Morgunblaðið - 08.07.1954, Page 2
2
MORGVNBLAÐIB
Fhnmtudagur 8. júlí 1954 ^
Karlmönnum finnst uð þeir
pii ullt bezt sjúlfir
Grasið mælt og vegið
UNDANFARIÐ hefur frk.
Karen Aaberg varaborgar-
stjóri í Thisted á norðvestur Jót-
landi dvalizt hér í Reykjavík.
Hefir hún verið hér á ferðalagi
ásamt vinkonu sinni, frk. M.
Brögger, sem dvaldi hér um fimm
ára skeið fyrir rúmum 25 árum
<og vann þá við hjúkrunarstörf
á Vífilsstaðahæli. Frk. Aaberg
liefur í' 25 ár átt sæti í bæj-
arstjórn kaupstaðar síns og gegnt
J»ar fjölmörgum trúnaðarstöðum.
Eunfremur hefur hún tekið mik-
inn þátt í dönskum stjórnmál-
uin, meðal annars verið í kjöri
við kosningar til ríkisþingsíns
íyrir Vinstri flokkinn, sem hún
jafnan hefur tilheyrt. Thisted
liefur nú nær 10 þús. íbúa.
Mbl. hitti frk. Aaberg snöggv-
ast að máli í gær, og ræddi við
hana hitt og þetta úr lífi hennar
«g starfi.
— Er þetta í fyrsta skipti sem
J>cr komið hingað til íslands?
— Nei, ég kom hingað á
Reykjavíkurhöfn suinarið 1906.
Var þá á leið til Grænlands til
þess að taka þar upp störf sem
hjúkrunarkona. En vegna ein-
hverrar umferðaveiki, sem gekk
hér gátum við ekki komið í land.
IP'YRSTA DANSKA
HJÚKRUNARKONAN
í GRÆNLANDI
Farkostur okkar var Græn-
landsfarið Hans Egede. Það var
gufuskip úr járni. Var það fyrsta
^árngufuskipið, sem notað var til
Grænlandsferða. — Man ég að
•Grænlendingum þótti það skrýtið
■að járnskip skyldi geta flotið.
Voru þeir að stinga í það með
hnífum til þess að staðreyna
undrið!!
— Til hvaða staðar í Græn-
landi hélduð þið svo?
— Við komum til Júlíanehaab
•eftir 12 daga siglingu og vont
veður töluverðan hluta leiðar-
innar.
— Hvað voruð þér svo lengi
þar?
— Ég var þar í tvö og hálft ár
<og var eina hjúkrunarkonan í
«i>llu Grænlandi, og fyrsta danska
hjúkrunarkonan, sem þangað
koni. Læknir var í Julianehaab
og lítið sjúkrahús með skurð-
stofu og tveimur litlum sjúkra-
siofum. Með Hans Egede kom
<efni í nýtt sjúkrahús. Samferða
okkur voru einnig 50 færeyskar
sauðkindur. — Var áformað að
kenna Grænlendingum sauðfjár-
rækt.
— Hvernig var heilbrigðis-
ástandið í Grænlandi um þessar
mundir?
— Það var ekki gott. Mikil
hrögð voru að berklum og lús
og kláði voru algengir.
3TRÍFANDI LAND
— Þér hafið haft nógu að sinna
þarna.
— Já, ég ferðaðist mikið um
með lækninum og kynntist bæði
landinu og fólkinu. Og ég verð
.að segja að mér fannst Grænland
að mörgu leyti indælt og hrífandi
land. En ég gerði mér ljóst að
«f ég ætlaði mér ekki að ílendast
þar þá yrði ég fljótlega að halda
heim til Danmerkur aftur. Fór
ég svo heim eftir tveggja og hálfs
á>'s dvöl í Julianehaab. Var síðan
am skeið við hjúkrunarstörf í
Englandi og gerðist að því loknu
yfirhjúkrunarkona við Rigs-
hospitalet í Kaupmannahöfn. —
Hjúkrunarstörfum hætti ég árið
1917.
PÁTTTAKA í STJÓRNMÁLUM
— En þér hafið tekið mikinn
þátt í stjórnmálum?
— Já, ég hef eiginlega haft
áhuga á stjórnmálum allt frá
barnsaldri. Faðir minn var rit-
sljóri í Thisted og heimili okkar
var mjög pólitískt.
— Hafið þér ekki átt sæti í
bæjarstjórn kaupstaðar yðar?
— Jú, síðan árið 1929 eða í
samtals 25 ár. Formaður félags-
málanefndar kaupstaðarins hef
ég verið síðan 1933. Ennfremur
het ég átt sæti í skólanefnd, fjár-
Vaxandi þátttaka danskra
kvenna í stjórnmálum
Samtal við frk. Karen Aaberg, varaborgarsf j. í Thisted
Karen Aaberg.
hagsnefnd og sjúkrahúsnefnd,
ásamt ýmsum öðrum nefndum,
sem starfað hafa að menningar-
málum. Síðastliðin 3 kjörtímabil
hef ég einnig verið varaborgar-
stjóri.
