Morgunblaðið - 15.09.1954, Blaðsíða 16
Veðurúflii í dag:
Norðaustan kaldi. Víðast létt-
skýjað.
#rgnttMðfrife
210. tbl. — Miðvikudagur 15. september 1954
Semenfsverksmiðjan
Sjá grein á bls. 9.
3000 tunnur síldar bárust
til 4 verstöðva í gær
^ Síldin virðlst ganga inn Flóann.
SJALDAN hefur verið hér eins mikið að gera og nú,“ sagði
fréttaritari Mbl. á Akranesi í gærkvöldi. „Fólk vantar til
Marfa og þirft hefur að smala bílum upp um sveitir til að aka
mldinni upp úr bátunum“. — Slíkar fréttir bárust frá fleiri ver-
etöðvum í gær. Var þá metafladagur á Akranesi og í Keflavík og
góður afli í öðrum verstöðvum.
Heildarsöltun við Faxaflóa var á mánudag 40,447 tunnur og mun
sennilega vera um 45000 tunnur eftir þriðjudaginn. í Keflavík hef-
ur verið saltað í 12—15000 tunnur og á Akranesi 10100 tunnur.
Hæsti báturinn í gær var Heim
ir í Keflavík með 270 tunnur og
næstur Bjarni Jóhannesson, Akra
nesi með 245 tunnur. Frá einstök
um verstöðvum eru þessár frétt-
ir:
AKRANES
Þetta er bezti afladagur sum-
arsins. Þeir fengu alls 2800 tunn-
ur. Síldin veiddist í Jökuldjúpinu
«g virðist sjómönnum síldin vera
að ganga norður og inn. Þessi
veiði hjá tuttugu bátum á einum
degi gefur til kynna að barna
■er mikið um fisk. Síldin er feit
en dálítið um smásíld sem gengur
úr. Þannig er búizt við að hjá
Haraldi Böðvarssyni fáizt 800
uppsaltaðar tunnur úr rúmum
1300 veiddum upp úr bát.
Hjá H. Böðvarssyni hefur ver-
ið saltað í 3800 tunnur. Vinna þar
<*0—70 stúlkur að söltun. Hjá
Fiskiver h.f. unnu 40 stúlkur í
dag.'Þar hefur verið saltað í 4000
tunnur. Hjá Heimaskaga komu
<!00 tunnur vegnar upp úr bát á
þriðjudag. Þar hefur verið saltað
í 2300 tunnur alls.
ÍEFLAVÍK
I dag barst á land meiri síld
heldur en gert hefur um langt
srabil á einum degi, sennilega
um 3000 tunnur. Síldin var bæði
etór og feit og verður söltuð.
Meðalafli á bát var um 150—160
-'tunnur. Enginn bátur var með
nndir 100 tunnur. Hæstir voru
Heimir 270 tunnur, Víðir 210 og
Húx 216.
ANDGERÐI
I Sandgerði hefur verið ágætis
{•ildarafli undanfarna daga. f dag
1 omu flestir bátar að landi og var
íífli þeirra mjög jafn eða 100—150
tunnur á bát. Hæstir voru
Mummi 160 tn., Sæmundur 150 og
Hannes lóðs 140. Búizt er við að
landað verði um 3000 tunnum í
dag.
S.l. tvo daga hefur síldin verið
söltuð hér og er hún mjög stór
og feit. Á móti 750 tunnum stór-
síldar hafa aðeins verið saltaðar
190 tunnur af millisíld.
GRINDAVÍK
Frá Grindavík voru 9 bátar á
sjó í gær og lönduðu þeir alls um
1100 tunnum síldar og mun megn-
ið hafa farið í söltun. Hæstu bát-
ar voru Hafrenningur og Hrafn
Sveinbjarnarson með 170 tunnur
hvor og Þórkatla með 155 tunnur.
— í fyrradag og í gær hafa fjórir
bátar, tveir hvorn daginn, orðið
fyrir miklu tjóni á netum sínum
vegnn háhyrninga, sem ráðizt
hafa á netin og tætt þau í sund-
ur, svo aðeins eru eftir teinarnir,
eru þetta bátarnir Frigg og Þor-
björn, Hrafn Sveinbajrnarson og
Ægir,
íslendinqafélagið
í London fagnar
Fósiræðrnra
N.K. LAUGARDAG mun fslend-
ingafélagið í London halda sam-
komu þar sem karlakórnum Fóst-
bræðrum mun verða fagnað.
Verður samkoman haldin að May
Fair hótelinu.
Formaður íslendingafélagsins
er Björn Björnsson kaupmaður.
En hann hefur undanfarinn mán-
uð verið hér heima, ásamt konu
sinni og dóttur. Fór hann í morg-
un með Gullfaxa til London,
i ísrael vann fslaed
i á skákmólinu
í Amsierdam
Einkaskeytl frá.
