síðan hag- fræðinám við Hafnar-háskóla. En sakir fjárskorts gat hann ekki haldið áfram námi og fékk sér atvinnu við ríkisjárnbrautirnar dönsku. Starfar hann þar enn í dag við eftirlaunadeild þeirra, samhliða fréttastarfinu. Meðan hann stundaði nám reyndist hann frábær námsmað- ur bæði hér heima og við háskóla j námið, enda er r.ákvæmni og j samvizkusemi eitt aðaleinkenni í fari hans. 1 Hann gerðist fréttaritari Mbl. fyrir nálega 30 ár'um og hefur ' haft það starf á hendi adtaf síð- j an, nema að sjáifsögðu féllu þau ár úr meðan sambandslaust var héðan við Danmörku. Jafnframt skeytasendingum hefur hann að staðaldri skrifað fréttagreinar fyr ir blaðið um margskonar efni bæði um það er gerist með Dön- um og önnur almenn tíðindi. Þegar hann ræðir um hagfræði- leg efni í greinum sínum, kemur það jafnan í Ijós í því hve glögg- ar þær eru, að hann hefur enn miklar mætur á þessari fræði- grein. En allar eru greinar hans fræðandí og skemmtilegar eins og lesendum blaðsins er kunnugt. Páll Jónsson er kvæntur danskri konu, myndarlegri og mikilhæfri, og ber hið vistlega aeimili þeirra hjóna á Kajerödvej 35 í Birkeröd þess ljósan vott. Starfsfólk Morgunblaðsins send ir Páli Jónssyni hugheilar þakk- ir á þessum afmælisdegi hans fyrir framúrskarandi örugga og verðmæta þjónustu þessi mörgu ár, sem blaðið og lesendur þess íafa notið þjónustu hans, ekki 5Ízt fyFÍr árvekni hans og sam- vizkusemi í hvívetna og óskar íonum þess af heilum hug, að olaðið megi fá að njóta aðstoðar hans enn um langan aldur. V. St. Við lá að Elliða yrði líka lagt SIGLUFIRÐI, 15. maí: — Þegar togari Siglfirðinga, Elliði, kom af veiðum fyrir nokkrum dögum, gengu úr skiprúmi 10 menn. Virt- ust þá allar horfur á, að útgerð togarans myndi stöðvast. Hér hef- ur hinn togarinn okkar, Hafliði, legið undanfarnar vikur. Elliði komst út aftur, því 10 menn af áhöfn Hafliða fóru á skipið, til þess að rekstur togar- ans myndi ekki stöðvast. Hér er lítið um atvinnu um þessar mundir. — Stefán. — Söncjskemmfun Framh. af bls. 2 lögin Den farende svend eftir Karl Or Runólfsson og Land- kjenning eftir E. Grieg með ein- söng Sverris Pálssonar, Alþýðu- ómar (flokkur rímnalaga) eftir Áskel Snorrason, með einsöng Egils Jónassonar, og Gamli Jói eftir Fonter, með einsöng Eiríks Stefánssonar og loks sem aukalag f sól og söng eftir Jóhann O. Haraldsson. Var kórnum ágætlega fagnað, og bárust; söngstjóranum blóm. — Sérstakíega vakti hin djúpa og þróttmikla rödd hins unga ein- söngvara Eiríks Stefánssonar, athygli, Þá kom Geysir fram á sviðið og söng undir stjórn Árna Ingi- mundarsonar lögin Kvöldklukk- an eftir Björgvin Guðmundsson, O, hve ljómar, finnskt þjóðiag, Vögguvísa eftir B. Gjerström, Fuglinn í fjörunni, eftir Jón Þór- arinsson og Vor, eftir Strauss sem aukalag. —- Sérstök ástæða er til að fagna hinum unga og mjög efnilega söngstjóra, sem nú í fyrsta sinn stjórnar kórnum og tekur við af föður sínum, Ingi- mundi Árnasyni. — Var Árni ákáft hylltur af áheýrendum, og var auðséð, að hann með þessu bætti enn hróður sinn sem vin- sæll hljómlistarmaður. — Bæði honum og systur hans, Þórgunni Ingimundardóttur, hinum smekk- vísa undirleikara, bárust blóm- vendir, Sameiginlega sungu kórarnir