Morgunblaðið - 23.04.1955, Síða 1

Morgunblaðið - 23.04.1955, Síða 1
16 síður 42 árgangur 90. tbl. — Laugardagur 23. apríl 1955 Prentsmiðja Morgunblaðsin* Kosningamar í Kópavogi eru hreinn skrípa- leikur Á FJÖLMENNUM fundi, sem haldinn var i Sjálfstæðisfélagi Kópavogs nú í vikunni, var rætt um afstöðu Sjálfstæðis- manna til atkvæðagreiðslu þeirrar, sem kommúnistar efna til í Kópavogi á sunnu- daginn. í fjörugum umræðum um þetta mál kom sú skoðun ein- huga fram, að þessi atkvæða- greiðsla væri tilgangslaus skrípaleikur, þar sem á ní- unda hundrað Kópavogsbúar á kosningaaldri hafa skriflega lýst vilja sínum í kaupstaðar- réttindamálinu. Var samþykkt með sam- hljóða atkvæðum að skora á allt Sjálfstæðisfólk og aðra andstæðinga kommúnista í Kópavogi, að mæta ekki á kjörstað. Félög hinna lýðræðisflokk- anna munu hafa tekið sömu afstöðu í þessu máli. Verða það því ekki nema kommún- istar einir, sem taka þátt í at- kvæðagreiðslunni. 120 MANNA DANSKT LOG- REGLUUÐ TIL FÆREYJA WASHINGTON 22. apríl. Norð- menn fá 40 milljón dollara lán í Bandaríkjunum. Af þessum 40 milljónum lánar alþjóðabankinn 25 milljónir dollara, en 15 mill- jónír verða boðnar út í verðbréf- um um gjörvöll Bandaríkin. Norðmenn ætla að verja lán- inu tii kaupa á iðnaðartækjum. Um helming bankalánsins verður breytt í sterlingspund og hollen'zk gyllini. Áður höfðu Norðmenn fengið 25 millj. dollara lán hjá alþjóða- bankanum, í apríl 1954 og yfir- tekíð það að fullu í sept. sama ár. Eden lormaðor ins LONDON, 22. apríl. — Á fundi brezka íhaldsflokksins í gær var Sir Anthony Eden kjörinn for- maður flokksins í stað Sir Win- stons Churchills. BRUSSEL 22. apríl. — Búizt er við meir en milljón gestum á vörusýninguna hér, sem opnuð verður á morgun, laugardag. Á iðnaðarsýninguna í Liege er bú- izt við að komi um 200 þús. gestir. í shitlri hsimsókn VILHJÁLMUR FINSEN sendi- herra ísiands í Þýzkalandi er staddur hér í bænum. Hann kom með Lagarfossi frá Hamborg í fyrradag. Vilhjálmur Finsen ætlar að hafa hér aðeins^stutta viðdvöl, er hér til viðræðna við ríkis- stjórnina. Réftum 10 árum frá stríðslokum: Nckkrar dagsetningar HINN 2. maí hittast sendiherrar fjórveldanna í Vínarborg til þess að undirbúa friðarsamning við Austurríki. Hinn 5. maí verður (sennilega) ! Þýzkaland fullvalda ríki með því að endanleg staðfesting Parísar- ( samninganna hefir þá farið fram. Hinn 7. maí koma fulltrúar , meginlandsríkjanna og Bretlands 1 saman til þess að stofna form- lega Bandalag Vestur-Evrópu í samræmi við ákvæði Parísar- samninganna. Hinn 9. maí verður ráðstefna Atlantshafsríkjanna í París, þar sem Þjóðverjar verða formlega gerðir aðilar sem fimmtánda þjóðin í bandalaginu. Um miðjan maí eða síðar koma utanríkisráðherrar fjóryeldanna saman í Vín til þess að undir- skrifa friðarsamninga við Aust- urríki. Talsmaður ameríska utanríkis- ráðuneytisins sagði í gær (í sam- bandi við samningana við Aust- urríki), að það væri tvennt ólíkt að berjast fyrir bandamenn eða að berjast fyrir rétti ríkis til þess að vera hlutlaus. — Reuter. Senf með sérstöku skipi til að fram- kvæma fógetagerð Khöfn í gær. FMTT hundrað og tuttugu danskir lögregluþjónar lögðu af *' stað frá Danmörk í gærkvöldi, áleiðis til Færeyja og er erindi þeirra að brjóta á bak aftur viðnám Klakksvík- inga gegn því að nýr héraðslæknir verði settur til þess að þjóna þeim. Klakksvíkingar vilja halda gamla lækninum, sem hefur þjónað þeim um nokkurt skeið. Áður en lögregluþjónarnir voru sendir frá Danmörk hafði H. C. Hansen, forsætisráðherra Dana, haldið fund með formönnum dönsku stjórnmálaflokkanna og þeir fyrir sitt leyti fallizt á þá ákvörðun forsætisráðherrans að senda lögregluliðið til Klakks- víkur. Sérstök járnbrautarlest var send með lögregluþjónana til Esbjerg f gærkvöldi, og í morgun lagði liðið af stað í skipi, sem sérstaklega hefur verið leigt til fararinnar. Danska stjórnin tók ákvörðun- ina