Morgunblaðið - 28.10.1954, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.10.1954, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 28. okt. 1954 morgunblaðið 27 Neytendur Frh. af bls. 25. LAUSNIN í ÞÝZKALANDI Það er ekki aðeins hér á landi, sem þetta vandamál er og hefur verið á döfinni. Mjög víða er- lendis hefur málið verið1 leyst með hliðsjón af þörfum neytend- anna, sem einmitt á að þjóna. En t. d. á Norðurlöndum hefur skammsýnt sérhagsmunasjónar- mið afgreiðslufólks sums staðar náð langt, þótt sú laugardagslok- un, sem hér er farið fram á nú, hafi hvergi verið innleidd. í Þýzkalandi hefur ríkisstjórn- in nýlega lagt fram tillögur um afgreiðslutíma sölubúða fvrir þingið, og eru þær á þá lund, að allar smásöluverzlanir verði lok- aðar eftir hádegi á miðvikudög- um, en að öðru leyti eiga þær að j vera opnar frá kl. 8—19. Ýmsar sérreglur gilda svo fyrir rakara, söluturna og matvörubúðir, sem selja vörur, sem hætta er á að skemmist. Ríkisstjórnin hafnaði algerlega laugardagslokuninni, þar sem mikill fjöldi neytenda notar einmitt þann tíma til inn- kaupa. Ekki var heldur orðið við þeirri ósk verzlunarfólks, að búð- um yrði lokað fyrir hádegi á mánudögum í stað eftir hádegi á laugardögum. Af meðferð málsins í Þýzkalandi má margt læra hér, því að kjarni vandamálsins er nákvæmlega sá sami. TILLÖGUK NEYTENDA- SAMTAKANNA ______ Neytendasamtökin lögðu fram tillögur sínar um þetta mál ný- lega, svo sem kunnugt er. Bentu þau á leið, þar sem neytendur geta verzlað lengur en nú er, um leið og vinnutími verzlunarfólks styttist. Skyldu matvöruverzlan- ir skiptast á að hafa opið eftir almennan lokunartíma, en aðrar verzlanir hafa opið milli kl. 8 og 10 að kvöldi einu sinni í mánuði. I staðinn lögðu neytendur það á sig að eiga lengra í matvöruverzl- anir að sækja þann tíma, sem hinn almenni afgreiðslutími styttist, þ. e. á laugardögum kl. 2—4, og 8 laugardagstíma myndu þeir láta á mánuði fyrir 2 kvöld- tíma, hvað aðrar verzlanir snerti Margir hafa látið í ljós þá skoð- un sína við mig, að Neytendasam- tökin hafi verið of væg fyrir hönd neytenda, en því er til að svara, að þau vildu fyrst og fremst benda á nýja leið, þar sem tillit væri tekið til beggja aðila. Sú stefna, að elta hagsmunabar- áttu annarra stétta í þjóðfélaginu nákvæmlega upp á klukkustund, bendir til mikiis vanmats á því merkilega hlutverki, sem verzl- unarstéttin vinnur í þjóðfélaginu. MERGUKINN MÁLSINS Eins og ég gat, um í upphafi, voru fyrst settar reglur um lok- unartíma sölubúða til þess að vernda afgreiðslufólkið gegn ó- hæfilega löngum vinnudegi. Og fyrstu takmarkanirnar skertu ekki að neinu teljandi marki hags muni neytenda. En frá þessum tíma er það komið, að vinnutími afgreiðslufólks og verzlunartími fylgist að. Neytendasamtökin hafa bent á þá leið að aðskilja þetta tvennt, áður en í fullkomið óefni væri komið, og það er ekki síður í þágu verzlunarfólks. Hagsmunabarátta þess ætti ein- mitt að ganga betur, þegar hún beinist ekki gegn hinum almenna verzlunartíma, gegn