Morgunblaðið - 12.06.1954, Side 2
2
MORGUTSBLAÐÍÐ
X.augardagur 12. júní 1954
' Sfofnuð verði fríhöfn og
1 siilingar úf m Imi auknar
Frá a^alíisndi VerzSunarréðsins að ÞingvöSSum
j í gærtnorgun kl. 11 hélt a'öal-
1 1. fundur Verzlunarráðs ís-
í lands áfram og var fundurinn
4 haldinn í Valhöll á Þingvöll-
i wm. Formaður ráðsins, Eggert
I Kristjánsson stórkaupmaður
* setti fundinn og kvaddi til
é fundarstjórnar sömu menn og
daginn áður, þá Egil Guttorms
son og Þorstein. Bernharðsson.
SKÝRSLA STJÓÍtNAR
Þá flutti Helgi Bergsson skrif-
stofustjóri Verzlunarráðsins
skýrslu urn starfsemi þess á ár-
inu. Fara nokkur höfuðatriði
hcnnar hér á eftir.
Stjórnin hélt 10 fundi á starfs-
árinu, en framkvæmdastjórn
ráðsins allmiklu fleiri.
í viðskiptamálum veitti ráðið
m. a. viðskiptamálaráðherra bend
ingar og gerði til hans tillögur
um breytingar laganna um Fjár-
hagsráðs og var innflutningsskrif
stofan nýja í mörgum atriðum
sniðin eftir vísbendingum Verzl-
unarráðsins. Þá beitti ráðið sér
fyrir niðurfærslum á fyrirfram-
greiðslum að verulegu leyti, eink
iim í Clearinglöndunum. Á að-
alfundinum komu fram eindregn-
ar raddir um að afnema bæri þær
tneð öllu.
Stjórn Verzlunarráðsins fékk
komið í veg fyrir, að fragtir og
umhleðslukostnaður á vörum
yrði háð bátagjaldeyri, svo sem
í fyrstu hafði verið fyrirhugað.
í sambandi við útflutningsmál
vann skrifstofa ráðsins að sam-
anburði á útflutningi íslands og
aðalkeppinauta þess eftir magni,
vcrði og löndum og átti viðræður
við fulltrúa S. í. F. um málið.
Nokkuð hefur verið unnið að
því, að fá því framgengt, að kom-
ið verði upp fríhöfn hér á landi.
Nefnd á vegum ráðsins hefur
starfað í málinu og undirbúið
það. Ákveðið var að bjóða S.f.S.
til samvinnu um málið og hefur
jákvætt svar borizt frá þeim sam-
tökum.
Þá hafa lögin um Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins verið til at-
hugunar hjá ráðinu og mögu-
Seikar á því, hvort ekki væri unnt
að breyta beim í frjálsara horf.
Hefur ráðið lokið tillögum sínum
um málið og er gert ráð fyrir,
að þær verði lagðar fyrir hlutað-
eigandi aðila í haust.
Þá heíur ráðið átt aðild að Og
fulitrúa í vmsum viðskiptasamn-
inganefndum við erlend ríki, svo
sem tilkynnt hefur verið í frétt-
um.
Eitt höfuðmál ráðsins á árinu
voru siglingar út um land.
SIGEINGAR
Hefur ráðið haft góða samvinnu
«m málið við Eimskipafélagið,
scm loks nú hefur séð sér fært
sökum aukins skipastóls að hefja
rcglubundnar áætluparferðir
með vörur út um land. Hefur
því verið þannig fyrirkomið, að
þau skip, sem frá útlöndum koma
sigla áfram með farminn á hafn-
ir úti á landi, án þess að vörurn-
ar séu umhlaðnar í Reykjavík.
Hafa þrjú af skipum Einvskipafé-
lagsins verið í áætlunarsigling-
um þessum og er þess að vænta,
að enn batr.i og aukist skipaferðir
út um landið á komandi árum.
Þá hafa skattamálin einnig
vcrið mjög ofarlega á baugi í
störfum ráðsins Að afloknum
síðasta aðalfundi kaus fram-
kvæmdastjórnin nefnd til að gera
iillögur í skattamálum. Gerði
ncfndin tillögur í samráði við
fleiri skvlda aðila, og vgru þær
sendar milliþinganefnd í skatta-
ználum til ieiðbeiningar í störf-
um sínum. Nefndin ræddi málið
og við fulltrúa stjórnarflokkanna
Og átti þannig sinn þátt í því, að
skattalöggjöfin var endurskoðuð
og þeim breytingum, sem á henni
voru gerðar verzlunarstéttinni í
hag.
Ýmiss mál önnur hafa verið til
meðferðar hjá stjórn ráðsins.
IIRAöARI TOLLSKOÐUN
Lögð hefur verið áherzia á, að
tollskoðun og tollendurs’-icðun
gengi fljótar fyrir sig en verið
hefur, einstökum meðlimum hef-
ur verið liðsinnt á margvíslegan
hátt. Ráðið gefur út blaðið „Ný
tíðindi“ og hefir séð um fjárreið-
ur Verzlunarskólans og hafizt
handa um undirbúning að hátíða-
höldum á 100 ára afmæli frjálsrar
verzlunar hinn 15. apríl 1955.
