Morgunblaðið - 08.07.1954, Page 8

Morgunblaðið - 08.07.1954, Page 8
8 MORGUNH.LAÐIÐ Fimmtudagur 8. júlí 1954 imMofrife Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Jafnvægi í byggð landsins HINN 4. febrúar árið 1953 sam- þykkti Alþingi þingsályktun- artillögu um undirbúning heild- aráætlunar í þeim tilgangi að skapa og viðhalda jafnvægi í byggð landsins. Voru það þing- menn Sjáufstæðisflokksins, sem forystu höfðu um málið, en þrír þingmenn Framsóknarflokksins stóðu einnig að flutningi tillög- unnar. í þinginu var þessu máli vel tekið og var þingsályktunartil- lagan samþykkt óbreytt með sam hljóða atkvæðum. Var hún á þessa leið: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja nú þegar undirbúning að heildar- áætlun um framkvæmdir í þeim landshlutum, sem við erfiðasta aðstöðu búa sökum erfiðra samgangna og skorts á raforku og atvinnutækjum. Að slíkum undirbúningi loknum skal ríkisstjórnin leggja fyrir Alþingi tillögur sínar um nauðsynlegar fram- kvæmdir. Skulu þær stefna að því að skapa og viðhalda jafn- vægi í byggð landsins og tryggja sem mest framleiðslu- afköst þjóðarinnar. Fiskifélag íslands, Búnaðar- félag Islands og Landssam- band iðnaðarmanna skulu vera ríkisstjórninni til aðstoð- ar við starf þetta.“ Forsætisráðherra hefur nú skip að tvo alþingismenn í nefnd til þess að vinna það verk, sem til- lagan ræðir um. Verður vissulega að vænta þess, að árangur starfs þeirra verði í samræmi við mikil- vægi þess verkefnis, sem þeim hefur verið fengið. Eins og kunnugt er hafa stór- felldir fólksflutningar átt sér stað frá sveitum og sjávarþorpum tii hinna stærri kaupstaða s.l. ára- tugi. Sumpart hefur þetta sprott- ið af breyttum atvinnuháttum og sumpart af því, að þéttbýlið hef- ur boðið fólkinu upp á allt önn- ur og meiri lífsþægindi og lífs- skilyrði en strjálbýlið. Fólkið hefur leitað að þeim eldinum, sem bezt brann. En þetta hefur oft haft í för með sér að fjöldi fólks hefur horf- ið frá framleiðslustörfum í sveit eða við sjó og tekið upp störf, sem þvert á móti hafa í för með sér gjaldeyriseyðslu. Hefur að sjálfsögðu falizt mikil hætta í slíkri þróun í fámennu og tiltölu- lega frumstæðu þjóðfélagi. Það, sem fyrir Sjálfstæðis- mönnum vakti með flutningi tillögunnar um heildarfram- kvæmdaáætlun til þess að skapa og viðhalda jafnvægi í byggð landsins, var fyrst og fremst það, að jafna aðjtöðu fólksins í landinu í lífsbar- áttu þess, skapa blómleg líf^.- skilyrði sem víðast um land- ið og stöðva með því hina ó- heillavænlegu samþjöppun þjóðarinnar í kaupstöðum á örfáum stöðum. Þeir hafa hvað eftir annað bent á, að það væri þýðingarlaust að fjargviðrast yfir því að unga fólkið flýi sveitir og sjávarþorp til Reykjavíkur, þar sem lífsþæg- indin eru mest og afkomuskil- yrðin bezt. Það yrði að gera eitt- hvað raunhæft til þess að jafna metin, bæta lífsskilyrðin og að- stöðu fólksins í strjálbýlinu. UR DAGLEGA UFINU Sú heildaráætlun, sem gerð > verður til þess að skapa og við- , halda jafnvægi í byggð landsins I hlýtur að miða að þessu. Hún í verður að stefna að því, að bætt | verði afkomuskilyrði þeirra, sem 1 við erfiðasta aðstöðu hafa búið. i Að sjálfsögðu hefur margt ver- / ið gert í þessu skyni á undan- j