Morgunblaðið - 15.07.1954, Page 11
Fimmtudagur 15. júlí 1954
MORGUNBLAÐIÐ
11
Jarðneskar leifar Djengis Khan
ætlaðar til ai auha kommum
Yinsældo
ÆvKerill þessarar grimmu, fornu
sfríðshetju var blóði drlfinn.
KOMMÚNISTASTJÓRN Kína hefur nýlega afhent Innr/ Mon-
golíu að gjöf gröf furstans Djengis Khan, sem stundum hefur
verið nefndur „drottnari heimsins“, eða „svipa guðs“, en í Innri
Mongolíu eru afkomendur hinna sigursælu hermanna Djengis Khans
r.ú lénsmenn. Þannig hafa jarðneskar leifar þessa mikla fursta
verið færðar vestur yfir Gula fljótið.
ER ÞETTA RETT GROF?
En í raun og sannleika, eru
menn alls ekki vissir um að hin
raunverulega gröf Djengis Khan
hafi nokkurn tíma fundizt, þrátt
fyrir mikla leit. Margir fornleifa-
íræðingar hafa leitað að gröfinni
í vísindalegum tilgangi. Langt-
um fleiri hafa þó leitað að henni
í því augnamiði að komast yfir
hina miklu fjársjóði sem þar eiga
að vera.
Það sem menn vita er það, að
Bjengis Khan dó í herbúðum
skammt frá Peking 18. ágúst
1227. Einnig það, að gröf hans
var höggvin djúpt inn í fjall sem
samtíðarmenn hans nefndu Burk-
an-Kaldun. Fjall þetta er ein-
hvers staðar í fjallgarðinum
Delygyn-Bolkok, en evrópískir
Og amerískir fornleifafræðingar
fullyrða að engin hafi fundið
þetta ákveðna fjall, þar sem gröf-
in er sögð vera. Og að Mongólar
sjálfir hafi annað hvort gleymt
staðnum, eða að þeir vilji ekki
af ásettu ráði segja til hans
HAFA JARÐNESKAR IÆÍFAR
FURSTANS VERIÐ
FLUTTAR TIL?
Nýjustu upplýsingar frá kín-
versku kommúnistastjórninni,
eru þær, að fyrrverandi stjórn
Kína, Kuomingtang-stjórnin, hafi
árið 1939 flutt jarðneskar leifar
Djengis Khans burt frá sinni
upphaflegu gröf Og jarðsett þær
í Kansu í Kína. Eftir að Mao
3949 hafði náð völdum í Norður-
Kína, hafi hann flutt kistu furst-
ans í hof nokkurt í Ching Hai,
Og til þess að uppfylla óskir
Innri Mongólíubúa, um að fá að
hafa gröf hins mikla forföðurs
þeirra í sínu fylki, hefur stjórnin
nú látið flytja kistuna til höfuð-
Staðar Innri Mongólíu, Kweisui.
Þaðan á að flytja hana til síns
upprunalega grafreits, sem er á
bakka Gula fljótsins.
DAUÐA HANS VAR HALDIÐ
LEYNDUM
Þessi gjöf kommúnistastjórnar-
jnnar til Mongólíubúa er mjög
kænn pólitískur taflleikur. Á
þennan hátt verður hinn hrekk-
vísi undirhyggjumaður, Djengis
Khan, mörg hundruð árum eftir
öauða sinn pólitískur liður milli
stjórnarinnar og Mongólíubúa.
En eins mikil leynd hvílir yfir
gröf hans og yfir dauða
hans fyrir 700 árum, þegar hann
dó sóttdauða í tjaldi sínu, dauð-
dagi sem hann hafði ekki hugsað
sér. Dauða hans var lengi hald-
ið leyndum, eftir fyrirskipun
Djengis Khan
hans sjálfs. Enginn vissi að hann
var dáinn fyrr en mongólskir
sendiherrar komu til herbúðanna
til þess að veita honum hollustu
sína. Það var nefnilega hans
síðasta fyrirskipun, að sendiherr-
ar þessir skyldu teknir af lífi,
vegna þess að þjóðin hafði verið
honum óhlýðin. En ef þessi sendi-
sveit hefði vitað að hann var
dauður, hefði hún snúið við á
miðri leið, og þar með sloppið
undan dauðarefsingunni.
