Morgunblaðið - 28.08.1954, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 28. ágúst 1954]
< HÆOARGiARÐURy
HOLMG ARPtJR
fwma
HKVo\tlJX
ST APAVE G U'R
E ögreglumenn ■ eltingB-
leik við bílþjófa í gær
RANNSÓKNARLÖGREGLAN og Borgarfjarðarlögreglan leitacSJ
í gærdag að bílþjófum héðan úr Reykjavík. — Stálu þeir bíj
hér í bænum og óku honum allt vestur á Arnarstapa.
Nýja hverfið verður við Bústaðaveginn fyrir austan Bústaðavegshúsin. — Rétt er að vekja athygli
á því að húsin standa ekki við umferðargötuna, heldur liggja stígar að húsunum £rá götunni. Þetta
fyrirkomulag hefur mikla og margvíslega kosti.
— Nýtt íbúðarhúsahvsrfi
Framh. af bU. 1
höfuðáherzla lögð á útrým-
ingu braggaíbúða samfara öðr
um ráðstöfunum til útrýming-
t ar öðru lélegu húsnæði.
• Takmarkið væri að út-
, rýma braggaíbúðunum á
næstu 4—5 árum. Hinir miklu
mannflutningar úr dreifbýl-
inu á undanförnum árúm eru
’ meginorsök húsnæðisvandræð
anna. Hér er því um vanda-
; mál að ræða, sem bæði Al-
, þingi og ríkisstjórn ber skylda
■j til að sameinast bæjarstjórn
j um til úrslausnar. Við það eru
tillögurnar m.a. miðaðar.
Borgarstjóri fól Gísla Halldórs
syni, arkitekt, að gera teikningar
að húsunum, og skipaði hann
jafnframt framkvæmdastjóra
byggingaframkvæmdanna.
FYRIR STÆRRI
FJÖLSKYLDUR
Þá hefur Mbl. átt tal við höf-
und hins nýja hverfis, Gísla Hall-
dórsson, arkitekt.
— Fyrsti áfanginn í þessum
umfangsmiklu húsbyggingum
Reykjavíkurbæjar, er að koma
upp 11 samstæðum byggingum,
sem alls rúma 99 íbúðir, fjög-
urra herbergja, sagði Gísli, en
alls verða 22 samstæður í hverf-
inu. Hér vakir það fyrir bæjar-
yfirvöldunum, að gefa fyrst og
fremst hinum fjölmennari fjöl-
skyldum í braggahverfunum kost
á íbúðum. íbúðir þessar eru fyr-
ir 6—7 manna fjölskyldur.
FARIÐ UM HÚSIÐ
Eftir a ðhafa skoðað teikning-
ar Gísla af þessum íbúðum, er
ekki úr vegi að hugsa sér að
maður knýi dyra í einni slíkri
ibúð sólbjartan dag á árinu 1955,
þegar fyrstu húsin verða tekin
í notkun.
í anddyrinu, sem er allrúm-
gott, er fataskápur og þar stend-
ur barnavagn heimilisins, í þar
til gerðri geymslu. Húsmóðirin
býður okkur að ganga í stofu,
sem er björt og skemmtileg, 18
ferm að gólffleti. Þá er þar eld-
húsið með tilheyrandi matakrók,
þar sem 6—7 manns geta matast
samtímis. O.g íbúðin er á tveim
hæðum og uppi á loftinu er
hjónaherbergi, bað og barnaher-
bergin, sem eru allxúmgóð. Þar
uppi eru innbyggðir skápar fyrir
sængurfatnað, dúka, föt og þess-
háttar. Og nú liggur leiðin beint
niður í kjallarann. Þar eru
geymslur og þvottahús heimilis-
NÍU HÚS í NÍU GÖRÐUM
Þetta var stutt lýsing á hús-
inu. En í hverri húsasamstæðu
verða níu hús, þ.e.a.s. níu íbúðir.
Hvert hús hefur sinn eigin garð,
sem húsmóðirin getur farið beint
út í út bjartri suður-stofu sinni,
til að líta eftir yngstu börnunum.
Er garðurinn 45 ferm að flatar-
máli.
ENGIN ÓÞARFA
BÍLAUMFERÐ
Skipulag þessa nýja hverfis
verður þannig að húsin snúa
göflum mót umferðargötunum en
frá þeim liggja stígar að húsun-
um. Með því tekst ag losna við I
alla óþarfa umferð bíla. Eins og
áður er sagt fær hver fjölskylda
lítinn garð við sitt hús, en auk
þess verður svo sameiginlegur
garður við allar húsasamstæð-
urnar. A þann hátt líkist meira
að húsin standi í stórum garði,
en við skipulagðar götur.
