Morgunblaðið - 30.05.1954, Qupperneq 8
8
HUURGtJ ' t,AÐttí
Sunnudagur 30. maí 1954
Útg.: H.Í. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgCarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu 1 krónu eintakiS.
áfli
Hver er grundvöllur lífskjaranna?
ÚR DAGLEGA LÍFINU
ÞAÐ er kunnara en frá þurfi að
segja, að á liðnum tíma hefur
íslenzka þjóðin lengstum lifað
við fátækt og þröngan kost. Á-
stæða þess var fyrst og fremst
sú, að land og fólk var ófrjálst
og atvinnuvegir þess voru frum-
stæðir. Landsmenn skorti tæki
til þess að bjarga sér með. í.
þúsund ár má segja að ræktun j
landsins hafi að mestu staðið í.
stað eða jafnvel hrakað. Korn-
yrkja lagðist af og skógar lands-!
ins eyddust. Rányrkjan setti svip
sinn á búskapinn.
Við sjávarsíðuna var róið til
fiskjar á smá kænum löngu eftir
að erlendar þjóðir tóku að hag-
nýta sér hin gjöfylu íslenzku
fiskimið á stórum þilskipum.
Þeir, sem hófu viðreisnarbarátt
una gerðu sér Ijóst að þjóðin j
þurfti fyrst og fremst að eign-
ast tæki til þess að bjarga sér
með. Skúli Magnússon lét kaupa
stærri skip til fiskveiða og verk- 1
smiðjuvélar til iðnaðar. Hann
vildi einnie glæða áhuga bænda
á ræktun og fullkomnari búskap-
arháttum.
Það eru þannig þeir, sem
mesta áherzlu hafa lagt á að
afla íslendingum framleiðslu-
tækja til þess að hjarga sér
með, til lands og sjávar, sem
á raunhæfastan hátt hafa bar-
izt fyrir bættum lífskjörum
alls almennings i landinu.
Ef litið er yfir síðustu 2 til
3 áratugina kemur það í Ijós,
að einn stjórnmálaflokkur í
þessu landi hefur átt langsam-
lega ríkastan þátt í atvinnu-
lífsuppbyggingu þjóðarinnar.
Sá flokkur er stærsti flokkur-
inn, Sjálfstæðisflokkurinn.
Hann hefur jafnan unnið að
því af ötulleik og framsýni að
tryggja almenningi sem bezt
og afkastamest tæki í lífs-
baráttunni. Hann hefur harizt
fyrir stærri og fullkomnari
veiðiskipum og verzlunarskip-
um. Hann hefur beitt sér fyrir
f jölþættri löggjöf til stuðnings
landbúnaðinum og haft for-
ustu um að taka tæknina í
þágu búskaparins. Hann hefur
haft forgöngu um uppbygg-
ingu innlends iðnaðar og iðju.
Þetta er staðreynd, sem ekki
verður breitt yfir með innan-
tómum slagorðum um að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé „íhald“, sem
fyrst og fremst berjist fyrir hags-
munum „auðmannastéttarinnar".
Blöð hinna sósíalísku flokka,
kommúnista og Alþýðuflokksins,
grípa bæði til þessara gatslitnu
slagorða, í gær, er þau gera 25
ára afmæli Sjálfstæðisflokksins
að umræðuefni. Þau hafa engin
rök fram að færa fyrir þessum
fullyrðingum sínum. Þau hamra
aðeins á þeim enn einu sinni, sann
færingarlaust og í fullkomnu
rakaleysi.
áfram að framleiða þessar
gömlu lummur, þessar ára-
tugagömlu lummur.
En þetta sakar ekki Sjálfstæð-
isflokkinn vegna þess, að hann
hlýddi kalli hins nýja tíma og
tók upp þróttmikla forustu fyrir
raunhæfum kjarabótum almenn-
ings á íslandi. Hann hefur að
vísu aldrei sagt launþegum, að
það eina, sem máli skipti fyrir
hagsmuni þeirra væri krónu-
fjöldi tímakaupsins. Hann hefur
iagt áherzlu á hitt, að auka arð
fólksins af starfi þess með því,
að fá því sem bezt og fullkomn-
ust framleiðslutæki. Og það er
einmitt þetta, sem hefur bætt lífs-
kjörin. Þess meiri, sem arður
framleiðslutækjanna varg þess
meira kom til skiptanna í hlut
einstaklingsins. Af fullkomnum
atvinnutækjum leiddi ekki fyrst
og fremst stórfellda auðsöfnun
örfárra einstaklinga, eins og kom-
múnistar spáðu fyrir. Þvert á
móti höfðu þau í för með sér
auðjöfnun þ.e.a.s., jafnari skipt-
ingu arðsins af hinu skapandi
starfi.