förnum árum. En í þeim fram- | kvæmdum hefur oft skort heild- j aryfirsýn. Það er t. d. gagnslítið að leggja mikig fé í vegagerð til j þess að koma einstökum byggðar- ( lögum í akvegasamband, ef svo er algerlega vanrækt að stuðla að því, að þar séu fyrir hendi j framleiðslutæki, sem skapi al- menningi þar afkomuskilyrði Einhverjir munu e. t. v. segja að það sé fyrst og fremst verk- efni einstaklinganna og félaga- samtaka þeirra að tryggja slíkt. En við því er það að segja, að meginhlutinn af öllu fjármagni þjóðarinnar er í kaupstöðunum og þá fyrst og fremst í höfuð- borginni. Hina minni staði skort- ir oft fjárhagslegt bolmagn til þess að byggja upp framleiðslu sina og atvinnuvegi. Tillaga Sjálfstæðismanna, sem samþykkt var á siðasta Alþingi um uppbyggingu iðn- aðar úti um land, er einnig hin athyglisverðasta. Það er áreiðanlega óheppilegt, að all- ur iðnaður landsmanna vaxi upp á einum eða tveimur stöð- um. Mjög æskilegt er að hann dreifist og leggi grundvöll að auknu atvinnuöryggi víðsveg- ar um land. Það er von Sjálfstæðis- manna að upp af samþykkt og framkvæmd þessara tveggja tillagna vaxi aukið jafnvægi í byggð landsins, jafnari að- staða fólksins í strjálbýli og þéttbýli í lífi þess og starfi. Lysenko ÞAÐ er hlálegt að sjálfur höfuð- postuli hinna sérkennilegu sovét- vísinda, Lysenko prófessor skuli nú vera fallinn í ónáð. Að vísu kemur það stundum fyrir að kenn ingar og skoðanir vísindamanna reynast rangar. Oftast er það ein- göngu ósigur þess eina vísinda- manns, því að vísindin og aukin þekking mannkynsins stefnir iðu laust fram á við. En í þessu dæmi er um annað og meira að ræða. I sjö löng ár hafa valdsmenn Rússlands lög- boðið að kenningar Lysenkos skuli teljast' opinberlega réttar. Hér eins og á fleiri sviðum hef um það undarlega fyrirbrigði skapazt að tvær útgáfur af Sovét- ríkjunum hafa orðið til. Onnur sem liggur við yfirborð jarðar frá Eystrasalti til Vladivostok, Rússland ranuveruleikans, þar sem landbúnaði hefur hrakað svo ár frá ári, að þjóðin sveltur. Hin útgáfan af Sovétríkjunum hangir í lausu lofti yfir. Mynduð skv. valdboði af hugarórum. Rúss land óraunveruleikans ofinn úr milljónum ferkílómetra af áróð- Ursritum, þar sem engin orð eru nógu sterk til að lýsa eigin ágæti. Það sem hefur gerzt er aðeins að hinir rússnesku valdsmenn hafa um sinn dottið niður úr skýjabólstrum sinnar sjálfum- glöðu vímu og komið hart niður í Rússland raunveruleikans. ★ LORJOU heitir hann, einn frægasti listmálari Frakklands og auðvitað á hann heima í París. Og hvar í París? Hvergi annars staðar en á Montmartre, því hvar þrífast listmálarar betur en í þeim hafsjó myndrænna lína og lita. Um fáa menn, sem á pensli og litaspjaldi halda er meira rætt í París þessi misserin og fyrir skömmu voru verk hans sýnd vestanhafs í Wildenstein sýning- arskálanum í New York við hið mesta lof. Lorjou er arftaki þeirra Van Gogh og Soutine, en hann málar með ríkum einstaklings- einkennum í formi, myndbygg- ingu og litavali, sem einkennir hann mjög og gerir hann auð- þekktann. ★ ÓFEIMINN er hann aldeilis við að nota sterka liti, stilleben- myndir hans og uppstillingar geisla af litafjöld og litadýrð, hvort sem hann málar aldin á borði, blóm í vasa eða lostætan krabba á diski. Margir franskir listagagnrýn- endur halda því fram, að Lorjou sé mesti listmálari 20. aldarinn- ar. Hann er 45 ára að aldri og fæddist hann í héraði, sem Loire- ÍL emn ^raaóLan málara áin rennur um, en sveit sú er rómuð fyrir fegurð sína og þar völdu Frakkakonungar köstul- um sínu mog höllum stað um Eitt afskorið kýrhöfuð lagt á disk og borið fram. 