VAXANDI
FÉLAGSLEGT ÖRYGGI
— Hvað viljið þér segja um
þróunina í félagsmálum ykkar?
— Ég tel að hún hafi verið til
mikils góðs og hafi skapað stór-
aukið öryggi fyrir almenning.
— Getur gamalt fólk lifað af
ellistyrk sínum í Danmörku?
— Svo á það að heita, en það
er ekkert meira en svo. Einstak-
lingur fær 163 danskar kr. á
mánuði í ellilaun, að viðbættum
400 kr. á ári fyrir eldsneyti og
fatnaði. Ennfremur er þeim, sem
mesta þörf hafa fyrir það, veitt
nokkur uppbót.
Þá má geta þess, að bæjar-
félag okkar á smáíbúðir sem
leigðar eru út öldruðu fólki, sem
ekkert á. Er húsaleigan 29 kr. á
mánuði með hita, fyrir einstak-
linga, en 33 kr. fyrir hjón.
Þar að auki höfum við elli-
heimili, sem rúmar 60 gamal-
menni. Flest það fólk er þar
dvelur, er milli 90—100 ára.
— Verður atvinnuleysis stund-
um vart hjá ykkur?
— Það kemur fyrir, helzt um
háveturinn. Það eru þá helzt
ófaglærðir verkamenn, sem skort
ir vinnu. Á hernámsárunum voru
miklar framkvæmdir á vegum
Þjóðverja þarna í nágrenninu.
Drógu þær að sér fjölda verka-
manna víðsvegar frá af landinu.
Fjölgaði verkamönnum í Thisted
þá verulega.
GÓÐ SAMVINNA
— Hvernig er samkomulagið í
bæjarstjórninni hjá ykkur?
— Það er yfirleitt ágætt. Borg-
araflokkarnir hafa þar meiri-
hluta og þar sitja 4 vinstrimenn,
4 hægrimenn og 7 jafnaðarmenn.
Ég man aldrei eftir að ekki hafi
náðst samkomulag milli flokk-
anna í félagsmálanefndinni. Þau
mál, sem hún fjallar um eru líka
þess eðlis, að um þau er varla
hægt að deila.
ÞÁTTTAKA KVENNA
í STJÓRNMÁLUM
— Fer þátttaka kvenna í
stjórnmálum í Danmörku vax-
andi?
— Já, það er óhætt að fullyrða.
Karlmönnunum finnst að vísu að
þeir geri allt bezt sjálfir og kven-
fólkið er ekki nógu framgjarnt.
Nokkrar konur eiga þó sæti í
Ríkisdeginum, en þær ættu að
vera fleiri.
Ég vil svo að lokum segir frk.
Karen Aaberg láta í ljós ánæg]u
mina yfir þeim móttökum og
þeirri einstöku gestrisni, sem ég
hef mætt hér á landi. íslendingar
eru ekki „stirðnaðir víkingar",
heldur lifandi og framtakssamt
fólk. Höfðingseðlið er ríkt í ís-
lendingum ennþá, það sást bezt á
framkomu þeirra gagnvart Norð-
mönnum og Dönum eftir að síð-
ustu heimsstyrjöld lauk.
Mig undrar hvað jafn fámenn
þjóð hefur færst í fang, og af-
kastað á örskömmum tíma á ýms-
um sviðum, t. d. ræktun, raf-
orkumálum og byggingafram-
kvæmdum, húsa og skipa.
Ég fer héðan með ánægjulegar
endurminningar um land ykkar
og þjóð. S. Bj.
Friðrik Ólafsson
kom í nótt
GULLFAXI var væntanlegur
um miðnætti í nótt frá Kaup-
mannahöfn. Meðal farþega var
ská.ksnillingurinn Friðrik Ólafs-
son, sem verið hefur sér til hvíld-
ar í Kaupmannahöfn, eftir hið
erfiða skákmót í Prag.
Á flugvellinum tóku á móti
honum, auk náinna ættingja,
Elís Ó. Guðmundsson og helztu
forvígismenn skákmanna hér í
bænum.
' ! ÍÍÍ-Ú fí',, - , % < i' , , jé" i ÉiéihiII l■ll■l—I ■■■■»!■ i n
i 1
Mynd þessa tók Ijósmyndari blaðsins, er norrænu búnaðarmóts->
fulltrúarnir skoðuðu tilraunastöðina að Varmá. Þrír hinna erlendií
fulltrúa virða fyrir sér grasgróðurinn. Á myndinni eru, talið frál
vinstri: Otto Lier, ráðunautur, Johan Lyzke, fylkisbúnaðarmála-i
stjóri og prófessor J. Lag.
SlriWii heftu fir norræiu*
búnaðarmófs-fu!lfrúanna !
4 MÁNUDAGSMORGUN lögðu þátttakendur í norrænu bún-
t\ aðarmótinu af stað til Norðurlands. Var fyrst komið við á
Hvanneyri og snæddur þar hádegisverður. Síðan var haldið að
Hólum í Hjaltadal og gist þar en á leiðinni komið við í Glaumbsú
og gamli bærinn og byggðasafnið skoðað.
