Morgunblaðið - 08.09.1954, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 8. sept. 1954
tr
Hefur feikiíS í þekktysfy h!jémieikas§iyin
m ié
HINGAÐ er komin til landsins á vegum Tónlistarfélagsins hin
kunna vestur-íslenzka listakona, ungfrú Snjólaug Sigurðsson,
sem getið hcfur sér mikinn frama vestan hafs fyrir frábæran píar.ó-
leik. Hún hafur leikið í hinum þekktustu hljómleikasölum heims,
Carnegie Hall o. fl. við góðan orðstí. Ungfrú Snjólaug efnir til
©pinberra tónleika hér í Reykjavík n.k. föstudag í Gamla bíó, kl.
7,15 e. h.
í AMERÍSKA ÚTVARPINU
Ungfrú Snjólaug' er talin með-
al hinna allra færustu tónlistar-
manna meðal Vestur-íslendinga.
Hún hlaut tónlistarmenntun sína
eru almennir tónleikar, þar sem
styrktarmeðlimir Tónlistarfélags
ins, sem aðrir, greiða aðgangs-
eyri.
Snjólaug Sigurðsson.
i Winnipeg og New York undir
leiðsögn hinna mikilhæfustu
kennara m. a. Earnest Hutchin-
r,ons forstöðumanns hins fræga
Juiliard-tónlistarháskóla í New
York. Hún hefur margsinnis leik-
ið í ameríska útvarpið og komið
íram á vönduðum hljómleikum
vestra eins og áður er sagt.
EINS OG HEIMA HJÁ SÉR
Ungfrú Snjólaug er af al-íslenzjt-
um ættum komin. Móðir hennar,
Jóna, var fædd í Vopnafirði, en
faöir hennar, Sigurjón Sigurðs-
son náfrændi Jóhanns Sigurjóns-
£onar skálds, fæddist vestanhafs.
Snjólaug er fædd í Árborg í Nýja
íslandi, en alin upp í Winnipeg.
„Ég hef alltaf verið mikið innan
um íslendinga“, sagði hún í gær
í. bíaðaviðtali, „og oft hef ég feng
ið’ tækifæri til að aðstoða með
píanóundirleik ýmsa íslenzka
hljómlistarmenn vestan hafs. —
I»etta er í fyrsta skipti, sem ég
kem til íslands, en mér finnst
■ég, þrátt fyrir það, vera hér eins
-©g lieima hjá mér.“
VTOFANGSEFNIN
Viðfangsefni ungfrú Snjólaug-
Æir á tónleikum hennar n.k. föstu-
dag verða: Prelude and Fugue in
D major eftir Bach D’Albert,
Sonata, opus 143 eftir Schubert,
Funérailles eftir Liszt, Prelude
Br, 2 eftir Magnús B. Jóhanns-
son, Studies in Line eftir Barbara
Pentland, Pavane og Jeux d’ eau
eftir Ravel og að lokum Fanta-
sie in F minor, opus 49_ eftir
Ghopin.
JSKKI ENDURTEKNIR
Ungfrúin lék í gær að við-
stöddum fréttamönnum kafla af
«efnisskránni, Funérailles eftir
Liszt uppi í einu æfingaherbergi
*Tónlistarskólans og þótti glæsi-
Jega til takast þótt ekki væri þar
íyrir hendi víðfeðmi Carnegie
Hall til að gefa tónunum flug
©g fyllingu.
Ungfrú Snjólaug mun hverfa
til Akureyrar að tónleikunum
liér í Reykjavík loknum og munu
l>eir ekki verða endurteknir.
í>að skal tekið fram, að þetta ‘
E’ramh af hls. )
HVORIP HÓFU ÁRÁSINA?
Það stóð ekki á mótmælum frá
Rússum. Síðar um kvöldið barst
orðsending frá þeim, þar sem
þeir staðhæfðu að bandaríska
flugvélin hefði verið inni yfir
Síeríuströnd og hefði hiln byrjað
skothríðina. Rússnesku orustu-
flugvélarnar hefðu þá svarað
skothríðinni i sjálfsvarnarskyni.
