Morgunblaðið - 30.05.1954, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 30.05.1954, Qupperneq 7
Sunnu.dagur 30. maí 1954 MORGVNBLAÐIÐ 7 Henmm Wildenvey HERMAN WILDENVEY — eins og nafn hans á að vera ritað — er boðinn i heimsókn til íslands, og í tilefni þess er ég foeðinn um að skrifa nokkur orð um þetta ástsælasta ljóðskáld okkar Norðmanna. Mér er það að sjálfsögðu mikið fagnaðarefni, eins og ég gladdist strax er ég heyrði þess getið, að Wildenvey setti að koma hingað í sumai'. Herman Wildenvey er einmitt skáld sumarsins, þó að hann einnig á eins glæsilegan hátt hafi slegið hörpustrengi vorsins og haustsins. Erfiðast mun vera að miða ljóð hans við kulda og vet- ur. Þess vegna hæfir vel að bjóða hann velkominn einmitt nú. Með fyrsta kvæðasafni Wilden- veys, „Nyinger“ (1907), hljómar ný rödd í norskri lýrikk. Hin syngjandi ljóð hans með hinu sérkennilega, sveiflukennda hljómfalli voru nokkuð, sem var alveg nýtt, og skáldið vann hjörtu manna samstundis. Hann segir í fyrsta kvæðinu: „Disse vers er ville vekster i en sommer drysset hen hver gang gleden over livet var meg ung og nær og ny. - De er skrevet av en hedning som vil leve av sin penn.“ Þetta sérkennilega Wilden- veyshljóðfall hefur skáldið And- ré Bjerke, sem er lærisveinn Wildenveys í norskum skáldskap, kallað hermanapestina (anapest: öfugur þríliður) eftir skírnar- nafni Wildenveys, Herman. Wild- envey á til lipurð og músikalsk- an léttleika í ljóðum sínum frem- ur en nokkur annar norskur höf- undur, og það er ekki of sterkt að orði kveðið, að með honum komi upp eins konar renessanse (endurnýjun) í norskum bók- menntum. Nú þurftu menn ekki lengur að skammast sín fyrir að yrkja kvæði, eins og reyndin hafði verið á árunum eftir 1880, þegar natúralisminn eða brand- esianisminn krafðist þess, að höf- undar skuli fyrst og fremst taka mannleg og þjóðfélagsleg van.ia- mál til meðferðar í verkum sín- um. Wildenvey hefur’ alltaf ver- ið sérstaklega vinsæll, og hann er eina norska ljóðskáldið, sem hefur getað lifað á penna sínum. Sem skáld hefur hann til að bera leikandi glettni, og lífsviðhorf hans er mótað fjöri og lífsgleði. Hann hefur geysilegt vald á húmor og hefur ort fjöldamörg lipur og létt háðkvæði. Helzti lærimeistari hans er Heine. Mál Wildenveys er sérlega blátt áfram, og hann hefur meira vald en nokkur annar lýriker í Noregi á að gefa daglegum orðum og at- höfnum skáldlegan blæ. — Af íslenzkum skáldum mun ekkert vera honum skyldara en hinn fíngerði og fágaði ljóðameis+ari og húmoristi Tómas Guðmunds- son, sem eins og Wildenvey gelur slegið á fagra og angurværa strengi. Olav Bull, hið mikla norska Ijóðskáld og samtímamaður Wildenweys (lézt 1933), hefur sagt um Wildenvey, að hann væri fæddur lýriker, náttúrugert skáld, þar sem hann sjálfur væri „lært“ skáld. Wildenvey fæddist á Eiker við Drammen (bær í nágrenni Olsóar) og hét Herman Portaas, en tók sér ungur skáld- heitið Wildenvey. „Jeg vil den vei“ (vil þann veg, þ. e. verða skáld) er álitið hann einu sinni hafi sagt, þegar