Morgunblaðið - 18.05.1954, Síða 9
Þriðjudagur 18. maí 1954
MORGUNBLABIB
9
Gunnar Gunnarsson 65 ára
30 ára leikafmæli
Brynjáifs Jéhannes-
sonar í haust
FORMAÐUR Leikfélags Reykja-
víkur, Brynjólfur Jóhannesson á
30 ára leikafmæli hjá félaginu á
hausti komanda. — En eitt af
fyrstu hlutverkum hans var í
leiknum „Pakk“, sem hafði verið
sýnt árið 1854, og eins og getið
er annars staðar í blaðinu, fyrsta
leikritið, sem sýnt var í Iðnó.
Hefur það oft verið sýnt síðan.
Standa vonir til að hinn vin-
sæli gamanleikur „Skóli fyrir
skattgreiðendur" sem félagið
varð að hætta sýningum á í vet-
ur vegha veikindaforfalla, verði
sýndur aftur í haust, en Brynj-
ólfur leikur annað aðalhlutverk-
ið í því leikriti.
Á sextíu og fimm ára afmæli Gunnars Gunnarssonar í dag kemur
út á vegum forlagsins Landnámu, sem gefur út verk Gunnars, 15.
bindið í heildarútgáfunni, skáldsagan Vargur í véum í þýðingu
Vilhjálms Þ. Gíslasonar. Eru þá aðeins eftir tvö af stórverkum
Gunnars, skáldsögurnar Sælir eru einfaldir og Grámann, ennfrem-
ur leikrit og smásögur. I lok þessa árs mun vera væntanleg ný
skáldsaga eftir Gunnar, sem kemur út samtímis hér og í Þýzka-
landi og Danmörku. Hefur bókin enn ekki fengið nafn, en hann
kallar hana Terra Infirma, sem leggja mætti út á íslenzku, Laust1
aindir fæti. Mun bókin koma í næsta bindi heildarútgáfunnar ásamt
Aðventu og ef til vill fleiri smásögum. Mun ætlun stjórnar Land-
námu að ljúka heildarútgáfunni með sérstakri bók um Gunnar og
skáldskap hans og hefur farið fram á það við þann mann, sem
einna kunnugastur er skáldinu, dr. phil. Stellan Arvidson, rektor í
Stokkhólmi, eu bann hefur þýtt margar bækur Gunnars og er hon-
sim nákunnugur. Mun ætlun forlagsins að bjóða Arvidson hingað
i sumar. — Myndin hér aff ofan var tekin af Gunnari Gunnarssyni
ásamt sonardóttur sinni, Franzicu, að heimili skáldsins í gær.
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Skátaþing í Beykja-
vík am síðasta helgi
sýningunni í Iðnó
Á ÞESSU ári eru liðin 100 ár
frá því að fyrst var leiksýning
í Iðnó, þar sem aðgöngumiðar
voru seldir. — Áður höfðu verið
ýmsar skólasýningar, t. d. í
Latínuskólanum, en aðgangur
hafði ekki verið seldur.
Var það Jón Guðmundsson rit-
stjóri, ásamt Benedikt Gröndal,
eldra og séra Magnúsi Guð-
mundssyni, sem komu þessari
leiksýningu á fót, en leikritið,
sem sýnt var hét „Skríll“ eða
„Pakk“, danskur gamanleikur.
Minnist Leikfélag Reykjavíkur
þessa afmælis með sýningu á
hinu nýja íslenzka leikriti
l „Gimbiir1, sem frumsýnt er ann-
að kvöld.
Sfokkseyrarbáfarnir öfl-
uðu vel á
STOKKSEYRI, 11. maí.
fETRARVERTÍÐINNI er nú lokið .og verður hún að teljast g63*
hér, þótt hún hafi verið ótíðarsöm og veiðarfærafrek. Sérstak-
lega voru stirðar gæftir framan af vertíðinni og má segja að helm-
ingur aflann hafi veiðzt síðan 21. apríl.
GóSri vertíð að (júk?