'UeluaLandi ókrijar: aldaraðir., Lorjou er hæglátur maður og hlédrægur, grannur maður og í meðallagi á vöxt. Hár hans er skorið stutt, hann er fá- máll og virðist feiminn við fyrstu sýn. Því þykir persónuleiki hans vera í miklu ósamræmi við þann' kraft og þann volduga straum, sem veltist áfram í myndum i hans og litavali. I Lorjou er maður jarðarinn- ar. Hann málar gjarnan landlags- myndir, þar sem persónuleiki hans og myndstíll er gjörþekktur í hverjum pensildrætti og öllum smáatriðum myndarinnar, og á- horfandinn verður var við gleði- straum kvíslast um æðarnar, þegar hann virðir málverkið fyr- ir sér. List hans í myndfestingu uppstillinga er viðbrugðið; í þeim er fólgin sérstök spenna, magti og þróttur, sem fáum er gefinn. □—★—□ ★ LORJOU býr á Montmartre. Þar hefur hann litla vinnustofu uppi undir risi í sex hæða bygg- ingu ,sem stendur í skugganum af marmarakirkjunni fögru, er Utrillio festi svo oft á léreft sitt. Úr gluggunum sést yfir húsa- mergð Parísarborgar eins langt og augað eygir og hin bláleitu þök hverfa í móðuna, sem yfir borginni liggur út við sjóndeild- arhringinn. Við húshliðina er lítill fagur garður, valinn til kyrrlátra hug- leiðinga. Það er gamall klaustur- garður og á þvottadögum hengja Réttlát reiði. IBRÉFI frá Hlíðabúa segir: „Þolinmæði okkar íbúa hér í Hlíðahverfinu er nú senn á þrot- um. Að undanförnu höfum við stöðugt borið fram kvartanir út af vatnsskortinum hér í hverfinu, sem svo rammt kveður að, að til stórvandræða horfir. Fjölskyldur sem búa á efri hæðum húsanna eru svo að segja algerlega vatnslausar frá því um kl. 9—10 á morgnana og fram á kvöld. Það vantar vatn til að þvo börnunum, þrífa íbúðina og elda matinn. Getur ástandið verið öllu verra? Okkur sem hér búum þyk- ir nógu afleitt að fá ekki notið hitaveitunnar, þó að við séum ekki sviptir kalda vatninu einnig* Það er auðsætt, að vatnsveitu- kerfi hverfisins er stórlega ábóta- vant og þarf hinna bráðustu úr- bóta við. Þykjr okkur æði hart, og með öllu óviðunandi, að bæj- aryfirvöldin skuli svo greinilega skella skollaeyrunum við þeirri réttlátu kröfu um, að bætt verði úr þessu ófremdarástandi hið snarasta. — Hlíðabúi.“ Lýsa vanþóknun sinni. UNG stúlka hér í Reykjavík hefir skrifað mér í nafni nokkurra stallsystra sinna og lýst yfir vanþóknun sinni á ýmsu, sem henni finnst miður fara í skemmt analífi höfuðborgarinnar. „Tekur það ekki út yfir allan þjófabálk — segir hún, þegar sjálft Ríkisútvarpið lætur flytja lofsöng um skækjulifnað saminn og fluttan af íslenzkri stúlku eins og þann, sem hlustendur heyrðu fyrir nokkru í útvarpsþættinum „Gamlar minningar“, sem ann- ars er að jafnaði mjög skemmti- legur þáttur. Þarna var um að ræða hinar sóðalegustu klámvís- ur og sætir furðu, að þær skyldu vera samdar af stúlku. Var höf- undinum og íslenzkrí