Morgunblaðið - 30.11.1954, Page 7

Morgunblaðið - 30.11.1954, Page 7
Þriðjudargur 30. nóvember 1954 MORGVISBLAÐLÐ 1 i. Sigurbjörg Jónsdóttir írá Stóra-Hfauni - Kveðja í DAG verður jarðsungin frá Dómkirkjunni hér Sigurbjörg Jónsdóttir, Stórholti 32. Hún fæddist 31. marz 1876 að Barða- Btöðum á Snæfellsnesi. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Gísladóttir og Jón Bárðarson. Bæði voru þau vel ættborin og dugandi búendur, en efnalítil og barnmörg. Sigurbjörg var næst elzta systkinið. Það varð því hlut- gkipti hennar, 14 ára gamallar, að hverfa frá ástvinum sínum og æskuheimili til sjálfsbjargar. Hafði hún þegar eignazt einlæg- an vilja á að rækja skyldur sínar við guð og menn. Hún vann í fæðingarsveit sinni og við vin- eældir hvar sem hún fór: Það mun hafa verið um áratug eftir að Sigurbjörg fór úr for- eldrahúsum að ég kynntist henni fyrst. Var hún þá komin í ná- grenni við mig til frændfólks míns að Ytra Skógarnesi, en þar voru þá einnig systur hennar tvær í fóstri, að móður þeirra látinni. Nokkru síðar kom hún til foreldra minna að Syðra-Skógar- nesi. Kostir Sigurbjargar urðu mér fljótt augljsóir, starfshneigð, svo að aldrei féll verk úr hendi, verklagni og afköst fremur en líkamlegt þrek virtist geta leyft. Lífsglöð var hún mjög, hjálpfús og trygglynd. Enda þótt vitað væri að Sigur- björg hefði ekki notið neinna ver- aldargæða í uppvextinum var það Ijóst, að hún trúði á sigur hins góða í hverri raun. Hugur henn- ar til samferðamannanna var barnslega ljúfur og ástúðlegur. Hún gerði bæn sína fyrir öllum, sem bágt áttu. Einlægni hennar var svo sönn, að hún ætlaði eng- um nema gott, unz annað kom fram. Hún var mjög trúhneigð og las löngum guðsorðabækur. Draumspök var hún og kunni því á ýmsum hlutum skil, sem öðrum voru duldir. Segja má að orðið hafi þátta- skil í æfi Sigurbjargar og til gæfu hafi gengið, er hún réðist til prestshjónanna, séra Árna Þór- arinssonar og frú Elísabetar Sig- urðardóttur, er þá bjuggu að Ytri Rauðamel, því að þrátt fyrir það að mikil störf voru á hinu mannmarga og gestkvæma heim- ili varð hún þar strax hamingju- söm, því að hún fann hve óskorað traust hún fékk, þegar henni var að miklu leyti falin umsjá með ungum börnum hjónanna, hvað henni varð lykill að innstu til- finningum fjölskyldunnar, svo að hún sjálf varð sem hluti af henni. Með hverju ári sem leið óx ást hennar til barnanna og fjölskyld- unnar allrar. Það jók gleði henn- ar og sjálfstraust, enda varð hún fljótlega sjálfráð verka sinna og naut umhyggju og ástúðar hús- bændanna og barna þeirra. Þá gafst henni einnig tækifæri til þess að fræðast um ýms hugðar- efni sín, einkum trúmál og dul- ræn fyrirbrigði, en í kafla þeim, sem séra Árni helgar Sigurbjörgu í æfisögu sinni segir hann m. a. að hún hafi verið dulvitur trú- kona. Tvær dætur eignaðist Sigur- björg. Varð önnur þeirra skamm- líf, en hin, Jóhanna Guðmunds- dóttir, ólst upp hjá stjúpu sinni. Hún er kona mannvænleg og býr hér í Reykjavík. Eftir að séra Árni lét af em- bætti fluttust þau hjónin frá Stóra-Hrauni hingað til Reykja- víkur. Með þeim kom Sigurbjörg og naut síðan hins sama ástríkis fjölskyldunnar og fyrrum og var því í góðu yfirlæti. En þegar kraftarnir tóku að þverra kaus hún að eyða síðustu æfiárunum hjá Sigurði Árnasyni, er verið hafði augasteinn hennar alla tíð. Var það auðsótt mál og naut Sigurbjörg friðsællar elli hjá honum og ágætri konu hans, Sig- rúnu Pétursdóttur, sem reyndist henni með svo miklum ágætum að dæmafátt má heita. Fyrir löngu hafði Sigurbjörg sagt fyrir dánarár sitt og var bað