Morgunblaðið - 28.10.1954, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.10.1954, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 28. okt. 1954 Mæðiveiki Framh. af bls. 1 holtstungum í Borgaríirði. Var allt fé á þeim bæ einángrað um veturinn og síðan slátrað og kom í ljós að engin kind var með mæðiveiki. SKÝRSLA NEFNDARINNAR Síðan las hann upp skýrslu Sauðfjárveikivarnarnefndar um mæðiveikitilfellin í Dalasýslu. Þann 21. september s.l. voru send til rannsóknar kindar- lungu frá Hólum í Hvamms- sveit í Dalasýslu. Tilrauna- stöðin á Keldum úrskurðaði eftir rannsókn að lungu þessi væru sýkt af þurramæði. :? BÖNDIN BERAST AÐ VALÞÚFU-FÉ Kind þessi var 4 vétra og hafði bóndinn á Hólum keypt hana ár- ið 1952 frá Valþúfu á Fellsströnd, en það haust var allt fé frá Val- þúfu selt eða fargað. Þess er get- ið um féð á Valþúfu, að það hafi allt frá fjárskiptunum 1947 verið talið vanhaldalaust og hraust. í tilefni sýkingartilfeilis þessa fór Guðmundur Gíslason læknir vestur. Skoðaði hann fé í Skerð- ingsstaðarétt og fundust þá 2 grunsamlegar kindur, önnur þeirra frá Skerðingsstöðum og hin frá Skarðsstöðum og við rann sókn r-eyndust báðar sýktar af þu rramæði. Það varð upplýst að önnur þessara kinda hefði verið seld frá Valþúfu 1952 og þótti þetta nú benda til þess að sýking- in stafaði frá Valþúfufénu. DREIFT Á MARGA BÆI Valþúfuféð hafði við sölur dreifst til allmargra bæja og i var nú ákveðið að láta slátra öllu því fé sem til næðist og þaðan væri. Fór sú sláírun fram 2. október og skoðaði Guðmundur Gíslason lungun. Kom þá í Ijós, að af 100 full- orðnum kindum, sem slátrað var voru 20 sýktar af þurra- mæði og var bþ á engri þeirra sýnilegt í útliti áður en þeim var slátrað að þær væru sýkt- ar. ) AF 350 ER 31 SÝKT Landbúnaðarráðherra sagði frá því að á þremur7bæjum, Hólum, Skerðingsstöðum og Skarðsstöðum væri nú búið að slátra öllu sauðfé. Það hefði verið samtals 350. Af þeim hef ur fundizt greinileg sýking í 15 Iungum og ógleggri sýking í 16 Iungum. Auk þess hefur við slátrun- ina á Valþúfufé fundizí örugg- lega sýking á þremur bæjum: Breiðabólsstað á Fellsströnd og Vígholti og Fjósum í Laxár dal. Miklar líkur eru taldar til að um sýkingu kunni að vera að ræða í Rauðbarðaholti á Fellsströnd. Þegar það kom til tals að skera nirður allt sauðfé á Breiðabólstað á Fellsströnd mótmælti hrepps- nefnd Fellsstrandarhrepps því. HVERRA ÚRRÆÐA ER HÆGT A» LEITA í ÞESSU VANDA- MÁLI? Sauðfjárveikivarnarnefnd ræð- ir um það hvort skera skuli niður allt fé í því varnarhólfi, sem hin- ar sýktu kindur hafa fundizt í. Þetta hólf er norðurhluti Dala- aýslu milli girðinganna .sem liggja að sunnan frá Hvammsfirði um Laxárdalsheiði til Hrútafjarðar og að norðan frá Gilsfirði til Bitrufjarðar. 12—15 MILLJ. KR ÚTGJÖLD RÍKISSJÓÐS Fjártalan á þessu svæði mun nú vera milli 25 og 30 þús- und. Féð er yfirleitt vel hraust og afurðagott svo að ef niður- skurður færi fram yrði ríkis- sjóður að greiða hærri skaða- bætur á kind en áður við f jár skiptin. Engin líflömb eru fáan lcg og myndi taka 2 ár að fá nægjandi nýjan stofn. Áætlar nefndin að útgjöld ríkissjóðs af niðurskurði myndi verða 12 til 15 milljón krónur. Þá segir í skýrslu nefndarinnar að eftir þessi tilíelli ríki óvissa um árangur fjárskiptanna yfir- leitt. Það er mönnum lítt skilj- anlegt hvernig veikin getur kom- ið upp með uessum hætti 7 árum eftir fjárskipti. TAKMARKAÐUR NIÐURSKURÐUR Nefndin segist ekki geta mælt með heildarniðurskurði á svæð inu, heldur vill hún hafa þann hátt á að láta slátra öllu fé á þeim bæjum, sem sýkingar verður vart og láta að öðru leyti fylgjast vel með fénu á þessu væði og tryggja sem bezt einangrun þess. Það er einnig mjög alvar- legt í þessu sambandi að árið 1950—51 fóru fram fjárskipti í suðurhluta Dalasýslu og voru líflömb' þá flutt þangað frá norðurliluta sýslunnar. Þar á meðal voru fengin líflömb frá bænum Valþúíu. 