11 togarar á ís- eða
saltfiskveiðum,
3 á síld
UM þessar mundir eru 11 togarar
á ís- og saltfiskveiðum. Þrír tog-
arar taka þátt í síldveiðunum.
Togararnir sem veiða í ís hafa
flestir verið á karfaveiðum og
hefur stundum gengið mjög vel.
Einn togari mun vera við Græn-
land nú, en þar er sagður vera
mjög tregur afli.
Á togurunum sem hér liggja í
Reykjavíkurhöfn hefur farið
fram vélahreinsun, þeir málaðir
og endurnýjaðir á ýmsan hátt.
Þrír togarar verða á síldar-
vertíð og eru tveir farnir þeir
Egill Skallagrímsson og Askur og
Jörundur mun fara innan
skamms.
Flugvél hrapar
KANSAS CITY 7. júlí: — Orustu-
flugvél hrapaði í dag í aðalvið-
skiptahverfi borgarinnar. Spreng
ing varð og fjögur hús brunnu.
Búizt er við að meir en 10 manns
hafi látið lífið, en leitað er nú í
rústunum.
- Danmörk
Framh. af bls. 1
60% hærra gengi en annar gjald-
eyrir.
3) Ríkisstjórnin bjóði út 100
miiljón króna lán.
Ekki hefur enn náðst fullt
samkomulag milli flokkanna um
lækkun útgjalda til hervarna, en
hugsazt getur að herskyldutíminn
verði styttur úr 18 í 16 mánuði.
— Reuter.
Á þriðjudaginn var ekið til Ak-
ureyrar. Þar var tilraunabúið
skoðað, en konurnar skoðuðu
sýningu á fornum heimilisiðnaði.
Þá var ekið að Möðruvöllum í
Hörgárdal og búið og gripahús
skoðuð. Einnig var gengið þar
í kirkju, og ávarpaði sr. Sigurður
Stefánsson hina erlendu gesti og
skýrði fyrir þeim sögu staðarins.
Afmælishljótn-
leikar Lúðrasveltar
Reykjavíkur í kvöld
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur mun
leika á Austurvelli i kvöld kl. 8
ef veður leyfir.
í gær, 7. júlí var 32. afmælis-
dagur Lúðrasveitar Reykjavíkur
og eru þessir útihljómleikar í
tilefni afmælisins.
Ótaldar eru þær stundir sem
Lúðrasveit Reykjavíkur hefir
skemmt bæjarbúum með letk
sínum og útihljómleikum á und-
! anförnum árum. Ekki hefir
Lúðrasveitin þó bundið starfsemi
sína við Reykjavík eingöngu en
ferðast um landig og haldið
hljómleika. í sumar mun Lúðra-
sveit Reykjavíkur fara til norður
og austurlands og gefst þá fólki
! gott tækifæri til að hlusta á leik
I sveitarinnar þar sem hún fer um.
Á útihljómleikunum í kvöld
mun Lúðrasveit Reykjavíkur
[ leika létt lög og marsa, einnig
verður Sverðdansinn eftir
j Khatchaturian leikinn en það
verk er nú meðal vinsælustu tón-
verka heimsins. Einleikari á þess
* um tónleikum verður Halldór
Einarsson sem leikur einleilc á
l básúnu í laginu Gaety Polka. —-
. Stjórnandi er Poul Pampichler.
KOMUST EKKI LANDVEG
Síðan var haldið áleiðis til
Hóla, en við Bægisá voru bílarnir
stöðvaðir og tilkynning barst un3
að Öxnadalsheiði væri ófær. Var
þá haldið til Akureyrar aftur, en
öll hótel voru þar yfirfull. —«
Brugðu Akureyringar mjög vel
við og að hálftíma Iiðnum hafði
þessum 50 manna hóp verið kom-
ið fyrir á heimilum víðsvegar
um bæinn. Ekki var svo um ann<
að að ræða en flytja flokkinn flug
leiðis suður, og var þar gert í
gær.
Memitamálaráðu-
neytið úthlutar
erlendum
styrkjum
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur valið eftirfarandi menn til
þess að þiggja erlenda styrki til
náms og rannsókna, er áður hef-
ur verið greint frá, að fram hafi
verið boðnir:
Styrk úr „Generallöjtnant
Erik With’s Nordiske Fond“: Síra
Sigurð Einarsson, Holti undir
Eyjafjöllum.
Styrk frá ítölsku ríkisstjórn-
inni: Gísla Magnússon, píanóleik-
ara, Reykjavík.
Styrk frá sænsku ríkisstjórn-
inni: Magnús Gíslason, skóla-
stjóra aí Skógum undir Eyjafjöll-
um.
Styrk frá finnsku ríkisstjórn-
inni: Benedikt Bogason, stud.
polyt.
Styrki frá Sambandslýðvéldinií
Þýzkalandi: Baldur Ingólfsson,
cand phil, og Hallgrím Helgason,
tónskáld. ■ -i