Bandaríkjamenn hafa svarað því
til að þetta sé fjarstæða. Rúss-
nesku flugvélarnar hafi byrjað
skothríðina, enda færi könnunar-
flugvél aldrei að abbast upp á
hraðfleygar þrýstiloftsorustuflug
vélar. Sannanir séu einnig fengn-
ar fyrir því að þessi atburður
hafi gerzt á opnu hafi langt frá
rússncsku yfirráðasvæði.
synlegt er að viðhalda samstarfi
og einingu ríkjanna í Atlantshafs
bandalaginu. Norðmenn tóku
fyrir 4 árum upp þá stefnu að
Þjóðverjar ættu að taka þátt í
varnarsamstarfi Evrópuþjóðanna
og hefur sú skoðun verið stað-"
fest síðar. Við viljum að Þjóð-
verjar leggi sitt til varna Vestur-
Evrópu í samstarfi við aðrar
þjóðir. Og við hljótum að fall-
ast á það að Þjóðverjar eiga nú
fulla heimtingu á því að þeir
fái fullt jafnrétti á við aðrar
þjóðir Vestur-Evrópu.
MEDUIMIR í A-
BANÐAUAGINU
— Einfaldasta lausnin, seg-
ir Iíaivard Uange, er að Þjóð-
verjar verði nteðlimir í A-
fcandalaginu og að samið verði
iitnan A-bandalagsins um það
livaða tryggingar verði settar,
þegar Þjóðverjum eru fengin
vopn í hendur.
En það sem mestu máli
skiptir, er að íundin verði
lausn til að jafna deilurnar
milli Frakka og Þjóðverja.
Það kemur ekki í ljós fyrr en
vio samningaumræður hvaða
leið er heppilegust til þess og
er ekki rétt að binda sig við
neina ákveðna lausn.
æSiir fá prýði-
iegar mólfckur
í Kiel
KIEL, 7. sept. — „Fóstbræður“
héldu söngskemmtun í Kiel í
gærkveldi í Háskólasalnum. Að-
sókn var sæmileg og viðtökur
prýðilegar. — Áður en söng-
skemmtunin hófst var móttaka
í ráðhúsi borgarinnar, þar sem
forseti borgarstjórnarinnar af-
henti kórnum áletraða Silfur-
skál. —Ágúst.
I
Um miðjan september er í ráði að KR efni til kabarettsýninga í
hinum rúmgóðu húsakyiuium sínum við Kaplaskjólsveg.
Meðal skemmtikrafta mun verða cowboysöngvarinn og leikarinn
Bobbejaan, en hann nýtur geysilegra vinsælda fyrir söng sinn
og leilt, ekki sízt hjá unga fólkinu. Auk söngsins skemmtir hann
með allskonar cftirherm.urn, t. d. Ieikur hann Indíánaárás, liermir
eftir járnbrautarleestum, jóðlar o. fl. Bobbejaan hefi undanfarið
skemmt á beztu fjöileikahúsum og skemmtistöðum meginlandsins
og þykir hvarvetna í röð beztu skemmtikrafta.
sýna á Sjémannadagskatereimim kér
VASAÞJÓFUR, jafnvægisdrottn-;
ing, hjóla-garpar, alæta, sterkasti
kvenmaður heims, hundahljóm-
sveit, api og ótal margt annarra
fyrirbrigða verða meðal skemmti
atriða á Sjómannadagskabarett-
inum nú í ár, en sýningar hefjast
í Austurbæjarbíói 5. október,
standa í 10—12 daga, og verða
tvær á dag. Auk þess verða sér-
stakar barnasýningar. Hægt verð
ur að panta miða viku eða 10
dögum fyrirfram og losna við
biðraðir. — Hljómsveit Kristjáns
Kristjánssonar leikur á milli at-
riðanna, sem eru 16 talsins og
kynnir verður Baldur Georgs.
* GÓÐ SKEMMTUN
Sjómannadagskabarettinn,
sem efnt er til í fjáröflunar-
skyni fyrir dvalarheimili aldr-
aðra sjómanna, hefur oft áð-
ur komið mönnum í gott skap.