hann var spurð- ur, hvert hann stefndi! Eiker liggur á vesturströnd Oslóar- fjarðarins, og má geta þess í því sambandi, að margir af mestu húmoristum í norskum bókmenntum éru runnir einmitt frá ströndum þessa fjarðar, t. d. Johan Herman Wessel. Með aldrinum hefur Wildenvey þó orðið alvörugefnari, og yrkisefni hans kunna stundum að vera dáiítið fjarlæg, eins og t. d. þegar hann tekur þau úr hinni grísku goðafræði; en það vekur engu að síður furðu manna og hrifn- Herman Wildenvey ingu, hversu frjóar og sístreym- andi skáldæðar hans hafa hald- izt öll þessi ár. Wildenvey er eitt þeirra norsku skálda, sem Stefán frá Hvítadal var hrifnastur af, og má jafn- vel segja, að Stefán hafi lesið hann til persónulegs gagns, ser- staklega hvað sn-ertir boðskap og hugblæ. Hið sérkennilega hljóð- fall Wildenveys hefur Stefán ekki tekið upp; á því sviði sótti hann kennslu hjá öðrum Norð- mönnum, Henrik Ibsen og Per Sivle. En bragliðinn anapsst (öfugur þríliður) notar hann t.d. í ,,Hún kyssti mig“, ort í Noregi, og er ekki ósennilegt að þar sé um að ræða áhrif frá Wilden- vey. („Öfugir bragliðir eru frek- ar sjaldgæfir í íslenzkum kveð- skap. Þeir koma helzt fvrir í þýddum ljóðum og íslsnzkum textum við erlend sönglög." — Sveinbjörn Sigurjónsson: Brag- fræði, bls. 4) Wildenvey er sem skáld og upplesari þekktur víðs vegar um heim. Hann hefur gefið út um 20 Ijóðabækur, þar að auki skáldsögur, leikrit óg þýdd ljóð. Hann hefúr þýtt leikrit eftir Shakespeáre og Ijóðasöfn eftir Heine. Fvrsta bók hans var end- urprentuð þrisvar sinnurn, Ijóða- bókin „Kjærtegn“ (,,Ástaratlot“) tólf sinnum og „Ildorkestret“ („Hljómsv-eit loganna“) sex sinnum. f „Ljóð frá ýmsum lönd- um“ eftir Magnús Ásgeirsson má finna tvö ljóð eftir Wildenvey: „Vísur Ferdínands smiðs“ og „Dísa á Felli.“ í síðustu bók hans, „Ugler til Athen'' (1953) eru aðallega sonnettur, 80 að tölu. Húmor hefur Wildenvey ennþá, en eins mikill „heiðingi“ og hann áður var, er hann ekki. Frekar má segja, ag hann sé orð- inn hinn aldni spekingur með hið síunga hjarta, sem svarar spurningunni miklu, hvort heim- urinn farizt eða ekki, á þennan stutta, meistaralega hátt: „Det kommer an pá om en spurv vil falle til jorden uten at Varherre vet det“. Velkominn, Wildenvey! Ivar Orgland. SUMIR menn taka á sig ellimörk strax á unga aldri og tillíkjast fólki á gamalaldri fyrir tímann. Kunna ekki við sig öðru vísi. Aftur eru aðrir, er aldursskeið- in hrína ekki á. Þeir eru alltaf ungir í anda og útliti, hversu gamlir sem þeir eru. Æskufjörið samlagast þeim, skilur ekki við j þá. Elliklókir menn geta haft orð á því að þessir menn séu sífellt barnalegir og hafi ekki tekið út sinn eðlilega þroska. En þetta er einmitt þeirra styrkur og náð- argjöf. Einn þessara gæfusömu sér- kennilegu manna átti óttræðis- afmæli í gær, Gísli Guðmunds- son bókbindari, er allir bæjar- menn þekktu náið meðan Reykja- vík var lítið annað en fiskiþorp umhverfis Tjörnina með byggð- inni við Vesturgötu og Lauga- véginn er blasti við hinni hafn- lausu