Morgunblaðið - 08.07.1954, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.07.1954, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLABIÐ Fimmtudagur 8. júlí 1954 $ Norrænir málm- iðnaðarmeím áfnndi í DAG hefst hér í Reykjavík norræn málmiðnaðarmanna ráð- stefna. Er það í fyrsta skipti, sem slík ráðstefna er haldinn hér á landi og eru komnir til hennar fulltrúar málmiðnaðarsambanda Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, tveir fulltrúar frá hverju þessara landa, auk fuil- trúa frá íslandi. Fél. járniðnaðarmanna, blikk- smiða og bifvélavirkja sjá um ráðstefnuna og dvelja hinir er- lendu fulltrúar sem gestir þess- ara félaga. Rætt verður um sam- eiginleg áhugamál þessara landa á sviði málmiðnaðar. 264 lögreglumenn flýja A-Þýzkaland á 1 mánuði BERLÍN, 7. júlí — Einkaskeyti frá Reuter. 2 6 4 LÖGREGLUFORINGJAR og lögreglumenn flýðu Austur- Þýzkaland í síðasta mánuði og leituðu hælis í Vestur-Berlín, sem pólitískir flóttamenn. Hafa borgaryfirvöld Vestur Berlínar skýrt frá þessu. Heldur flóttamannastraumurinn stöðugt áfram, þótt hætt sé að rita stórar fréttir í blöðin um svo hversdagslega hluti. Norrænir veður- fræðingar á fundi hér í DAG hefst hér í Reykjavík fundur veðurstofustjóra Norður- landanna. — Veðurstofustjórarn- ir munu allir mæta nema sá danski, sem skyndilega veiktist, en frá Danmörku mæta fjórir veðurfræðingar, tveir frá Sví- þjóð og Noregi og einn frá Finn- landi. Ráðstefnan mun fjalla um fjölmörg mál og fara fundir fram í Háskólanum. Fróðlepr fyrirlesfur um garðyrkju í GÆRDAG var próf. Árni Thorslund frá Ási með 40 garð- yrkjubændum á fundi austur í Hveragerði, en þar hélt hann fyrirlestur um garðyrkju og kom mjög víða við og var þetta hinn fróðlegasti fyrirlestur í hvívetna. Stóðu Garðyrkjufél. íslands og garðyrkjubændafélögin að fund- inum og voru sumir komnir langt að til að hlýða á mál próf Thors- lund. Tveir sólfu um doceufsembætti SAMKVÆMT tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu voru tveir umsækjerrdur um dócents- embætti í guðfræði við háskólann sem auglýst var til umsóknar 15. marz s.l. með umsóknarfresti til 1. júlí. Umsækjendurnir tveir voru Guðmundur Sveinsson, sett- ur docent og Þórir Þórðarson, cand theol. Fimmfugur í gær Fimmtugur varð í gær Otto Wathne Björnsson, Krosseyrar- vegi 5, Hafnarfirði. — Er hann mörgum kunnugur að góðu einu, enda er hann hinn hezti drengur og hrókur alls fagnaðar, hvar sem hann kemur. — Vinur. t1 LILLU kryddvörur eru ekta og þess vegna líka þær bezt. Við á- byrgjumst gæði. Biðjið um LILLU-KRYDD þegar þér gerið innkaup. AUSTUR-ÞÝZKUR HER ÞJÁLFAÐUR Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa nærri 1500 lögreglumenn flúið vestur yfir járntjald frá Austur-Þýzkalandi. Þar af eru 109 lögregluforingjar. Sumir þessara foringja hafa verið mjög háttsettir svo sem Hermuth Balthasar yfirmaður stórskota- liðsdeild þýzku alþýðulögreglunn ar og Hans Bonk yfirmaður æðsta herskóla austur-þýzku al- þýðulögreglunnar. Þessir ]ög- regluforingjar hafa látið í té þýð ingarmiklar upplýsingar sem sýna að Rússar leggja mikla áherzlu á að þjálfa og vopna austur-þýzkan her, sem til bráða birgða ber þó lögregluheiti. 