Morgunblaðið - 18.05.1954, Page 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. maí 1954 j
; Hæffi veiðum þóff m\ aflisf
i fil þess að sfunda landvinnu
Ólafsvík, 17. maí.
ÞRÁTT fyrir góðan afla hér undanfarið, hafa þrir bátar hætt (
veiðum og áhafnir þeirra farnar að stunda landvinnu sem er
tiér mikil, í sambandi við ýmiss konar byggingar og framkvæmdir.
t gær voru fjórir bátár á sjó og var afli þeirra 7—9 tonn.
VIRJKUN FOSSÁR ^
Undirbúningur hefur nú verið
tiafinn að ýmiss konar fram-
kvæmdum hér i sumar. Til dæm-
is hefur verið ákveðið að ljúka
-við virkjun Fossár, en byrjað var
Á að byggja vatnsveitu í fyrra
jsumar og á hún að fullnægja
rafmagnsþörf Sands og Ólafs-
víkur.
A3RAR FRAMKVÆMDIR
Áuk vatnsveitunnar munu
•einnig aðrar byggingarfram-
kvæmdir verða hér, og má reikna
«neð mikilli atvinnu í sumar. —
Mun sjómönnum þykja arðvæn-
legra að stunda landvinnu hér í
■sumar heldur en útveginn, enda
sýnir það sig, að þeir fara í land
<rá ágætis fiskiríi.
— Einar Bergmann.
Kirkjukór gauðárkróks .....
HÚSAVÍK, 17. maí. — Kirkjukór
Sauðárkróks var hér á ferð s.l.
laugardag og hafði samsöng í
Húsavíkurkirkju um kvöldið. —
Söngstjóri kórsins er Eyþór
Stefánsson tónskáld. Einsöngvar-
ar Snæbjörg Snæbjörnsdóttir,
Gunnhildur Magnúsdóttir, Sig-
urðut P. Jónsson og Svavar Þor-
valdsson. Undirleik annaðist frú
-Sigfíður Auðuns.
FJÖLBREYTT EFNISSKRÁ
Var efnisskráin mjög fjölbreytt
og skemmtileg. Söng kórinn- með-
al annars Finnlandia eftir Sibe-
lius, Stándchen eftir Schubert,
Barcarolle eftir Offenback og iög
eftir Björgvin Guðmundsson,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson o. fl.
0
MÖRG AUKALÖG
Söngskemmtun þessi var ágæt-
lega tekið og varð að endurtaka
mörg lögin og syngja fjögur
aukalög. Formaður kirkjukórs
Húsavíkur Mikael Sigurðsson,
ávarpaði gestina áður en söngur-
dnn hófst og bauð þá velkomná
til Húsavíkur.
KÓRARNIR SUNGU SAMAN
Að endingu sungu kórarnir
saman tvö lög undir stjórn sr.
Fiiðriks Á. Friðrikssonar pró-
dasts. 'Sigurður P. Jónsson þakk-
aði fyrir hönd gestanna góðar
móttökur, en kórinn gisti hér í
boði kirkjukórs Húsavíkur og fór
í gær að Laugum og hélt söng-
sk emmtun þar, en hélt síðan heim
í nótt. — Fréttaritari.
kr, fyrir 10 rétta
ÚRSLIT leikjanna á 19. seðlin-
um:
Þróttur 2 — Valur 5
Júgóslafía 1 — England 0
Asker 2 — Nordnes 0
Larvik 2 — Viking 1
Strömmen 0 — Sarpsborg" 1
Odd 1 — illeström 1
Aik 0 — Djurgárden 0
Gais' 1 — Göteborg 1
Hálsingborg 3 — Malmö FF3
Degerfors 2 — Jönköping 0
Elfsborg 1 — Norrköping 0
Xalmar 2 — Sandviken 1
Flestar réttar ágizkanir í síð-
ustu leikviku reyndust 10, sem
komu fyrir á 7 seðlum. Hæsti
vinningur varð 280 kr., sem
greiddar verða fyrir 4 af þess-
urn 7. Voru það kerfi með 1/10
Og 6/9 réttum.