Guðm. Arnlaugaæs^si.
AMSTERDAM, 1L septt' — Frið-
rik vann Porath i viðwreigninni
við ísrael í fjörugri skáSu Guð-
mundur Pálmason tapaði aftur á
móti fyrir Oren, þaanig að Israel
vann Island með 2*A gegn 1V4.
Önnur úrslit ur&u þau, að
Argentína vann Tékkóslóvakíu
með 3:1, Holland vana Vestur-
Þýzkaland með 3Vt gegn *A, Rúss
land vann Bretland með 3Vc gegn
Vi, Júgóslavía vann Svíþjóð með
%Vi gegn V/z, en Ungverjaland og
Búlgaría gerðu jafntefli, 2:2.
í fyrstu umferð vann ísracl
Búlgaríu með 3:1, Rússland vann
Svíþjóð með 3Vi gegn Vz, Júgó-
slavía vann Holland með 3:1 og
Tékkóslóvakía vann Þýzkaland
með 3 gegn 1.
Töpuðu
fyrir Ungverjum
AMSTERDAM, 14. sept.: — I
gærkvöldi tefldu íslendingar
við Ungverja. Guðm. S. Guð-
mundsson tapaði fyrir Kluger,
Guðm. Ágústsson tapaði fyrir
Barcza og Ingi R. Jóhannsson
tapaði fyrir Gereben. — Frið-
rik á tvísýna biðskák við
Szabo.
Af öðrum úrslitum má nefna
að Euwe og Donner töpuðu
fyrir Pachmann og Filip,
Tékkóslóvakíu. — Guðm.
Heræfing
Iijá varnarliðinu
í GÆRDAG um klukkan 2 síðd.
hófst sameiginleg heræfing hjá
hinum ýmsu deildum varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli. — Fóru
æfingar þessar fram á skotæí-
ingasvæði varnarliðsins á Voga-
heiði. Deildir úr landher sýndu
meðferð ýmissa skotvopna og
tóku skriðdrekar þátt í æfingun-
um. — Þrýstiloftsflugvélar flugu
lágt yfir æfingasvæðið, og sýndu
„árás“ til aðstoðar landher. Þá
komu þrjár sprengjuflugvélar af
Neptun gerð og flugu einnig
lágt yfir æfingasvæðið eins og
um sprengjuárás væri að ræða.
Að þessu loknu sýndi flugbjörg-
unarsveit Keflavikurfiugvallar
hvernig birgðum og lyfjum er
varpað í fallhlíf til sjúkraliðs-
manna. Þyrilvængja sýndi lend-
ingu í hrauninu og hvernig slas
aður maður var tekinn upp í
vélina. Einnig sýndi þyrilvængj-
an hvernig hægt er að bjarga
manni sem er í nauðum staddur í
sjó eða á landi, með því að varpa
til hans^taug og hala hann síðan
upp í þyrilvængjuna, sem hélt
sig á sama bletti fyrir ofan mann
inn.
Meðal viðstaddra voru varnar-
málanefndarmenn, flugvallastjóri
og ýmsir starfsmenn á Keflavík-
urfiugvelli.____
CANNES — Aga Khan, 77 ára
gamall, er þjáður af bronchitis
(lungnakvefi) og er rúmiiggjandi
með háan hita. Hann er staddur
i villu sinni nálægt Cannes.
325 syntu í H.-vik í gær
ár Fleiri synda í Reykjavík m en 1951.
ÍD A G cr síðasti dagur hinnar samnorrænu sundkeppni. Eftir
miðnætti verður of seint að synda, en tækifærið er til mið-
>»ættis I kvild, því sundstaðirnir verða opnir þeim, sem synda
eetla 200 meirana. I gær var opið til klukkan 11 í Sundhöllinni og
Mundlaugunum, og var aðsóknin gífurleg. Munu um 825 manns
J*afa synt 200 metrana í gær. Er þá talan hér í Reykjavík komin
upp í 15400 en 1951 syntu í Reykjavík 15788. Það vantar því lítið
ú og verði aðsóknin eitthvað lík því í dag, sem hún var í gær verð-
■ur aukning hér í Reykjavík.
★ í kvennatíma í Sundhöllinni í fyrrakvöld syntu 145 konur.
Er það algert met á einum kvöldtíma. í gærkvöldi var
stöðugur straumur fólks, þetta 8—15 manns á sundi í einu.
Inni í sundlaugum mátti sjá í geislum kastljósanna fólkið synda
p.5 200 metra markinu — og þar með gera sitt til þess að ísland
íari með sigur af hólmi öðru sinni.
★ Staðreynd er að þátttakan hér á landi verður töluvert
meiri en 1951. Og við hvern sem við bætist aukast sigur-
vonir íslands. Og það verður leitt ef við töpum með ein-
bverjum litlum mun. Stuðlum því að aukinni þátttöku í dag. —•
JTakmarkið er: GLÆSILEGUR SIGUR ÍSLANDS!
