Morgunblaðið - 27.03.1955, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.03.1955, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 27. marz 1955 EFTIRLEIT EFTIR EGQN HOSTOVSKY Framtialdssagan 57 Síðan komu strax fyrirskipanir um að láta Kral fá vegabréfsáletr un og veita honum alla hugsan- lega hjálp. Nákvæmlega á sömu stundu — frétti ég seinna — hafði innanríkisráðuneytið í Prag ákveðið að taka Kral til fanga, hvað sem það kostaði. En hann hvarf eins og jörðin hefði gleypt hann, — hann slapp bæði frá kommúnistum Og okkur.“ Margaret þurrkaði sér um aug- un, meðan Morgan týndi upp gler hrotin. Því næst gekk hún að glugganum og horfði út í gráan morguninn. Rödd hennar virtist koma úr fjarlægð, þreytuleg og hljómlaus. „Þrem dögum eftir að Masa- ryk lézt, hringdi Paul til mín. Hann sagði ekkert annað en þetta: „Margaret, Joan er dáin“. Og ég spurði hann- „Paul hvar ertu? Þú ættir ekki að vera einn núna!“ En hann sagði aðeins: „Vertu sæl, og þakka þér fyrir alla hjálpina og vingjarnleg orð. Það var árangurslaust. Hún er dáin. Ég vona að þú verðir ham- ingjusöm, Margaret, þú átt það skilið. Enn einu sinni í síðasta sinn, vertu sæl.“ Margaret þagnaði Axlir henn- ar titruðu, en síðan var líkami hennar hreyfingarlaus. Morgan horfði á hana út undan sér. tók upp penna og pappír og fór að skrifa á fætinum á sér. „Fréttir þú ekkert hjá Paz- derka eða Borek um hann?“ Hann leit undrandi udp, er Margaret fór að hlægja. „Ég get séð þig í glugganum, Gerarl. Hvers vegna skrifarðu ekki held- ur á borðinu í stað þess að skrifa á hnénu á þér. Nei, ég komst ekki að neinu. Fyrst voru þeir báðir mjög tortryggnir, sérstaklega sót arinn. En til allrar hamingju kunni hann þýzku, flestir kunna hana í þessum litlu landamæra- bæjum. En þótt Borek skilji ensku fullkomlega, er mjög erfitt að skilja hann. Ertu búinn að skrifa þetta? Að lokum trúðu þeir mér báðir — ég þurfti ekki einu sinni að gráta. Þeim finnst eins vænt um Paul eins og mér, Ger- ard, Borek er viss um að Paul er einhvers staðar í Bæheimi und ir dulnefni. Pazderka. þrátt fyr- ir hans nöldur og bölv bráðnar hann allur, er hann heyrir í dyra bjöllunni. Hann revnir að sann- færa sig um, að Kral muni koma ag kveðja hann, áður en hann flýji. Borek ráðlagði mér að fara til einhvers prests í Prag, sem liann sagði, að Kral trúði fyrir öllum sínum vandamálum. Hann lét mig fá heimilisfangið, en hús- ið varð innsiglað og presturinn í fangelsi. Kommúnistanjósnari fylgdi mér hvert fótmál og eftir því sem þú segir núna einnig amerískur njósnari .... Hvað verður um mig? Mig langar að minnsta kosti að sjá gröf Joan. j Hefurðu skrifað þetta allt, Ger- j ard? Skrifaðu dálítið meira, en ( það er fvrir þig einan—“. Hún titraði eins og henni væri illt. ,,Ef ég hefði ekki hitt hann mundi ég hafa komizt hjá þess- um harmi og þjáningum. En — gleymdu ekki að skrifa þetta einnig — ég er mjög þakklát fyr- ir allar þær þjáningar og allan þennan harm. Mér finnst eins og ég sé núna nýfædd og sé nú að- eins rétt byrjuð að lifa. Við skul- um hætta hérna, Gerard, ég vil komast út. Ef ég verð ekki kom- in aftur eftir fjórar vikur, viltu þá koma hingað og líta eftir hlut unum. Ég læt þig fá lykilinn. Viltu þá segja upp íbúðinni, taka peningana úr peningaskápnum og láta frú Olgu Brunner fá þá. Segðu henni — þú telur það ekki eftir þér að skrökva svolítið fyrir mig? — segðu henni, að Eric líði vel og hann fari bráðlega frá Þýzkaiandi og að hann hafi sent henni peningana. Segðu henni einnig — nei, þetta er allt. Við skuium koma héðan burtu.“ Á leiðinni tii flugvallarins snerti Morgan Margaret alltaf öðru hverju. Andlit hennar var blíðlegt og innilegt. Það var gott að vera við hiiðína á henni núna, það mundi ekki vera eins gottí þegar þau kæmu út á flugvöllinn, og þess vegna ók hann hægt og rólega, hnyklaði brýrnar og and- varpaði stöku sinnum. Margaret hugsaði' Ég vona, að það verði ekki of óþægilegt þegar við kveðjumst í síðasta sinn og segjum einhverja vitleysu. Morgan hugsaði: Það verður það versta að biða á flugvellin- um. Ef ég hefði hugsað meira um það hvað hún er, en minna um það, hve gömul hún er, getur ver- ið að þessi gagnslausa ferð hefði aldrei verið farin. Hvers vegna er það svo gott að vera hérna við hliðina á henni? Þau voru þögul, er hann hjálp- aði henni með töskurnar og fór með hana gegnum tollinn. „Gerard, ég mun andvarpa feginlega, þegar ég verð komin upp í loftið.