Morgunblaðið - 27.05.1954, Page 14
14
MORGUfiBLAÐIB
Fimmtudagur 27. maí 1954 1
Skugginn og tindurinn
SKÁLDSAGA EFTIR RICHARD MASON
F ramhaldssagan 47
Louis gerði sér ekki þá fyrir-
höfn að spyrja hvað hann ætti
við. Judy var enn eins og örvænt-
ingin uppmáluð. Douglas kenndi
í brjósti um hana. Henni leið auð
sjáanlega mjög illa.
„Ætlarðu að vera lengi?“
spurði hann Lauis.
„Ég vona að ég geti verið hálf-
an mánuð, en það er undir ýmsu
komið“.
,,Við hittumst kannski seinna?“
„Þú mátt ekki fara strax,
Douglas", sagði Judy.
„Jú, ég held að ég verði að
fara“.
„Douglas, gerðu það fyrir mig
íl
„Ég get eins skilið þetta eftir“.
Hann setti rommflöskuna á borð-
ið og gekk fram að dyrunum. —
Judy kom á eftir honum og lok-
aði hurðínni á eftir sér. Hún var
að gráti komin.
„Ó, Douglas, hvað mér þykir
þetta leiðinlegt“.
„Þú getur ekkert að því gert“.
„Jú“.
Svo bætti hún við næstum
reiðilega: „Jæja, ég var búin að
vara þig við. Ég sagði þér að ég
væri ómöguleg. Ég sagði þér að
fara og láta "mig í friðí“.
„Já“, sagði hann. „Og ég hefði
ekki þurft að velja þennan sam-
festing handa þér að vera í“.
Hún starði á hann. Hann sneri
sér við og geklc niður tröpþurn-
ar. Hann heyrði hana fara aftur
inn og dyrnar lökast á eftir henni.
Hann fór út og upp í bílinn. í
þetta sinn ók hann ekki eins var-
lega og áður. Klukkan var f jögur.
Hann Jangaði ekki til að fara
heim strax, svo hann fór í kvik-
myndahús. Það var að mir.*nsta
kosti svalt þar inni. Myndin fjall-
aði um mann, sem fór til Nýja
Sjálands og skrifaði heim til
stúlkunnar, sem hann elskaði og
bað hana að koma, en hann var
fullur þegar hann skrifaði bréfið,
svo hann skrifaði óvart nafn
sýstur hennar í staðinn. Systirin
kom og hann varð að giftast
henni. Þau eignuðust barn og svo
kom jarðskjálfti, og hann varð ,
mjög efnaður og þau fóru heim.
Þá var systririn, sem hann hafði
elskað, orðin nunna, en til allrar
hamingju komst hann þá að því
að hann elskaði Lana Turner og
það mátti sjá það á tárunum í
augunum á Lana Turner að hún
clskaði hann líka. Þetta var allt
mjög fallegt og öllum í kvik-
myndahúsinu virtist líða mjög
vel þegar myndin var búin,
ncma Douglas.
10. kafli
Hann hafði vonað að holds-
veikistalið næði ekki eyrum barn
anna í skólanum, en tveim dög-
um eftir viðtal hans við frú Coop-
er , kom Rosemary tii hans í bóka
safnið.
„Er það satt að John sé með
holdsveiki, herra Lockwood?“
spurði hún.
Hann svaraði strax: „Nei, Rose-
mary, það er ekki satt“, og hann
spurði hana, hvaðan hún hefði
heyrt það.
„Ég man það ekki“, sagði hún.
„Þú verður að reyna að muna
það“, sagði, hann. ,,Ég vil fá að
vita það“.
Hún hugsaði sig um.
„Ég heyrði þegar verið var að
tala um það“.
„Hver?“
„Það var Alan og einhver".
„Farðu og náðu í Alan“. *
Alan var dálítið tregur.
„Ég heyrði það bara“, sagði
hann. „Ég hef ekki hugmynd um,
tnDKÚMUM
LAXVEIÐI
Hofsá í Vopnafirði fæst leigð til stangaveiða j fir
ágústmánuð.
Upplýsingar gefnar í síma 4 og 15 í Borgarnesi.
■«n
1
•Q
hvort það er satt eða ekki“.
Douglas varð að byrsta sig við
hann áður en hann fékk meira
upp úr honum.
„Jæja þá, það var Joe, sem
sagði mér það, úr því þú vilt
endilega fá að vita það“.
„Hvað er langt síðan“.
„í gær“.
„Hefur nokkur sagt nokkuð um
þetta við John?“
„Nei, ég er viss um að hann
veit ekkert um það. Mér myndi
aldrei detta í hug að segja hon-
um það“.
„Það getur verið að þér myndi
ekki detta það í hug, en einhverj-
um öðrum gæti kannske dottið
það í hug“, sagði Douglas. „John
hefur ekki holdsveiki, en ef hann
heyrir að fólk segi þetta um
hann, þá getur það komið illa við
hann. Þú getur sagt öllum, sem
hafa talað um það, að það sé
ekki satt Þú getur líka sagt þeim
að hætta að þvæla um þessa vit-
leysu“.
Hann lofaði því, Síðar um dag-
inn fór Douglas niður að bílskúrn
um og fann Joe.
„Ég heyrði það hjá manninum
á bílaverkstæðinu og hann er auð
vitað stórlyginn. Ég sagði bara
Alan það sem ég hafði heyrt. Ég
sagði ekki að það væri satt“.
„Þú ættir ekki að hafa eftir
hluti, sem þú veizt ekki hvort
eru sannir", sagði Douglas. „Með
því getur þú gert mikið illt“.
„Já, ég skal aldrei segja það
aftur — aldrei nokkurn tímann".