BONN, 17. maí. — Næststærsti
stjórnarflokkurinn í Þýzkalandi
— Frjálslyndi flokkurinn —
gerði í dag flokkssamþykkt um
það að æskilegt væri að Vestur-
Þýj^kaland tæki upp stjórnmála-
sambánd við Rússa. Er þetta
þvert ofan í yfirlsýingy Adenau-
ers um að ekki komi til mála
að taka upp slíkt stjórnmálasam-
band. — Reuter.
Slysið við Lögberg
Drengiiiiim slas-
aðist mikið á höfði
SLYSIÐ upp í Lækjarbotnum á
laugardagskvöldið var all alvar-
legt. — Drengur sem var á reið-
hjóli varð fyrir bíl skammt frá
Lögbergi. Hlaut hann höfuðkúpu-
brot. Hann liggur nú í Landa-
kotsspítala.
í fregnum blaðsins á sunnu-
daginn, var talið að slys það sem
hér um ræðir, hefði orðið á
stúlku.
Bílstjórinn á bílnum, sem
drengurinn varð fyrir sá til ferða
hans og annars barns og voru
bæði á rciðhjólum. — Bíllinn var
aðeins fáeina metra fyrir aftan
börnin, er drengurinn á reiðhjól-
inu sveigir skyndilega inn á veg-
inn, þvert í veg fyrir bílinn, með
þeim afleiðingum að harður
árekstur varð. — Kastaðist dreng
urinn nokkra metra fram fyrir
bílinn og var í öngviti er að var
komið. — Reiðhjólið sem hann
hafði verið á, var stórt karl-
mannsreiðhjól og hjólaði sá litli
undir slá og hafði tæpast stjórn
á hjólinu Drengurinn er nú rúm-
liggjandi í Landakotsspítala. —
Hann heitir Guðmann Guðmanns
son og er átta ára.
Ðoklorspréf í
heimspeki
HEIMSPEKIDEILD Háskóla ís-
lands hefur dæmt rit Halldórs
Halldórssonar, dósents, „íslenzk
orðtök“, gilt til varnar fyrir
doktorsnafnbót í heimspeki.
Vörnin fer fram í hátíðasal
Háskólans laugardaginn 12. júní
kl. 2 e. h. Andmælendur heim-
spekisdeildar verða prófessor-
arnir dr. Alexander Jóhannesson
og dr. Einar Ól. Sveinsson.
Ágæt mynd í
Bæjarbíói
HAFNARFIRÐI — Bæjarbíó
sýnir um þessar mundir mjög
athyglisverða mynd — Glötuð
æska. — sem hvarvetna hefir
hlotið mjög góða dóma. Fjallar
hún um vandamál unglinga í fá-
tækrahverfi stórborgar, og lýsir
á hinn hroðalegasta hátt glæp-
um, sem unglingar rata þar í.
Myndin er mexíkönsk og er af-
bragðs vel tekin, — og að sama
skapi vel leikin. — Er óhætt að
segja ,að þesSi mynd sé með þeim
betri, sinnar tpgundar, sem
hingað hafa komið. G. E.
— Kristján hersh,
Framh. af bls. 1
ingjar kommúnista gengu inn
í bækistöðvarnar. De Castries
ætlaði að afhenda þeim
skammbyssu sína, en var svar-
að að hann gæti haldið henni.
gj FLUTTUR BROTT Á JEPPA
Síðan var einum jeppabíl af
rússneskri gerð ekið að bæki-
stöðinni og de Castries flutt-
ur brott á honum undir sterkri
varðgæzlu. — Hershöí'ðinginn
var óskaddaður.