Þá voru iesnir upp reikningar
ráðsins og samþykktir athuga-
semdalaust. Hagur þess er góður
og batnandi. Hreinar eignir ráðs-
ins eru nú alls rúm hálf milljón
króna.
Að því búnu voru úrslit stjórn-
arkjörs og nöfn tilnefndra full-
trúa tilkynnt. Þessir menn taka
sæti í stjórninni og eru það allir
hinir sömu og áttu sæti í henni
s.l. ár: Tilnefndir voru:
STJÓRNIN
Eggert K-istjánsson Félag ísl.
stórkaupmanna. Egill Guttorms-
son Fél. ísl. stórkaupm. Hans R.
Þórðarson Fél. ísl. byggingarefna
kaupm. Jón Bergsson Skókaupm,-
fél. Karl Þorsteins Fél. ísl. stór-
kaupm. Páll Sæmundsson Fél.
búsáhalda- og járnvörukaupm.
Stefán Thorarensen Apótekara-
fél. íslands. Þorvaldur Guðmunds
son Fél. kiötverzl. Rvík.
Kosnir voru: Gestur Jóhanns-
son kaupm. Seyðisfirði. Guðm.
Guðjónsson kaupm. Rvík. Hjört-
ur Jónsson kaupm. Rvík. Magn-
úr J. Brynjólfsson kaupm. Rvík.
Othar Etlingsen verzl.stj. Rvík.
Sig. Ágústsson alþm. Stykkish.
Sveinn Guðmundsson, forstj., Rv.
Tómas Björnsson, kaupm. Ak.
NEFNDARÍLIT
Þá fór fram kosning endur-
skoðenda og kjörnefndar.
Að því loknu flutti Ingólfur
Jónsson viðskiptamálaráðh. ræðu.
Verður hún birt síðar hér í blað-
inu.
Þá komu til umræðu álit þing-
nefnda og voru afgreidd.
Eggert Kristjánsson gerði grein
fyrir tillögum skattamálanefndar.
Helgi Bergsson hafði framsögu
fyrir laganefnd, Othar Ellingsen
og Einar Guðmundsson lögðu
fram álit viðskiptanefndar.
Allmiklar umr. urðu um nefnd-
arálitin, en afgreiðslu þeirra Og
umræðum var lokið laust fyrir
kl. 6 í gær. Verða þau síðar birt
hér í blaðinu.
★
Þá tók Eggert Kristjánsson stór
kaupm. til máls og þakkaði öll-
um fulltrúum fundarsetuna og
jafnframt starfsfólki ráðsins fyr-(
ir gott og dyggilegt starf. Gat
hann þess, að vel hefði reynzt
að halda fundinn fjarri Reykja-
vík og kæmi til mála að þeirri
venju yrði haldið í framtíðinni
að nokkru.
Var síðan aðalfundi Verzlunar-
ráðs íslands slitið. Snæddu að því
búnu allir fulltrúarnir sameig-
inlegan kvöldverð að Hótel Val-
höll.
Mikil! karfaafli
AKRANEST, 11. júní. — Togar-
inn Jón forseti landaði hér í gær
340 tonnum af fiski. Var það nær
allt kaarfi og hafði togarinn veitt
þetta mikla fiskmagn á vikutíma.
Trillubátarnir voru rneð alls 22
tonna afla í gær, en þá voru 19
bátar á sjó •—Oddur.
Vsfirðinqar faka á rnéf! f ichard Beck
Mynd þessa tók Árni Matthíasson þegar prófessor Richard Beck og kona hans komu til ísafjaröat
nú í vikunni. Á henni eru, talið frá vinstri: Arngrímur Bjarnason, Þórleifur Bjarnason, Guðmund-*
ur frá Mosdal, Helgi Gúðmundsson, Jón Guðjónsson, frú Beck og Richard Beck, Jónas Tómasson og
Ragnar II. Ragnar. Litla telpan fremst á myndinni er Anna Áslaug Ragnarsdóttir. Myndin er tekifl
á Bæjarbryggjunni.
45 nemendur stunduiu nám
í tónlisfaskóla ðsafj. í velur )
ísafirði, 5. júnl^
TÓNLISTARSKÓLA ísafjarðar var slitið í samkomusal gagrw
fræðaskólans á ísafirði s.l. sunnudag og lauk þar með 6. starfw
ári skólans. Skólastjóri, Ragnar H. Ragnar, flutti ávarp og gerðí
grein fyrir starfsemi skólans, en síðan léku nokkfir nemendur skóN
ans á píanó og orgel. j
—17. júíií
Framh. af bls. 1
garðurinn Tivoli verða opinn frá
kl. 16—18 og verður þar ókeypis
aðgangur og fjölbreytt skemmti-
skrá.
