Morgunblaðið - 07.10.1954, Síða 9
Fimmtudagur 7. okt. 1954
MORCUNBLAÐIÐ
9
Sœnsk klœðagerð, er
vönduð og smekkvís
Frá stærstu fatnaðarsýningu Norður-
landa í Gautaborg
SVÍAK segja sjálfir svo
frá, að þeir framleiði
1 klæðilegustu og smekkleg-
ustu föt í Evrópu, og munu
margir því sammála, þótt
sumum finnist ef til vill gæta
siokkurs sjálfshróss í ummæl-
unum.
KLÆÐNAÐURINN RENDIR
A ÞJÓÐARAUÐ
Víst er um það, að fatagerð-
ariðnaður Svía stendur á gömlum
og grónum merg, sænsk klæði eru
vönduð og endingargóð og þar-
lendir klæðskerar þykja snill-
ingar margir hverjir í iðngrein
sinni. Sænski fataiðnaðurinn er
feykistór og arðbær atvinnugrein
þar í landi, þjóðin er rík og al-
xnenningur hefur gnægð skotsilf-
urs milli handa til þess að kaupa
falleg föt og ganga vel til fara.
í>að má líka á sjá, að sænskur al-
menningur klæðist mun ríkmann
legar og betur en nágrannaþjóð-
irnar, en þar gætir jafnframt
meiri festu við gamla siði og
háttu, karlmannaklæðnaðurinn
er einkum háevrópskur í sniði,
og alls ólíkur bandarísku tízk-
unni.
19. september s.L hóst í Gauta-
borg geysimikil fatagerðarsýning,
sú stærsta sinnar tegundar, sem
xiokkru sinni hefur verið haldin í
Svíþjóð og jafnframt mesta sýn-
ing, bundin við einn vöruflokk,
sem haldin hefur verið á Norð-
urlöndum. Sýning þessi stóð í
fjóra daga og var haldin í Gauta-
borg, í stærsta sýningarsalnum
sem þar í sveit er. Þar sýndu 200
stærstu fatnaðarframleiðendur
Svíþjóðar vörur sínar, og hafði
hver þeirra litla deild út af fyrir
sig á sýningunni. Hún tók yfir
geysistórt svæði, 6.500 fermetra,
og var það að höfuðhluta kven-
fatnaðarsýning, en einnig var
stór deild, þar sem karlmanna-
fataframleiðendur sýndu fatnað,
skó, vesti, hatta, skyrtur og ann-
að það, er klæðaskáp karlmanns-
ins tilheyrir. Þá var þar einnig
allstór barnafatnaðardeild og
vakti hún sérstaka athygli á sýn-
ingunni fyrir margar nýjungar,
sem fram hafa komið í barnafatn
aði á síðustu tveimur árum, og
mátti þar m. a. sjá skjólklæðnað
og úlpur, líkar þeim íslenzku.
★ 4000 KAUPENDUR
Fatnaðarsýning þessi var skipu
lögð og framkvæmd af sænska
klæðagerðarsambandinu, „Sverig
es Bekladnads och Manufaktur-
handlareförbund“, en fram-
kvæmdastjórn hennar hafði Sven
Gulin á hendi, en hann er for-
maðurinn í kaupmannaíélagi
Gautaborgar og eigandi einnar
stærstu klæðaverzlunar borgar-
innar. Var sýningin opnuð sunnu-
daginn 19. sept. við hátíðlega at-
höfn og gerði það landshöfðing-
inn í Gautaborg og Bohúsléni,
Per Nyström. Gengu gestir að því
búnu um sýningarsvæðið, en þar
voru flestir stærstu kaupmenn
landsins samankomnir. Aðgang-
urinn að sýningunni var mjög
takmarkaður og var aðeins kaup-
mönnum og nokkrum gestum
hann heimill, en engum fram-
leiðendum, öðrum en þeim sem
áttu vörur sínar á sýningunni.