Á slúdenlaþingi í lowa
Fjórir íslenzkir stúdentar sitja fund alþjóðasambands stúdenta,
sem haldið er í Iowa í Bandaríkjunum. Á mynd þessari sjást is»
lenzku fulltrúarnir Magnús Gíslason, Mattliías Jóhannessen»
Magnús Sigurðsson og Sveinn Skorri. Höskuldsson í hópi með fleirá
fulltrúum á stúdentafundinum.
Bátar með hringnót á
þorskveiðum á Aðalvík
Báturinn fyltti sig í einu kasti
TVEIR BÁTAR eru nú norður í Aðalvík á þorskveiðum og er
svo mikill fiskur á víkinni að þeir, að þeir nota hringnót til
að snurpa þorskinn. Munu þess ekki dæmi fyrr, að hægt hafi veriffi
að snurpa þorsk í nót.
-------------------------^SÉZT IÐULEGA VAÐA
Nýr skólasljóri við
Skógaskéla
í RÁÐI er að fyrv. skólastjóri við
Skógaskóla undir Eyjafjöllum,
Magnús Gíslason verði námsstjóri
við gagnfræðaskólana hér í
Reykjavík á vetri komanda. En
settur skólastjóri þar eystra verð
ur Jón Rafnar Hjálmarsson, cand.
philol. frá Bakkakoti í Vesturdal
í Skagafirði.
Hinn setti skólastjóri við Skóga
skóla, Jón Rafnar lauk cand.
philol. prófi við Oslóarháskóla á
síðastl. vori en cand. magprófi
lauk hann við sama háskóla vorið
1952. Að því loknu stundaði hann
nám hér við Háskólann í upp-
eldis- og kennslufræði og lauk
því prófi í fyrra vor.
Prófritgerð hans við Oslóarhá-
skólann í sagnfræði fjallaði um
heilagan Þorlák og vaxandi áhrif
páfakirkjunnar hér á landi á dög-
um hans og næstu árin.
Hinn tilvonandi skólastjóri að
Skógum hóf seint stúdentsnám
sitt. Ungur fór hann í búnaðar-
skólann á Hólum í Hjaltadal, og
lauk þar landbúnaðarprófi vorið
1942. En stúdentspróf tók hann
vorið 1948.
Aðsóknin að Skógaskóla hefir
verið mikil á undanförnum árum,
sem kunnugt er. Hafa nemendur
verið þar um eða yfir hundrað,
flestir 113. Er svipuð aðsókn- að
skóla þessum nú sem hin fyrri ár.
Það var á laugardaginn var„
sem Hjörtur Bjarnason skipstjóri
á vélbátnum Einari, fór vifS
þriðja mann norður í Aðalvík
með hringnót, til að reyna hvort
hægt myndi að ná þorsk í nótina,
í sumar hefur þorskur iðulega
sézt vaða í stórum torfum á vík-
inni, líkast því sem um síld væri
að ræða.
Á LÍTIÐ HORN — FULLFERMI
Skemmst er frá því að segja„
að er Hjörtur og félagar hans
komu inn á Aðalvík, sáu þeir
stóra þorsktorfu, sem óð í vík-
inni. Köstuðu þeir á lítið horn af
torfunni, eins og þeir orðuðu það
og fylltu bátinn á svipstundu I
þessu eina kasti.
Báturinn kom hingað tii ísa-
fjarðar í gærkvöldi. Var hann
drekkhlaðinn. Var landað úr hon
um sjö tonn af vænum þorski.
TVEIR BÁTAR
Snurpubátinn skildu þeir eftir
á Aðalvík. Héldu þeir þangað
norður síðdegis í dag, en þangað
fór einnig annar bátur héðan,
Ætla þeir að nota sömu nótina
báðir á þorskveiðunum í víkinni,
— J.
Banna umræður um Kýprus
ANKARA — Tyrkland hefir
bannað allar opinberar umræður
um Kýprus-málið Vilja Tyrkir
forðast alla árekstra við ná-
granna síha Grikki.
Fósfbræður í sjónvarp í París
KARLAKÓRINN „Fóstbræður", í
söngför um Evrópu, sungu í sjón-
varp í París í gærkvöld og munu
syngja í útvarp í París í kvöld.
Áður höfðu þeir sungið í út-
varpið í Hollandi þann 8. sept. og
í Brússel í Belgíu þann 11. sept.
Fóstbræðrum hefir verið mjög
vel tekið, þar sem þeir hafa hald-
ið tónleika, og yfirleitt hefir allt
gengið að óskum, símaði Hreinn
Pálsson, forstjóri, hingað heim,
Ailir ferðalangarnir hafa það gott
og biðja að heilsa heim.