Morgunblaðið - 10.11.1954, Blaðsíða 1
16 sídus
41. árgangur.
258. tbl. — Miðvikudagur 10. nóvember 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsin*.
Elí/abet ekkjudrottning af Englandi og Konrad Adenauer, ríkis-
kanslari Vestur-Þýzkalands, voru meðal margra frægra manna og
kvenna, cr útnefnd voru heiðursdoktorar við Columbía-háskólann
í New York í tilefni af 200 ára afmæli stofnunarinnar. Með þeim
er á myndinni dr. Grayson Kirk, rektor háskólans.
Rússtim boðin samvinna
um kjarnorkumál
NEW YORK, 9. nóv_Reuter.
IUMR/EÐUM stjórnmálanefndar SÞ í dag um stofnsetningu
alþjóða kjarnorkustöðvar, lagði fulltrúi Kanada fram til tillögu
fyrir hönd þeirra þjóða, er nú vinna að stofnsetningu slíkrar stöðv-
ar, að Ráðstjórnarríkjunum yrði boðin þátttaka í slíkri fram-
kvæmd.
Lagði fulltrúinn til, að Ráðstjórnarrikin yrðu meðal þeirra sjö
landa, er aðalritari SÞ ráðfærði sig við í sambandi við að kalla
saman næsta sumar alþjóða þing um vísindaleg efni. Er þetta
tilraun til að fá Rússa til samvinnu um þessi efni.
Útlitið versnar fyrir að franska
þingið samþykki varnarsamninga
Jules Moch hafnar að
vera framsögumaður
H
ÆTTULEG snurða hefur hlaupið á þráðinn hjá Mendés-France
og er hætt við að taki lengri tíma að fá franska þingið til
að samþykkja Parísar-samningana um aðild Þjóðverja að vörn-
um Vestur-Evrópu.
að málið dragist nokkuð á lang-
inn.
JULES MOCH KOSINN
— EN HAFNAR
Utanríkismálanefnd franska -ár
þingsins kaus jafnaðarmanninnj
Jules Moch með 21 atkv. gegn Það hefur ekki vakið litla at-
9 til að hafa á hendi framsögu hygli, að rússneski sendiherr-
nefndarinnar í þessu máli. i ann í París, Sergei Vinogradov,
Moch dvelzt nú í New York gekk á fund forseta franska
sem fulltrúi Frakka á þingi SÞ. þingsins, André le Troquer og
Mendes íær
traust enn
einu sinni
Var honum sent skeyti um út-
nefninguna. Skömmu síðar kom
svarskeyti frá honum, þar sem
hann hafnaði því afdráttarlaust
að taka að sér framsögu máls-
ins.
ATTI SOK A FALLI
EVRÓPUIIERSINS
Jules Moch er jafnaðarmaður
og tilheyrir þeim armi flokks-
ins sem var fjandsamlegur Ev-
rópuhernum. Er sagt að enginn
einn maður hafi átt eins mikla
sök á falli Evrópuhersins og
hann. Hefur hann lýst yfir mót-
spyrnu sinni við þýzka endur-
hervæðingu í hvaða mynd sem
er.
Franska þingið verður nú að
kjósa nýjan framsögumann, en
mótspyrna Mochs sýnir að ekki
eru allir ánægðir með niðurstöð-
ur Parísarsamninganna og er
fyrirsjáanlegt, ef jafnaðarmenn
standa ekki óskiptir með þeim,
★ PARÍS, 9. nóv. — Mendes
France, forsætisráðherra Frakk-
lands, hlaut í dag enn einu sinni
traustsyfirlýsingu franska þings-
ins. Féllu atkvæðin 320 gegn 207,
99 þingmenn sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluii... Krafðist Men-
des-France truastsyfirlýsingar
um, hvort ekki bæri að afgreiða
afhenti sem a^ra skjótast frumvarp til
Gaston Monnerville og _________ , ...
þeim skilaboð frá Malenkov, þar j fjaHaga næsta ars, er fjarmala-
sem þingforsetum og nefnd ráðherann hafði lagt fram.
franskra þingmanna er boðið í Á ®.l. föstudag hafði fjármála-
opinbera heimsókn til Moskva. I nefnd franska þingsins gagnrýnt
Þingforsetarnir höfnuðu ekki harðlega fjárveitingar til póst-
boðinu, en töldu að förin yrði mála og neitað að samþykkja eða
að minnsta kosti aldrei farin jafnvel ræða þær ásamt nokkr-
fyrr en þingið hefði samþykkt um öðrum atriðum fjárlagafrum-
Parísarsamningana. I varpsins.
Þjóbveldisflokkurinn vann
sigur í færeysku kosningunum
Hann vill fullan aðskilnað frá Dönum.
l+andaríkjamenn ákveða að byggja
atómrafstöð í Thule á Grœnlandi
H
KAUPMANNAHÖFN, 9. nóv. — Einkaskeyti frá Páli Jónsssyni.
INN róttæki Þjóðveldisflokkur vann sigur í kosningunum í
Færeyjum og er hann nú að atkvæðamagni annar stærsti
flokkur Færeyja.
Kosningar til Lögþingsins
færeyska fóru fram á sunnu-
daginn. Úrslitin urðu þau að
Sambandsflokkurinn hlaut 7
þingsæti, sem er óbreytt. —
Fólkaflokkurinn fékk 6 þing-
sæti, tapaði 2, Þjóðveldis-
Eldsneytisþörf talin 5 kg. af úraníum
á ári til að fullnœgja allri raforku-
þörf stöðvarinnar
BANDARÍKJAMENN ætla að koma sér upp raforkuveri,
sem er knúið atómkrafti, í bækistöð sinni í Thule á Norð-
ur-Grænlandi. James Lampert, yfirmaður stofnunar þeirrar er
vinnur að rannsóknum á atómorku til notkunar í iðnaði, upp-
lýsti þetta nýlega á fundi með blaðamönnum í New York.