10 ÞÚSUND LÖGREGLU- MENN KVEÐJA Frá því árið 1951 hafa nærri 10 menn flúið frá Austur Þýzka- þúsund austur-þýzkir lögreglu- landi. Skiptist fjöldinn þannig niður eftir árum: 1307 árið 1951 2049 — 1952 4308 — 1953 og um 1500 á fyrra árshelmingi þessa árs. Virðist sem hinir komm únisku valdhafar geti ekki einu sinni treyst lögreglusveitum þeim sem þeir hafa einmitt ætlað það verk að hindra flótta almennra borgara. Ófíð í S-Þingeyjar- sýslu HÚSAVÍK, 7. júlí: — Rigninga- samt hefur verið hér undanfarið og hefur bændum gengið illa að ná inn heyjum sínum, þeim sem ekki hafa súgþurrkun. Er all- mikið hey úti, þar sem sláttur er fyrir nokkru hafinn, og sumir jafnvel all langt komnir með heyskap. Bræla hefur verið á síldarmið- unum, og liggja 3 síldarskip hér inni vegna veðurs. í gær var fyrstu síldinni landað hér og voru það samtals 170 tunnur, sem tveir bátar komu með, Sigrún frá Vest- mannaeyjum með 70 tunnur og Guðbjörg frá Neskaupstað með 100 tunnur. — Fréttaritari. Tveir HefnarfjarSar- fogarar á karfa- veiðum HAFNARFIRÐI — Nú eru aðeins tveir togarar, Ágúst og Júlí, gerð- ir út héðan. Þeir eru báðir á karfaveiðum og hafa aflað all sæmilega að undanförnu. Júlí kom inn fyrir síðustu helgi með um 240 tonn og Ágúst 226 tonn, báðir eftir skamma útiveru. — Togarinn Júní er í slippnum í Reykjavík til hreinsunar og við- gerðar, en Surprise, Bjarni ridd- ari og Röðull hafa legið hér við bryggjurnar og hefir verið unnið við að lagfæra og hreinsa þá. — Flestir vélbátanna eru nú farnir norður til síldveiða. — G.E. Ágæfur árangur á innanféiagsmófi f. R Á INNANFÉLAGSMÓTI f. R. í gærkvöldi var keppt í 100 m hlaupi og kringlukasti. Guðm. Vilhjálmsson ÍR, sigraði Og hljóp á 10,8, Guðmundur Lárusson, Á, fékk einnig 10.8,. en var sjónar- mun á eftir, Hilmar Þorbjörns- son, Á, hljóp á 10,9 og Vilhjálm- ur Ólafsson, ÍR, fékk 11,2. Örn Clausen sigraði í kringlu- kasti með 42,10. Þessi tíma í 100 m. er sá bezti, í 100 m hér á landi í ár. Skrifstofuvinnia SENDESVEINIM óskast sem fyrst. GARÐAR GISLASON H. F. Hverfisgötu 4 Grænlandsfar kom hingað í gær FRAM eftir degi í gær iá hér á ytri höfninni Grænlandsfarið Kista Dan. Það tók fyrrihluta þessa árs þátt í Suðurskautssigl- ingu. — Hingað kom skipið til að sækja 22 danska landmælinga- menn, sem komu flugleiðis frá Danmörku eftir hádegi í gær. — Skipið flytur hópinn til Scorysby- sunds. Óskum að ráða vanan skrifstofumann og stúlku til frarfitíðarstarfa. GARÐAR GÍSLASON H. F. Hverfisgötu 4 • -■■•■■■■■■■«■•■■■■■■■■■■«■■■■■■■■ ■•■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«-Biiwmr»'> REMINGTON Hinar góðkunnu Contour rafkn. rakvélar kr. 488,00. Samlagningarvélar frá kr. 2800,00. Margföldunar og deilivélar. Remington-umboð Þorsteins Jónssonar, Bárugata 6 Vetrargarðurinn. Vetrargarðurinn. DANSLEIKUR í Vetrargarðinum í kvöld kl, 9. Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur. Miðapantanir í sima 6710 eftir klukkan 8. V. G. Félag Suðurnesjamanna fer skemmtiferð ef næg þátttaka fæst að Stöng í Þjórsárdal, sunnu- daginn 11. júlí kl. 8 árdegis. Farseðlar hjá Ferðaskrifstofu ríkisins, sem gefur nánari upplýsingar. Félag Suðurnesjamanna. JEPPAGRIND skúffa og gírkassi úr herjeppa til sölu. Uppl. í síma 4005 í dag og næstu daga kl. 4—6. HLSNÆÐi íbúð óskast nú þegar eða seinna, handa eldri hjónum með uppkomna dóttur. Þarf að vera 2—3 herbergi og eldhús. — Fyrirframgreiðsla, ef óskað er. Tilboð merkt: „Express —901“, til Morgunblaðsins fyrir 13. þ. mán. Tannlæknar segja að HRESNSLN TANNA MEÐ COLGATE TANN- KREMI STODVI BEZT TANN- SKEMMÐIR! Hin virka COLGATE-froða fer um allar tann- holur — hreinsar matarörður, gefur ferskt bragð í munninn og varnar tannskemmdum. ■4 *-■ i- fruuuLPJtpjaL>M> nunuu ■■■■•■•■•■ ■ ■■■ ■ ■ ■ ■ HELDUR TÖNNUNUM MJALLHVITUM GEFUR FERSKT MUNNBRAGÐ 5-4 y

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.