LAGÐI NIÐJUM SlNUM
LÍFSREGLUR
Djengis Khan var hugumstór
maður, og kjarkur hans var óbil-
andi. f banalegu sinni lagði hann
á ráðin hvernig haga skyldi her-
ferð á fylki nokkurt í Kína sem
honum vannst ekki æfi til að
sigrast sjálfur á. Á banadegi sín-
um gerði hann boð eftir sonum
sínum og sonarsonum og lét fá
þeim bogaörvar og sagði þeim að
brjóta þær. Þegar þeir höfðu gert
það, lét hann þá binda margar
örvar saman í kippu og sagði
þeim að brjóta þær allar í einu.
Það gat enginn þeirra. Þá mælti
hinn deyjandi forfaðir til þeirra
„Svona sterkir eruð þið, ef þið
sameinist. Treystið engum nema
sjálfum ykkur, og standið sem
einn maður á móti fjandmönn-
um ykkar, í baráttunni". En þess-
ari ráðleggingu gleymdu afkom-
Hersveitir úr liði Djengis Khan
endur hans fljótt eftir dauða
hans. Hinn mikli fursti, trúði á
mátt sinn og megin, fjöllin, vind-
ana og sléttuanda. Hann var
miskunarlaus við stríðsfanga
sína, sérstaklega þó við þá sem
kristnir voru.
MORÐFÝSN HANS KOM
SNEMMA í LJÓS
Æviferill Djengis Khans, er
einn sá stórbrotnasti og blóð-
ugasti sem sögur fara af. Faðir
hans sem var fursti var drepinn
þegar Djengis var ungur að ár-
um, og snemma byrjuðu ofsóknir
Mongóla á hendur honum, þar
sem þeir vildu svæla undir sig
arfleifð hans. Hann barðist eins
og ljón og var grimmur eins og
tigrisdýr. Þrettán ára að aldri
myrti hann hálfbróður sinn.
Hann hafði um sig flokk hraustra
og grimmra ræningja, og á fáum
árum hafði hann unnið svo mikil
hryðjuverk, að slíks þótti ekki
dæmi. Þegar keisarinn í Kína
fékk fregnir af hinum herskáa
unga manni útnefndi hann hann
sem kínverskan embættismann
og honum var fengið það verk-
efni að hafa eftirlit með Mongól-
um og halda þeim niðri svo þeir
réðust ekki á Kína. En í þessu
tilfelli mat hann meira að þjóna
sinni eigin lund en skipun keis-
arans. Hann braut undir sig fylki
Mongóla hvert eftir annað Og
gerðist einvaldsherra yfir þeim.
Mongólar voru vanir að berjast
í smá flokkum, en hann samein-
aði herina og æfði þá eftir sínu
höfði. Þegar hann hafði þjálfað
heri sína, réðst hann á norður-
hluta Kína sem þá var skipt í
tvö keisaradæmi. Hann drap og
herjaði af mikilli grimmd. Því
næst sótti hann til vesturs Og
sigraði hinn mikla stríðsmann,
tyrkjasoldáninn Muhammed sem
þá ríkti í Turkasten og nærliggj-
andi ríkjum. í þessari herferð
lét hann strádrepa íbúa Bucharia,
Khiva og Samarkand. Hann taldi
hættulegt að skilja við fjendur
sína lifandi og lét þess vegna
útrýma þeim með öllu.
HANN BARÐIST MEÐ
SVERDI OG LENSU
1222 kom Djengis Khan til
Evrópu. Þá sigraði hann heri
Rússa og gerði þá að þegnum
sínum. Þar með réð hann yfir
voldugasta ríki heimsins. Her-
menn hans börðust með bogum,
kastspjótum, lensum og sverðum.
