Morgunblaðið - 15.09.1954, Síða 1
16 síður
j 41. árgan^ne.
210. tbl. — Miðvikudagur 15. september 1954
Prentsmiðja Msrgunblaðsin*.
Bandarikiasljórn ákveður
að verja Quemoy
Fréftir
■ stuftu máli
RÓM, 14. sept.: — Eden utanríkis-
ráðherra Breta ræddi í dag við
utanríkisráðherra Ítalíu í tvær og
hálfa klukkustund. Síðan gekk
hann á fund forsætisráðherra.
Hefur verið tilkynnt að ráðherr-
arnir hafi orðið sammála um
nauðsyn á þátttöku Vestur-Þjóð-
verja í vörnum frjálsra þjóða.
Eden mun fara á morgun til
Parísar og halda þar síðustu ráð-
stefnuna í för sinni og ræða þar
við Mendés-France.
BELGRAÐ, 14. sept.: — Aðstoð-
arutanríkisráðherra USA, Robert
Murphy, er nú staddur í Belgrad
og ræðir þar við ráðherra Tito-
stjórnarinnar. Síðan mun hann
halda til Rómar og Parísar.
★-•-★
LONDON, 14. sept.: — Herstyrk-
ur Breta í Kóreu mun verða
minnkaður um tvo þriðju á næstu
6 mánuðum. Brezka hermála-
ráðuneytið í London sagði að
fækkun herliðsins væri í sam-
ræmi við sams konar aðgerðir
Bandaríkjamanna í Kóreu.
— Reuter-NTB
Átökin við Quemoy harBna
TAIPEK, 14. sept. — Reuter-NTB
AT Ö K I N milli herafla Pekingstjórnarinnar og Þjóðernissinna-
stjórnarinnar á Formósu aukast stöðugt. Formósustjórnin eyk-
ur í sífellu árásir sínar á herstöðvar Kínverja á svæðinu umhverfis
Amoy og stórskotalið beggja herjanna skiptist á stöðugri skothríð
yfir sundið milli smáeyjarinnar Quemoy og meginlandsins.
BARIST UM STRANDVIRKI
Árásir Formósumanna hafa
einkum beinzt að öflugu strand-
virki, sem haldið hefur uppi stöð-
ugri skothríð yfir á Quemoy úr
stórum fallbyssum. Virki þetta
var upphaflega byggt af Japön-
um, en upp á síðkastið hafa farið
fram miklar endurbætur á því,
og hafa kommúnistar komið þar
fyrir fjölda fallbyssna af stærstu
gerð.
KÍNVERJAR SAFNA SKIPUM
Hafa flugvélar Formósumanna
nú haldið uppi öflugum loftárás-
um á virki þetta og reynt að
j sprengja það í loft upp með
sprengjum af stærstu gerð.
Þá hafa þeir og haldið uppi
loftárásum á Chusaneyjarnar fyr
{ir sunnan Shanghai, en þangað
'hafa Kínverjar dregið mikinn
Bretar leggja landhelgis-
deiluna fyrir þing S.Þ.
ANÆSTA allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna verður tekið tii
umræðu það alheims deilumál, hver stærð landhelgi skuli vera.
Eru það nokkur ríki, er bera málið fram, sem halda því fram, að
þriggja mílna landhelgi skuli vera alþjóðaregla. Vilja þau að
S. Þ. setji allsherjarreglur um það. Frá þessu er skýrt í síðasta
hefti Fishing News.
MEÐ OG MÓTI
Það eru Bretar,
Bandaríkja-
menn, Brasilíumenn, Ný-Sjálend- LONDON, 14. sept. — Amerískur
ingar og Hollendingar, sem bera
tillöguna fram en búizt er við
því að mótspyrna komi frá Perú,
Chile, Ecuador, Argentínu, ís-
landi og Filippseyjum.
EKKI MEIRA EN
ÞRJÁR MÍLUR
Aðalefni tillögunnar er að vé-
fengt er, að nokkru ríki sé heim-
ilt að víkka landhelgi sína meira
en þrjár mílur frá ströndinni.
Sérstaklega véfengja ríkin að
nokkru landi sé heimilt að eigna
sér sem landhelgi hafið yfir land-
grunninu.
VIÐ ÍSLAND OG
SUÐUR-AMERÍKU
Bæði Bretar og Bandaríkja-
menn hafa að því er blaðið segir,
hagsmuna að gæta í því að fiski-
menn þeirra verði ekki hraktir
af gömlum fiskimiðum. Þannig
segir í blaðinu að íslendingar
hafi lokað brezka togara af mið-
unum með því að draga línu
fyrir firði og flóa og banadrísk
fiskiskip séu hrakin af beztu
fiskimiðum sínum við Suður-
Ameríku með því að löndin
Chile, Peru og Ecuador krefjast
200 mílna landhelgi. ___
LONDON — Dr. Cheddi Jagan,
fyrrv. forsætisráðherra Nýju-
Guiana, sem dæmdur var í sex
mánaða fangelsi 12. apríl s. i.,
verður látinn laus á morgun.
ríkisborgari, Hugh Francis Red
mond, var nýlega dæmdur í rétti
í Shanghai ásamt sjö öðrum. Voru
þeim gefnar að sök njósnir í þágu
Bandaríkjanna.