Eins og kunnugt er hefur þeg-
ar tekið til starfa í Bandaríkj-
unum ein stór rafmagnsstöð, sem
framleiðir rafmagn með atóm-
krafti og fær 50 þúsund manna
bær alla raforku sína frá þess-
ari stöð.
if RAFSTÖÐ í KULDUM
HEIMSKAUTALANDA
Atomorkustofnunin Hefur
þegar látið hefja rannsóknir á
því hvernig heppilegast sé að
hafa atómrafstöð, sem geti starf-
að í hinum miklu kuldum heim-
skautslandanna.
Ástæðan til þess að bækistöð-
in í Thule hefur orðið fyrir val-
inu, er hin sívaxandi raforkuþörf
bækistöðvarinnar. Sjá þarf
fjölda radar-tækja og véla fyrir
rafmagni og mikla orku þarf til
að hita og lýsa upp híbýli manna
í heimskautsnóttinni löngu.
KOSTNAÐUR MIKILL
VIÐ OLÍUFLUTNINGA
Þar norður frá er þýðingar-
laust að ætla sér að virkja
fallvötn, því að þau eru gadd-
frosin mestan hluta árs. —
Vaxandi raforkuþörf hefur
valdið því, að tugir voldugra
olíuflutningaskipa hafa orðið
að fikra sig upp hina ótryggu
leið og geta átt á hættu að
lenda í hafbönnum. Kostn-
aður við þessa olíuflutninga
er gífurlegur og sívaxandi.
Er talið kostnaðarminna að
flytja norður til Thule eina
atómrafstöð, sem getur séð
fyrir öllum raforkuþörfum
staðarins. Eldsneytisþörf slíkr
ar rafstöðvar er talin vera
um 5 kg af úraníum á ári.
Gagnger herferð Frakka
gegn skæruliðum
I
BATNA, ALGIER, 9. nóv. — Einkaskeyti frá Reuter.
MORGUNSÁRIÐ hófu franskar fallhlífarhersveitir og liðs-
sveitir útlendingaherdeildarinnar gagngerar hernaðaraðgerðir
gegn skæruliðunum, er búið hafa um sig í Aures-fjöllunm. Hafa
hersveitir þessar skipun um að hreinsa rækilega til og útrýma
skæruliðunum á 12. þúsund ferkílómetra svæði.
TILRÆÐISMAÐUR
NASSERS JÁTAR
• CAIRO, 9. nóv. — Tuttugu
og þriggja ára gamall pípulagn-
ingamaður, Mahmoud Abdul Lat-
if, játaði í dag fyrir sérstökum
„þjóðardómstól“, að hann hefði
reynt að myrða forsætisráðherra
Egyptalands, Gamel Abdel Nass-
er. Latif er meðlimur Bræðra-
lags Múhameðstrúarmanna, er
nú hefur verið gert landrækt. —
Tilræðið við forsætisráðherrann
átíi sér stað á útifundi í Alex-
andríu 26. okt.
• Latif var klæddur blárri
Framh. á bls. 12
ÞRIGGJA MÁNAÐA
HERFERÐ
Hernaðaraðgerðir þessar hafa
verið í undirbúningi í rúma viku
meðan Frakkar biðu liðsstyrks.
Setuliðið í Arris og öðrum fjalla-
bæjum Algier hefir fengið skip-
un um að leita í hverjum krók
og kima á sínu yfirráðasvæði.
Franska herstjórnin lét svo um
mælt, að erfitt verði að upp-
ræta skæruliðssveitirnar og
kunni að taka allt að því þrjá
mánuði.
+ KYRRÐ KOMIN Á VÍÐA
Um þrjú hundruð skæruliðar,
er hraktir voru yfir landamær-
in til Túnis, hafa um það bil
tvöfaldað liðsstyrk sinn með
mönnum úr þjóðernishreyfing-
unni. Hinsvegar hefir þeim
Framh. á bls. 12
flokkurinn fékk 6 þingsæti,
vann 4, Jafnaðarmenn 5, töp-
uðu einu sæti, Gamli Sjálf-
stýrisflokkurinn hlaut tvö
þingsæti, sem er óbreytt og
einn óháður þingmaður var
kjörinn. Tala þingfulltrúa
jókst um tvo.
FLOKKUR ERLENDAR
VANN SIGUR
Efling Þjóðveldisflokksins vek-
ur sérstaka athygli í dönsku
blöðunum, vegna þess að hann
krefst algers skilnaðar við Dan-
mörku. Flokkurinn varð að at-
kvæðamagni næststærsti stjórn-
málaflokkur Færeyja.
Foringi hans, Erlendur Paturs-
son, stjórnaði kosningabaráttu
flokks síns úr fangaklefa, en
hann afplánar nú 40 daga fang-
elsisrefsingu fyrir ólögmæta
framkomu í sambandi við sjó-
mannaverkfallið í vor.
Torstein Petersen, fyrrum for-
ingi Fólkaflokksins, sem beið
slóemt skipbrot í bankamálinu
fræga, var nú í framboði á sér-
stökum lista, sem var í kosn-
ingabandalagi við Fólksflokkinn,
en hann náði ekki kjöri.
STJÓRNARFLOKKAR
TAPA MEIRIHLUTA
Eftir þessar kosningar hafa
stjórnarflokkarnir, Sambands-
flokkurinn og Fólkaflokkurinn,
ekki lengur meirihluta á Lög-
þinginu. Er talið að þeir leiti
nú samstarfs við Sjálfstýris-
flokkinn.