Morgunblaðið - 06.07.1954, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.07.1954, Blaðsíða 8
8 MORGUNHLAÐIÐ Þriðjudagur 6. júlí 1954 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Yaltýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Samvinna Bandaríkja- manna og Breta KOMMÚNISTAR hafa öðru hverju lagt mikla áherzlu á það í áróðri sínum, að samvinna Bandaríkjamanna og Breta stæði mjög höllum fæti. Væru allar horfur á að þeir gætu ekki kom- izt að samkomulagi um þau ágreiningsmál, sem uppi væru meðal þeirra. Auðsætt er að kommúnistar þrá ekkert frekar en að til var- anlegs ósamkomulags dragi milli þessara tveggja öndvegisþjóða vestræns lýðræðis. Á þann hátt einan telja þeir von um að geta framkvæmt ofbeldisáform sín. En sem betur fer eru þessar vonir kommúnista tálvonir einar. Grundvöllurinn að samvinnu vestrænna þjóða er miklu traust- ari en svo, að ágreiningur um einstök minni háttar mál geti raskað honum. Ráðstefna sú, sem þeir sátu nýlega í Washington Eisenhower forseti, Winston Churchill, Antony Eden og John Foster Dulles gefur líka fyllilega til kynna að samkomulag hafi náðst um öll meginatriði þeirra mála, sem um var rætt þar. í sameiginlegri yfirlýsingu sem gefin var út að fundinum loknum lýsa Bandaríkjaforseti og forsætisráðherra Bretlands því yfir, að það sé ákveðinn vilji þeirra, að Þýzkalandi verði gefinn kostur á þátttöku í samvinnu vestrænna þjóða, sem jafningja þeirra. Þeir hvetja Frakka jafnframt til þess að staðfesta hið fyrsta sáttmálann um varnarbanda- lag Evrópu. Varðandi Asíu er lögð á það áherzla að Bretar og Banda- ríkjamenn telji nauðsyn bera til áætlana um sameiginlegar varnir í Suðaustur-Asíu og á Kyrrahafi til þess að mæta hverg konar atburðum er þar kunni að gerast, hver sem niðurstaða Genfarráðstefnunn ar kunni að verða. Það er þess vegna auðsætt, að hin tvö engilsöxnesku stórveldi hafa í engu hvikað frá stefnu sinni í baráttunni fyrir heims- friði og öryggi. Náin samvinr.a hinna vestrænu þjóða í Evrópu um varnir gegn framsókn hins kommúníska ofbeldis og vax- andi viðbúnaðar gegn kommún- ismanum í Asíu er enn sem fyrr markmið þeirra. Öllum lýðræðissinnuðum mönn um, hvar í heiminum sem er, mun það í fersku minni, að það Voru fyrst og fremst Bretar og Bandaríkjamenn, sem brutu Hitlerismann á bak aftur. Rúss- ar, undir forystu kommúnista, sömdu við þá og hleyptu óarga- dýrinu um leið lausu. Herskarar Hitlers þorðu ekki að ráðast á Pólverja haustið 1939 fyrr en þeir voru búnir að tryggja sér hlutleysi eða réttara sagt aðstoð Stalins. Þá var öllu óhætt. — Kampavínssalinn, sem Hitler hafði gert að utanríkisráðherra sínum fullvissaði hann um að Bretar og Frakkar myndu ekki hreyfa sig þótt ráðizt væri á Pól- verja, ef Rússar hefðu aðeins verið beizlaðir áður. En þessir útreikningar brugð- ust. Bretar og Frakkar sögðu nazistum stríð á hendur. Komm- únistar um víða veröld stóðu þá sem innilegast með Hitler, sem gert hafði vináttusamninginn við hinn „mikla“ Stalin. Það var fyrst eftir að villidýrið hafði ráð- [ izt á Sovétríkin sumarið 1941 sem kommúnistar snérust eins og vindhaninn á bæjarburstinni. Það