Morgunblaðið - 27.03.1955, Blaðsíða 16
Veðurúflit í dag:
Austankaldi. Léttskýjað.
72. tbl. — Sunnudagur 27. marz 1955
Reykjavilsrbréf
er á blaSsíSa •.
stofnað við læknadeild
í lífeðlis og lífefnafræði. Veitt frá hausti 1956
I
AL Þ I N G I hefur samþykkt lög um það að stofna nýtt profesc-
orsembaetti í læknadeild Háskólans í lífeðlis- og lífefnafræði.
Verður það veitt frá 15. september 1956 að telja.
FELLD NIÐUR ÁKVÆÐI
UM RANNSÓKNARSTOFU
Við umræður í Neðri deild Al-
þingis skýrði Kjartan J. Jóhanns-
^on þingmaður ísfirðinga ýtar-
lega frá frumvarpi þessu, sem er
flutt af menntamálaráðherra —
Frumvarpið var í fyrstu í nokk-
•uð annarri mynd. Var í upphafi
þar m. a. fjallað um starfrækslu
rannsóknarstofu í líffæra- og líf-
eðlisfræði, sem rétt þótti að fella
niður að sinni.
UNDIRBÚNINGSNÁM
Þessi sérgrein, lífeðlis og líf-
•efnafræði, er ein þeirra náms-
greina, sem kennd er í undirbún-
ings eða forskóla hins eiginlega
læknisfræðináms. Auk þess vinn-
ur prófessor í þessari fræðigrein
að rannsóknum og vísindastörf-
•um eftir því sem aðstæður leyfa.
ERFITT AÐ FÁ
SÉRFRÆÐINGA
í FRÆÐIGREINUM
Þess er ekki að vænta að lækn-
ar almennt leggi mikla stund á
þessa sérgrein, sagði Kjartan,
nema þeir eigi víst starf í henni
að námi loknu. Er mér sagt, að
einn íslenzkur læknir hafi stund-
að þessar námsgreinar og kennt
þær við erlendan háskóla, en þó
er alveg óvíst að hann fengist til
að koma hingað heim og úr því
fæst ekki skorið nema embættið
sé stofnað og auglýst til umsókn-
ar. Fáist þá enginn, er lokið hef-
Ur nauðsynlegu undirbúnings-
Jiámi, verður að teljast eðlilegt
að skipa embættið þeim manni,
er efnilegastur teldist af um-
sækjendum og veita honum árs-
leyfi í byrjun til þess að undir-
búa sig undir kennsluna og koma
fótum undir vísindastarfsemi þá,
sem hann væntanlega vinnur. í
þessum tilgangi er ákveðið að
fresta veitingu embættisins þar
til haustið 1956.
GFVAXIÐ
EINUM MANNI
Kjartan skýrði frá því að
það hlyti að vera ljóst öllum,
að einum manni væri ofvaxið
að annast alla kennslu í líf-
færa og iífeðlisfræði við há-
skólann. Þá tók hann það og
fram, að hann teldi það óeðli-
legt að verkleg kennsla og
tækifæri kennarans til sjálf-
stæðra rannsókna væri bund-
ið því skilyrði að hann vinni
eða Iáti starfrækja rannsókn-
arstofu á eigin ábyrgð fyrir
aðra aðilja. En það er mál sem
ekki er rétt að taka upp í sam-
bandi við þetta nauðsynjamál,
heldur ætti að taka það upp
við afgreiðslu næstu fjárlaga.
Sæmdir Fálka-
orðunni
FORSETI ÍSLANDS hefur ný-
lega, að tillögu orðunefndar,
sæmt þessa menn heiðursmerkj-
um Fálkaorðunnar, sem hér seg-
ir, fyrir störf í j)águ Alþingis: j
Jón Pálmason, alþingismann,
stórriddarakrossi með stjörnu.
Jörund Brynjólfsson, forseta
Sameinaðs Alþingis, stórriddara-
krossi með stjörnu.
Bernharð Stefánsson, alþi\gis-
mann, stórriddarakrossi.
Gísla Jónsson, forseta Efri
deildar Alþingis, stórriddara-
krossi.
Sigurð Bjarnason, forseta
Neðri deildar Alþingis, stórridd-
arakrossi.
Þá hefur forseti einnig, að til-
lögu orðunefndar, sæmt Jón Ás-
björnsson, hæstaréttardómara,
stjörnu stórriddara fyrir emb-
ættisstörf. (Frétt frá orðuritara).