KYNDISTÖÐ
— Hugmyndin er, sagði Gísli
Elalldórsson, í þessu samtali við
MbL, — að sameiginleg kyndi-
stöð verði fyrir allt hverfið. Er
þá hugsanlegt að hægt verði að
hita hverfið upp að sumarlagi
með hitaveituvatr.i. Þá verða í
einu húsi allar nauðsynjaverzl-
anir hverfisins og verður það
mjög miðsvæðis. Einnig verður
sameiginlegt þvottahús fyrir allt
hverfið og stór barnaleikvöllur.
FYRSTI ÁFANGINN
Fyrsti áfanginn í byggingu
þessa mikla hverfis, þar sem
hundruð manna munu búa áður
en mörg ár líða, er bygging fimm
húsasamstæðna með alls 45 í-
búðum. Standa vonir til að hægt
verði að byrja að grafa fyrir hús-
unum innan fárra daga, en verk-
ið hefur verið boðið út og er það
miðað við að verktaki skili hús-
unum í fokheldu ástandi, en þá
verður einnig lokið við miðstöðv-
arlagnir og raflagnir.
NY GERÐ STEYPUMOTA
Þess má geta að lokum, að við
byggingu húsa þessara verður
notuð steypumót af nýjustu gerð.
Eru þau í flekum og má nota
sömu mótin við mörg hús. Hefur
þetta í för með sér margháttað-
an sparnað, svo sem kaup á móta-
timbri og að útveggi að utan þarf
ekki að múrhúða og er hægt að
mála beint á steypuna undan
mótunum.
Fyrir skömmu var svo á fundi
bæjarstjórnar Reykjavíkur á-
kveðið að hefja undirbúning að
byggingu 60—80 íbúða, sem
einnig falla inn í rammann, um
að að gefa íbúum í hermanna-
skálum fyrst og fremst kost á
að eignast þessar íbúðir. Enn
hefur ekki verið ákveðið hve
stórar þessar íbúðir verða. En
geta má þess að í áætlun bæjar-
yfirvaldanna, sem Gísli Halldórs-
son, arkitekt, samdi, gerði hann
ráð fyrir smíði 170 þriggja her-
bergja íbúða og 180 tveggja her-
bergja íbúða, auk þeirra 198
fjögra herbergja, sem fyrr
getur. í hvorum flokki þessar
60—80 íbúðir verða er ekki ákveð
ið nú, en væntanlega mun nauð-
synlegum undirbúningi verða
lokið um næstkomandi áramót,
sagði Gísli Halldórsson, arkitekt,
að lokum í samtali sínu við Mbl.
í fyrrinótt var tveim bílum
stolið hér í bænum. Var annar
þeirra R—13, rauður Bjúikk, sem
fannst í gærdag suður í Hafn-
arfirði og var óskemmdur.
Hinn bíllinn er Ford R-6369 og
var hann við húsið Hæðargarð
26, er honum var stolið. Lýst var
eftir þessum bíl í útvarpið um
leið og lýst var eftir R-13.
4 MENN í BÍLNUM
Rannsóknarlögreglunni bárust
fregnir af ferðum bílsins vestur
við Arnarstapa. Voru þá í hon-
um fjórir menn. — Var bíllinn
þá á austur leið.
GENGU UR GREIPUM |
LÖGREGLUNNAR
Borgarfjarðarlögreglan v.ar þáj
beðin að gera nauðsynlegar ráð*
stafanir til að hafa hendur í hár|
þjófanna, en það mistókst. —*
Fannst bíllinn vestur á Mýrurq
mannlaus.
Héðan úr Reykjavík sendl
rannsóknarlögreglan menn ti|
þess að leita að sökudólgunum,
Um kl. 10 í gærkvöldi fundu
lögregluþjónar fjóra unga menn,
þar sem þeir voru á gangi ná-
lægt Borgarnesi. Voru það menn
þeir, sem lögreglan grunaði r.m
bílþjófnaðinn.
Útisamkoma oð Jað
« sunnudogiim
ÞINGSTÚKA Reykjavíkur og
stjórn Jaðars hafa undanfarin
sumur gengizt fyrir einni al-
mennri útisamkomu að Jaðri,
hinum fagra sumardvalarstað
Góðtemplarsireglunnar í Reykja-
vík.
Skemmtanir þessar hafa jafnan
verið vel sóttar, enda ætíð kost-
að kapps um að hafa þær vel úr
garði gerðar.
Á morgun, höfuðdaginn, hinn
29. ágúst, verður þessi árlega úti-
skemmtun háð að Jaðri, og er uú
betur séð fyrir skemmtiatriðum
en nokkru sinni fyrr.