þjónustunni við almenning. Og mergurinn málsins er sá, að þeir aðilar, sem nú semja um af- greiðslutíma eða lokunartíma sölubúða, launþegadeild Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur og Samband smásöluverzlana, eru ekki bærir um það. Þeirra á að vera að semja um kaup og kjör. Það er hið opinbera, sem á að ákveða hitt, hvenær verzlanir skuli opnar, því að það er mál, sem snertir daglegt líf borgar- anna og vörudreifinguna í þjóð- félaginu. Sveinn Ásgeirsson. — Kolanáma \ Frh. af bls. 22. Karl verkstjóra hrópa: Setjið., ðjíu á mótorinn! — Einhver s.yar- aði uppi og sagðist skyldi gera það. Og þarna stóðum við, sum- ir kveiktu sér í sígarettu og okk- ur fannst birtar. frá logandi eld- spýtunni vera ótrúlega mikil. Það glytti í rauðglóandi punkta hér og þar, að öðru leiti var kolniðamyrkur. Innan skamms kviknuðu ljósin aftur og a. m. k. ég varp öndinni léttar. KOLALÖGIN 4LLT AÐ ZV2 M Á ÞYKKT Kolalögin í námunni eru frá 60 cm á þykkt og allt upp í 250 cm. Þau liggja nokkuð misjafn- lega þykkt í tveimur lögum og halla niður á við inn í landi, eins og fyrr segir. Ákveðið hefur ver- ið að grafa 135 m inn í landið, en þar kemur brotalína og mis- sig fyrir innan línuna og kola- lögin talsvert neðar bar. Nú höfum við lokið við að skoða námuna og mannvirki þau, sem í kringum hana eru og fór- um þaðan til starfsmannaskál- ans. Hann er ekki mjög stór, en hentugur og ákaflega snyrtilega um hann gengið. Þar ráða tvær ungar stúlkur húsum og er önnur þeirra dóttir Karls verkstjóra. Síðar um kvöldið var ekið til gististaðar okkar að Fagradal, þar sem við nutum einstakrar rausnar í veitingum og þægileg- ar hvílur. • En þarna á Skarðsströndinni er að myndast vísir að athyglis- f verðri atvinnugrein hérlendis, ’ sem vissulega virðist eiga fram- tíð fyrir sér. Við kolavinnsluna skapast mikill gjaldeyrissparnað- ur fyrir þjóðarbúið og á Harald- ur Guðmundsson frá Háeyri, en hann var aðalhvatamaður að stofnun hlutafélagsins Kol, mikl- ar þakkir skyldar fyrir fram sýni sína og dugnað. — ht. Bonniers-útgáfufyrirtækið 150 ára Frh. af bls. 26. árum fyrir Krists fæðingu og margt af því, sem hún greinir frá, getur alveg eins átt við okk- ar tíma. Sagan er stórbrotin og spennandi um leið og hún lýs- ir vel lífi og háttum þess fólks, sem átti heima í löndunum við austanvert Miðjarðarhaf. Þýð- ingin virðist vel af hendi leyst. Önnur merk þýðing kom út á árinu sem leið, en það eru tvö fyrstu bindin af skáldsögu Leo Tolstojs, Stríð og friður. Af stærri sögum Tolstojs hafa áður komið í ísl. þýðingu Kósakkarnir og hin mikla skáldsaga Anna Karenina, sem kom út á vegum Menningarsjóðs fyrir nokkrum árum. Það er Menningar- og fræðslusamband alþýðu, sem eef- ur út Stríð og frið, en Leifur Haraldsson hefur þýtt og gert það vel. Stríð og friöur er af mörgum talið höfuðrit hins mikla rússneska sjjáldsagnahöfundar. Hún gerist á dögum Napoleons- styrjaldanna og lýsir ástandinu í Rússlandi á þeim sögulegu tímum. Það er vel farið, er útgefendur leggja