Betur sjá
augu en
auga
Morgunbla&ið óskar
samvinnu við
áhugaljósmyndara
GÓD fréttamynd er h-verju dag-
blaði mikiis viiðL Eu þótt blöð
hafi sína eigin ViósmLyndara hlýt-
ur þó alllat margt að fara fram-
hjá þeim. Þeir geta ekki verið
allsstaðai' nálægix, og betur sjá
augu en auga. ÞaA er þcssvegna
mjög mikils virðl að vinir og
velunnarar Morgonblaðsins í
hópi áhugaljósmyndara séu
því hjálplegir með útvegun
mynda af atburðum, sem gerast
á hinum ýmsu sviðum þjóðlífs-
ins.
Morgunblaðið beinir því þeim
tilmæium til þeirra lesenda
sinna, sem við ljósmyndanir fást,
að þeir sendi því myndir, sem
þeir kunna að taka og ætla má
að hafi fréttagildi, bæði frá
framleiðslustörfum til sjávar og
sveita, og frá hverskonar atburð-
um, sem almenningur lætur sig
varða. Fyrir hverja slíka mynd, i
sem blaðið birtir mun það greiða
100 krónur. Mun ljósmyndarans
jafnframt getið er myndin kem-
ur í blaðinu.
Sundmóf í sundhöll-
inni á þriðjudags-
kvöld
íkveikjuæði
ÍKVEIKJÚÆÐI virðist hafa
gripið um sig hér í bænum, því
undanfarna tvo daga, í gær sex
sinnum. Hafa bílar slökkviliðsins
tæpast stöðvast vegna sinuelda,
sem slökktir hafa verið í úthverf-
um bæjarins. Hér eru það börn
og unglingar, sem eru að verki.
Tómas skáld Guðmundsson hefur í fallegu kvæði lýst vorkomunni
í Vesturbænum. — Þar eru karlarnir nú sem óðast að búa báta
sína á hrognkelsaveiðar. Enn er aflinn tregur, og metaflinn mim
vera 40 stykki í róðri hjá útvegsbændum við Grímsstaðaholt. Þar
munu umsvifamestir í hrognkelsaútgerðinni Björn Björnsson Gríms-
stöðum og Kristján Kristjánsson í Björnshúsi. Fyrir ofan Gríms-
staðaholtsvörina, þar sem bátanaustið er, rísa glæsileg hús, sein
byggð hafa vcrið á siðustu árum. Maðurinn undir dekkbyggða
bátnum er að botnhreinsa og hann kvaðst vonast til að komast á
færaveiðar hið fyrsta. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Aburðarverksmiðjan er nú
starfrækt með íslenzkum leir
Stöðvun var yfirvofandi vegna þess
að hráefnið er fast í Gullfossi
UR íslenzkum hráefnum í stað danskra, sem ekki fékkst leyfí
til að losa úr Gullfossi frekar en aðrar vörur, er áburðurinn
framleiddur um þessar mundir í Áburðarverksmiðjunni.
Sinfóníuhljómsveit Ríkisúfvarpsins:
Ingvar Jónsson og Jón Sen
leika einleik með hljómsveitinni
Tónleikar í Þjóðleikhusinu n.k. þriðju-
dagskvöld undir stjórn Olavs Kielland
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Ríkisútvarpsins heldur tónleika n.k.
þriðjudagskvöld í Þjóðleikhúsinu. — Stjórnancti verður Olav
Kielland og einleikarar á fiðiur Ingvar Jónasson og Jón Sen.
OLAV KiELLAND STJORNAR
Næstu tónleikar Sinfóníuhljóm
sveitar Ríkisútvarpsins verða
haldnir í Þjóðleikhúsinu n. k.
þriðjudagskvöld kl. 7. Eru það
fjórðu tónloikar hljómsveitarinn-
ar á þessu ári og aðrir tónleik-
arnir sem Olav Kielland stjórn-
ar.
INGVAR OG JÓN
EINLEIKARAR
Á efnisslrrá hljómsveitarinnar
að þessu sinni er Konzert fyrir
tvær fiðiur og strengjasveit eftir
Bach og verða einieikarar þeir
Ingvar Jónasson og Jón Sen. Hef-
ur hvorugur þeirra leikið einleik
með Sinfór.íuhljórnsvnitinni :cyrr,
en eru báðir vel kunnir fyrir
fiðluleik sinn hérlendis. i
BRAHMS OG TSCHAIKOWSKY
Önnur verk í efnisskránni eru
Tragiskur forleikur eftir Brahms
og Fimmta sinfónían eftir
Tschaikowsky. — Rétt er að
vekja athygli á því að tónleik-
arnir hefjast að þessu sinni kl. 7.
Helga Haraldsdóttir verður
nieðal keppenda.
HIÐ árlega sundmót KR fer fram
n. k. þriojudagskvöld í Sund-
höllinni og hefst kl. 8,30. j
Flestir beztu sundmenn lands-
ins eru skráðir til keppni, þar á
meðal keppendur frá Keflavík
og Akranesi.