3 KINDUR SÝKTAR AÐ HLÍÐ í HJALTADAL Að lokum var í skýrslu sauð- fjárveikivarnarnefndar skýrt frá því að 4 okt. s.l. hefði verið kom- ið með lungu úr kind frá bænum Hlíð í Hjaltadal í Skagafirði. •— Hafði kind þessi ekki verið neitt grunsamleg, þar til allt í einu að hún yfirbugaðist við snpggan sprett og var þá slátrað. Fundust í lungum hennar einkenni þurra- mæðiveiki. Guðmundur Gíslason fór norð- , ur og var slátrað sauðfé á þessum bæ. Fundust þá greinileg ein- kenni í lungum einnar kindar til viðbótar og ein að auki grunsam- leg. LÖMB FRÁ STRANDASÝSLU Su skýring er talin helzt á þessu fyrirbæri að þegar fjár- skipti fóru fram þarna voru feng- in lömb frá Strandasýslu en ein- mitt þar kom mæðiveiki upp að nýju fyrir nokkrum árum. Hefur nú verið rætt um að slátra kind um á tveimur nágrannabæjum Hlíðar, en þannig hagar þarna til að fé frá Hlíð gengur ekki með sauðfé annarra bæja. ★ Landbúnaðarráðherra sagði að lokum, að enn væri unnið að því að rar.nsaka þetta alvar lega mái og væri ekki hægt að taka lokaákvörðun um ráðstaí anir vegna þess fyrr en eftir nánari athuganir. Bergsteinn Guðjónsson Ingimundur Gestsson Bergur Ólafsson Friðrik Guðmundsson Bergur Magnússon Lýsir ánægju ySir Yfirverksfjóri iæfur Frá ríkisstjórninni: í GÆR bárust forsætisráðherra og utanríkisráðherra simskeyti frá forsætisráðherra sambands- lýðveldisins Þýzkalands, dr. Kon- rad Adenauer, þar sem hann lýsir ánægju yfir komu sinni til íslands og lætur í ljós mikla hrifningu yfir fegurð landsins, er hann kveður hafa snortið sig djúpt, enda hafi hann lengi alið í brjósti þá ósk að heimsækja ísland. k Áíisiariirfii rsöliibáða EGILSSTÖÐUM, 26. okt. — Sunnudaginn 24. þ. m. var Einari J ónssyni, yf irvegaverkstj óra, haldið hóf að Helgafelli. Einar Jónsson er í þann veginn að láta af störfum hér, sem yfirvegaverk stjóri á Austurlandi, en hann hef ur gegnt þ.ví starfi yfir 20 ár. — Að hófinu stóðu verkstjórar og samstarfsmenn Einars, ásamt nokkrum fleirúm. Helgi Gíslason, verkstjóri, stjórnaði hófinu og hélt aðalræð- una fyrir minni Einars. Hann gat þess hvernig ástandið hefði verið hér í vegamálum er hann tók við verkstjórn Jökuldalsvegar 1933 og þeirra íramfara sem orðið hafa í vegamálum á þessu tíma- bili. Menn skemmtu sér þarna með | ræðuhöldum og söng, langt fram á nótt. Einar Jónsson þakkaði að lok- um fyrir ánægjulegt samstarf á undanförnum árum. — Síðan færðu verkstjórarnir Einari að gjöf fagran rafmagnslampa, sem mun verða prýddur með áletr- uðum silfurskildi. — A.B. læjarra UMRÆÐUR hafa orðið talsverð- ar að undanförnu um frekari tak mörkun afgreiðslutíma í verzl- unum btejarins. Á fundi sínum á þriðjudaginn var, lét bæjarráð mál þetta til sín táka og gerði svohljóðandi ályktun, sem sam- þykkt var samhljóða: Bæjarráð telur fyrir sitt levti ekki æskilegt að takmarka frek- ar en orðið er afgreiðslutíma í sölubúðum bæjarins. Hreyfilsfélagar, IryggiS sigur A-listans í dag. aflir hálfsiiá a ia* FYRIR um bað bil hálfum mán- uði slokknaði á bauju 9 út í Faxa fióa í ofviðri, en þetta er róðrar- bauja Faxaflóabáta. Síðan hafa verið stöðug óveður og súgur við duflið, svo að ekki hefur verið forsvaranlegt að setja menn út í i það, til þess að lagfæra bilunina | fyrr en í gær að hægt var að leggja skipi að duflinu. En ef of mikil hreyfing er við það, get- | ur það auðveldlega orsakað skemmdir á viðgerðarskipi. .