Höfðu um 4000 kaupmenn og
fulltrúar stórra vöruhúsa komið
til Gautaborgar í þessu tilefni og
einnig sendinefndir frá hinum
Norðurlöndunum, að íslandi einu
undanteknu.
Þetta var í annað sinn, sem
Svíar efna til slíkrar blæðasýn-
KtóSS*ffDnwm
Þóttist hafa orðið ölv-
aðurfyrsteftiröhappið
En [»ð þéffi sannað, að enginn édrukkmn
maður hefði farið að aka bifreið
úf í kálfarði.
OF T E R það sem refsimál varðandi ölvun við akstur koma
fyrir hæstarétt, enda er þar oft um allþungar refsingar að
ræða, og önnur áhrif af hinu refsiverða broti. Finnst mönnum
oft þungt, að missa ökuréttindi i lengri tíma, stundum ævilangt.
Oft er það í dómsmálum varðandi ölvun við akstur, sem örðugt
er með sönnun. Eru þess t. d. dæmi að bifreiðarstjóri, sem hand-
tekinn er ölvaður nokkru eftir árekstur, nær sýknu vegna þess
að hann kveðst hafa drukkið áfengið eftir að atburðinn gerðist.
Slíkt getur að sjálfsögðu verið rétt og er ákæranda oft erfitt um
vik með sönnun. í nýlegum Hæstaréttardómi kom þetta fyrir en
atferli bifreiðarstjórans var slíkt að það þótti sannað að hann.
hefði neytt áfengis áður en hann ók bifreiðinni. Skal hér skýrt
stuttlega frá málavöxtum.
Sænskir yfirfrakkar úr ullarefn-
um eru mjög smekklegir og vin-
sælir. Þeir eru flestir beltislausir
og tvíhnepptir.
ingar og er ætlun þeirra, að fram
vegis verði til hennar stofnað á
hverju ári, Var sýningin fyrst og
fremst gerð sem innkaupasýning,
þar sem stórkaupmenn og full-
trúar vöruhúsanna gætu á einum
stað fengið yfirlit yfir allt það
bezta, sem framleitt er í fatagerð
landsins.
Tvíhnepptaur
kápur erw mk
mjög í tizhm i
SvíþjóS, mtí
stórum kx»ga
og víðrk
axialínu.
* ÓDÝRARI KAUP
í öðru lagi var tilgangurinn
með sýningunni sá að koma við
persónulegum kynnum framleið-
enda og kaupanda, sem þykja hin
mikilvægustu fyrir velvild og
traust í viðskiptum. Og loks má
segja, að höfuðtilgangurinn með
sýningu þessari og öðrum slíkum,
sem Svíar hyggjast halda í fram-
tíðinni, hafi verið sá að auðvelda
ódýrari og fyrirhafnarminni inn-
kaup og minnka dreifingarkostn-
aðinn við kaup og sölu fatnaðar-
ins.
Sænsk blöð rituðu mikið um
sýningu þessa, einkum þar sem
hún var hin stærsta, sem haldin
hefur verið hingað til, og það
duldist heldur engum, sem hana
sá, að sænski fataiðnaðurinn
stendur mjög framarlega.
Athyglisvert var, að framleið-
endur þeir, sem þar sýndu vörur
áttu verksmiðjur sínar á víð og
dreif um landið, en ekki aðeins
í stærstu borgunum. í minni
borgum, svo sem Jönköping og
Malmö, eru geysistórar klæðnað-
arverksmiðjur og saumastofur,
sem framleiða hinn prýðilegaasta
íiz.kuklæðnað og svo var einnig
um aði'a minni bæi landsins.
J>að sem og vakti sérstaka at-
faygli hinna erlendu gesta var
hvte verðlaginu var í hóf stillt,
ýaÆnveJ þótt um tízkuvörur væri
xwesl að ræða, karlmannaföt kost
ra®M t d. 150—250 sænskar krón-
w og svo mætti lengi telja.