Meðal þeirra, sem þarna koma
fram, er Erla Þorsteinsdóttir,
Brynjólfur Jóhannesson leikari
les upp og Viggo Spaar, töfra-
meistari Norðurlanda skemmtir.
Þá er þarna kórsöngur, IOGT-
Aðaffundur
Dr. Werner Altmann og kona hans.
Þarf að kynna íslenzkar
vörur meira erlendis
segir dr. Allmann risijóri þýzks verzl-
unartímarits
NÝLEGA er kominn hingað til landsins dr. Werhfer Altmann
prófessor frá Múnchen í Þýzkalandi. Hann er ritstjóri þýzka
viðskiptatímaritsins Westdeutsche Wirtschaft, sem er eitthvert út-
breiddasta tímarit um verzlunarmál, sem gefið er út í Vestur-
Þýzkalandi í dag.
SAFNAR EFNI UM ISLAND
Dr. Altmann hefur að undan-
förnu ferðazt um á Norðurlönd-
um og safnað efni í tímarit sitt
og hyggst að dveljast á íslandi
um þriggja vikna skeið og safna
hér efni í greinar um ísland og
íslenzk verzlunarmál.
Tímaritið Westdeutsche Wirts-
chaft hefur undanfarin ár gefið
út nokkrum sinnum á ári sér-
stök hefti, sem eru algerlega
helguð einhverju landi. Eru þá
birtar greinar bæði viðskiptalegs
og almenns eðlis til fróðleiks fyr-
ir lesendur, sem eru einkum
menn úr iðnaðar og kaupsýslu-
stétt.
SKORTIR VÖRUKYNNINGU
Dr. Altmann segist vona, að
Frh. á bls. 10.
Suðurlands
AÐALFUNDUR Prestafélags
Suðurlands verður haldinn að
Haukadal í Biskupstungum,
sunnudaginn og mánudaginn 29.
og 30. ágúst n.k.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verða þessi mál á dagskrá:
I) Endurreisn Skálholtsstaðar.
Frummælendur: prófessor Sigur-
björn Einarsson og séra Björn
Jónsson.
II) Fulltrúar Félags lækna Og
presta flytja erindi.
í sambandi við fundinn messa
eftirtaldir prestar í þessum kirkj-
um; kl. 2 e. h. n.k. sunnudag:
að Torfastöðum: Herra biskup-
inn Ásmundur Guðmundsson og
séra Óskar Þorláksson.
að Bræðratungu: Séra Jón Auð
uns dómprófastur og séra Bjarni
Sigurðsson.
að Skálholti: Séra Gunnar Jó-
hannesson og séra Jón Þorvarð-
arson.
að Haukadal: Séra Gunnar
Árnason og séra Kristján Bjarna-
son.
að Hruna: Séra Árelíus Níels-
son og séra Magnús Guðjónsson.
að Tungufelli: Séra Þorsteinn
Björnsson og séra Jón Thoraren-
sen.
að Úthlíð: Séra Sveinn Ög-
mundsson og séra Björn Jónsson.
Á mánudaginn verður síðan
háldið í Skál'holt og þar fara um-
ræðurnar um Skálholtsstað fram.
Stjórn félagsins skipa: séra
Sig. Pálsson og séra Garðar Svav
arsson, en formaðurinn, séra
Hálfdán Helgason prófastur, féll
frá snemma á árinu.
kórsins undir stjórn Ottós Guð-
jónssonar.
Aðgangseyri að skemmtuninni
er mjög í hóf stillt, aðeins tíu
krónur fyrir manninn; hir.s veg-
ar er frítt fyrir börn. NörSur-
leiðir annast ferðir uppeftir og
er þar góð trygging fyrir góðri
þjónustu og öruggri. — Fcrðir
verða frá Ferðaskrifstofunni cg
hefjast kl. 1 e. h. á súnnudag.
ákaft fanpð á
hljómleikum SflS
FYRSTA skemmtun sænsku
söng- og leikkonunnar Zarah
Leander á vegum SÍBS var I
Austurbæjarbíói í gærkvöldi, en
auk hennar komu þar fram iveir
aðrir sænskir listamenn, söngv-
arinn Lars Roséen og hljómsveit-
arstjórinn Arne Húlphers, sem
annaðist undirleik.
Zarah Leander heillaði -áheyr-
endur með hinni miklu rodd
sinni og látbrágðifleik og var
henni ákaft fagnað. Þá köm LarS
Rosen áheyrendum skemmtilega
á óvart með söng sínum og létu
þeir það óspart í ljós.
Zarah Leander og félagar henh
ar skemmta enn nokkrum sinn-
um í Austurbæ j arbíói. Ættá
Reykvíkingar ekki að láta þá
skemmtun fram hjá sér fara. J