Keppt verður í þessum tíu
sundgreinum: 200 m. skriðsundi
karla, 100 m. bringusundi karla,
100 m. baksundi karla, 100 m.
skriðsundi kvenna, 100 m. bringu
sundi kvenna, 4x50 m. bringu-
boðsundi karla, 4x50 m. bringu-
boðsundi kvenna, 100 m. bringu-
sundi dreagja, 50 m. skriðsundi
drengja og 50 m. bringusundi
telpna.
Aðaifundur Spari-
KÍSILLEIR
Með síðustu ferð Gullfoss frá
Kaupmannahöfn var sent til
Áburðarverksmiðjunnar um 50
lestir af þurrkuðum kístilleir. Er
hann notaður til húðunar á áburð
inum, svo hann klessist ekki.
Mjög lítið magn fer af leirnum
á móti hverri lest af áburði eða
um 40 kg.
STÖÐVUN VOFÐI YFIR
En verkfallið var skollið á
þegar Gullfoss kom að utan, sem
kunnugt er, og því var nú verk-
smiðjan nær orðin leirlaus og
yfirvofandi var, að rekstur henn-
ar myndi stöðvast.
INNLENDI LEIRINN
En frá upphafi hefur verið gert
ráð fyrir því að nota innlendan
leir til þessa. Hafa farið fram
athuganir á leirlögum allvíða hér
á landi og m. a. upp við Gunn-
arshólma. En þær rannsóknir
hafa leitt í ljós að íslenzki leir-
inn er mjög góður.
Til þess að komizt yrði hjá
rekstrarstöðvun Áburðarverk-
on m$mmi
í FYRRAKVÖLD var aðalfundur
Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis ha.dinn. í stjórn af hálfu
ábyrgðarmanna voru endurkosn-
ir: Einar Erlendsson, húsameist-
ari, Sigmundur Halldórsson arki-
tekt og Ásgeir Bjarnason skrif-
stofustjóri.
Drengjaheim-
sókniíi á ílug-
völlinn
í DAG, srnnudag, verður efnt
til fyrstu heimsóknarinnar á
Reýkjavíkurflugvöll fyrir drengi
ef veður leyfir. Ráðgert er að
taka á móti tveim hópum, þeim
fyrri klukkan 10 árdegis, en þeim
síðari kl. 2 síðdegis. Farið verður
um flugvallarsvæðið, upp í flug-
turninn, þar sem flugumferðinni
er stjórnað, flugvélar skoðaðar
o. fl. En væntanlegir þátttakend-
ur eiga að koma að hliðinu fyrir
neðan Miklatorg, þar sem lög-
reglan hefur varðturn, og þar fá
þeir afhenta aðgöngumiða.
smiðjunnar, var nú gripið til
þessa leirs, en af honum voru
allmiklar birgðir til við verk-
smiðjuvegginn. Hafði hann verið
fluttur þangað, er matsveinaverk
fallið stóð sem hæst. Er hann nú
þurrkaður þar og notaður til húð-
unar á áburðinn.
Er fram liða stundir mun
Áburðarverksmiðjan stefna að
því að fá fullkominn vélakost til
þess að hagnýta íslenzka leirinn,
en til þess þarf nokkuð af vél-
um.
Ekki hægt að
afgreioa Esju enn
við Eyjar
ESJA kom aftur til Vestmanna-
eyja í morgun, en hún beið þar
á þriðja sólarhring fyrr í vik-
unni án þess að hægt væri að
vinna við skipið eða setja far-
þega í land.
Farþegar komust í land úr
skipinu í gær, en ekki var viðlit
að skipa neinum varningi upp
vegna brims. Beið Esja enn við
Eyjarnar í gærkvöldi. 8—11 vind-
stig hafa verið í Vestmannaeyj-
um siðustu viku.________ '
Maður rotaður '
MAÐUR nokkur hefur kært til
rannsóknarlögreglunnar yfir því,
að hann hafi verið sleginn í rot
á götu í fyrrinótt. — Maðurinn
skrámaðist mikið.
Maðurinn, sem var ölvaður,
var fyrir utan Alþýðuhúsið, er
hann var sleginn í rot, en til
árásarmannsins sést, er hann fór
upp í Ijósgrænan bíl, sem bar að
rétt í því. Bíll þessi ók svo norð-
ur Ingólfsstræti og beygði inn
Lindargötuna. Talið er að bíl-
stjórinn á bílnum muni ekki
hafa vitað um árásina og eru það
eindregin tilmæli rannsóknarlög-
reglunnar að bílstjóri þessi gefi
sig fram hið fyrsta.