Morgunblaðið - 28.11.1954, Side 7

Morgunblaðið - 28.11.1954, Side 7
Sunnudagur 28. nóv. 1954 MORGUISBLAÐIÐ 7 1 Gagngerðar breytingar fyrirhugaðar í Iðnó FRÁ ÞVÍ er skýrt í leikskrá að sjónleiknum Erfingjanum, sem Leikfélag Reykjavíkur sýnir um þessar mundir, að hafinn sé undirbúningur að gagngerðum breytingum á hinu aldna húsi Iðnó. Bráðabirgðauppdrætti að breytingunum hefur Skarphéðinn Jóhannesson arkitekt gert, en hann dvelzt nú erlendis m. a. til að kynna sér hagkvæmast fyrirkomulag í leikhúsum á stærð við Iðnó. Hörður Ólafsson Málflutningsskrif«tofa. Laugavegi 10. - Símar 80332, 7*573, Mýkomsreas* — Mý uppskera CLARA SVESKJUR Stærðir 70/80 ------ 40/50 ÞRÖNGT UM ALLA STARFSEMI Mbl. sneri sér í tilefni þessa til Lárusar Sigurbjörnssonar for- manng L. R. og til þess að fá frekari upplýsingar um þetta. Sagði Lárus, að lengi hefði verið nauðsyn á því að gera ýmsar breytingar á leikhúsinu. Starf- semi félagsins hefði færst svo ört í vöxt undanfarin ár, að húsið væri fyrir löngu orðið langt of lítið og erfitt væri fyrir leikara að athafna sig þar. Nú stæði hinsvegar fyrir dyrum gagngerðar breytingar á húsinu og hefði hússtjórn Iðnós haft samráð við stjórn L. R. um breyt ingarnar. Ekki væri þó enn neitt endanlega afráðið um breyting- arnar. NÝ SÆTI — SVALIR STÆKKAÐAR Það helzta sem í ráði er að gert verði, er að setja ný sæti í salinn. Við það fækkar sætum alíverulega, og er því í ráði til þess að vinna það sætatap upp, að stækka svalirnar inn í nú- verandi kaffisal. Við það hverf- ur kaffisalurinn og því nauðsyn á að byggja nýjan og kemur helzt til mála að byggja yfir hann út frá suðurhlið hússins, eða þar sem fatageymslan er nú. INNGANGUR FRÁ V ONARSTRÆTI En vegna þeirrar útbyggingar yrði að flytja innganginn og fata- geymsluna til þess, sem áður var Vonarstrætismegin. Snyrtiher- bergi yrði þá og að flytja og koma fyrir á öðrum stað. Sagði Lárus, að þetta væru í stórum dráttum þær breytingar, sem til tals hefði komið að gera á sal, inngangi og snyrtiherbergjum. LEIKSVIÐIÐ HEFUR SIGIÐ UM 10 CM. Stækkun á leiksviðinu í Iðnó er orðin hvað mest aðkallandi vegna þeirra þrengsla, sem þar eru. Þó er búið að gera lítilsháttar breyt- ingar á húsgagnageymslu leik- sviðsins, en þær breytingar bjarga samt litlu við um plássleys ið. Leiksviðið sjálft er orðið á- kaflega lélegt, t. d. hefur það sig- ið um 10 cm. um miðbikið. Hef- ur stækkun sviðsins því mjög komið til álita og myndi við það: rýmkast mjög um leikara og stækkunin verða til aukins hag- ræðis við uppsetningu leikrita. Sömuleiðis myndi þá verða mögu legt að bæta aðbúð leikara í búningsherbergjum, sem eru bæði of tfá og smá. 33 LEIKSÝNINGAR Á TVEIMUR MÁNUÐUM Þetta sagði Lárus Sigurbjörns- son, er það sem hægt er að segja urh þessar breytingar á þessu stigi málsins, en með sívaxandi starfsemi og aukningu viðfangs- efna er þetta orðið svo mjög að- kallandi að ekki má bíða öllu lengur. Til dæmis í þessu sam- bandi, má geta þess, að L. R. hefur s. 1. tvo mánuði haft 33 leiksýningar, eða 15 í október og 18 í nóvember. Sýnir það bezt hversu áríðandi það er fyrir L.R. að fá aukið svigrúm til leik- sýninga og um aðbúnað fyrir leikhúsgesti vita allir, sero í Iðnó hafa komið. Hafizt verðuj handa við breytingarnar í vor. LEIKSRRÁ í BREYTTRI MYND Þess má geta að leikskrá L.R. ér nú prentuð með nokkrum breytingum frá því sem áður hefur verið. Er þar m. a. nýr þáttur: „Tjaldið