á Stykkishóbni
STYKKISHÓLMI, 16. maí: —
Vertíð er nú senn að ljúka í
Stykkishólmi. Undanfarna daga
hefir afli verið sáratregur eða um
2—3 tonn í róðri á langa línu. Var
upphaflega í samningum gert ráð
fyrir að vertíg stæði til 20. maí
en fiskitregða mun flýta fyrir
vertíðarlokum.
Vertíðin hefir verið ein hin
bezta um langt skeið og mikil at-
vinna skapazt í Hólminum í vet-
ur. Jafnvel húsmæðurnar hafa
brugðið sér í fyrstihúsin og hjálp-
að til við nýtingu aflans, Þá hefir
það verið mikil bót að framleiðsla
frystihúsanna hefir svo að segja
verig flutt út jafn óðum og hún
hefir failið til.
Aflinn í vetur hefir aðallega
verið frystur. Fiskimjölsverk-
smiðjan hefir haft með meira
móti að gera og afköst hennar
stórum meiri en undanfarin ár.
— Á. H.
Heildarafli Sand-
gerðisbála 7866
leslir
FJÓRÐA skátaþing var haldið
á Skátaheimilinu í Reykjavík
um síðustu helgi.
Þingið sóttu 37 fulltrúar frá
ýmsum skátafélögum víðsvegar
að af landinu. |
Forseti þingsins var kosinn
Hans Jörgenson, félagsforingi,
Akranesi ,og varaforseti Sigríð-
ur Lárusdóttir, gjaldkeri BÍS.
Framkvæmdastj. BÍS, Tryggvi
Kristjánsson, flutti skýrslu stjórn
ar og Skátaráðs fyrir liðið kjör-
tímabil, árin 1952 og ’53, og
reikningar Bandalagsins voru
lagðir fram og samþykktir.
Framsögu á þinginu um ýmis
mál varðandi skátastarfið í land-
inu höfðu eftirtaídir menn: Dr.
Helgi Tómasson, skátahöfðingi,
Hrefna Tynes, varaskátahöfðingi,
Helga Þórðardóttir, kennari,
varam. í stjórn BÍS og Tryggvi
Kristjánsson.
Fjórar nefndir störfuðu yfir
þingið að ýmsum málum, sem
tekin voru fyrir til umræðu og
afgreidd á þinginut, auk kjör-
bréfanefndar.
Meðal þeirra mála sem rædd
voru og afgreidd á þinginu var
stofndagur BIS. Var gerð ein-
róma samþykkt um að staðfesta
að Bandalag ísl. skáta sé stofnað
6. júní 1924. Áður hafði stofn-
dagur BÍS verið talinn sama dag
1925, en samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum var BÍS viður-
kennt af alþjóðabandalagi skáta
18. ágúst 1924.
Einnig kom fram mikill áhugi
fyrir því að stofnaður yrði bréfa-
skóli fyrir skátaforingja og að
efnt yrði til Gilweil foringjanám-
skeiðs hér á landi 1955, og feng-
inn kennari frá Danmörku eða
Noregi. Mörg fleiri áhugamál
skáta voru rædd á þinginu.
Dr. Helgi Tómasson var ein-
róma endurkjörinn skátahöfð-
ingi íslands til næstu fjögurra
ára, svo og aðrir stjórnarmeðlim-
ir til 2ja ára samkvæmt tillögu
kosninganefndar.
Næstu tvö ár er stjórn BÍS
þannig skipuð:
Dr. Helgi Tómasson, skáta-
höfðingi, kosinn til 4. ára 1954.
Jónas B. Jónsson, fræðslufull-
trúi, varaskátahöfðingi, kosipn
til 4. ára 1952.
Hrefna Tynes, varaskátahöfð-
ingi, kosinn til 4. ára 1952.
Björgvin Þorbjörnsson, Franch
Michelsen, Sigríður Lárusdóttir
og Helga Þórðardóttir.