áherzlu á að kynna ís- lenzkum lesendum höfuðrit heimsbókmenntanna og þyrfti að gera meira að því en gert hefur verið undanfarin ár. Þorsteinn Gíslason hafði forgöngu í því á sínum tíma er hann sendi út hvert öndvegisritið á fætur öðru, svo sem Vesalingana eftir Victor Hugo, Glæp og refsing eftir Dostojewsky og margt fleira. Jón Björnsson. MÁLELUTNINGS- SKRIFSTDFA Einar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Péturgson Austurstræti 7. Símar 3202, 2002. Skrifstofutími: kl. 10—12 og 1—5. FrhT af bls. 17 hann brátt að skipta um stöðu og taka til við þann örugga atvinnu- veg, bóksölu, í stað hinnar á- hættusömu frönskukennslu. En samt sem áður steig Bonni- er all djarft skref í þetta sinn, því um aldamótin 1800 var eng- inn hörgull á bókaverzlunum í Kaupmannahöfn. Þær voru hvorki meira né minna en 15 talsins, í Klarebodeme var Sören Gyldendal fyrir með sína verzl- un, við Börsen var I. H. Schu- bothe og Gottl. Proft. f Antoni- stræde var Simon Peder Poulsen, og loks skal drepið á Háskóla- bóksalann Fredrik Brummer, og hafa þá aðeins þeir helztu verið nefndir. En Gerhard Bonnier hefur hlotið að vera einbeittur ungur maður, sem vissi hvað hann vildi og hvert stefndi. 1804 keypti hann bókasafn, sem hann leigði síðan út gegn vægu verði. Það safn jók hann og bætti um marga hluti og aílaði sér sérstaklega fjölmargra erlendra bóka, og kom honum þar málakunnátta hans í góðar þarfir Á þessum ár- um var það algengt umkvört- unarefni manna, hve langan tíma það tók að fá nýjar bækur frá útlöndum. Póstur frá Kaup- mannahöfn til Altona í Þýzka- landi var aðeins einu sinni í viku og þrjá daga tók póstferðin. ★ LEIGUBÓKASAFN BONNIERS Bonnier tókst að afla sér margra, góðra erlendra bóka, að- sóknin að verzlun hans jókst jafnt og þétt og margir af kunn- ustu mönnum borgarinnar komu þangað. Næsta vor flutti hann „vísindabókasafn“ sitt í Krón- prinsgötu 33, þar sem hann var búsettur til 1833. í „Den Berlingske Avis“ kom þessi auglýsing þá um haustið: „Leigubókasafn G. Bonniers. Vér lánum út að jafnaði dansk- ar, þýðverskar, franskar, enskar og nokkrar ítalskar bækur að auki. Bókanna fjöldi, sem eftir aldamótin 1800 hefur allmjög aukizt, telzt nú á að gizka 12.000 bindi, og mun í náinni framtíð aukast um 1.200, hverjar verða1 útlánaðar sömuleiðis til allra, er j hafa vilja. Og án þess að lofa alþýðu manna gulli og grænum ■ skógum, segjum vér, að oss muni j væntanlega takast að útvega: flestar bækur og fullnægja sann- | gjörnum óskum og réttlátum kröfum lesenda vorra. G. Bonnier". ★ Eftir því, sem árin liðu, jókst bóksalan jafnt og þétt og þá fór Bonnier að velta því fyrir sér, hvort ekki væri skynsamlegt að stofna sitt eigið bókaútgáfufyrir- tæki. Fyrsta bókin, sem ber út- gáfuheiti Bonniers á titilblaði sínu var lítið kver, sem nefndist: „Sannar og furðulegar sakamála- sögur, eftir Kr. Henr. Spiesz, þýddar af L. A. Hjorth, kandidat í guðfræði og yfirkennara við handverksskóla sjóhersins." Sú bók var prentuð þegar árið 1804. Næstu ár gaf Bonnier út stórt safn gamansagna, sem út kom í mánaðarheftum og safnaði sögunum próf. Rahbek. Seinna tókst samvinna með Bonnier og einum af brautryðj- endum norrænnar samvinnu, Jens Kragh Höst, sagnfræðingi, en Bonnier gaf út bók hans, „Útsjón yfir sögu föðurlands- ins.