Þeir tóku jafnskjótt upp vopn
óvina sinna og þeir féllu. Þeir
notuðu einnig slöngvivað, Og það
var jafnvel skæðasta vopnið sem
þeir fóru með. Þegar Djengis
Khan dó, var her hans á sigur-
göngu í Evrópu. í bardaganum
við Liegnitz gjöreyddi hann herj-
um óvinanna. En þá gripu ör-
lögin inn í ráðagerð hans. Hann
tók veiki sem dró hann til dauða,
og þar með dró allan mátt úr
Mongólum.
SIGURINN VIÐ LIEGNITZ
VARÐ AÐ ENGU
Hinn mikli fursti hafði mælt
svo fyrir, að þegar dauða hans
bæri að höndum, skyldu allir ætt-
ingjar hans, og liðsforingjar her-
sveita hans ásamt tignustu mönn-
um allra þeirra ríkja sem hann
hafði lagt undir sig, sameinast
í Mongólíu til þess að kjósa eftir-
mann sinn. Til þess að óhlýðnast
ekki þessari skipun, brugðu a.'lir
herforingjar hans við, sem börð-
ust í Evrópu og fóru til Mongólíu.
Hirm mikli sigur við Liegnitz
féll um sjálfan sig, vegna þess,
að kosning hins nýja drottnara,
og eftirmanns Djengis Khans
leiddi til borgarastríðs, sem
tvístraði ríki Mongóla, en Evrópu
var þar með borgið.
Framh. á bls. 13
Framtíðaratvinna 1
Röskur maður óskast til að annast fasteignasölu hjá ;l
, *!
málflutningsskrifstofu her í bæ halfan eða allan daginn. 3
Tilboð, ásamt uppl. um fyrri atvinnu, aldur og menntun, 3
sendist afgr. Mbl. fyrir 18. þ. m. merkt: „Fasteignasala ;j
— 992“. I 3
ottar
Hinir margeftifspurðu ensku hattar teknir fram í dag.f ]
■
Verð frá kr. 98,00.
ú
HattabúðÍKi Huld
Kirkjuhvoli — Sími 3660
Til sölu
Nckkur hjálparmótorhjól og bifreið, Ford ’42, hvort
tveggja óýrt, með góðum greiðsluskilmálum.
Hj álparmótorhjól til leigu.
inn
Fischerssundi 3 — Sími 80151
»*«»B«BaBaaa«ia«avflBBB*«aa«aBBBBBBSBBBBVBaaaaaaaBaaaiRa,HBsaaaasai(>
FRAMTIÐARATVIIM1MA
Stórt umboðs- og heildsölufyrirtæki óskar eftir dug-
legum og reglusömum manni. Æskilegt er að umsækj-
andi hafi kunnáttu í bókhaldi og enskum bréfaskriftum.
Tilboð, með upplýsingum um fyrri störf, sendist afgr.
blaðsins fyrir 20. þ. m. merkt: „Framtíð — 999“.
Rakari óskast
Reglusamur bakari óskast út á land strax.
Upplýsingar í síma 5696.
H eildsöiufy r irtæki
■
• sem starfað hefur í mörg ár, með góðum viðskiptasam-
| böndum, er til sölu, af sérstökum ástæðum. — Tilboð
■
; merkt: „Heildverzlun — 979“, sendist afgr. blaðsins
■
sem fyrst.
Heildverzlun
■
óskar eftir stúlku
m
m
; til símavörzlu og aðstoðar við bókhald. — Vélritunar-
■
■ kunnátta æskileg. — Tilboð leggist inn á afgreiðslu
• blaðsins merkt: „Samvizkusöm — 990“
1
í
a
3
Í
I
3
■ Úl
•■■■■•■■•*••■■••■■■■■■*■*■■•■■*•»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■*■■■■•■■*
■••■■■■■••«■■■*■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■»■
Í B II Ð
Óska eftir 2ja—3ja herbergja íbúð til leigu strax
eða 1. október. — Uppl. í síma 5222.
Bára Sigurjónsdóttir.
3
aaal
■ riMt
3
3
3
■ '
í