Morgunblaðið - 24.09.1954, Síða 12

Morgunblaðið - 24.09.1954, Síða 12
12 MORGVNBLADIÐ Föstudagur 24. sept. 1954 — Skákbréi Írá Rmsterdam Framh. af bls. 3 tvær töpuðust í viðureigninni við seint og svo eigi hún að vera Sovétríkin. skrifleg. Búlgarski kapteinninn Svíþjóð tapaði enn einu sinni segir þá að hér sé um „force majeur“ að ræða, hann hafi sent mann áf stað með bréfið, en mað- urinn hafi villzt í borginni. Skák- Stjórinn segir honum auðvitað að það komi sér ekki við, hann hljóti að bera ábyrgðina á því að bréfið komi í tæka tíð. Nokkru seinna komu svo Búlgararnir niður á skákstað og báru sig illa: einn af fjórum efstu mönnunum var hálf íasinn og ekki undir það búinn að tefla, annar týndur í borginni á ný. Varð um þetta eitthvert þref, en að lokum stakk yfirdóm- árinúý prófessor Vidmar, upp á því áð taflinu yrði frestað til morguns, ef íslendingar sam- þykktu það fyrir sitt leyti. Við vorum allir sammála um að gera það og þess vegna stóðu borðin auð, en við gátum gengið um og horft á skákirnar hjá hinum þjóðunum. LITAZT UM í SKÁKSAL Athygli áhorfenda var nær ein- vörðungu bundin við skákir Hol- lendinganna eins og fyrri daginn. Þeir áttu í höggi við Argentínu og var sú barátta alltvísýn um skeið, en leikir fóru þó svo, að Argentínumenn unnu með 2 V2 gegn IV2. Að sögn blaðanna hér fylgist engin þjóð með skák- mönnum sínum af jafnmiklum áhuga og Argentínumenn. Byrj- unarleikir þeirra eru hraðsímaðir heim til Argentínu, og nú er austurrísk-þýzk-argentínski tafl- meistarinn Erich Eliskases kom- inn hingað alla leið frá Argen- tínu til þess að vera skákmönn- unum til aðstoðar. Hann gengur um og athugar taflaðferðir kom andi andstæðinga, hann hjálpar með biðskákir og leggur á ráð. Fyrir voru hér að minnsta kosti sex skákmenn auk fararstjóra. Yngsti maðurinn í sveitinni er Oscar Panno nítján ára, heims- meistari unglinga og núverandi skákmeistari Argentínu. Hann hlaut 100.000 króna bifreið í verð laun, er hann vann skákmeist- aratignina. Hann stóð sig mjög vel fráman af hér á mótinu, en hefur svo tapað tveimur eða þremur skákúm og er farinn að fá frí. Eins og menn muna gáfust Argentínumenn upp á því að halda mót þetta og báru við fé- leysi, eitthvað virðist þó hata verið eftir í fjárhirzlunni. Ungverjarnir sem höfðu sigr- að okkur daginn áður fengu að reyna það að enginn er einna hvatastur, þeir töpuðu nú í fyrsta sinni á mótinu og þá rækilega: tvær skákir urðu jafntefli, en stórum, í þetta sinn gegn Tékk- um, fengu V2 vinning. Hver hefði trúað því, að Svíar, sem lengi hafa verið taldir sterkasta skák- þjóð Norðurlanda, skuli vera neðstir eftir 4 umferðir! Stahl- berg stórmeistari virðist alveg hafa misst móðinn og tapar hverri skákinni á fætur annarri, og nýliðarnir tveir, Svíþjóðar- meistarinn Hörberg og sá er næstur honum varð, Goode, hafa brugðizt að verulegu leyti, og sá eini er heldur merkinu uppi er Lundin. Bretar voru heppnir að fá hálf- an annan vinning gegn Vestur- Þjóðverjum. Þýzki meistarinn Lothar Schmid var að því er virtist kominn með unnið tafl gegn Penrose en lék svo af sér, svo að skákin snerist við og Pen- rose vann fallega. SKÁK OG HEIMSKAUTAFARAR Morguninn eftir voru svo tefld ar biðskákir og þá tefldu íslend ingar við Búlgari. Það voru ein- kennilegir andstæðingar er þar mættust, Búlgararnir eru al.lir ungir menn nema einn, Zvetkoff, þeir eru allir tinnudökkir og skarpleitir, fullir af sigurvilja, manni finnst næstum fanatísk glóð í augunum. Einkum var munurinn á Inga og andstæðing hans eftirtektarverður, enda lagði einn blaðamaðurinn fj?.!"