SANDGERÐI, 17. maí. — Gæft-
ir hafa verið ágætar s. 1. hálfan
mánuð. Almennt hafa bátar far-
ið 11—12 róðra, eða samtals 137
á 12 bátum. Heildarafli þeirra
er 905 tonn. Til samanburðar má
geta þess, að í fyrra á sama tíma
í fyrra voru farnir 143 róðrar af
17 bátum, og nam heildaraflinn
þá 563 lestum. Hæstur afli í
róðri var 4. maí, er Muninn II
var með 13,2 lestir, Hrönn 13
lestir og Björgvin 11,5 lest.
Heildarafli í Sandgerði er nú
7866 lestir í 982 róðrum. Flestir
bátar eru nú hættir veiðum að
undanteknum 5 bátum ,sem munu
stunda veiðar eitthvað áfram.
Á þeim bátum, sem búið er að
gera upp á, fá hásetar milli 24
—25 kr. á skippund. — Axel.
Leikfélagið befur
leklð fil meðferðar
6 leikril síðan í hausf
LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefur
annað kvöld sýningu á íslenzk-
um gamanleik, Gimbli, og er það
síðasta viðfangsefni félagsins í
sumar. — Alls hefur félagið tekið
til meðferðar 6 leikrit siðan í
haust.
Starfsemin hófst með sýning-
um á Undir heiilastjörnum, sem
sýnt var 6 sinnum. Þá var Skóli
fyrir skattgreiðendur sýndur 12
sinnum ,en hætta varð sýningum
vegna veikinda Alfreðs Andrés-
sonar. Mýs og menn var sýnt alls
23 sinnum, og Hviklynda konan
eftir Holberg 6 sinnum.
Nú standa yfir sýningar á
Frænku Charleys, — en sýning-
ar á leiknum hófust 7. apríl s. 1.
og leikurinn verður sýndur í 20.
sinn næstk. föstudag. Hefur að-
sókn verið með eindæmum góð,
alltaf útselt.
Alls hafa verið 67 sýningar hjá
félaginu á vetrinum, og er gert
ráð fyrir að starfsemin haldi á-
fram eitthvað fram eftir júní-
FIMM BATAR
STUNDAÐ SJÓSÓKN
Af þeim fimm bátum, sem.
stundað hafa vertíðina hér, er
Ægir aflahæstur eins og síðast-
liðið ár. Eftir vertíðina var lifra*
magn Ægis 29,510 lítrar, en,
slægður fiskur 330 tonn. Hólm-
steinn II er með 27.655 lítra,
Hásteinn með 26.460 lítra, Hólm-
steinn með 10,845 lítra og Her-
steinn með 10.445 lítra af iifur.
Tveir síðast töldu bátarnir hafa
orðið fyrir talsverðum bilunum
og verið allmikið frá veiðum þesa-
vegna á vertíðinni.
AFLAÐIST BETUR
EN í FYRRA
Afli þesarar vertíðar er tals-
vert betri en fyrra árið, en þát
var Ægir, sem einnig var þá afla.
hæstur, með 219 tonn af fiski
Formaður Ægis er Karl E. Karls-
son. Aflinn hefur ver fyrstur fyr-
ir erlendan markað, það sem
frystihúsið hefur getað afkastað,
en afgangurinn verið tekinn til.
söltunar.
LÍTILL AFLI í GÆR
Þegar siðustu tveir bátarnir
tóku net sín úr sjó í gær, sem
höfðu lepið í tvo daga, voru 200>
fiskar í netum annars en 600 (
netum hins. Óvíst er hvort bát-
arnir fara á vorvertíð, aij
minnsta kosti verður það ekki
til að byrja með. Sennilegt eiy.
að stærri bátarnir fari á síldveið-
ar seinna í vor. •—Magnús.
Björn á Brún
Barnaleikvöllur opnaður
á Isafirði á Mæðradaginn
ARNESI, 12. maí: — S.l. sunnu-
dag átti Björn Sigtryggsson fyrr-
um bóndi og oddviti á Brún f
Reykjadal 65 ára afmæli.
í tilefni afmælisins heimsótti.
stjórn Búnaðarsambands S-Þing-
eyinga Björn og tilkynnti honum
að Búnaðarsambandið hefði
ákveðið að gefa honum stækkaða
ljósmynd af Brún með áletruð-
um þakkarorðum þingeyzkra
bænda fyrir óvenju mikilsháttar
félagsmálastörf í héraði.