★ FYRIR nokkru var Owen-
fossa stíflan vígð, og er þar með
stigið stórt skref í þá átt að hafa
hemil á vatnsmagni Hvítu-Nílar.
Er ætlað. að öllu því verki verði
ekki lokið fyrr en eftir 15—20 ár
og kosti um 4500 millj.
Owen Falls er í Uganua-ríki
3-4 km frá Viktoríuvatninu. Stífl-
an, sem tekur bakka í milli, er
870 m löng og í henni eru 200
þús. rúmmetrar af steinsteypu.
Þar sem hún er hæst, er hún
30 m.
★ MANNVIRKIN við Owen-
'4
fossa gegna tvíþættu hlutverki.
Aðalatriðið er að stífla hið mikla
fljót. Viktoríuvatn, sem er eitt
stærsta stöðuvatn heims, er 1150
m yfir sjávarmál. Fallhæð er því
feiknarleg ‘ og þungi árstraums-
ins mikill. En vatnsmagnið er
breytilegt, enda hefir það valdið
Egyptum baga um árþúsundir.
Sum árin flóir áin yfir bakka
sína, næsta ár er hún e. t. v.
dddeltu oý möcjru
árin liowia ehl?L
prarnar
í dd^ijptaíandi
vatnslítil, svo að þau héruð, sem
hún fellur um skortir vatn.
Hvergi er þessu betur lýst en í
Biblíunni, þar sem hún talar um
feitu og mögru árin sjö. Með
svipuðum mannvirkjum og stífl-
an við Owen-fossa er verður með
tímanum hægt að hafa hemil á
vatnsmagninu, sjálfir geta menn
þá ráðið, hversu mikið er í ánni,
hversu miklu er hleypt gegnum
flóðgáttirnar.
★—•—★
★ ANNAÐ hlutverk mann-
VeU andi óhri^ar:
Einnig þetta veit íslenzka
þjóðin, að er satt og rétt. Nið-
urstaðan hlýtur því að verða
sú að það hafi verið Sjálfstæð-
isflokkurinn, sem ríkastan þátt
átti í, að bæta lífskjör almenn-
ings á íslandi. Af því leiðir
svo aftur þá staðreynd, að
hann er sá flokkur, sem nýtur j
flestra traust og flestir trúa
fyrir að stýra málum hinnar
íslenzku þjóðar. (
Þessu fær grýlutrúin og slag-
orðadýrkunin ekki breytt. I
Brýnt vandamál.
VÍSINDAMENN úr læknastétt
margra landa verða nú ekki
um annað tíðræddara en lungna-
krabba og hvort eða að hve miklu
leyti hann stafi af reykingum
vindlinga. Þessi kenning um
skaðsemi reykinga er ekki ýkja-
gömul, en allra seinustu ár hefur
hún fengið byr undir vængi, svo
að hvert mannsbarn er henni nú
orðið kunnugt.
Því ber ekki að leyna, að menn
eru ekki á eitt sáttir í þessu efni
frekar en endra nær. Þeir vís-
indamenn eru til, sem neita, að
þessi hætta geti stafað af reyk-
ingum, svo bölvaðar séu þær þó
ekki.
Hvað má til varnar
verða?
OG eðlilega láta tóbaksfyrir-
tækin ekki sitt eftir liggja
að kveða niður grýluna, benda á,
að hér megi engu slá föstu fyrr
Kynþáffamisréflið
Þessi málflutningur dugir
ekki hinum sósíalisku flokk-
um lengur. íslenzkt fólk trúir
ekki lengur á grýlur. Það veg-
ur og metur stjórnmálamenn
og flokka þeirra eftir verkum
þeirra, en ekki eftir hrópyrð-
um andstæðinganna. Á þessu
hafa kommúnistar og einstak-
ir Alþýðufiokksm. ekki áttað
sig. Þess vegna halda þeir
SÁ ÚRSKURÐUR, sem hæsti-
réttur Bandaríkjanna kvað upp
fyrir skömmu, um að alskilnað-
ur hvítra manna og svart.ra
skyldi afnuminn að fullu í skól-
um Bandaríkjanna, hefur vakið
fögnuð um allan heim. Banda- 1
ríkjamenn eru tvímæalaust með- J
al fremstu menningarþjóða
heimsins. í stjórnskipulagi sínuj
hylla þeir frelsi og lýðræði, e. t. ‘
v. í ríkara mæli en flestar aðrar
þjóðir. Kynþáttamisréttið, sem
birtist í aðskilnaði hvítra og
svartra barna í skólum sumra
ríkja Bandaríkjanna var því
ómótmælanlega blettur á þessari
glæsilegu menningarþjóð. En
þennan blett hefur hún nú þveg
ið af sér.