“ Þetta var það fyrsta sem hún sagði langan tíma. „Ég mun aðeins andvarpa. Þarna sérðu, Margaret, við erum ekki einu sinni sammála núna.“ Hann hló svo hátt, að vörðurinn leit illilega til hans. Margaret roðnaði og hann beit reiðilega saman vörunum. Hún reyndi að vera gaman- söm: „Gættu þín, Gerard, þessu fólki finnst hláturinn vera tilefni til gremju.“ „Mér mundi vera alveg sama, ef þér þætti hann ekki svona léið inlegur. Við skulum fara inn í biðstofuna. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur út af ferðatöskunum — þeir fara með þær beint í flug- vélina.“ Biðstofan var yfirfull af fólki og reyk. Enska var mest áber- andi meðal farþeganna, þar voru lágar raddir og dálítið hræddar, en frá einu horninu heyrðist hávær, tilbreytingarlaus og ó- hrædd rödd. Flestir farþeganna litu í áttina og reyndu að sjá manninn. Morgan leit einnig í þá átt. Hann tyllti sér á tá til þess að sjá betur. En skyndilega var eins og hann yrði allur á nálum. Hann baðaði út höndunum, brosti og stamaði: „Margaret, gerðu það fyrir mig, vertu ekki reið, en ég verð að fara strax. Ég gleymdi því alveg, að sendiherrann var búinn að biðja mig að finna sig. Goða ferð og —“ „Hvað kom fyrir, Gerard? Ég skai exki haida þér —• en einhver hérna hefur hrætt þig Segðu heidur einhverjum söguna um sendiherrann, sem þekkir þig ekxi eins vei og ég.“ „Þú gazt þer rett, vina mín. Ég er aliur á náium, en það mundi ekkert gera tii, ef það væri ekki sendiherrann. Ég get ekki látið hann biða. Hvers vegna get- urðu ekki treyst mér?“ „Þú ert dáiaglegur! Um leið og þú skynjar vandræði, viltu kom- ast í burtu.“ „Það verða engin vandræði á þinni braut, vina mín. Má ég kyssa þig, Margaret, að minnsta kosti á vangann?“ „Hvers vegna aðeins á vang- ann?“ Hann rétt snerti varir hennar. Hann iðaði allur af óþolinmæði. Hann brosti eins og trúður, er hann fór út úr biðstofunni og kyssti á fingur til Margaretar og veifaði ákaft. Hvað hafði komið fyrir hann? Hver hafði hrætt hann? Þessi mál gefni háværi maður í horninu? Margaret ruddi sér braut gegn- um hópinn til þess að sjá, hver hefði hrætt manninn, sem sagð- ist ekki hræðast neinn eða neitt, ekki styrjaldir, né byltingar né leynilögregluna. í horninu sat lítill sköllóttur maður með rautt nef og gleraugu og talaði við vandræðalegan Bessunaut sinn. Uungfrú Poll- inger kom nú nær og heyrði: „Og svo til þess að gera þetta enn verra, varð ég veikur og varð að fara á sjúkrahús. Þessi bölvuð blaðra angraði mig enn. Eftir öll þessi vandræði varð ég að skipta farmiðanum og fara seinna, en nú er ég hingað kominn, guði sé lof, og ef við förumst ekki á leið inni verðum við bráðum í Omaha. En takið eftir þessu — þetta getur komið fyrir alla nú á dögum, sem leita að týndri ferðatösku. En ég er reiðubúinn að játa það að þessi leit var orðin að einhverri ástríðu hjá mér. En mig langar til að vita þetta: Hvað er að því að leita að sínum eigin eignum. Ef það væru eignir eins og kastali, eða gullnáma eða mikið af verð- mætum skartgripum — látum það þá vera! En þegar það er bara ferðataska — gömul hálftóm ferðataska!" SÖGULOK. Góður bíll Nýr eða nýlegur, lítið keyrður bíll óskast. til kaups. !; ■! ■! 4ra—5 og 6 manna bíll kemur til greina. Z ■’ Uppl. í síma 82164. : íbúðaskipti 5 herbergja íbúð í velbyggðu steinhúsi á hitaveitusvæði á einum bezta stað í bænum, getur fengist í skiptum fyrir 3—4 herberbja íbúð í vönduðu steinhúsi gegn hæfilegri milligreiðslu. Tilboð, er greini stað og stærð, sendist Morgunblaðinu fyrir 31. þ. m., merkt: „Hitaveita —600“. Diesel-bílmótor Herkúles dieselvél til sölu. Upplýsingar hjá Jóhanni Péturssyni, Sími 5711. Bifreiðalökk Grunnur Spartzl Gisli Jónsson & Co. r i | velaverzlun Ægisgötu 10 — sími 82868. Snyrtimenxti vilja helst BRYLCREEM Hvílíkur munur á hári sem er líflegt, með fallegum gljáa, og þvi hári, sem er klesst niður með mikilli feiti eða olíu. Gætið þess að hár yðar sé snyrtilegt og vel greitt með Brylcreem hinu fullkomna hárkremi. Með Brylcreem greiðist hárið vel, án of mikillar feiti, vegna þess að i Brylcreem er fitu-efnið i uppleystu ástandi. Með Brylcreem fer hár- íð vel og gljáir daglangt. Nuddið Brylcreem vel inn i hársvörðinn, það styrkir hann, minnkar flösu og gerir þurt hár líflegt og mjúkt. Notið ávallt Brylcreem og hár yðar verður gljáandi, mjúkt og fallegt. Hið fullkomna hárkrem B E R U BIFREIÐ4KERTIM þýzku, fást í bifreiða- og vélaverzlunum. Heildsölubirgðir: RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS H.F. REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.