- lega út af honum, fyrirsögnin var: „Prófíll frá ísöldinni", og í greininni var lýsing á Ijósum víkingalokkum Inga, sem blaða- maðurinn sagði að minnti sig á norrænar hetjur eins og Friðþjóf Nansen og Roald Amundsen. En svo fór svipmótið út um þúfur, þegar Ingi lék af sér í hörku- hraðskák undir lokin. Það hefðu Friðþjófur og Hróaldur aldrei gert. GANGUR SKÁKANNA Friðrik valdi nimzoindverska vörn gegn Mileff og tókst að snúa taflinu sér í hag á furðu skömm- um tíma. Að lokum var Búlgar- inn orðinn svo aðþrengdur að hann sá þann kost vænztan að láta mann. Tveir af dönsku tafl- meisturunum komu að er Búlg- arinn hafði fórnað manninum og horfðu undrandi á taflið. Þeir sögðu mér á eftir að þeim hefði komið saman um, að ef þessi leikflétta Búlgarans reyndist rétt, hefðu áreiðanlega ekki ver- ið hugsaðar aðrar geníalli á þessu taflmóti, svo djúp væri hún. Hún reyndist ekki held og Búlgarinn gafst upp nokkru seinna. Þessi sigur Friðriks varð okkar eini sigur í viðureigninni og virtist mér þó horfa reglulega vel fram- an af. Guðm. Pálmason sýndist eiga öllu betra, en honum sást yfir óþægilegan leik, er hann hefði auðveldlega getað komið í veg fyrir. Við það náði Búlgar- inn sér á strik og tefldi skákina ljómandi vel til enda, án þess að gefa Guðmundi nokkur færi á að jafna leikinn. Guðmundur S. átti nokkuð jafnt tafl allan tímann, þó aðeins betra og jafnvel vinningsfæri, en þau voru hættuleg fyrir hann sjálfan og lítill umhugsunartími eftir, svo að hann tók jafnteflis- boði andstæðingsins. Ingi sótti fast á andstæðing sinn og virtist eiga góðar vinningshorfur, en hefur líklega ekki fundið beztu leiðina, því að taflið jafnaðist og var ekki annað að sjá en lokin hlytu að verða jafntefli, er Ingi lék af sér í hraðskákinni eins og fyrr er sagt og lét skáka af sér hrók. Búlgaría hafði þannig unn- ið sigur með 2% gegn IV2. Vetrargarðurinn Vetrargarðurinn DANSLEIKUR í Vetrargarðinum í kvöld kl. 9 Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar leikur. Miðapantanir í síma 6710 eftir klukkan 8. V. G, ■■■■■■•■■■ VERBTAS saumavélar stignar og handsnúnar. Garðar Gíslason hJ. >■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Skóiðnaðarmaður óskast í skóverksmiðju sem verkstjóri Þarf að vera fag- maður og reglusamur. — Hátt kaup — Tilboð sendist blaðinu fyrir laugardagskvöld, merkt: „Skóiðnaðar- maður 684“. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■aBaaaaBaaaaaaBBBaaBBBBaaBaBB^ ■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ SJOMANNAFELAG REYKJAVÍKUR FUNDUR verður haldinn í Sjómannafélagi Reykjavíkur sunnu- daginn 26. september n. k. í Iðnó (niðri) kl. 1,30 e. h. FUNDAREFNI: 1. Félagsmál. 2 Kosning fulltrúa á 24 þing Alþýðusambands Islands. 3. Skýrt frá togarasamningnum. 4. Onnur mál. Fundurinn er aðeins fyrir félagsmenn er sýni skírteini við dyrnar. Reykjavík, 24. september 1954. STJÓRNIN Gömlu dansarnir 6Í MÍ flllttMð í kvöld klukkan 9. Hljómsveit Svavars Gests. Dansstjóri Baldur Gunnarssou. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. Þórscafé DANSLEIKUR að Þórscafé í kvöld klukiían 9 K. K. sextettinn leikur. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7. Kabarettinn í KR-húsinu ■ «! 3 Sýning kl. 9 fyrir fullorðna. Aðgöngumiðar seldir í bókabúð Sigfúsar Eymundssonar, Verzl. Drangey og í KR-húsinu frá kl. 1. Sími 81177. Hraðferðirnar: Austur—Vesturbær og Seltjarnarnes- vagninn, stoppa við KR-húsið. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu M ARKtJS Eför E4 Do4i i ! // II// jóíth/ieiasaJi 1) Þegar hinn ókunni maður: Jonni sér yfir hann. kemur undir snjóskaflinn, kastarj jr£lú _ I 2) — Bíddu nú rólegur, heilla- |að þetta sé þrjóturinn Tommi. karlinn, segir Jonni, sem heldurl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.