kvenþjóð lítill sómi að því, að henni skyldi líðast að hrópa slíkan óþverra út yfir landslýðinn. Fáar hafa látið glepjast. SVO margt hefir verið ritað um kvikmyndaruslið, sem hér er á boðstólum, að ég ætla ekki að ræða um það nánar hér, en öllu hugsandi fólki er Ijóst að marg- ar þeirra eru ekki aðeins ómerki- legar og einskisvirði — heldur hreint og beint siðspillandi — og jafnvel mannskemmandi. Það er engu likara en að það hafi verið hafinn allsherjar áróður til að spilla okkur unga fólkinu. Það er gengið út frá því sem vísu að við gleyþum við öllu hugsunar- og gagnrýnislaust. En sem betur fer er þetta rangt. Ég held að ég mæli fyrir munn margra ungra stúlkna í Reykjavík, er ég stað- hæfi, að tiltölulega fáar hafa látið áróðurinn glepja sig og við líð- um það ekki, að við séum allar dæmdar eftir þeim fáu. Nokkrar ungar stúlkur í Reykja- vík.“ Piltabúðir. á milli Hafnabúða Min a muix Hafnabuða og Tjarnar er tangi fram í sjó- inn, sem kallaður er Rifið. Þar voru í fyrri tíð búðir og sjómenn margir, en mitt á milli Rifsins og Hafnabúða stóðu Piltabúðir. Þangað völdust jafnan vöskustu menn og klæddu sig aldrei skinn- klæðum, og kölluðu það lítil- mennsku að „skríða undir sauðar nárum“. Rifsmönnum lék öfund á sjómönnum í Piltabúðum og áttust þeir oft illt við, en að lok- um fóru Rifsmenn á Piltabúðir einn góðan veðurdag, er Piltar voru ekki heima og söguðu ailar árar næstum í sundur undir skautnum, og negldu svo skaut- ana yfir aftur. Daginn eftir réru Piltar og gerði stinnings kalda um daginn og óveður af landi. Komu þeir að um kvöldið og spurðist ekki til þeirra framar. Þar sem Piltabúðir voru, sjást nú stórar grjóthrúgur, og steinar svo stór- ir, að engir menn nú á tímum mundu geta vig þá fengizt, Hér fæðist Mefistófeles á mál- aragrindinni. Lorjou stendur hjá. ' nunnurnar þar út þvottinn sínn | til þerris. Ef þú hallar þér út um t gluggann hans Lorjou, er kvölda t tekur og húmið sekkur yfir borg- ; ina heyrir þú margs konar kynja- j hljóð berast upp til þín í kyrrð- [ inni. Það er ómurinn frá hinum I mörgu öldurhúsum og götukrám, sem frægð Montmartre hefur laðað til sín. □—★—□ ★ EN Lorjou hlustar ekki eftir þeim. Hann heyrir aðeins raddir náttúrunnar berast til sín í miðri heimsborginni og hann skynjar þær í litamergð hins rauðgula og bláhvíta himins, sem hvelfist yfir öllum sönnum listamönnum. Hans er ekki erill og þys borgar- innar að heldur; miklu fremur j þunglynd rósemi hinna aldur- hnignu og rykgráu Parísarhúsa, er teygja mjóslegna skorsteina * sína til himins. Og þegar honum leiðist borg- arlífið og eirðarleysið grípur hann föstum tökum heldur hann áleiðis til Gare-Lazare og kaupir þriðjaflokks járnbrautarmiða, sem færir hann heim til móður sinnar í sveitinni, 85 ára gamall- ar bóndakonu. Meðan hún hugsar um kjúkling ana sína blandar Lorjou liti og sýslar við terpentínu og pensla — og þá hefst fæðing enn eins listaverks, sem ber nafn hans grönnum dráttum í hægra horni sinu. Attlee til Ástralíu ' LUNDÚNUM — Fyrrverandi for . sætisráðherra Bretlands Clement Attlee, hefur þegið heimboð til 'Ástralíu. Mun hann fara þangað ! eftir för sína til Kína í haust, j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.