strönd. Þá þekktu þeir all- ir, ungir og gamir, Gísla Guð- mundsson, söngvarann mikla, er hélt sinn fyrsta „prívat konsert“ á Geirstúni, þegar hann var 7 ára, svo að glumdi í öllum Vest- urbænum. Hann hefur sannarlega frá mörgu að segja, því hann man tvenna tímana, m. a. þegar allir bæja.rbúai' voi'u fátækir að kalla sson ara i gær þykir það kurteisi að lofa mönn- um að njóta friðar á merkisdög- um æfinnar og því var ekki sagt frá þessu fyrr en í dag. — V. St. Leikfél. Isafj. sýnir Hiírra krakki Haraldur L Sigurðsson leikstjóri ísafirði, 26. maí. LEIKFÉLAG ísafjarðar hafði frumsýningu á gamanleiknum Húrra krakki, eftir þýzku gamanleikahöfundana Arnold og Back, í Alþýðuhúsinu á ísafirði, síðast liðið föstudagskvöld. Húrra krakki J hefur tvisvar áður vei’ið sýndur hér á ísafirði og er hann Isfirð- ingum því að góðu kunnur. hvergi vonum manna á föstudags- kvöldið og var leikur hans bæði hressandi og skemmtilegur frá upphafi til leiksloka. AÐRIR LEIKENDUR Prófessor Guðmund Goðdal leikur Jónas Magnússon og getir hann hlutverkinu hin ágætustu skil. Eru svipbrigði og' lótbragð allt í fyllsta samræmi við per- sónuna. Thorkelssen sýslumaður er leikinn af Hauki Ingasyni. Er gerfi hans sérstaklega gott og leikur hans einnig ágætur. Úlfur Austmar lögfræðingur er Ieikirn af Gunnlaugi Janasyni. Er leik- ur hans léttur og skemmtilegur. — Sýslumannsírúna leikur frú Kristjana Jónsdóttir, prófessors- ______, ................ frúna Goðdal leikur frú Guðný a uQf,,v Magnúsdóttir og Helgu Stefáns leikur ungfrú Selma Samúeis- dóttir. Fara þær allar einkar lag- kga með hlutverk sín. Þjónustu- HARALDUR A. SIGURÐSSON LEIKSTJÓRl | Eigi að síður vakti það mikla ánægju þegar það spurðist að leikfélagið væri byrjað að æfa t leikritið, og að Haraldur Á. Sig- I urðsson væri kominn til bæjar- ' ins til að stjórna sýningum og leika krakkann. Eins og áður seg- J ir hefur Har. Á. Sig. sett leikinn á svið og stjórnað sýningum og j fer hann jafnframt með aðalhlut- I verkið, Hilarius Foss, apa- og | slöngutemjara. Á MIKINN ÞÁTT ií VINSÆLDUM LEIKSINS i Það er kunnara en frá þurfi að Isegja, að Iiaraldur Á. Sigurðsson Já sinn drjúga þátt í þeim vin- i sældum, sem Húrra krakki hefur notið hér á landi. Enda hefur hann stjórnað sýningum og leik- ið krakkann víðsvegár á landinu við mikla hrifningu. Brást hann Gísli við bókbantlsbekkinn í ísafold. mátti og aðeins fáir útvaldir gátu leyft sér þann munað, að sækja nám til útlanda. Þá bauð erlend- ur söngvinur að kosta hinn efni- lega ungling' til utanlandsdvalar og náms. En svo stóð-á fyrir Gísla þá, að hann átti engin föt nema bætta ræfla og kunni ekki við að sýna sig þannig „með þjóð- um“. En þrátt fyrir slík smá- vegis mistök í lífinu hefur hann unað glaður við sitt og fagnað I vori sem nrest hann má fyrir ] annríki og dagsins önn, því hann er sannkallað vorsins barn. | Og nú eru liðin 64 ár, frá því hann „hóf bókbandsvinnu fyrir alvöru“ hjá Birni Jónssyni rit- stjóra ísafoldar og hefur stundað þá atvinnu síðan jafnframt söngnum er hann