Oft hefur líka tekizt vel með
val trúðanna, sem þar hafa
komið fram, en óhætt mun að
fullyrða að margir þeirra, sem
nú hefur tekizt að ná í, séu í
röð beztu listamanna sinnar
tegundar í heiminum.
Fyrstan skal þá frægan telja
hinn heimsfræga Chaz Chaee,
sem étur utan af sér fötin, ásamt
vindlum og sígarettum. Hvar sem
hann hefur farið hefur hann getið
sér frægðarorð og ýmsir landar,
sem séð hafa hann erlendis, ljúka
upp einum munni um, að hann
komi öllum í gott skap.
* STERKUR KVENMAÐUR
* OG IIUNDAHLJÓMSVEIT
John Rodhes er talin sterk-
asti kvenmaður heims. Það var
hún sem eitt sinn sló niður Farúk
konung, er hann ætlaði að gerast
nærgöngull við hana, en sú saga
hefur verið rakin í Morgunblað-
inu fyrir nokkru. Hún beygir
járnstengur með munninum, ríf-
ur sundur þykkustu símaskrár
og hefur m. a. komið fram í
kvikmyndum.
Þá koma 11 hundar fram —
mynda 6 þeirra hljómsveit og
leika. Hinir sýna ýmsa fimleika
—■ m. a. á mótorhjólum.
Þá kemur fram kvikmynda-
apinn Marco — sem alltaf getur
fengið menn til að hlæja. Hann
sýnir ýmsar listir, m. a. hjólar
hann og veggfóðrar herbergi með
skrítnum tilburðum.
Trúðaparið Gaby & Courth er
meðal skemmtiatriðanna. Það
sýnir „Clown“-atriði og fl. og
lýkur sýningunni með því að
Gaby leikur beinagrind. Er þá
slökkt í salnum og muru margir
kippast við er þeir sjá Gaby sem
beinagrind. Það eru út af fyrir
sig næg meðmæli með þessu pari
að það er á leið til Savoy-gisli-
hússins í Lundúnum, en það hús
leigir aldrei nema heimsþekkta
skemmtikrafta.
★ KONUNGUR
★ VASAÞJÓFANNA
Borra, sem talinn er vera
konungur vasaþjófann?, gengur
út í salinn og er hann kemu'r á
sviðið aftur sýnir hann 10—20
armbandsúr o. fl., sem h.ann hef-
ur stolið af sýningarg:stum —•
en skilar því auðvitað aftur. Af
honum hefur mikið orð farið.
Af honum hefur mikið orð farið.
Þá eru „3 Conradis“ er sýna
listir á hjólum með kylfum og
hringjum. Voru tveir þ:;rra lam-
aðir fyrir neðan mitti aUt til tví-
tugsaldurs og æfðu sig þá í ýms-
um listum með höndunum. Síðan
urðu þeir albata og hafa ferðazt
um heiminn og hvarvetna verið
eftirsóttir.
Loks má geta 8 ára stúlku, sem
er á leið til Bandaríkjanna að
sýna jafnvægislistir í einum
stærsta cirkusi heimsins. Hún
hefur náð furðulegri leikni þó
ung sé og er þegar talin meðaí
allra fremstu í sinni grein.
Alls eru atriðin 16, öll vönduð,
eins og sjá má af upptalning-
unni hér að ofan. Víst er að
margir munu hafa gaman af að
heimsækja Sjómannadagskabar-
ettinn og sjá hans ágætu gesti.
HÚSAVÍK, 7. sept. — Ágætur
afli hefur verið hér undanfarna
daga, og stöðugar gæftir. Um
30—40 trillubátar og 5 litlir dekk
bátar hafa stundað veiðar hér,
og hafa þeir aflað vel. Frysti-
húsið á Húsavík var um síðustu
mánaðamót, búið að taka við
2000 fleiri pökkum af frystum
fiski, en á sama tíma s. 1. ár.
—Fréttaritari.
STYKKISHOLMI, 3. sept : _
Hér er sauðfjárslátrun hafin. f
gær var slátrað um 400 fjár. Féð
er mjög vænt og skrokkþungi allt
að 19 kg. — Árni.