Því miður verður alda-
gömlu misrétti ekki útrýmt í
einu vetfangi. Bæði í Banda-
ríkjunum og víða annars
staðar um heim ríkir enn þá
ýmiss konar mismunur á að-
stöðu manna eftir litarhætti
þeirra. En þróunin gengur
örugglega í rétta átt. Þá að
gera alla menn jafna, hvernig
sem þeir eru á hörundslit.
Úrskurður háestaréttar
Bandarikjanna er einn hinna
merku áfanga á leiðinni að
lokatakmarkinu.
en fullsannað sé, að reykingar
valdi þessum banvæna sjúkdómi.
Satt að segja hefur það ekki held-
ur verig sannað með óyggjandi
rökum, heldur færðar að því
sterkar líkur.
Sé þetta svo, að krabbamein
stafi af reykingum, þá er eðli-
legt, að menn spyrji, hvað megi
til varnar verða. Sumir hafa jafn
vel viljað ganga svo langt að
banna sölu vindlinga, og studdi
stórt erlent læknatímarit þá
skoðun eindregið. En ekki þarf
neinn speking til að sjá, að sú
leið er með öllu ófær.
Ásakanir.
OG læknar halda áfram að
brjóta heilann um, hvar sé
fær leið út úr ógöngunum. Það
er ekki nóg, að vara fólk við,
heldur verður að grípa í taum-
ana, úr því að þúsundir manna
verða þessum skæða sjúkdómi að
bráð.
Hvassyrtustu vísindamenn saka
yfirvöldin um slóðaskap og stétt-
arbræður sína um óraunsæi.
H
Sía í munnstykki.
ÁVÆRAR raddir eru upp um,
að yfirvöld eigi ekki að leyfa
sölu annarra vindlinga en þeirra,
sem hafi síu í munnstykki. Telja
þeir ekki loku fyrir það skotið,
að slík ráðstöfun mundi lækka
dánartölu vegna krabbameins í
lungum.
Að vísu vita menn ekki enn,
hvers eðlis það eitur er, sem
krabbameininu veldur, en það er
ekki heldur hægt að bíða aðgerð-
arlaus, meðan menn hrinja niður
úr voveiflegum sjúkdómi.
Gagnrýnendur
mega vara sig.
KÆRJ Velvakandi! Sökum
þess, að þú ljærð því oft lið
í dálkum þínum, sem til bóta
horfir, langar mig til að biðja þig
um rúm fyrir nokkrar línur.
Ég er ein þeirra, sem hef mik-
inn áhuga á góðum kvikmyndum.
Því miður eru þær raunalega
sjaldan á boðstólum. En þá sjald-
an kvikmyndahússeigendur bjóða
upp á slíkt, þykir mér bæði synd
og skömm, þegar blaðamennirnir
vinna að því að spilla ánægju
okkar áhorfenda með því að
rekja efni myndarinnar lið fyrir
lið í ritdómum sínum.
Ef þeir hafa ekkert að segja
frá eigin brjósti um myndirnar,
væri þeim bezt að skrifa alls ekki
neitt, því að það eitt að rekja
efni myndarinnar, er ekki rit-
dómur, heldur „prógram“, og það
geta þeir, sem kæra sig um, keypt
um leið og aðgöngumiða að sýn-
ingunum. — Kvikmyndahúss-
gestur“.
Vorvísa 1854.
Vorið er komið, og grundirnar
gróa,
gilin og lækirnir fossa af brún;
syngur í runni, og senn kemur
lóa,
svanur á tjarnir og þröstur í tún;
nú tekur hýrna um hólma og
sker,
hreiðra sig blikinn og æðurinn
fer;
hæðirnar brosa og hlíðarnar dala,
hóar þar smalinn og rekur á ból;
lömbin sér una um blómgaða
bala,
börnin sér leika að skeljum á
hól.