gSLÆM AÐBÚÐ SÆRÐRA
Champery skýrði frá því áð
hjúkrunarkonan Genevieve,
sem var eina konan í virkinu
hefði verið fiutt brott heil á
húfi. Champery kvartaði mjög
undan því að eftir fall borg-
arinnar hcfðu uppreisnar-
menn ekkert skipt sér af hin-
um særðu í neðanjarðarsjúkra
klefunum í þrjá daga. —
Voru þeir aðhlynningar og
nærri matarlausir allan þann
tima. Létu þá margir lífið og
varð daunillt í klefunum, því
að hinir sem eftir lifðu áttu
erfitt um vik að kasta líkun-
um út.
Geysi-aðiókn að
finnsku sýningunni
GEYSIMIKIL aðsókn hefur ver-
ið að finnsku iðnsýningunni síð-
an hún var opnuð á laugardag,
enda er sýningin mjög athyglis-
verð. Við opnun sýningarinnar
komu um 400 boðsgestir. Fram a
sunnudagskvöld komu 4550 sýn-,
Sr. Þorvaldur
Hann andaðist að heimili sínu,
Öldugötu 55, laugardaginn 8. maí,
94 ára að aldri.
Þegar aldurinn er orðinn hár
og líkamskraftarnir þrotnir, er
fengur að því að fá hvíld og
flytjast yfir.
Séra Þorvaldur fæddist að
Staðarbakka í Miðfirði 4.
1860. Foreldrar hans voru
Jakob Finnbogason, f. 5.
1805, d. 20. maí 1873, síðast prest-
ur að -Steinnesi í Húnavatns-1
sýslu og kona hans, Þuríður,
dóttir Þorvaldar prófasts í Holti
Böðvarssonar.
Séra Þorvaldur varð stúdent \
1881, cand. theol. 1883 og vígðist
16. september sama ár til Stað-
ar í Grunnavík. Þann 28. maí
1884 fékk hann Brjánslæk á
Barðaströnd og 26. ágúst 1896
Sauðlauksdal í Patíeksfirði.
Hann fékk lausn frá prests-
störfum árið 1921, eftir 38 ára
Minningarorð
ingargestir og á mánudag 1250 prestsþjónustu, og fluttist þá til
manns. Alls gerir þetta um 6200
manns, þar af eru um 1200 börn.
Er aðsókn að sýningunni svo
mikil að það hlýtur að teljast
óvenjulegt.
Utaiiríkísráð-
herra til Strass-
bor
gar
DR. KRISTINN GUÐMUNDS-
SON, utanríkisráðherra, fór 16.
þ. m. með flugvél til útlanda.
Fer ráðherrann til Strassborg-
ar til þess að sitja þar fund ráð-
herranefndar Evrópuráðsins.
Samnorræna sund-
keppnin á Akureyri
SAMNORRÆNA sundkeppnin
hófst hér á Akureyri klukkan
8,30 á laugardagskvöldið við
sundlaug bæjarins, þar sem Akur
eyringar fjölmenntu við þá hátíð-
legu athöfn
Ármanu Dalmannsson sagði
mótið sett, en síðan synti 7 ára
drengur, Ólafur Hrólfsson, fyrst-
ur Akureyringa 200 metrana, en
á meðan lék Lúðrasveit bæjar-
ins undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar, þjóðsönginn og íslenzki
fáninn var dreginn að hún og
síðan fánar hinna Norðurland-
anna. Þessu næst hófst svo
keppnin og allmargir bæjarbúar
þreyttu sundið og riðu á vaðið
þeir Guðmundur Karl Pétursson
yfirlæknir og Ármann Dalmanns
son.
Akureyringar eru staðráðnir í
því að láta ekki sitt eftir liggja
í norrænu sundkeppninni, en
árangur þeirra við síðustu keppni
var vægt sagt mjög lélegur mið-
að við aðra landshluta. —Vignir.