lögin íslands Hrafnistumenn eft- ir Jóhann Ó. Haraldsson, og ís- land eftir Sigurð Þórðarson undir stjórn Árna, og Þér skýla fjöll eftir Björgvin Guðmundsson og Hanna litla eftir Pál H. Jónsson undir stjórn Áskels. Það má með sanni segja, að þessi félagssamsöngur kóranna í bænum sé merkur viðburður í tónlistarlífinu hér, og ánægjulegt til þess að vita, að þeir leggist á eitt með að veita bæjarbúum ánægjulega dagstund. Það sér á hinum tærú röddum æskumanna að það er síður en svo afturför í sönglífi þessa kórabæjar, eins og Akureyri hefir oft réttilega verið nefndur. — Fréttaritarar. Kjartan Oíafsson seifypr RcM^farnor í Kópovogi í dag Eístu menn il-L 1ST Æ M S SEXTUGUR er í dag Kjartan Ólafsson, f.v. bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, nú til heimilis Há- teigsveg 42 í Reykjavík. Hann er fæddur í Sandhóla- ferju í Rangárþingi, en fluttist snemma vestur í Árnessýslu, til Stokkseyrar, ólst þar upp og varð þar sem flestir aðrir að heyja harða baráttu fyrir tilverunni, oft við óblíð náttúruöfl og erfið skilyrði, varð það honum sá skóii er mótaði hann öðru fremur. Á unglingsárunum gerðist Kjartan virkur þátttakandi í þeirri miklu félagslegu vakningu sem varð með stofnun ungmenna- félaganna, kom þar strax fram sú félagshyggja er fylgt hefur hon- um síðan. Til Hafnarfjarðar fluttist Kjartan árið 1920, sem verkamaff- ur. Kynntist hann kjörum og að- búnaði verkalýðsins og varð rétt- lætiskennd hans, næm tilfinning og skilningur á kjörum olnboga- barna þjóðfélagsins til þess, að hann gerðist eldheitur baráttu- maður, fyrir bættum kjörum og auknum rétti verkalýðsins og sannarlega munaði um Kjartan í þeirri baráttu. .Vakti hann á sér athygli fyrir drengilega framkomu, háttvísi og framúrskarandi ræðumanns- hæfileika. Það fór því eigi hjá því að verkamenn sýndu honum mar-gskonar trúnað, kusu hann í samninganefndir, fulltrúa sinn á Alþýðusambandsþing o. fl. og ár- ið 1926 var hann kjörinn í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar og átti hann þar síðan sæti í nærri aldarfjórð- ung. I bæjarstjórninni kvað mjög að Kjartani sem annars staðar, átti hann hugmynd að og barðist fyrir fjölda umbótamála, t. d. var hann einn aðalhvatamaðurinn að stofnun Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar, og átti sæti í stjórn henn- ar um árabil. Kjartan var fyrsti formaður íþróttaráðs Hafnarfjarðar. og fjöldi annarra trúnaðarstarfa hef ur honum verið falinn, hann var í gjaldeyris- og innflutningsnefnd frá 1931 til 1943, í Trygginga- ráði, bankaráði Landsbanka ís- lands, Skipulagsnefnd fólksflutn inga og framfærslumálanefnd ríkisins. Jósafat Líndal Arnljótur Guðmundsson Jón A. Sumarliðason <t>- KJÖRFUNDUR hefst í barnaskóla hreppsins kl. 10 f. h. — Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar listi Sjálfstæiðsflokksins, D-LISTINN, hefir verið kosinn. A Listi Alþýðuflokksins. B Listi Framsóknarflokksins X D Listi Sjálfstæðisflokksins. G Listi óháðra kjósenda. Guðm. G. Hagalín. Pétur G. Guðmundsson. Reinhardt Reinhardtsson. Þórður Þorsteinsson. Runólfur Pétursson. o. s. frv. Hannes Jónsson. Þorvarður Árnason. Eyjólfur Kristjánsson. Pétur M. Þorsteinsson. Gísli Guðmundsson. o. s. frv. Jósafat