Morgunblaðið - 18.05.1954, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.05.1954, Blaðsíða 14
14 MORGVIiBLAÐIB Þriðjudagur 18. maí 1954 t Skugginn og tindnrinn SK LDSAGA EFTIR RICHARD MASOM F ramhaldssagan 39 1 hann ýfði upp gömul sár. Þegar hann hafði snætt, klæddi hann sig aftur og gekk út á götuna. Hann fór á bókasafnið og skoðaði bækur. Hann var næstum sofn- aður í hitanum, svo hann fór út aflur og fékk sér rjómaís á bar við King Street. Svo fór hann -aftur til Myrle Bank. Hann var j alveg viss um að Judy mundi ekki vera þar og hann reyndi að "búa sig undir vonbrigðin. Hann Jeit í kring um sundlaugina og sá hana hvergi. Vonbrigðin voru sár þrátt fyrir allt. Hann settist und ir sólhlíf. En einni mínútu síðar sá hann hana koma út úr bún- ingsherberginu. Hún var komin í sundbol. „Ég hélt að þú mundir ekki koma“ sagði hann. „Því skyldi ég ekki koma?“ „Þú skrifaðir mér ekki.“ „Átti ég að gera það. Mér datt það ekki í hug. Ég er ómöguleg 1 við að skrifa bréf.“ Þegar þau höfðu synt í laug- ] inni fengu þau sér te. Sami þjónn inn gekk eoli um beina, en hon- ] varð ekilt hugsað til Carolyn. j „Ég veit ekkert um þig“, sagði hann við Judy. „Ekki nema það að ég elti karl menn og frem sjálfsmorð.“ „Ég meina þar áður. Hvar fæddistu? Ég get ekki gert mér grein fyrir því hvaðan þú ert komin.“ „Ég er ein af þeim sem á enga formfasta fortíð.“ Hún brosti og sli auk hárið frá enninu. ,,Við er- um afsprengi borganaa og venju- lega endum við lífdaga okkar á gleðihúsum í Kína.“ „Einhverja fjölskyldu hefur þú átt.“ „Jú, að einhverju leyti.“ „Fyrirgefðu", sagði hann, „ég cr víst of nærgöngull. „Ég skal segja þér það, ef þig ; langar til að vita bað. Mér er j alveg sama þó að ég segi fólki að ég sé óskilgetin." Hún hló. 1 „Veiztu ekki að þú átt að setja ] upp skelfingarsvip." „Ég er ekki mjög skelfdur“, ! sagði hann glaðlega. „Ég veit ekki hvað ég á að segja.“ „Þú átt að segja: Fólki er alveg sama um slíkt nú á dögum, og svo áttu að fara að tala um veðrið." „Mig langar heldur til að heyra meira um það. Hverjir voru for- eldrar þínir.“ Móðir mín var vélritunarstúlka föður míns eða eitthvað þess háttar, held ég. Hún dó, þegar ég fæddist, og þá fékk hann slæma samvizku. Hann átti in- dæla fjölskyldu fyrir. Eða það sýndist mér að minnsta kosti. Ég ] sá hann einu sinni með alla fjöl- J skylduna í leikhúsi Hann varð j að láta eins og hann hefði ekki scð mig. Það fannst honum slæmt •og næst þegar við hittumst gaf hann mér loðfeld.