Morgunblaðið - 18.05.1954, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐID
Þriðjudagur 18. maí 1954
i
!*■«
Skeinmtisigtiiig
*
t»I Isafjarðar
• Nokkrir farseðlar, sem ekki hafa verið sóttir, í skemmti- *
ferð Lúðrasveitar Reykjavíkur um hvítasunnuna til Isa- jj
• fjarðar verða seldir í Músikbúðinni, Hafnarstræti 8.
LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKLR
:
%
Ungur maður
jj með verzlunarskóla- eða hliðstæða menntun og nokkra j
JC æfingu í skrifstofustörfum óskast á endurskoðunarskrif- •
£ stofu nú þegar eða frá 1. júní n. k. — Eiginhandai um- ;
C sóknir sendist afgr. Mbl. merkt: Endurskoðun 134.
1—2 herbergi og eldhús
óskast til leigu. — Tvennt í heimili. — Leigjandi getur
steypt skrautgirðingu fyrir leigusala. Uppl. I síma 82860.
mrnmin
Kúseign til sölu
Til sölu er húseign í Smáíbúðahverfinu, 2 herbergi og »
■
eldhús á hæð og 2 herbergi í kjallara. ;
■
Allar uppl. gefur j
Pétur Þorsteinsson, hdl.
Lækjartorgi 1, frá kl. 2—3 daglega •
Sími 4250 ;
Röskur piltur
■
■
óskast til aðstoðar veiðimönnum við Þverá í Borgar- ;
a
■
■
■
firði. — Uppl. hjá O. Johnson & Kaaber h. f.
C
(S
iZ
I
n
5 herbergja hæð
á hitaveitusvæðinu til sölu.
■
EINAR ÁSMUNDSSON hrl.
Hafnarstræti 5. Sími 5407. Viðtalstími 10—-12 f.h. ;
■
væntanlegt næstu dag;
Sendið pantanir strax
£*-UcMn
I8J
Einkaumboð: l
■
■
UÓRtílR H. TEITSSON
Grettisgötu 3 — Sími 80360 ;
— Dagbók —
Finnbogi Rútur skriíar Hannibal bréður sínum:
FORMAÐIIR Alþýðuflokksins Hannibal Valdimarsson gaf út dag-
skipun til kratanna í Kópavogi að kjósa lista kommúnista við
hreppsnefndarkosninguna þar s.l. sunnudag.
Góði bróðir, ég vil þakka þér
með þessum línum, að þú dugðir mér
svo vel í mínum vanda á sunnudaginn.
Allt fór þetta á þann rétta veg,
sem að við höfðum miðað, þú og ég.
Já, — það er bara að búa vel í haginn!
!
Og einmitt nú, er afhent hafið þið
ykkar þreytta og hrjáða kratalið
okkur kommunum í Kópavogi,
er tími fyrir þig að fara á kreik
og fremja í Reykjavík hinn-sama leik.
Sæll á meðan,
þinn kæri bróðir
Bogi.
í dag er 138. dagur órsins.
Árdegisflæði kl. 5,30.
Síðdegisflæði kl. 17,56.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki, sími 1760.
RMR — Föstud. 21. 5. 20. — VS
— Mt. — Htb.
□------------------------□
. Veðrið •
1 gær var hæg suðlæg átt um
allt land, víða þoka á Suður- og
Vesturlandi og sums staðar lítils
háttar rigning, en úrkomulaust
austanlands.
í Reykjavík var hiti 12 stig kl.
15,00, 11 stig á Akureyri, 7 stig á
Gaitarvita og 7 stig á Daiatanga.
Mestur hiti hér á landi í gær kl.
15,00 mældist 17 stig á Kirkju-
bæjarklaustri og Egilsstöðum, en
minnstur á Dalatanga og Galtar-
vita, 7 stig.
1 London var hiti 11 stig um
hádegi, 14 stig í Höfn, 11 stig í
París, 17 stig í Berlín, 11 stig í
Osló, 14 stig í Stokkhólmi, 11 stig
í Þórshöfn og 20 stig í New York.