— Á | vetrum kemur það oft fyrir, að ( ljósduflín bili, og verður þá: stundum eins og nú, að bíða eftir lagi svo dögum skiptir. ^ KJÖR fulltrúa í Hreyfli á 24. þing A. S. í. fer fram í skrif- stofu félagsins, Borgartúni 7, í dag og á morgun. Kosningin hefst í dag kl. 1 e. h. og stendur til 10 síðd. og á morg- un verður kosið frá kl. 10 árd. til 10 síðd. og er bá kosningunni lokið. Tveir listar eru í kjöri: A-listi lýðræðissinna og B-listi kommún ista. ÁVARP TIL MEDLIMA BIFREIDASTJÓRAFÉLAGS- INS HREYFILS „Heiðruðu félagar: í dag hefst kosning fulltrúa okkar á 24. þing Alþýðusam- bands íslands. Það hefur dregist nokkuð að kosning þessi færi fram, en til þess liggja eðlilegar orsakir, þ. e. hinar miklu annir sem verið hafa samfara nýafstað- inni bifreiðaúthlutun í félagi okkar, sem er sú langumfangs- mesta bifreiðaúthlutun r,em átt hefir sér stað síðan félag okkar var viðurkennt sem beinn aðili að bifreiðaúthlutun til félags- manna sinna. Hafa stjórnarvöld- in aldrei fyrr sýnt stéttarfélagi okkar jafn góðan skilning.í þessu efni og nú, sem sézt bezt af því að við fengum nú til úthlutun- ar til félagsmahna okkar samtals 83 bifreiðar og hefur verið ærið verkefni að úthiuta þessum bif- reiðafjölda. í sambandi við afgreíðslu bif- reiðaúthlutunar til félagsins viljum við þakka ríkissUórninni og Innflutningsskrifstofunni fyr- ir góðan skilning og fyrirgreiðslu okkur til handa í þessu efni. Nú þegar gengið er til kosn- inga í félagi okkar munu komm- únistar að vanda þyrla upp miklu moldviðri gegn stjórn félags okk- ar og deilda svo og fulltrúum A- listans. Annað hafá. þeír aldrei haft að leggja til málapna. En þeir félagar okkar sem hafa fylgst með gangi málanna og af- greiðslu þeirra á hverjum tíma þurfið ekki iengi að velta þeirri spurningu fyrir ykkur, hvort bet- ur myndi hafa gengið með af- greiðslu þeirra umfangsmiklu verkefna, sem íélag okkar hefur haft með höndum, ef kommún- istar hefðu komið fram sem full- trúar stéttarinnar. Þegar þið nú gangið að kjör- borðinu til þess að velja félagi okkar fulltrúa á 24. þing Alþýðu- sambands íslands, þá eruð þið ekki aðeins að velja lýðræðis- sinnaða fulltrúa til setu og mál- flutnings á æðstu ráðstefnu verka lýðssamta'kanna í iandinu, heldur eruð þið jafnfrarnt að leggja ykk- ar skerf til þess að hin íslenzka verklýðshreyfing megi halda áfram að vera frjáls og óháð kommúnistaöflum þessa lands. Enn hefur hin rauða slóð kommúnista ekki náð að festa rætur nema á örfáum vinnu- stöðum félags okkar. í þessunf kosningum skulum við vinna að því að þurrka áhrif kommúnista út á öllum vtnnustöðum félagg okkar. Mörg verkefni bíða enn óleyst innan vébanda stétcar okkar, verkefni sem ekki verða leyst nema tryggt Veröi að kommún- istar nái ekki yfirtökunum í ís- lenzkri verklýðshreyfingu, þesa vegna er það samtökum okkaú lífsnauðsyn að tryggia lýðræðis- öflunum sigur. en sigur A-listana í Hreyfli er þeirra sigur. Félagar: Fylkjum okkur uin A-listann, og gerum sigur hana glæsilegri nú en nokkru sinni fyrr. A-listinn. Mehala h|á Þorsfeini Á ÞRIÐJUDAGINN seldi togar- inn Þorsteinn Ingólfsson i Þýzka- landi ísvarinn fisk fyrir 128 þús. mörk. Er þetta hæsta verð, sem islenzkur togari hefur fengið fyr- ir fisk sinn í Þýzkalandi á þessu ári. Aflinn vhr karfi, 219 tonn, sem togarinrl ýeíddi vestur á Jóng miðum. !>’ ■ i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.