Morgunblaðið - 28.08.1954, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.08.1954, Blaðsíða 12
MORGVTSBLAÐIÐ 1 Laugardagur 28. ágúst 1954 r 12 Fleiri keppendar en dæmi eru til áður ^ Unglingamót í frjálsíþróttum f dag IDAG og á morgun fer fram í Reykjavík drengja- og unglinga- mejstaramót íslands í frjálsum íþróttum. Þátttaka er óhemju mikil — einhver sú mesta er um getur á nokkru frjálsíþróttamóti | og koma keppendur til mótsins alls staðar að af landinu frá samtals 18 félögum og héraðssamböndum. SUMIR AF BEZTU ÍÞRÓTTAMÖNNUM LANDSINS Drengjamótið er keppni drengja frá 166—18 ára ,en ungl- ingar teljast þeir, sem eru á aldr- inum 18—21. í hópi hinna síðar- nefndu eru margir af beztu í- þróttamönnum landsins og eru þeir meðal keppenda á mótinu. Það eitt er víst að keppnin verð- ur afarhörð og þarna má áreið- anlega sjá mörg afreksmanna- efni, því áhugi á frjálsum íþrótt- um fer nú aftur vaxandi sem hin óhemjumikla þátttaka ber ljóst vitni um. Mótð hefst báða dagana kl. 2 eftir hádegi. Magnús iörgensson 75 ára í DAG er 75 ára Magnús Jörgens son, Suðurlandsbraut 73, Reykja- vík. Það væri að bera í bakka- fullan lækinn að reyna að rekja æfiferil Magnúsar í stuttri af- mælisgrein, enda mun aðeins drepið á það helzta. Magnús er fæddur 29. júní 1879 að Branda- gili í Staðarhreppi, Vestur-Húna- vatnssýslu. Þriggja ára að aldri fluttist Magnús með foreldrum sínum til Akraness, en fjórum árum síðar hvarf fjölskylda Magnúsar aftur í fæðingarsveit hans. Næstu árin dvaldist Magn- ús á ýmsum stöðum, lengst hjá Þorvaldi hreppstjóra Ólafssyni, kunnum athafnamanni, sem Magnús minnist jafnan með hlý- hug. En árið 1901 flytur Magnús að Gilsstöðum í Hrútafirði, til for- eldra sinna, sem þar höfðu reist nýbýli. Tók hann þá þegar við búsforráðum af föður sínum og var fyrirvinna foreldra sinna upp frá því. Árið 1914 ræðst Magnús í byggingu myndarlegs steinhúss á jörð sinni. — Þótti það hið mesta afrek, enda voru þá erfiðir tímar, lítil fjárráð al- mennings og dýrtíð mikil. Einnig ræktaði Magnús allmikið á þess- um tíma. Þá var hann einnig eftirlitsmaður Landssímans í Hrútafirði um árabil. Þá skal þess getið, að Magnús var ferju- maður yfir Hrútafjörð á búskap- arárum sínum. Kynntist hann þá mörgum manninum, sem leið átti um fjörðinn. Var það mál manna, að vart mundi annar maður betur fallinn til þess starfs en Magnús, sakir dugnaðar hans og lipurðar. En 1928 bregð- Handlangari Vanan handlangara vantar ( nú þegar. — Löng vinna. — ; Uppl. að Langholtsvegi 66. ! ur Magnús búi og flyzt til Reykjavíkur. Ekki mun Magn- úsi hafa verið það sársaukalaust að yfirgefa æskustöðvar sínar, sem hann hafði unnið svo mikið og unni svo mjög. Eftir að Magnús fluttist til Reykjavíkur, lagði hann, um margra ára skeið, stund á vöru- akstur fyrir ýmis fyrirtæki, við hinn bezta orðstí. Síðustu árin hefur Magnús stundað vinnu hjá Oiíufélaginu h.f., en er nú að mestu seztur í helgan stein. 