□------------------------n
• Bruðkaup •
S. 1. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband í Stykkishólmi
ungfrú Hrefna Jónsdóttir og Jens
Þorvaldsson, sjómaður. Heimili
þeirra verður í Stykkishólmi.
S. 1. sunnudag voru gefin saman
í hjónaband af séra Árelíusi Níels-
syni ungfrú Ingibjörg Sigurðar-
dóttir frá Úthlíð í Biskupstungum
og Hróar Björnson, handavinnu-
kennari frá Brún í Reykjadal.
Heimili þeirra er að Brún í
Reykjadal.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag hjónin Kristín Guðbjörg
Guðmundsdóttir og Jón Guðjóns-
son, Langholtsvegi 12, Reykjavík.
Kveðja frá vimim:
Veglynd grædduð vina fjöld,
víða hlýju andið.
Fjórða part áf einni öld
eflduð hjónabandið.
Fylgdi starfi hugur, hönd.
Horfin stríðum trega,
ykkar kærleiks blessuð bönd
bunduð dásamlega.
Ykkur fylgi auðnan há,
— að því gæfan miði.
Sæmdar óskir fáið frá
frænda- og vina- liði.
• Hjönaefni •
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Ingibjörg S. Guð-
mundsdóttir, Litla-Kambi, Breiðu-
vík, Snæfellsnesi, og Guðjón G.
Kristinson, Ytri-Knarrartungu,
Breiðuvík, Snæfellsnesi.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sina Ungfrú Ásdís Skarphéðins-
dóttir, Tjarnargötu. 3, og Aðal-
björn Sigurlaugsson vélstjóri frá
Ólafsfirði.
• Flugferðir •
Millilandaflug.
Loftleiðir h.f.:
Hekla, millilandaflugvél Loft-
leiða er væntanleg til Reýkjavíkur
kl. 11 í fyrramálið frá New York.
Gert er ráð fyrir, að flugvélin fari
héðan kl. 13 til Stafangurs, Oslóar,
Kaupmannahafnar og Hamborgar.
I'InsfélaR íslands h.f.:
Gullfaxi er væntanlegur til
Reykjavíkur kl. 16,30 í dag frá
London og Prestvík. Flugvélin fer
síðan beint til Kaupmannahafnar
kl. 18 í dag.
Sólheimadrengurinn.
Afh. Mbl. N.N. 200,00; G.S.
100,00; 2 áheit 30,00; V. og G.
25,00; A.K. 25,00; J.S. 30,00; ó-
nefndur 25,00.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
heldur sumarfagnað sinn n. k.
fimmtudag, og hefst hann kl. 8,30
í Borgartúni 7. Gestur Þorgríms-
son skemmtir. Þá verður upplest-
ur og nýjustu verðlauna-dægurlög
SKT leikin. Einnig verður dans.
Konur eru hvattar til að fjöl-
menna.
Ungmennastúkan
Hálogaland.
Síðasti skemmtifundur vorsins
verður í G.T.-húsinu á miðviku-
dagskvöldið kl. 8,30. — Séra Áre-
líus Níelsson.
Dráttur
hefur farið fram í Happdrætti
Kvenfélags fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík hjá borgarfógeta. Þessi
númer komu upp: 2728, 1281,
1332, 2995, 1117, 1905, 75, 1021,
1898, 2668, 2721, 2180, 2218, 1680,
2783, 509, 170, 2594, — Munanna
sé vitjað á Vesturgötu 46 A.
Félag Djúpmanna
stofnað í kvöld.
Framhaldstófnfundur Félags
Djúpmanna verður haldinn í
kvöld í Aðalstræti 12, uppi. Hefst
hann kl. 8,30. Væntir undirbún-
ingsnefndin þess, að sem flestir
Djúpmenn mæti á fundi þessum.
Gert er ráð fyrir, að félagssvæði
félagsins verði allir fimm Djúp-
hrepparnir innan Arnarness og
Bjarnarnúps. Á fundinum í kvöld
mun verða endanlega gengið frá
stofnun félagsins.
Dansk kvindeklub.
Fundur í Tjarnarkaffi uppi í
kvöld kl. 8,30.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Hvöt
Fundur verður í kvöld í Sjálf-
stæðishúsinu kl. 8,30. Félagsmál,
gamanvísnasöngur og skugga-
myndir frá afmælishófinu i vetur.