Redmond var dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi, tveir voru dæmdir
til dauða og hinir fengu fangelsis
dóm frá fimm og upp í sjö ár.
Hinir ákærðu voru allir Kínverj-
ar nema Redmond.
— Reuter-NTB
fjölda djunka og annarra skipa,
sem álitið er að þeir muni e. t. v.
nota til að gera innrás á Quemoy.
ÓTTAST KÍNVERJAR
ÍHLUTUN USA
Það hefur vakið athygli að
orustuflugvélar Kínverja hafa
engan þátt tekið í varnaraðgerð-
um þeirra gegn loftárásúm á
þessum svæðum. Banðarískir
hernaðarsérfræðingar hafa látið
þá skoðun í ljósi, að Kínverjar
hugsi sér að spara kraftana þar
til kemur til innrásar á Quemoy
og freista þess að ná þá yfirtök-
um í lofti, eöa þeir óttast að flug-
vélar frá móðurskipum 7. flotans
muni grípa inn í, ef Kínverjar
freisti þess að sigra loftflota
Formósumanna yfir Quemoy.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
WASHINGTON, 14. sept.: —
Samkvæmt síðustu fregnum frá
Washington hefur herstjórn
Bandaríkjanna nú ákveðið að
láta 7. flotann verja eyna Quemoy
gegn innrás frá meginlandinu.
Einnig hefur verið ákveðið að
láta þjóðernissinnum í té margs
konar hergögn og þrýstiloftsflug-
vélar.
Ennþá, sem komið er, munu
Bandaríkin ekki taka beinan þátt
í vörnum Quemoy, en til þess geti
komið síðar.
ÖRLAGARÍK ÁKVÖRÐUN
Þatf var öryggismálanefnd
Banðaríkjanna, sem ákvað þetta
á síðasta fundi sínum, en innan
stjórnarinnar eru sagðar mjög
skiptar skoðanir um þessa ákvörð
un. Talið er að Pekingstjórnin
muni hafa fullan hug á að ná
eyjunni úr höndum Formósu-
mana til þess að koma í veg fyrir
að þeir geti notað liana sem stökk
bretti til innrásar í Kína, og er
álitið að nú geti hvenær sem er
komið til árekstra milli Kína og
USA með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum.
Bússneskur ráðherra
hverfur í London
LONDON, 14. sept.
ÞAÐ HEFUR vakið mikla
athygli í London, að rúss-
neskur ráðherra, sem var vænt-
anlegur þangað í gær, týndist á
flugstöðinni, þar sem fjöldi hátt-
settra starfsmanna frá rússneska
sendiráðinu og annarra Rússa
beið eftir honum.
^ Ráðherra þessi er aðstoðar-
ráðherra fyrir utanríkisverzlun,
og er talið, að hann hafi verið
með umboð til þess að semja um
viðskipti upp á hundruð milljón-
ir sterlingspunda.
Mótttökunefndin beið eftir
ráðherranum við útgang þann,
sem sérstaklega er ætlaður sendi-
sveitarstarfsliði og öðru fólki,
sem ferðast á vegum utanríkis-
þjónustu. en árangurslaust. Er
álitið, að ráðherrann hafi farið
í gegnum almenningstollskoðun
og sloppið þannig, án þess að
honum væri veitt nokkur athygli.
Rússneska sendiráðið til-
kynnti í gær, að því væri alger-
lega ókunnugt um dvalarstað
ráðherrans. — Reuter-NTB.
Komúmsiar teknir I Abadam
TEHERAN, 14. sept. — Hermála-
ráðherra íran, Bárhtiár hershöfð-
ingi, sagði frá því í gær, að 130
kommúnistar hefðu verið hand-
teknir meðal starfsmanna olíu-
hreinsunarstöðvanna í Abadan.
Þrír liðsforingjar voru meðal
hinna handteknu.
Alls hafa þá verið handteknir
að undanförnu í Iran 432 komm-
únistar og sagði ráðherrann, að
þeir hefðu komið sér fyrir í her-
og lögregluliði landsins og yrðu
nú lögsóttir.
j Uppljóstrun þessa kommúnista
' samsæris leiddi samt ekki í ljós
neina áætlun um að eyðileggja
| olíuhreinsunarstöðvarnar í Aba-
dan, en kommúnistar þessir
1 höfðu haft samband flugleiðis við
bækistöðvar kommúnista hinu-
megin Persneska flóans.
Lagafrumvarp er nú rætt á
íranska þinginu um að taka skuli
af lífi alla liðsforingja innan
| hersins, er samstarf hafa haft við
; kommúnista.
Jarðskfálítaógnin mikla
i borginni Orleansville
Þetta er loftmynd af borginni OrleansviIIe, áffur en jarffskjálftarn-
ír dundu yfir hana. Eins og myndin sýnir var þetta fögur nýtízku
borg með breiff stræti og torg og pálmalundi. í henni bjuggu nær
33 þúsund manns.
Þannig er umhorfs í Orleansville nú, hrundir veggir og gapandi
húsarústir. Myndin sýnir rústir dómkirkjunnar. Fram til þessa
hafa 1400 lík verið grafin úr rústunum og 3000 manns hafa slasast
hættulega. Jarffskjálftarnir í Norffur Afríku eru einhver mestu nátt-
úruógn, sem yfir heiminn hefur riðiff á þessari öld. 20 þúsund
manns eru húsnæðislausar.
I