Lindal. Arnljótur Guðmundsson. Jón Sumarliðason. Gestur Gunnlaugsson. Sveinn S. Einarsson. o. s. frv. Finnbogi R. Valdimarsson. Ólafur Jónsson. Óskar Eggertsson. Gunnar Eggertsson. Haukur Jóhannesson. o. s. frv. iHæfið snewima á kjörstað og kjósið Il-LISTAIVfN í öllum þessum störfum hefur hann sýnt ódrepandi áhuga og dugnað, fyrir þann málstað, sem alltaf hefur verið hans hjartans mál, en það er bættur hagur og aðbúð þeirra, er við erfiðust lífs- kjör hafa átt að búa. Þessa baráttu hefur Kjartan háð af fullri einurð en áreitnis- laust við andstæðinga sína. Bar- áttuaðferð hans hefur ávallt ein- kennst af drenglyndi og festu, enda honum orðið mikið ágengt og er Kjartan Ólafsson fyrir löngu þjóðkunnur maður fyrir mikil og vel unnin störf á sviði opinberra mála. Kona Kjartans er Sigrún Guð- mundsdóttir frá Seljatungu, prýðilega gefin og ágæt húsmóð- ir. Hefur hún stutt mann sinn og eflt til dáða í hvívetna. Heimili þeirra er til fyrirmyndar og hef- ur alltaf verið, hvort sem var í þröngri íbúð fyrstu búskaparár- anna eða í góðum húsakynnum síðustu ára. Börn þeirra eru Álfheiður ekkja Guðna heitins Guðjónsson- ar grasafræðings og Magnús rit- stjóri Þjóðviljans. Árið 1950 fluttist Kjartan til Reykjavíkur, eftir 30 ára búsetu í Hafnarfirði og held ég að eigi sé ofsagt þótt sagt sé, að fáir ein- staklingar hafi sett eins svip sinn á Hafnarfjörð á því tímabili og Kjartan Ólafsson. Hafnfirzk alþýða á Kjartani margt að þakka o.g hefur því ástæðu til að bera fram þakkir sínar til hans á sextugsafmælinu og óska honum og fjölskyldu hans alls hins bezta. Hermann Guðmundsson. í BLAÐI Hannesar Jónssonar, „Kópavogstímanum", sem kom út í gærkvöldi, reynir hann í smá- letursgrein að bera á móti þeim ummælum, sem höfðu voru eftir honum hér í blaðinu í gær. Á umræddum byggingarnefnd- arfundi voru þeir mættir auk Hannesar, Jón Sumarliðason, Einar Júlíusson, Ingvi Loftsson og Finnbogi Valdimarsson. Eftir- greind yfirlýsing þessara fjög- urra manna, tekur af öll tvímæli um það, að rétt hafi verið frá málum skýrt: „Að gefni* tilefni viljum við undirritaðir, sem staddir vorum á byggingarnefndarfundi í Kópa- vogi, sem haldinn var síðastlið- inn sunnudag, taka fram að að- alatriði þess, sem Hannes Jóns- son félagsfræðingur sagði, var það sem hér greinir: J. Hann mundi sjálfur úthluta lóðum, þar sem honum sýndist, en bygginganefnd væri einungis heimilt að samþykkja eða hafna þeim teikningum, sem henni bær- ust. 2. Hann tilkynnti bygginga- nefnd að stefna hans væri sú, að segja Öllufn leiguhöfum erfða- leigulanda upp samningum og svipta þá umráðarétti sínum. Hann kvaðst leggja það til við ráðuneytið, að byrjað yrði að segja upp öllum erfðaleigulönd- um vestan Hafnarfjarðarvegar". Pilturiim er á batavegi PILTURINN sem slasaðist norður á Sigiufirði í fyrradag, Hilmar Guðmundsson, Hólavegi 12, var heldur að hressast í gærdag, eftir fallið mikla. Læknisrannsókn hef ur leitt í ljós, að hann hefur ekki beinbrotnað. — Félagi hans Tóm- as Einarsson, Hvanneyrarbraut 78, marðist mikið. Ranglega var það hermt, að piltarnir hefðu fallið úr stólnum, það var stóllinn sjálfur, sem þeir stóðu báðir í, sem féll til jarðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.