Björn Sigtryggsson stofnaði ný
býlið Brún, sem var fyrsta ný-
býiið í Þingeyjarsýslu, sem reist
var á algjörlega óræktuðu land*.
Hann var fyrsti hvatamaður að
skipulegum fjárskiptum til út-
rýmingar á mæðiveikinni og átti-
lengi sæti í stjórn Kaupfélags.
Þingeyinga, auk fjölmargra ann-
arra trúnaðarstarfa, sem hann
gengdi fyrir sveit sína og hérað.
Björn dvelur nú hjá syni sín-
um Teit, sem býr stóru rausnar-
búi á Brún. — Fréttaritari.
Mikil lúnasprelta
á Slokkseyri
STOKKSEYRI, 17. mai. — Vor-
annir standa nú sem hæst hér
í þorpinu, en þeim hefur lítið
verið sinnt fram að þessu. Síð-
astliðnar vikur hefur verið hér
hægviðri og sunnanátt með smá
skúrum, og hefur grasið þotið
upp þessa daga. Víða er orðið
svo sprottið ,að erfitt er að koma
húsdýraáburði' á túnin. Búið er
að sleppa mestöllu fé í sumar-
hagana og sauðburðurinn hefur
gengið að óskum.
— Magnús.
ísafirði, 17. maí.
AMÆÐRADAGINN í gær var opnaður hér á ísafirði barnaleik-
völlur, sem unnið hefur verið að tvö undanfarin ár. í tilefni
þess bauð barnaleikvallanefndin, bæjarstjórn, barnaverndunarnefnd
stjórnum kvenfélaganna og öðrum gestum til kaffidrykkju.
LEIKVELLINUM BÁRUST
PENINGAGJAFIR
Formaður barnaleikvallar-
nefndar, Björgvin Sighvatsson,
skýrði fyrir gestum framkvæmd-
ir þær, sem átt höfðu sér stað
í sambandi við leikvöllinn. —
Einnig töluðu þar fulltrúar
kvenfélaganna í bænum og full-
trúi Barnaverndarfélags ísa-
fjarðar. Öll þessi félagssamtök
færðu leikvellinum peningagjaf-
ir til áhaldakaupa fyrir völl-
inn.
VÖLLURINN SKOÐAÐUR
Var síðan gengið upp á leik-
völlinn, sem stendur ofan við
Kirkjugötu í norð-austur horni
sjúkrahússtúnsins. Sýndi Daniel
Sigmundsson byggingarmeistari
gestunum völlinn en hann hefur
smíðað húsið og þau tæki, sem
á honum eru. Er þar smekklega
og vel frá öllu gengið og öllu
mjög haganlega fyrir komið.
VON Á FLEIRI TÆKJUM
Völlurinn er vel búin tækjum
og er von á meiri útbúnaði þang-
að á næstunni. Umsjón með vell-
inum hefur Dóra Fríða Jóns-
dóttir, sem stundað hefur nám
á uppeldisskóla Sumargjafar.
Vorannir byrjaðar
STYKKISHÓLMI, 16. maí: —
Talsverður gróður er nú kominn
hér í Stykkishólmi og fer hon-
um fram með hverjum degi. Tún
hafa breytt lit og eru nú orðin
græn. Almennt er nú byrjað að
vinna í görðum og sumir búnir
að setja niður í sína garða. Verð-
.ur mikið um kartöflurækt hér í
sumar og áhugi mikill hjá öllum
þorra fólks.
Sauðburður hefir gengið mis-
jafnlega, hjá sumum vel, en öðr-
um miður og 'nefir komið fyrir að
sumir menn hafa misst fjölda
lamba í fæðingu. Nú hefir aftur
hlýnað í veðri og vonandi helst
góð tíð og hlý, enda er það
mikil þörf fyrir þá sem um bú-
skap hugsa.
Fé er nú almennt að komast a£
gjöf, hér í nágrenninu. — Á. H.