“ Hann spurði hvar hún hefði alizt upp. „Hjá barnlausú fólki í Ealing. Faðir minn borgaði vel með mér og kom til að heimsækja mig einu sinni í m^nuði. Hann var sagður vera frændi minn. Þau sögðu mér sannleikann þegar ég var sextán ára. Þau voru hrædd um að ég mundi deyja af skömm, en rnér fannst það bara fyndið. Næst þeg ar faðir minn kom, gaf hann mér hræðilega ljóta handtösku. Ég spurði hann hvort ég gæti fengið henni skipt. Hann gaf mér fimm pund til að gera það með. Ég gat j 'ekki skilið, hvers vegna allir vildu ekki vera óskilgetnir." „Þú hefur verið heppin“, sagði Douglas. „Já. Faðir minn er ágætur. Hann er vel efnaður. Mig langaði til að læra að leika svo hann sendi þig á konunglega leikskól- ann. Mér gekk illa. Ég fór að búa með öðrum sem gekk vel, til að reyna að bæta mér það upp og þá féll hann í stríðinu. Ég var líka hætt komin sem bílstjóri í sjúkrabíl. Ég skildi aldrei hvernig á því stóð að ég fórst ekki líka. ! Þá vissi ég ekki að ég hafði fæðst undir heillástjörnu. Það er skrít- j ið?“ Hún yppt öxlum og brosti. „Jæja, í fáum orðum sagt, þar sem ég var til einskis nýt við leiklistina, þá tók ég upp þann starfa að sýna nýtízku kjóla. Þá Aðeins með Oxydol getið þér gert þvottinn svo gjörsam- lega hvitan að hvorki sér á blett eða hrukku. Eftir þvott- inn úr Oxydol verðuv línið hvítara en nokkru sinni fyrr, og leyndardómurinn er ein- ungis hve geysilega það freyðir með sínu ekta sápu- löðri! OXYDOL eitt gerir þvottinn drif- hvítan og dásamlegan KAUPIÐ OXYDOL — og sjáið þvottinn yðar skína í allri sinni dýrð! Einkauniboðsmcnn Agnar IMorðfjörð & Co. h.f. Lækjargötu 4 — Reykjavtk Til leigu! við bjóðum yður til leigu eftirfarandi: ★ BIFREIÐAR án ökumanns. ýmsar gerðir. ★ MÓTORHJÓL ★ REIÐHJÓL MEÐ HJÁLPARVÉL Opnum í dag afgreiðslu á Laugaveg 47. (Frakkastígsmegin) Splunkuný reiðhjól með hjálparvel (Aldur minnst 14 ára). VITRIR VELJ/V mn >1 Ókeypis upp- skriftir Húsmæður! LILLIJ uppskriftir yfir kökur, tertur og brauð, fáið þér ókeypis hjá kaupmanni yðar þegai þér kaupið eina dós af Lillu lyftidufti, sem er 1—2 krónum ódýrara en erlent og viðurkennt fyrir gæði. LILLU-JÓLAKAKA 60 gr. smjörlíki. 1 tesk. Lillu-kardemommur. 125 gr. sykur. Vz dl. mjólk. 2 egg. — 250 gr. hveiti. 50 gr. súkkat. 3 tesk. Lillu-lyftiduft. 50 gr. rúsínur. Smjörlíkið, sykurinn og eggin eru hrærð vel saman. Hveitið, sem hefir verið sigtað ásamt Lillu-lyftiduftinu og kardemommunum, er hrært vel saman við ásamt mjólkinni. Súkkat, niðurskorið, og rúsínum er bætt út í degið. Bakað í smurðu móti í 1 klst. LILLU - SÚKKUL AÐIKÖKUR 100 gr. smjörlíki. 4 matsk. haframjöl. 100 gr. sykur. 2 matsk. kartöflumjöl. 1 egg. 3 matsk. hveiti. 2 matsk. kakó. % tesk. Lillu-lyftiduft. Smjörlíkið er linað og hrært ásamt sykrinum, þar til það er hvítt. Eggið hrært saman við þvínæst hafra- mjölið. Hveitið, blandað Lillu-lyftidufti og kakói hrært saman við. Látið með teskeið á vel smurða plötu og bakað við jafnan hita. IMauðungiaruppboð Eftir kröfu Egils Sigurgeirssonar hrl. verður bifreiðin R- 1645, seld á nauðungaruppboði til tryggingar dómkrpfu að upphæð kr. 6800.00. Auk vaxta og kostnaðar. Uppboðið fer fram á lögreglustöðinni í Hafnarfrði mið- vikudaginn 26. þ. m. kl. 11 f. h. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu 17. maí 1954. Guðm. í. Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.