“ Höst skýrir sjálfur svo frá, að sú bók hafi hlotið ágætar við- tökur og hafi hún verið gefin út í annarri útgáfu fjórum árum seinna. bókasölu. Hann var jafnan nefnd- ur „stiginn hans Bonniers"-, en Reitzel var ungur maður og óvenju hávaxinn. A4 « e * f * f t t t. » í » 'wm # '&>*•. tiia* -##4% krónur fyrir sænsk skáld og rit- höfunda og stofnaði jafnframt 1912 prófessorsstól í bókmennta- sögu við Stokkhólmsháskóla, á kostnað fyrirtækisins. ★ Slíkur hefur verið vöxtur og viðgangur stærsta útgáfufyrir- tækisins á Norðurlöndum í eina og hálfa öld. Ekki mun það hvað sízt eiga sinn þátt í vexti þess, hve eigendurnir, gamli Gerhard Bonnier, synir hans og sonarsyn- ir, hafa gert sér far um að vinna að menningarefnum jafnhliða fjársýslunni og gert sér það full- ljóst, að velgengni bókafyrir- tækisins er ekki aðeins undir ver- aldarauð komin, heldur og menn- ingarstarfi þess. 4 H’Á-Vrj-triK afi'TíwÁHT* 'jBTSÍAj* liiisiIS&ÍH-jsk' „■ MI Forsíðan á dagblaði Bonniers, Dagsposten 1816. Bonnier var hinsvegar lágvax- inn maður og í hvert sinn, sem fara þurfti í efstu hillu eftir bók, kallaði hann á Reitzel. Annar af lærlingum Bonniers var P. G. Fhilipsen, sem síðar varð einn af þekktustu bókaútgefendum í Danmörku. Árið 1814 var bókaverzlun og bókasafn Bonniers orðið eitt hið stærsta og vinsælasta í allri borg- inni. Um þessar mundir keypti hann sér hús í Store Kiöbmager- gade og rak þar fyrirtæki sitt fram til ársins 1821. ★ DAGBLAÐ GEFIÐ ÚT Fjórtán ára gamall fékk C. A. Reitzel stöðu í bókaverzlun Bonniers, en hann varð síðar einn af stærstu bóksölum Dan- merkur á fyrra helmingi 18. ald- ar. Þar starfaði hann til 1814, þegar hann setti á stofn eigin Nafnspjald G. Bonniers. En Bonnier hugsaði lengra en aðeins til bóksölunnar. Eitt af því, sem hann tók sér lyrir hend- ur var að gefa út dagblað. Um nýjárið 1816 stofnaði hann blaðið og ritstjóri þess varð Jens Kragh Höst. Blaðið nefndist Dagsposten, og var lítið að broti, og fjórar síður að stærð, en það var venju- legast um dagblöðin á þeim dögum. í endurminningum sínum skýr- ir Höst svo frá, að blaðið hafi, verið lesið og virt fyrir fréttir ( sínar fyrst og fremst, og þá ekki síður ýmsar sögulegar greinar, sem þá skorti í dönsku blöðun- j um. Dagsposten kom út reglulega um tveggja ára skeið, að tveim dögum undanskildum, en þá var ritstjórinn veikur. ★ HALLAR UNDAN FÆTI Um 1820 fór að halla heldur undan f æti fyrir atvinnurekstri Bonniers og elzti sonur hans, j Adolf, ákvað þá að halda úr landi i yfir til Svíþjóðar og freista gæf- ! unnar þar, í nýju landi eins og ! faðir hans. Árið 1827 opnaði hann i Gautaborg fyrstu sænsku bóka- j verzlunina, sem bar nafnið Bonnier. Þar starfaði Adolf þar til árið 1832, að hann fluttist bú- ferlum til