329 HaSnfirðingar
hafa syni 290 m,
HAFNARFIRÐI — í gærkvöldi
höfðu 320 Hafnfirðingar synt 200
metrana í hinni Samnorrænu
sundkepj'.ni Verður það að telj-
ats góð írammistaða eftir aðeins
tvo daga. — í siðustu sundkeppni!
Norðurlandanna, syntu 1474 Hafn !
firðingar og urðu þeir þá 9.—10. í;
röðinni yfir heildina. — Að þessu
sinni er mikils um vert, að nokk-
ur h'undruð Hafnfirðingar bætist
í hópmn, svo að hlutur þeirra
verði ekki minni en síðast.
Sunc’höllin er opin dag hvern
frá kl. 8 til 22. — Aðsókn að laug-
inni hefir verið góð að undan-
förnu. —G. E.
Hafnarfjarðar, varð kennari við
Flensborgarskólann og kenndi
þar íslenzku og reikning. Lausn
frá kennslustörfum fékk hann
1934, þá 74 ára að aldri.
Hann kvæntist 9. nóvember
1889 Magdalenu dóttur Jónasar
Jónssonar bónda á Melum í
Melasveit og síðar á Hallbjarnar-
eyri og hreppstjóra þar. Þau
hjón eignuðust 8 börn, og kom-
ust 6 þeirra til fullorðins ára.
Ein dóttir, Jórunn, dó 1933, 35
ára að aldri, en þau, sem lifa,
eru: Finnbogi Rútur, verkfræð-
ingur og prófessor í Reykjavík;
Guðný, gift í Reykjavík; Þuríff-
ur, hjúkrunarkona í Reykjavík;
Arndís, kaupkona í Reykjavík;
Búi, mjólkurfræðingur í Reykja-
vík.
Við, sem þessi minningarorð
ritum, vorum ungir drengir,
langt innan við fermingu, þegar
séra Þorvaldur fékk veitingu
fyrir Sauðlauksdal og við kynnt-
umst honum fyrst. Bárum við
mikla virðingu og lotningu fyrir
hinum nýja og þróttmikla presti.
Sú virðing hefur haldizt síðan
og mun haldast á meðan við lif-
um, enda var séra Þorvaldur sá
mannkosta- og hæfileikamaður,
að hann naut trausts og virðing-
ar, hvar sem hann kom. Hann
var sýslunefndarmaður frá 1887
og þangað til hann fluttist úr
sýslunni og amtsráðsmaður fyrir
Vestur-Barðastrandarsýslu frá
1901 og þar til amtsráðin voru
lögð niður.
Séra Þorvaldur var snjall og
mikill íslenzkumaður, skrifaði
meitlað og kjarnort mál, laust
við mærð og mælgi. Hann var
einnig ágætur í latínu og þeim
erlendum málum, sem kennd
voru í Menntaskólanum, svo og
í sögu og ættfræði. En hann var
einnig sterkur stærðfræðingur,
kunni góð skil á náttúrufræði
og hafði mikinn áhuga á tækni-
legum fræðum. Sýnir það, hve
víðtækar gáfur hans voru.
í Sauðlauksdal kenndi hann
um langt árabil piltum undir
skóla á heimili sínu og kom öll-
um vel á veg á stuttum tíma, oft-
ast fyrir lítið gjald eða ekkert.
Fermingarbörn sín hafði hann
jafnan heima hjá sér um tíma
fyrir ferminguna, og eru þeir
dagar okkur mjög hugstæðir,
þótt um hálf öld sé nú liðin síð-
an. í því sambandi ber þess
vissulega að geta, að frú Magda-
lena bar ríflega sinn hlut, að
öllu því, er heimilið og búrekst-
urinn snerti. Gestrisni hennar,
röskleiki og ástúð var af öllum,
er til Sauðlauksdals komu, auð-
sæ.