hefur haft á- nægju af sem aðrir bæjarbúar. Það kann að vera að mörgum góðkunningjum og vinum Gísla hefði koniið það betur ef átt- ræðisafmælis hans hefði verið minnst á afmælisdaginn. En nú SuntafRáitiskeíð á Löngumýri fyrir SU nýjung verður framkvæmd í sumax’, að stofna til einskonar sumarrkóla fyrir ungar stúlkur. Á Löngumýri í Skagafirði cr starfandi húsmæðraskóli, seni kunnugt er. —- Stofnandinn og stjórnandinn er frk. Ingibjörg Jóhannsdóttir, sem með framúr- skarandi dugnaði og fórnfýsi hefur komið þessari stofnun á fót og rekið hana með myndar- brag. Er það raunar furðulegt og sannarlega frásagnarvert, þegar einstaklingar brjótast í slíkt af einskærum áhuga og löngun til að láta gott af sér leiða. Ég hcf í mörg ár verið gestur á þessu. sltólaheimili, þegar leið mín hef- ur legið um Skagaf jörð, og marg- oft rætt þar við hinn myndarlega ungmeyjahóp. Hef ég jafnan far- ið þaðan ánægður. Ég hef séð það með eigin augum hve annt skólastjórinn iætur sér um hóp- inn sinn, hve umhugað frk. Ingi- björgu er um það, að skólavist in auðgi hann fyrst og fremst af þeim verðmætum, sem mikil- verðust eru og mölur og ryð fá ei grandað. Þar er hugur og hönd þjálfuð í starfi, en hinu ekki gleymt, að þekkingin „hjaðnar sem blekking sé hjarta ei mcð sem undir slær“. Viða erlendis eru sumarskólar starfræktir fyrir ungar stúlkur frá fermingaraldri til tvítugs. Hafa þeir hvarvetna þótt reynast vel. Eru þetta skólar kiusir í snið- um, lítið um bækur og blöð, e» meira hirt um það, að kynnast náttúrunni, fegurð hennar og fjölbreytni, að glæða fegurðar- skyn og andlegt líf nemendanna og göfga hugarfar þeirra og framkomu. Nokkuð af timanum er varið til söngs og leikja, og á allan hátt er reynt að gera skóla- lífið frjálslegt og menntandi. — Þannig mun þetta verða reynt á Löngumýri í sumar. Þar munu starfa 2—3 kennarar auk skóla- stjórans, frk. Ingibjargar. Skól- inn mun hefjast síðari hluta júnímánaðar, og er skemmstur dvalartími 10—14 dagar, cn kostnaði öllum stillt mjög í hóf. Ég óska frk. Ingibjörgu Jó- hannsdóttur til hamingju með þessa byrjun, og væntanlegum. þátttakendum með dvölina á Löngumýri. Ég hef trú á því, að hún muni verða þeim til góðs. Snorri Sigl'ússon. stúlkuna á heimili prófessors- hjónanna leikur Svala Veturliða- dóttir, og Tomma tútommu Jón Bjarnason. MIKII, FAGNAÐARLÆTI Heildarsvipur sýningarinnar var með ágætum og hraði leiks- ins góður. Leiktjöld voru smekk- lega gerð, en þau annaðist Sig- urður Guðjónsson. Að leikslokum l var leikendum og leikstjóra ákaft I fagnað og barst leikstjóranum fagur blómvöndur. — Jón. ils. „Fjallíoss“ fer frá Reykjavík sunnudaginn 30. maí kl. 1 e. h. til Akraness. Skipið fer frá Akranesi samdæg- urs kl. 8 e. h. til Reykjavíkur. Farþegar verða teknir á þilfar, og skal á það bent, að skiplð get- ur ekki teið nema íakmarkaðan farþegaf jölda. Farseðlar verða seldir í skrif- stofu félagsins, forþegadeild, kl. 10—12 f. h. á sunnudag. H/F EIM'-KfPAFJFf «0 ISI.ANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.