Stokkhólms og öðlað- ist þar brátt stóran og mikinn kunningja- og viðskiptamanna-1 hóp. Hann reyndi og lítilsháttar fyrir sér í bókaútgáfu, en gekk heldur treglega. Það var ekki fyrr en yngri bróðir hans, Albert (1820—1900), tók við stjórn fyrirtækisins, að vegur þess og virðing óx mjög og það varð hin traustasta fé- sýslu- og menningarstofnun. — Bonniers varð stærsta útgáfufyr- irtækið í Svíþjóð og gaf út rit- verk eftir frægustu og beztu rit- höfunda landsins, svo sem Ryd- berg, Strindberg o. fl. Sonur Alberts nefndist Karl Otto (1856—1941) og óx fyrir- tækið enn í höndum hans og blómgaðist. 1901 stofnaði hann styrktarsjóð að upphæð 150.000 — Hollandsbréf Frh. af bls. 19. skeið verið starfrækt Helipopter flugstöð, sem hefir reynzt með ágætum. Hið sama er að segja um Maastricht. 70 þús. íbúa borg, sem stendur milli Brússel og Köln og á næsta ári verður endanlega gengið frá Helipopter stöð í Amsterdam. — Önnur lausn á umferðarvandamálinu? Eða að- eins erfiðleikar íil viðbótar? ★ ★ Búast má við, að umferðin verði mikið vandamál í Rotter- dag n. k. sumar, en á tímabilinu 18. maí til 30. september á að standa þar yfir risavaxin Hol- landssýning, þar sem til sýnis verður öll hollenzk framleiðsla. Sýningin verður kölluð „E 55“, sem stendur fyrir „Energy 1955“. Aðalhugmyndin að baki sýning- arinnar er sú, að bregða upp mynd af uppbyggingarstarfi Hol- lendinga á síðastliðnum 10 árum. Sýningarsvæðið verður feykilega víðáttumikið: 35,000 fermetrar undir þaki og aðrir 50,000 ferm. undir beru lofti. Þar verða sér- stakar sýningardeildir fyrir land- búnað, efnafræði- og rafmagns- iðnað, skipasmíði, vélsmíði, flug- vélaiðnað, flutningstæki, trygg- ingastarfsemi og banka, land- aukningu, heilbrigðismál, listir, menntun og menningarlíf o. 6. frv. ★ ★ Sýnt verður og skýrt nákvæm- lega, hvernig framkvæmd er upp- þurrkun Suðursjávarins, sem áð- ur hefir verið getið sem og hin umfangsmikla og erfiða endur- reisn eftir flóðin óskaplegu vetur- inn 1953. Með þessari sýningu er í mikið ráðizt svo að auðsætt er, að hún. mun kosta stórfé í framkvæmd- inni. Um 20 milljónum króna mun varið til bvgginganna einna, sem til sýningarinnar þarf. Um 40% af þeim kostnaði verður greiddur af félögum þeim og fyrirtækjum, sem þátt taka í henni, hinn hlutinn verður að koma frá sýningargestum. Áætl- að er, að urn 3 milljónir manna muni koma á „E 55“, bæði Hol- lendingar og aðrir, og nemur það því, að aðgangseyrir verði sem svarar fjórum ísl. kórnum, sem segja má að sé furðu lágt, eftir því sem vonir standa til um fjöl- breytni og mikilvægi þessarar Hollandssýningar. — Þeim íslend ingum sem kynnu að leggja þangað leið sína myndi ég með ánægju veita alla þá hjálp og fyrirgreiðslu, sem í mínu valdi stendur. — Það væri aðeins lítið endurgjald fyrir hinar góðu við- tökur, sem við fengum á íslandi. Hilversum, í okt. 1954. 1>Í0K ARltlll jÍDHSSOM LÖGGILTUR SK.JÁLAÞTDAND1 • OG DÖMT0LK.UR I éNSKU • SIZSJDBVOLI ~ simi 81S55

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.