Framh. á bia. 11
BIFREIÐ EKIÐ I KALGARÐ
Síðari hluta dags 8. desember
1953 var lögreglunni á Akranesi
tilkynnt að ákærði í þessu máli
Sigurður Guðnason, Kirkjubraut
28 á Akranesi hefði ekið fólks-
bifreið sinni R-2318 út í kálgarð
skammt frá Elliheimilinu á Akra
nesi og sæti bifreiðin þar föst.
BIFREIÐARSTJÓRI STÓÐ
ÖLVAÐUR HJÁ
Lögreglumaður fór samstundis
á staðinn og reyndist bifreiðin
vera föst í kálgarðinum Var þá
eigandi og ökumaður bifreiðar-
innar hjá henni, svo mikið ölv-
aður,' að hann reikaði í spori.
Hann viðurkenndi þá fyrir lög-
regluþjóninum, að hann væri
drukkinn, en kvaðst ekki hafa
orðið ölvaður fyrr en eftir að
hann ót út í garðinn. Sagðist
hann hafa ætlað að snúa bifreið-
inni við þarna og þá ekið henni
út í garðinn.
KVAÐST HAFA DRUKKIÐ
EFTIR ÓHAPPIÐ
Sigurður Guðnason mætti nú
fyrir sakadómi Akraness, Viður-
kenndi hann að hafa ekið bif-
reiðinni út í umræddan garð,
en gaf hina sömu skýringu á því
að hann hefði þá ekki verið ölv-
aður og að hann hefði ætlað að
snúa bifreiðinni við.
Viðurkenndi Sigurður, að hann
hefði neytt áfengis áður en hann
ók bifreið sinni út í garðinn.
Taldi hann þó, að það hefði ver-
ið svo lítið, að hann hefði ekki
fundið til áhrifa. Hann hafi fyrst
fundið áfengisáhrif, eftir að bif-
reiðin var föst orðin i garðinum,
enda hafi hann þá sopið drjúgt
á ákavítisflösku, sem hann kvaðst
hafa geymt 9 bifreið sinni.
ÞANNIG HEFBI ENGINN
ÓFULLUR KEVRT
Það er upplýst í málinu, a®
auðvelt hefði verið að snúa
bifreið við á umræddum stað,
án þcss að aka út í garðinn.
Niður í garðinn er 35—40 cm
hár aflíðandi stallur af göt-
unni og niður í garðinn, svo
augljóst er að bíllinn myndl
festast þar.
Vegna þessa lítur dómarinu.
svo á, að það sér naumast huga
anlegt að Sigurður hafi verið
sér þess fyllilega meðvitandi,
hvað hann var að gera, er
hann ók út í garðinn og tclwr
sterkar líkur vera til þess, a5
hann hafi þá þegar verið bú-j
inn að neyta meira áfengis, eu
hann hafi í umrætt skipti haft
ákavítisflösku með slatta í, i
bifreið sinni.
SVIFTUR ÖKULEYFI 1
ÆVILANGT
Sigurður hafði áður verið
dæmdur til að missa ökuleyfi í
þrjá mánuði fyrir ölvun við
akstur, og ákvað undirréttur
honum nú varðhaldsrefsingu í 15
daga og missi ökuleyfis ævilangt.
Hæstiréttur taldi refsingu
hæfilega 1200 króna sekt og stað-
festi ákvæði héraðsdóms um öku-
leyfissviptingu.
Silfurlampinn
í GÆR var Haraldi Björnssyni
afhentur silfurlampi sá er hann
var verðlaunaður með s. 1. vor,
sem bezti leikari síðastliðins árs.
Lampinn, sem er haganlega gerð-
ur gripur gerður af Leifi Kaldal
gullsmið og löngu er kunnur fyr-
ir listrænt gerða smíðisgripi
sína, var ekki fullgerður á þeim
tíma er Haraldi voru veitt þessi
verðlaun. En í gærdag bauð Har-
aldur Björnsson stjórn félagg
leikdómara til hádegisverðar i
tilefni afhendingar lampans. j