En hann hafði þegar sagt það
einu sinni of oft, enda kom það
í ljós næsta dag.
o—O—o
Næsti dagur var fimmtudagur,
og þann dag hafði verið ákveðið
að fara í ferðalagið, sem farið
var í einu sinni á ári. Venjulega
var áfangastaðurinn kaffiverk-
smiðja innst í dalnum, um fimm
mílur frá skólanum, og þangað
var ferðinni heitið í þetta sinn.
Duffield hafði farið með börnun-
um árið áður og nú átti Douglas
að fara með þeim. Allar ákvarð-
anir höfðu verið teknar áður, en
honum lenti saman við frú Paw-
ley og Pawley hafði gefið það í
skyn, að konan hans kynni að
hafa gaman af því að koma með,
þó að hann sjálfur yrði sennilega
of önnum kafinn til að komast.
Nú kom það á daginn að frú Paw
ley hafði líka ýmsum óvæntum
skyldstörfum að gegna svo ekk-
ert varð úr að hún færi með. —
Douglas átti að stjórna ferðinni
einn. Börnin voru aðeins 18 alls
vegna þess að 7 þau yngstu þóttu
of lítil til að ganga tíu mílur
sama daginn.
Þau söfnuðust saman klukkan
tíu með nesti fyrir utan skólahús-
ið. Veðrið var gott og Morgan
hafði spáð veðurblíðu tD kvölds.
PaWley tók myndir af börnunum
þegar þau lögðu af stað niður
hæðina fram hjá býlinu.
Silvía var ein barnanna. Síð-
ustu dagana hafði hún ekki
framið nein skemmdarverk, hún
hafði mætt stundvíslega í
kennslustundirnar og unnið að
lexíum sínum, en þó var engin
ástæða til að ætla að henni hefði
snúizt hugur og hún væri hætt
öllum byltingartilraunum. Eftir
áreksturinn við Noruh höfðu
börnin gefist upp á því að láta
eins og þau hvorki sæju hana né
heyrðu. Þau töluðu við hana þeg-
ar nauðsyn krafði og eitt eða
tvennt af þeim sem veikgeðja
voru, höfðu jafnvel snúizt á sveif
með Silvíu. Þau þóttust trúa eða
trúðu raunverulega sÖgum henn-
ar um manninn, sem elskaði
hana, en kom ekki, vegna þess
að hún hafði svikist um að mæta
á stefnumótinu.
Þessir nýju kunningjar hennar
gengu sitt hvoru megin við hana
þegar þau lögðu af stað í ferða-
lagið. Þau gengu rétt fyrir aftan
Douglas og hann heyrði að hún
var að segja þeim, að hún vissi
þegar allt sem vita þyrfti um
kaffiverksmiðju. — Henni hafði
einu sinni verið sýnd miklu
stærri verksmiðja af „kunningja
sínum“, en hann átti nokkrar
slíkar verksmiðjur. Hún hafði
verið heiðursgestur og hún hafði
Kóngsdóttirin fagra
6
Hann hljóp þegar út úr herberginu, og þegar hann haf'ði
iullvissað sig um að enginn var frammi á ganginum, læddist
hann hljóðlega niður stigann. Þegar hann var kominn niður
í hann miðjann, kom kerlingin, sem hafði hleypt honum inn,
: á móti honum. Þegar hún varð hans vör, hrópaði hún há-
' stöfum á risann, um leið og hún hljóp út úr húsinu. — Jón
jhljóp í einu hendingskasti niður stigann, fram ganginn og
út á hlað.
Vagn með fjórum hestum fyrir, var þá um það bil að
leggja af stað úr hlaði. — Jón hljóp allt hvað af tók á eftir
honum, og gat með naumindum náð haldi á vagninum. Aftan
á honum var nokkurt pláss, sem ætlað var fyrir farangur,
og þar gat Jón komið sér fyrir.
Veðrið var enn afar slæmt, beljandi rigning og stormur.
Jón varð fljótt rennandi blautur, þar sem hann hélt ser
dauðahaldi aftan til á vagninum. Vagninn var nú kominn
á fleygiferð, og heyrði hann af og til í ökumanninum, þegar
hann eggjaði hestana til að fara hraðar.
Eftir alllanga ökuferð, hægði vagninn allt í einu á ferð-
inni. Þegar hann var nærri því stanzaður, hljóp Jón af hon-
um og faldi sig bak við tré, sem var við veginn.
Risinn kom nú út úr vagninum og leiddi hina fögru stúlku
við hlið sér. Ökumaðurinn tók hins vegar koífortið út úr
vagninum, og hélt svo á eftir risanum. — Enn var kolsvarta
myrkur, þannig að Jón gat haldið 1 humátt á eftir þremenn-
ingunum, án þess að vera séður.
Lillu
lyfti-
duft
er mun ódýrara en erlent, og að gæðum jafn-
gott eða betra, samkvæmt skýrslu gæða-
matsnefndar er birst hefur í dagblöðum.
Húsmæöur
Kaupið strax í dag eina dós, og þér fáið
jafnframt ókeypis litla bók með LILLU
uppskriftum á kökum, tertum og brauð-
um. — Nú getið þéi aftur bakað hinar
góðu kökur er þér fenguð í gamla daga.
Unglingavinna í Krísuvík ;
w
■
Upplýsingar um unglingavinnuna í Krísuvík verða S
5
veittar í Vinnumiðlunarskrifstofunni að Vesturgötu J
■
6, á föstudag og laugardag klukkan 2—7.
§
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. 9
■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■id
MARKAÐURINN
Bankastræti 4
Amerískur
barnafatiiaður
tekinn frarn á morgun.
MARKAÐURINN
Bankastræti 4
■ nw