VIÐTAL VIÐ HALLVEIGU
FRÓÐADÓTTUR OG
INGÓLF ARNARSON
Kl. 17 síðd. hefst aftur dag-
skrá við Austurvöll. Þar mun
verða söngur kóra úr Landssam-
bandi blandaðra kóra. Prófessor
Richard Beck flytur kveðjur frá
Vestur-íslendingum og að lokum
verður flutt Alþingishátíðarkant-
ata Emils Thoroddsen, af Sin-
fóníuhljómsveitinni og Þjóðleik-
húskórnum á Austurvelli, ef veð-
ur leyfir. Við Arnarhól hefst
kvöldvakan kl. 20.00 á leik
Lúðrasveitar Reykjavíkur. Þar
mun borgarstjórinn flytja ræðu.
Karlakór Reykjavíkur og Fóst-
bræður syngja einnig nokkur
lög og stúlkur sýna fimleika. —
Einnig verður þar einsöngur og
samsöngur þekktra íslenzkra
söngvara. Þá mun Þjóðkórinn
syngja undir stjórn dr. Páls ís-
ólfssonar. í lok kvöldvökunnar
verður fluttur viðtalsþáttur og
mun fréttamaður þar ræða við
„Ingólf Arnarson" og „Hallveigu
Fróðadóttur". Síðan verður dans-
að á þrem stöðum í bænum, á
Lækjartorgi, í Lækjargötu og á
Hótel íslands-lóðinni, til kl. 2
eftir miðnætti, en þá verður há-
tíðahöldunum slitið frá Lækjar-
torgi af formanni Þjóðhátíðar-
nefndar.
BARNAGÆZLA í
HÓTEL HEKLU
Þar sem mikil brögð hafa orðið
að því undanfarna þjóðhátíðar-
daga að börn hafa týnzt, hefur
lögreglan og Þjóðhátíðarnefnd
annast barnagæzlu. Eins mun
verða að þessu sinni og mun hún
verða á Hótel Heklu. Eru börn,
sem kunna að verða viðskila við
foreldra sína, beðin að leita þang-
að og foreldrar beðnir að vitja
þeirra þangað.
Varla mun þurfa að brýna það
fyrir Reykvíkingum að forðast
ölvun þennan dag, en slíkt
mundi spilla hátíðahöldunum
mjög mikið og óvirða þessi há-
tíðlegu og sögulegu tímamót ís-
lenzku þjóðarinnar. Væri vel við
eigandi að allir Reykvíkingar
tækju höndum saman um að úti-
loka 10 ára afmælisdag íslenzka
lýðveldisins frá áfengisneyzlu á
götum úti, sem mundi án efa setja
sinn svip á hátíðahöldin.
Þjóðhátíðarnefndin beinir
þeirri ósk til Reykvíkinga að
mæta sem flestir á þjóðbúning-
um 17. júní.
VERÐLAUNUM ÚTHLUTAÐ
Að því loknu afhenti skóla-
stjórinn nokkrum nemendum
verðlaun, sem fyrirtæki og ein-
staklingar í bænum höfðu gefið
í því skyni og þakkaði öllum
þeim sem styrkt hefðu starfsemi
skólans á undanförnum árum. —
Verðlaun fyrir píanóleik hlutu
þessir nemendur: Selma Samú-
elsdóttir, Lára Rafnsdóttir og
Frank Herlufsen. Fyrir orgelleik
hlutu verðlaun Halldóra Sigur-
geirsdóttir Bolungavík og Jóna
Valgerður Kristjánsdóttir, en fyr-
ir góða frammistöðu í tónfræði:
Anna Ásl. Ragnarsdóttir, Katrín
Jónsdóttir, Friðrik Þorleifsson,
María Ragnarsdóttir og Elín Guð-
mundsdóttir.
FYRRV. FORM.
SKÓLANEFNDAR MINNZT \
Að lokum talaði Kristjáq
Tryggvason klæðskerameistatl
fyrir hönd Tónlistarfélags ísa*<
fjarðar og skólanefndar skólans,
Minntist hann sérstaklega sérq
Óla Ketilssonar, sem var formað*
ur skólanefndar er hann lézt. —*
Einnig þakkaði hann skólastjórsj
og kennurum fyrir gott starf og
óskaði skólanum heilla í fram-<
tíðinni.
í vetur stunduðu 45 nemendus
nám við skólann. Skólastjórina
Ragnar H. Ragnar, kenndi eina
og áður píanóleik og tónfræði, elj
aðrir kennarar voru Jónas Tóm-<
asson, Elísabet Kristjánsdóttir og
Guðmundur Árnason. — J. j
500 kr. verðlaun
Hér er finnmta myndin í samkeppni unglinga (15 ára og yngri) |
umferðarreglum á vegum SVFÍ og Morgunblaðsins. Alls verffaj
birtar sex myndir. Ein 500 kr. verðlaun eru veitt fyrir rétt svÖS
við allar myndirnar. . J
VERÐLAUNAMYND V. \ j
Hvoru megin á að aka fram úr öðrum ökutækjum?
Svar: ^
_ ' 1