voru þannig Bretar og aðrar vestrænar þjóðir, sem tóku upp baráttuna gegn nazisman- um. Kommúnistarnir í Kreml sömdu við hann, hjálpuðu hon- um til þess að ráðast á Pólland og hefja heimstyrjöldina. Síðar kom það svo í hlut lýð- ræðisþjóðanna að bjarga Rússum undan hrammi nazismans. Með stórkostlegum vopnasendingum Bandaríkjamanna, matvælagjöf- um og hvers konar annarri að- stoð Bandaríkjanna tókst rúss- nesku þjóðinni að hrinda árás- inni á land sitt. Þrátt fyrir ára- tuga kúgun og axarsköpt komm- únista í stjórn Rússlands reis þessi langþrælkaða þjóð upp gegn innrásarhernum, fyrrver- andi bandamönnum herranna í Kreml, og rak nazistana af hönd- um sér. Nú stynja Rússar á ný und- an oki Sovéts síns en vest- rænar þjóðir treysta samtök sín til þess að hindra frekari frelsisrán kommúnista. Það er von og ósk allra frjálslyndra manna, að sam- vinna Bandaríkjamanna og Breta um öryggismálin megi jafnan verða traust og einlæg. Á henni veltur mikið fyrir framtíð heimsfriðarins og sjálfstæði og öryggi þeirra þjóða, sem unna frelsi og lýð- ræði. I UR DAGLEGA LIFINU J ir EINHVER elskulegasti náung inn í bókmenntum Evrópu síð- ustu árin er ítalski presturinn, bardagamaðurinn og góðmennið Don Camilló. Hann er sóknar- presturinn í litlu ítölsku sveita- þorpi einhvers staðar í Pódaln- um, enginn veit hvar, og þar háir hann daglega baráttu um sálir og sannfæringu sóknarbarnanna við Peppone, hinn kommúniska borg- arstjóra. Með fáum undantekn- ingum hafa þeir Guð og Don Camilló að jafnaði betur í bar- daganum úm sálirnar, en kosn- ingarnar vinnur Peppóne og kommúnistarnir hans að jafnaði og ráða áfram lögum og lofum í litla sveitaþorpinu. ★ STRÍÐIÐ milli prestsins og borgarstjórans er í rauninni tákn- rænt um átök þau, sem fram fara á Ítalíu í dag. Landið riðar á barmi kommúnismans og ka- þólska kirkjan, sem Don Camilló er svo sérstæður fulltrúi fyrir á ríkastan þáttinn í að hindra íram- gang flokksins í landinu. í bar- áttu þeirra kumpána speglast hinar undarlegu andstæður ítalska almúgamannsins, sem biður til Guðs síns og skriftar fjálglega fyrir presti sínum á hverjum laugardegi, en á kjör- tlý lóL um 2)on CCamiílo dag fellur atkvæði hans á hina kirkjufjandsamlegu kommúnista. Faðir og skapari þeirra Don Camillós og Peppóne er blaða- maðurinn og rithöfundurinn Giovanni Guareschi. Barátta hins góða gegn hinu illa. VeU andi ihntar: Tðrlrygpi eða sameinað élak! í RÆÐU sem Adenauer forsætis- ráðherra Þýzkalands flutti í viku- lokin, ræddi hann umbúðalaust um hina hlálegu andstöðu Frakka við stofnun Evrópuhers. Adenauer sagði að hann hefði frekar óskað eftir að Evrópuher yrði komið á fót heldur en að Þjóðverjar stofnuðu sinn eigin þjóðarher. Ástæðuna sagði hann ekki vera þá að hann hræddist að hinn þýzki hemaðarandi vakn aði upp aftur, heldur það eitt að þýzkur þjóðarher nayndi vekja upp ótta og tortryggni nágrannaþjóðanna. En þrátt fyrir það getur þátttaka Þjóð- verja í vörnum Vestur-Evrópu ekki beðið lengur. ískyggileg- ar fregnir af stórlega auknum viðbúnaði og hervæðingu Rússa sýna að hér er um alvöru að tefla. Þýzkur þjóðarher myndi eink- um vekja