(Jón Thoroddsen).
Hljóður skyldi
beggja vin og
báðum trúr.
virkjanna í Hvítu-Nil er að skapa
raforku. Við stífluna er komið
upp orkuveri þar sem verða 10
túrbínur með 15 þús. kv. orku
hver. Við þessa geysilegu orku-
lind rísa vafalaust á komandi ár-
unj iðjuver. Fyrstu verksmiðj-
urnar eru begar komnar á fót.
Mest verður þar um loftáburð,
vefnað og málmvinnslu.
★—®—★
★ LITLU ofar við ána og nær
Viktoríuvatni er Ripon-foss, sem
varð frægur eftir að Churchill
j heimsótti staðinn fyrir mörgum
árum. Við Ripon-fossa er há-
i markshraði vatnsins 1200 rúm-
metrar á sekúndu. Með leyfi
egypzku stjórnarinnar var vatns-
hraðinn minnkaður um helming.
Ekki er furða, þó að sækja yrði
um leyfi til Egypta til þess arna,
því að tæknilega er því ekkert
til hindrunar, að svipta Egypta-
land öllu vatni frá Ripon-fossi.
Elisabet d.rottning vígði Owen-
fossa mannvirkin fyrir nokkru
með því að styðja á rafhnapp Og
setja eina af risatúrbínunum 10
af stað. Um leið má segja, að
gamall draumur Churchills for-
sætisráðherra rættist.
í bók sinni „Ferð mín um
Afríku“, sem út kom 1908, benti
hann á, hversu miklir möguleik-
ar væru bundnir við virkjun
stríðra strauma Hvítu-Nílar við
Viktóríuvatn.
„Væri það ekki dásamlegt",
ritar hann, „að koma hinni eilífu
Níl til að hefja för sína gegnum
túrbínu" Þessi draumur hefir nú
rætzt til mikillar gleði Egyptum
og Bretum.
★—•—★
★ EN bað eru fleiri, sem fyll-
ast sigurvímu, þegar þessum
fyrsta áfanga mannvirkjanna
miklu er náð. Verkfræðingar og
verkamenn margra þjóða hafa
lagt hér gjörva hönd á. Hafa
brezk, hollenzk og dönsk fyrir-
tæki annazt framkvæmdir við
Owen-fossa. ^Þau hafa lagt þar
saman, eru sameinaðir verktak-
ar, er koma út á við fram sem
heild, og er látið vel yfir sam-
starfi þeirra og atorku.
Sýslufundur V,-
Skafiafeilssýshi
VÍK í MÝRDAL, 29. maí. —
Sýslufundur Vestur-Skaftafells-
sýslu var haldinn í Vík dagana
19.—22. maí s.l. Allir sýslunefnd-
armenn sátu fundinn.
Helztu tekjur sýslunnar eru
sýslusjóðsgjöld, sem áætluð eru
alls kr. 117,000,00. Helztu gjalda-
liðir eru áætlaðir: Menntamál kr.
32,500,00, heilbrigðismál kr. 22,
00,00, samgöngumál kr. 22,200,00
og stjórn sýslumála kr. 10,250,00.
Niðurstöðutölur fjárhagsáætlun-
ar sýslunnar eru kr. 175.792.97. —
Úr sýsluvegasjóði voru alls veitt-
ar kr. 78,300,00.
Samþykkt var að skora á Al-
þingi og ríkisstjórn að hefja þeg-
ar á næsta ári lagningu rafmagns
línu frá Sogsvirkjuninni austur
til Víkur. Vegna þéttbýlis á því
svæði, mundi slík lína vera mjög
hagstæð.
Ennfremur var skorað á Al-
þingi að hækka verulega flutn-
ingastyrk til sýslunnar vegna
vaxandi dýrtíðar. Bent var á al-
gera sérstöðu sýslunnar í sam-
göngumálum, vegna hafnleysis
og langra flutningaleiða.
Nokkuð var rætt um byggða-
safnið í Skógum, sem er sameign
með Rangárvallasýslu. Var sam-
þykkt nokkur fjárveiting til
þess.
Föstudaginn 21. maí kom
sýslunefnd Rangæinga í heim-
sókn í boði Skaftfellinganna, en
hún sat á fundum í Skógarskóla
undir Eyjafjöllum sömu daga.