síðasta og órækasta vitnið um forspár hennar. Nokkra síðustu dagana lá hún í sjúkrahúsi, þar sem margir vinir komu til að kveðja hana. Þegar brottfararstundin kom hélt bezti vinur hennar, Sigurður, í hönd hennar, og lauk þannig hér- vist þessarar ágætu konu. Megi minning hennar lifa, þar sem svo marga góða hluti er þar að varð- veita. Magnús Sigurðsson. MÉR koma í hug orð postulans: Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, yrði ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. — Þú varst full kærleika og fórnfýsi til húsbænda þinna, góða horfna Sigurbjörg mín, eða Bjagga, eins og við börn in vanalega kölluðum þig. Þú varst um áratugi hjá föður okkar og móður á Stórahrauni, og við börnin litum alltaf á þig sem aðra móður okkar, sérstak- lega yngri systkini mín, sem hlupu svo oft til þín, ef eitíhvað var að — og aldrei áttir þú það annríkt, að þú græddir ekki sárin. Eftir að foreldrar mínir hættu búskap á Stórahrauni varst þú hjá mér og konu minni um nokk- ur ár, og alltaf sýndir þú sömu umhyggjuna fyrir okkur og dætr- um okkar, því oft þurftu þær að hlaupa til Bjöggu siijnar, ef eitt- hvað var að, og aldrei stóð á hjálpinni, einnig áttir þú margar andvökunætur yfir þeim er veik- indi steðjuðu að, til þess að lofa konu minni að njóta svefns; og minnumst við sérstaklega í því sambandi hvað þú gerðir mikið fyrir elztu dóttir okkar í veik- indum hennar, þegar hún var lítil, enda, er hún var komin til fullrar heilsu aftur, var viðkvæð- ið hjá henni, ef eitthvað var að: — Kallið á hana Bjöggu mína, hún getur sansað mig. Þetta er lífsaga hennar Bjöggu — barn- anna frá Stórahrauni. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. Þór. Árnason. Silfureyrnalokkur tapaðist s. 1. föstudagskvöld í miðbænum að F reyjugötu 17. — Finnandi hringi í síma 3169. 80 OPEL bifreiðar hafa verið pantaðar hingað OPEL CAKAVAN ★ OPEL OLYMPIA REKORD Erlendis hafa OPEL bílornir náð svo miklum vinsældum, að verksmiðjurnar verða stækkaðar stórlega á næstunni. — Fyrstu OPEL bílarnir, sem hingað hafa komið, reyn- ast svo vel, að um 80 leyfishafar hafa þegar pantað OPEL. Kynnið yður kosti og verð OPEL bílanna. Samband ísl. samvinnufélaga VÉLADEILD SÍMI: 7080 QRÐSENDING til ökunanna og eigenda bifreiða Umferðasalysin eru orðin stórt vandamál. Þau verða árlega fjölda manns að bana og enn fleiri meiðast meira og minna. Þar að auki fer forgörðum verðmæti, sem nemur milljónum króna. Flest umferðaslys orsak :st fyrir ógætilegan akstur og brot á um- ferðarreglum. íslenzk bifreiðalög og tryggingarskírteini hafa að geyma sérstök ákvæði, er miða að því að fyrirbyggja gáleysi í akstri ökumanna og skal sérstaklega bent á eftirfarandi: 1. Samkvæmt 36. gr. bifreiðalaganna hafa tryggingar- félögin endurkröfurétt á hendur tryggingartaka, hafi hann valdið tjóninu af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. 2. Samkvæmt kaskotryggingarskilmálum eru skemmd- ix, sem verða á bifreiðum vegna stórkostlegrar óvarkárni ökumanna, undanskildar ábyrgð félaganna. Auk þess mega félögin draga frá skaðabótunum, ef vátryggði veldur tjóni af óvarkárni, sem þó eltki má telja stórkostlega. Tryggingarfélögin hafa ekki beitt þessum ákvæðum til fulls, en vegna hinna stór- auknu tjóna, sem orðið hafa undanfarið, m unu féiögin sjá sig tilneydd að beita þessum ákvæðum. — Bifreiðastjórar ættu þvi að gera sér það ljóst, að þeir geta sjálfir borið stóra áhættu, enda þótt bifroiðir þeirra séu tryggðar, ef þeir sýna óvarkárni í akstri. Biíreibavátryggjendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.