tortryggni Frakka sjálfra. Það hlýtur því að vekja stöðuga undrun hve hugsunar- laust franskir stjórnmálamenn hafa frestað og ef til vill hætt við þátttöku í Evrópuhernum. Hann var leiðin til að sameina allar þjóðir Vestur Evrópu til þess að geta varið frelsi sitt í öflugu sam einuðu átaki. Tillagan um Evrópu her var einmitt til þess ætluð að svipta burt ótta og tortryggni og í samræmi við hagsmuni Frakka. Það er því ótrúlegt og óskiljan- legt, ef þeir ætla að verða til þess að skera þá hugmynd aftur af stofxii. Um stólasmiði og tízku. RAUNSÆISMAÐUR skrifar: „Ég las fyrir nokkru grein í Lesbók Morgunblaðsins — ég held að það hafi verið rétt í byrj- un maí1— sem vakti athygli mína og mætti segja mér, að svo hafi verið um fleiri. Greinin var þýdd- ur úrdráttur úr bók eftir norskan lækni og nefndist hún, „Slap av 1— 0g bli frisk“. Greinin fjallar um hve heilsu manna sé nauðsyn- legt að sitja rétt og um hlutverk húsgagnasmiða í því sambandi. Bókarhöfundur vekur athygli á því, að stólasmíði hafi hingað til verið fyrst og fremst miðuð við kröfur tízkunnar á þessum og . . Ég verð feginn að standa upp .. hinum tíma, án þess, að nægilegt tillit væri tekið til þess, hvort stóllinn væri þægilegur að sitja í og í samræmi við hlutverk það, sem honum er ætlað. Verkefni fyrir ísl. húsgagnasmiði. SÍÐAN er sýnt fram á hvernig hinar ýmsu stólagerðir eigi að vera: borðstofustóllinn, hæg- indastóllinn, vinnustóllinn, skóla- stóllinn, þannig að hann sé sem bezt sniðinn eftir þörfum líkam- ans. Mér finnst, að íslenzkir hús- gagnaframleiðendur ættu nú að taka sig til og spreyta sig á nýj- um hugmyndum í stólagerð sem stefna myndu í skynsamlegri og heilsusamlegri átt en gerzt hefir hingað til. Væri ekki úr vegi að þeir kynntu sér umrædda grein í Lesbókinni og jafnvel bókina alla, sem hún var tekin úr. Með þökk fyrir góðar undirtektir og von um árangur. — Raunsæis- maður.“ Færið gamla fólkinu blóm. PR E S T U R Elliheimilisins Grund, hefur beðið mig að vekja atbygli fólks á því, að fátt gleður gamla fólkið meir en að því séu færð sumarblóm utan úr náttúrunni. Blágresi, fíflar og sól- eyjar eru gamlir kunningjar, sem því þykir vænt um að sjá og ylj- ar því um hjartaræturnar á sjúkrabeðinum. Ferðalangar, frískir og færir, sem fara út úr bænum um helgar ættu að hafa þetta í hug og tína nokkur sum- arblóm til að færa gamla fólkinu, þegar heim kemur. Giovanni Guareschi. Hann reynir ekki að kafa til botns í þeim gruggugu djúpum, sem heita ítölsk stjórnmál, heldur einhæfir hann baráttuna, sem á sér stað í landinu og dæmigerir hana í hin- um tveimur bráðsnjöllu söguper- sónum sínum, er við hér á íslandi þekkjum og mæta vel, bæði af kvikmyndum og útvarpi. □—★—□ ★ GUARESCHI er skeggjaður, einbeittur andkommúnisti, er hefur sitt lífsframfæri af því að gefa út hægri ’sinnað skopblað í Milanóborg. Hann er konungs- sinni af trú og sannfæringu, en eins og kunnugt er, þá er ítalía lýðveldi. Jafnaframt því virðist Guareschi hata hina kristilegu demokrata nær því jafn ákaft og kommúnista, sem hann hefur svo mjög beitt brandi sínum gegn bæði í skopblaði sínu, er nefnist Candido og