Einn nemenda hans frá Flens-
borg segir um hann: „Heldur
leizt okkur séra ÞorvaldUr harð-
ur á brún og ekki laust við að
nýsveinum stæði af honum
nokkur ótti. En við nánari kynni
kom það í ljós, að hann kunni
ekki aðeins að beita hinum rétta
strangleik, heldur hafði hann
einnig til að bera hlýhug og
mildi, sem skildi, að ungu fólki
er ekki einungis þörf á aga, held-
ur einnig viðurkenningu og örv-
un. Allir nemendur séra Þorvald-
hans, líka þeir, sem fengu lágar
einkunnir, því réttlátur var hann;
það varð ekki dregið í efa.“
Séra Þorvaldur var fróður
maður og sagði svo vel frá, að
það hlaut að vera yndi hverjumt
fróðieiksfúsum manni að ræða
við hann og hlusta á hann. Ham
var hispurslaus, öruggur og á-
kveðinn, og tilsvör hans gátu
stundum verið hárbeitt og
skemmtilega hittin. Engu að síð-
ur var hann ætíð prúður og alúð-
legur, gestrisinn og hjáípsamur.
Við teljum rétt að tilfæra hér
ummæli, sem hinn merki og
gætni maður, séra Bjarni Sím-
onarson, prófastur á Brjánslæk,
hefur bókað í kirkjubók Brjáns-
lækjar eftir brottför séra Þor-
valdar þaðan: „Séra Þorvaldur
gat sér hinn bezta orðstír hér í
hyggðarlagi þessu sem mjpg góð-
ur kennimaður, andríkur og orð-
hagur í prédikunum, skylduræk-
inn og reglusamur í allri embætt-
isfærslu, djarfur og hreinlvndur,
göfuglyndur og óeigingjarn og
yfirleitt hinn vandaðasti sæmd-
armaður í hvívetna. Hann studdi
hér mjög að framförum, og er
óhætt að fullyrða, að þetta
prestakall tók allmiklum stakka-
skiptum til bóta, meðan hann
dvaldi hér og eins hitt, að hanrn
átti þar drjúgan hlut að máli,
Uppfræðingu ungmenna lét
hann sér einkar annt um, enda
var það allt í mjög góðri reglis
við burtför hans.
Sveitarmenn kunnu líka vel
að meta mannsparta hans og
göfuglyndi. Þeir virtu hann mik-
ils og unnu honum og minnasf,
hans með þakklæti. Þess má enrs
geta um séra Þorvald, að hanrj
er ötull áhugamaður og atorku-
samur, lipur og laginn vel. Er
meðal annars sýnt um söngfræði
og hljóðfæraslátt."
Þessi ummæli jafn grandvarS
manns og séra Bjarni var, lýsa
vel séra Þorvaldi og því áliti, er
hann þá þegár, eftir 12 ára starf,
hafði áunnið sér hjá Barðstrend-
ingum, og myndu sóknarböm
séra Þorvaldar í Sauðlauksdals-
prestakalli hafa staðfest þessi
sömu ummæli. Þess skal og hén
getið, að umsækjendur um Sauð-
lauksdalsprestakall, þegar séra
Þorvaldur sótti um það, voru 5,
og fékk hann öll atkvæðin nema
3, og var þó Patreksfjarðarkaup-
staður þá í þessu prestakalli.
Séra Þorvaldur var einlægun
trúmaður og að öllu laus við
yfirborðs fjálgleik. Trúin vav
honum ekki meinlætakenning,
heldur kenning karlmennsku og
drenglundar, siðgæðis og sjálfs-
bjargar.
Við munum ávallt minnasfl
hans sem ejns af lærðustu og
ágætustu íslendingum vorra
tíma.
Þrír nemendur að vestan.
122 börnum bjargað.
NEW YORK — Eldur kom nýlega
upp í skóla í Manitóba og brann
hann til kaldra kola. Tókst lí.
nunnum, sem í skólanum kenndu,
að bjarga öllum börnunum 12%
að tölu.