frá — og fyrir“, og er ætlunin að flyt.ja þar ýms- ar fregnir af starfi félagsins og einnig öðrum leikfélögum lands- ins. Þá verða og greinar um leik- list og leikhús í nálægum lönd- um eftir því sem við verður kom- ið, svo og myndir og greinar um viðfangsefni L.R. o. fl. Þessi nýja gerð leikskrárinnar er að nokkru leyti til komin vegna 50 ára afmælis skrárinnar. Er hún nú 36 bls. að stærð, þar af helm- ingur lesmál. — ht. — Ásgeir Sigurðsson Framh. af bls. 2 ferðast hafa með Ásgeiri Sig- urðssyni á undanförnum áratug- um meðfram ströndum íslands, og milli landa, þakka honum ánægjulegar samvistir. Hann hef- ur ávallt skilað þeim heilum í höfn. Sjómannastéttin þakkar honum einnig mikilsverða for- ystu um mörg þýðingarmikil hags munamál hennar. Vinir hans og heimilis hans senda afmælis- barninu, hinni ágætu konu hans, frú Ásu Ásgrímsdóttur, börnum þeirra og fóstursyni einnig hlýjar árnaðaróskir. S. Bj. ★ EINN af forustumönnum íslenzku sjómannastéttarinnar, Ásgeir Sig- urðsson skipstjóri á mótorskipinu Helku, er sextugur í dag. Það þarf ekki að kynna hann fyrir þjóðinni, það hafa störf hans gert svo rækilega, allt þró- unartímabil hins íslenzka verzl- unarskipaflota allt frá árinu 1914 til þessa dags. Á þessu tímabili er hann búinn að starfa, fyrst sem stýrimaður frá árinu 1916 á skipum Eim- skipafélags íslands og svo á strandferðaskipum ríkisins bæði sem stýrimaður og svo skipstjóri hátt á 3ja áratug. Hann hefur þau tæp 30 ár, sem hann hefur verið skipstjóri verið svo giftudrjúgur í skipstjórn sinni, að skip þau sem hann hefur stjórnað, hafa aldrei orðið fyrir teijandi óhöppum, þrátt fyrir það þó hann hafi orðið að fylgja all- ströngum áætlunum, í strand- ferðunum við hina skerjóttu strönd lands vors, bæði í þokum og stórhríðum hins íslenzka vetr- ar. Slíkt hlutverk er engum au- kvisum hent, og leysa ekki aðrir af hendi áfallalaust árgtugum saman, en afreksmenn. Og talar því skipstjórnarsaga hans bezt um það hverskonar maður hann er. Hann hefur og verið skelegur baráttumaður fyrir menningar-, hagsmuna- og öryggismál sjó- mannastéttarinnar, enda var hann einn af forustumönnum um stofnun Farmanna og fiskimanna- sambands íslands, og hefur verið forseti þess frá stofnun og allt til þessa dags. Hin íslenzka sjómannastétt stendur í mikilli þakkarskuld við þá menn, sem af fórnfýsi hafa eytt miklum hluta af hinum mjög takmarkaða frítíma sínum, til að vinna að hagsmunamálum þeirra. En slíkt hefur Ásgeir Sigurðsson gert oðrum fremur. Ég vrl að lokum óska Ásgeiri Sigurðssyni til hamingju með daginn, og óska honum langrar og gifturíkrar framtíðar og ís- lenzku þjóðinni vil ég óska þess, að hún eigi sem flesta menn, á öllum tímum með líku hugarfari til velferðar hennar og Ásgein Sigurðsson hefur. Þá mun henr|l vel farnast. Vinur af sjónum. Regísh&gism - LAUGAVEGI «2 — SÍMI: 3858. Nýja piast-klæðningin með lím nu á, tilbúin til notkunar. — Ekkert vatn — Ekkert lím — Enga nagla — Engin sérstök áhöld — nema skærin og málbandið. Dæmi notkunar: Á allskonar skápa • hillur ® húsgögn (gömul og ný) ® barnaherbergi ® hiífðarklæðning (á veggi innanhúss). ’ ® ótal margt fleira. — Gíæsiiegt úrval af fallegum litum. — Lííið inn, fáið sýnishorn og allar nánari u plýsingar hvernig nota má CON—TACT iiieð næsfa frá Ameríku í .............................................................

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.