Sjálfstæðiskonur, mætið stundvís-
lega!
Siglfirðingar
í Reykjavík minnast afmælis
Siglufjarðarkaupstaðar næst kom-
andi fimmtudagskvöld með
skemmtun í Skátaheimilinu. —
Verða þar ýmis skemmtiatriði og
dans.
Sjálfstæðisfélag'ið
Þorsteinn Ingólfsson
í Kjósarsýslu heldur aðalfund
sinn fimmtudaginn 27. þ. m. að
Klébergi, og hefst fundurinn kl.
2 e. h.
Bifreiðaskoðunin.
1 dag eiga bifreiðar nr. R-1651
-—1800 að mæta í skofiun.
Farsóttir í Reykjavík
vikuna 25. apríl til 1. maí 1954,
samkvæmt skýrslum 29 (22) starf-
andi lækna. t svigum tölur frá
næstu viku á undan: Kverkabólga’
64 (68), kvefsótt 107 (187), iðra-i
kvef 13 (11), inflúenza 7 (10),
kveflungnabólga 38 (39), taksótt
1 (0), kikhósti 15 (18), hlaupa-
bóla 19 (9).
• Gengisskráning •
(Sölugengi):
100 svissn. frankar .. — 874,50
1 bandarískur dollar .. kr. 18,32
1 Kanada-dollar ......... — 16,70
1 enskt pund ............— 45,70
100 danskar krónur .. — 236,8®
100 sænskar krónur .. — 315,50
100 norskar krónur .. — 87.8,50
100 belgiskir frankar . — 82,67
1000 franskir frankar — 46,63
100 finnsk mörk........— 7,09
1000 lírur ...............— 26,13
100 þýzk mörk............— 890,65
100 tékkneskar kr......— 226,67
100 gyllini .............— 430,35
(Kaupgengi):
1000 franskir frankar kr. 46,48
100 gyllini .............— 428,95
100 danskar krónur .. — 235 50
100 tékkneskar krónur — 725,72
l bandarískur dollar .. — 18,26
100 sænskar krónur .. — 314,45
100 belgiskir frankar.. — 32,56
100 svissn. frankar .. — 873,50
100 norskar krónur .. — 227,75
1 Kanada-dollar ......... — 16,64
100 þýzk mörk ............— 389,35
Gullverð íslenzkrar krónu:
100 gullkrðnur jafngilda 738,95
pappírskrónum.
• Utvarp •
19,30 Tónleikar: Þjóðlög frá
ýmsum löndum (plötur). 20,30
Erindi: Addis Abeba; frásögn
eftir Felix Clafsson kristniboða
(Ólafur Ólafsson kristniboði flyt-
ur). 20,55 Tónleikar (plötur) :i
Ballettmúsik eftir Arnell. 21,15
Náttúrlegir hlutir: Spurningar og
svör um náttúrufræði (Guðm,
Kjartanson jarðfr.). 21,30 UndiiS
ljúfum lögum: Carl Bilich o. fl<
leika létt hljómsveitarlög. 22,10
Garðyrkjuþáttur: Innijurtir og
hirðing þeirra (Óli Vaiur Hansson'
garðyrkjukennari). 22,30 Kamrrn
ertónleikar (plötur): Kvartett I
A-dúr op. 41 nr. 3 eftir Schumajm’
(Léner-kvartettinn leikur). 23,00'
Dagskrárlok.
Erlendar stöðvar.
(Allir tímar — íslenzk klukka.jj
Danmörk:
Á 49,50 metrum daglega á tírrn
anum kl. 17,40—21,16. Fastir lið-
ir: 17,45 Fréttir. Í8.00 Aktuelí
kvarter. 20,00 Fréttir.
SvíþjóS:
Útvarpar t. d. á 25 og 31 m,
Fastir liðir: 11,00 Klukknahring-i
ing og kvæði dagsins. 11,30, 18,00'
og 21,15 Fréttir. Á þriðjudögurai
og föstudögum kl. 14,00 Fram-
haldssagan.