í bókunum um Don Camilló. Nýlega var Guareschi varpað í fangelsi og dæmdur til að sitja þar í heilt ár. Orsökin var sú, að hann ásakaði Alcide de Gasperi fyrrv. forsætisráðherr í blaði sínu um að hafa hvatt Bandamenn til þess að varpa sprengjum á Rómaborg meðan á styrjöldinni stóð. De Gasperi höfðaði þegar í stað meiðyrðamál og fékk hinn hugumstóra rit- stjóra dæmdan í dyflissu. Sagan um Don Camilló er í stuttum köflum og komu þeir allir fyrst í blaði Guareschi sem greinar og birtust síðar í bókar- formi. Hafa þegar komið út tvær bækur um klerk og nefnast þær á ensku „The Little World of Don Camillo“ og „Don Camillo and His Flock“. Sú þriðja kom út fyrir örskömmu og hefur þég- K Hlífið Viðey. ÆRI VELVAKANDI! í Morgunblaðinu nú á dög- unum birtist grein, sem fjallar um hvar eigi að staðsetja gömul hús, sem varðveita skuli. Er þar bent á, að Viðey mundi verða heppilegur staður. Reykjavíkurhöfn er álitin ein- hver sú fegursta í Evrópu og þó víðar væri leitað. Mundi það ekki spilla hinum tilkomumikla svip, sem Viðey setur á umhverfi Reykjavíkur, að hrófla nokkuð við hennar látlausu fegurð? Leið mín liggur á hverjum degi um Kleppsveginn og aldrei bregst það, að ég líti út til þessarar fögru eyjar þar sem hún blasir við ið- græn og tignarleg. Með fullri virðingu fyrir göml- um húsum, sem ég tel sjálfsagt að varðveita, tel ég, að þau myndu stinga mjög í stúf við um- hverfi Viðeyjar og auk þess yrði eyjan fyrir átroðningi þeirra, sem um gengju. Þessvegna er það bón mín til bæjaryfirvalda og borgar- búa, að þeir finni einhvern ann- an stað til varðveizlu húsanna en einmitt Viðey. Virðingarfyllst, Ljóti andarunginn." —o— Burt með von og burt með kvíða, bæði raska hjartans frið, nú-ið sorglaust látum líða, langt er eigi þess að bíða, sem var áðan ókomið. (Grímur Thomsen), Teikning eftir Guareschi. ar vakið mikla athygli á bóka- markaðinum. Nefnist hún á ensku „Don Camillo’s Dilemma“, er gefin út af bandaríska útgáfu- fyrirtækinu Farrar, Strauss & Young og kostar hún $3. □—★—□ ★ GUARESCHI lítur á komm- únismann sem böl, er leitt hafi verið yfir mannkynið, en alla jafnan sér hann einnig broslegu hliðina við málið og gerir góð- látlegt grín að hinum húmorlausu kommúnistaforsprökkum, sem streitast daginn út og daginn inn fyrir flokkinn og foringjann, en gera sér aldrei ljósa broslegu hliðina við sjálfa sig og störf sín. í síðustu bókinni, sem telur 25 kafla, er tekið á þessu gamal- kunna efni á nýjan og ferskan hátt. Baráttan stendur þar á milli kirkjunnar og kommúnism- ans, hinna andlegu afla og þeirra veraldlegu. Það er einstök og eftirtektarverð hlið á flestum kommúnistum, að þeir eru gjör- sneyddir allri kímnigáfu og taka sjálfan sig manna hátíðlegast. Þessu tekst Guareschi að lýsa snilldarlega og þó á látlausan og sennilegan máta. □—★—□ Á í EINUM kaflanum ráðlegg- ur borgarstjórinn Peppóne, fé- laga Lungó að vera ekki of áhyggjufullur yfir því hve marg- ir þorpsbúar trúa á Krist. „Það gerir í rauninni ekkert til“ segir Lungo. „Það versta er, að sumir standa á því fastara en Framh, á bls. 1Q j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.