1930 gekk Magnús að eiga Sesselju Guðlaugsdóttur, frá Sogni í Kjós, hina ágætustu konu. Þau hjón eignuðust eina dóttur barna, Aðalheiði, hina mestu myndarstúlku. Einnig ól Magnús upp tvö fósturbörn, Elínborgu Tómasdóttur, bróðurdóttur sína, og Valdimar Daníelsson. Konu sína missti Magnús fyrir tveim- ur árum. í dag dvelur Magnús að heim- ili sínu, Suðurlandsbraut 73, og veit ég, að þar muni verða margt um manninn. Að lokum vil ég þakka þessum aldna heiðurs- manni vinfestu hans og tryggð frá fyrstu kynnum okkar. Ég bið honum og fjölskyldu hans bless- unar í nútíð og framtíð. Vinur. - islenzkar kýr Framh. af bls. 7 vel, þegar þær voru komnar á gras. Seinna hefur Sigurður Pét- ursson birt greinargerð um magn kalks Og fosfórs í íslenzku heyi og fóðurtegundum ,og vegna nið- urstöðunnar af rannsóknum sín- um, lét hann í Ijós þá skoðun, að íslenzkar kýr kynni að skorta kalk. Að því er ég bezt veit, er það í þessum greinum, að í fyrsta sinni er vakin athygli á þeim líkindum, að af því stafi sjúk- leiki í kúm, að tf lítið sé af sein- efnum og fjörefnum í fóðri þeifra, þegar þær eru fóðraðar aðallega eða eingöngu á heyi. : ■ C; m 5 iiðrlakérinn Fóstbræður Söngstjóri Jón Þórarinsson Samsöngur í Austurbæjarbíó mánudaginn 30. ágúst klukkan 7,15 Einsöngvari: Kristinn Hallsson Undirleikari: Carl BiIIich. Aðgóngumiðar seldir hja Eymundsson og Lárusi Blöndal OpiS í kvöid Aðgöngumiðar frá kl. 5—6. Sjálfstæðish úsið Þórscafé Gömlu dansarnir að Þórscafé í kvöld klukkan 9 Jónatan Ólafsson og hljómsveit. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7. PAMSLEIKUR í kvöld klukkan 9. Hljómsveit Svavars Gests. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6—7 VETRARGAROURINN VETRARGARÐURINN DANSLEIKUR í Vetrargarðinum í kvöld klukkan 9. Aðgöngumiðasala frá kl 3-4 — sími 6710 V G. SELFOSSBIO Gömlu og nýju dansarnir að Selfossbíó sunnudags- kvöld kl. 9. — Jafnt fyrir unga sem gamla. H. B.—kvartettinn leikur. Söngvari: Haukur Morthens. SELFOSSBÍÓ Hótel Borg Dansleikur í kvöld Miðasala hefst kl. 8 við suðurdyr. Tekið á móti borðpöntunum í síma 1440. I KVOLD ISfTT ATRIÐI: VIGGO SPAAR sýnir töfrabrögð með lifandi j hænuungum í öllum regn-! bogans litum. ERLA ÞORSTEINSDÓTTIR í syngur. j Aðeins örfáar sýningar eftir. ) Aðgöngumiðar seldir í j Bókabúð Æskunnar og í að Jaðri. \ Árnesingafélagið í Reykjavík: Farið verður til berja í gott berjaland á sunnudagsmorg- uninn kl. 9 Vi> frá Ferðaskrif- stofunni. Þess er vænzt, að sem flestir taki þátt í för- inni. Berjaleyfi ókeypis. Stjórnin. ÍFSREYNSLA • MANNRAUNIR • ftFINTÝRI Septemberblaðið er komið. STULKA óskast í vist. Upplýsingar á Marargötu 2, kjallara. DEL IHOIMTE >mat- tomat-sosan. Flaskan 10 kr. (14 oz). PÉTUR KRISTJÁNSSON Ásvallagötu 19. GÆLA LVLGIR trúlofunarhrigunum frá Sig- orþór, Hafnarstræti 4. — Sendir ge.gn póstkröfu. — Sendið nákvæmt mál. uxu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.