um sendingu þessa öfluga lög- regluliðs til Færeyja eftir að borizt hafði sérstök beiðni um að- stoð frá landsstjórninni í Færeyj- um. Ástæðan til þessarar beiðm eru ryksingar, sem urðu í Klakks vík í gær, fimmtudag. Mál þetta á sér langan aðdrag- anda. Fyrir nokkrum árum var yfirlækninum í Klakksvík, Hal- vorsen, sagt upp starfi. Læknir- inn neitaði að víkja úr embætti og hefur gert það fram á þenna dag. Læknirinn, sem skipaður var sem eftirmaður Halvorsens, hefur þar af leiðandi ekki getað náð rétti sínum. Nú ákváðu yfirvöldin í Fær- , eyjum að láta til skarar skríða ! og láta fógeta víkja Halvorsen úr embætti og fá starfið eftirmann- inum. í gær fór umboðsmaður j Dana í Færeyjum, og ennfremur fógetinn í Þórshöfn, ásamt lög- reglustjóranum þar og land- | stjórnarmanninum Mitens með gufuskipinu „Tjaldur“ frá Þórs- höfn til Klakksvíkur til þess að framkvæma fógetagerðina. En þegar til Klakksvíkur kom reynd ist vera þar fyrir liðssafnaður á í hafnarbakkanum og kom brátt í | ljós ag Klakksvíkingar voru stað- ! ráðnir í því að hindra að gerð ■ fógeta yrði framkvæmd. Skipti litlum togum, áður en Framh. á bls. 2 Akf ærir vegir d öllu land inu eru nú 9387 km Vegalögin verða nú opnuð, þjóðvegir auknir um 866 km Úr ræðu Sigurðar Bjamasoeiar á Alþingi SAMGÖNGUMÁLANEFNDIR Alþingis hafa ákveðið að „opna“ vegalögin á þessu ári. Leggja þær til að ýmsir nýir vegir verði teknir í tölu þjóðvega og nemur þessi aukning 866 km eða úr 7343 km í 8209. Er það 11,8% aukning. Sigurður Bjarnason framsögumaður samgöngumálanefndar Nd. Alþingis greindi frá þessu í ýtarlegri ræðu á Alþingi í gær. Hann benti á það, að nú væru akfærir vegir á landinu um 10 þúsund km og hafa þeir aukizt um rúmlega helming síðan 1937. í lok ræðu sinnar fór Sigurður miklum viðurkenningarorð- um um Geir Zoéga vegamálastjóra, sem hefur starfað óslitið að vegamálunum síðan 1911 og verið vegamálastjóri siðan 1917. „Ég býst við, sagði hann, að allir þeir sem starfað hafa í samgöngumálanefnd séu á einu máli um það, að samvizku- samari og betri embættismann sé ekki hægt að hugsa sér. En Geir Zoéga mun bráðlega láta af störfum, vegna aldurs- hámarks opinberra starfsmanna. bótartillagna bætzt við, næstum 1 frá hverjum þingmanni dreifbýl - isins. 11,8% AUKNING Komu nú samgöngumálanefnd- FJOLDI TILLAGNA NÝJA VEGI Sigurður Bjarnason hóf ræðu sína með því að skýra frá því að snemma í vetur hefðu komið fram frumvörp í báðum deildum Alþingis um breytingar á vega- ir beggja deilda Alþingis saman lögum. Hefur mikill fjöldi við-| Framh. á bla. 2 Khöfn í gærkvöldi. Frá fréttaritara vorum. SKIPIÐ Parkeston, sem flytur dönsku lögregluþjónana, er vænt- anlegt til Klakksvíkur á mánu- dagsmorgun. Er óttast að koma kunni til blóðugra bardaga. Lögregluþjónarnir hafa með sér skotvopn, en þeir gera sér þó vonir um að landgangan takist án þess að til stórra átaka þurfi að koma. Ristjóri „Dimmalaetting“, Eid Möller, segir í símtali við Ekstrabladet, að lýðveldisflokk- urinn reyni á allan hátt að gera sér mat úr því, hvernig komið er og megi ekki gera of lítið úr áhrifum hans. í bili hefir flokk- urinn látið nægja að senda út dreifimiða, þar sem krafist er að landsstjórnin segi af sér og að Lögþingið verði rofið. Færeyingar fordæma atburðina í Klakksvík, sem leitt hefur til þess, að- kallað hefur verið á danskt lögregluvald. Viðbúnaður tíl varnar gegn lög- regluliðinu Sigurdans í Klakksvík INTB fregn í gærkvöldi seg- ir að allt bendi til þess að íbúarnir í Klakksvík séu stað- ráðnir í því að standa þétt saman og veita dönsku lög- regluþjónunum sömu móttök- ur og embættismönnunum, sem komu á fimmtudaginn og sem stökkt var á flótta. Fréttaritari vor í Khöfn símar að íbúarnir í Klakks- vík hafi dansað og sungið í alla fyrrinótt í fögnuði sínum yfir sigrinum yfir stjórnar- völdunum. Veðurbitnir sjómenn vanrækja nú hin daglegu störf sín í fyrsta skipti um langt skeið (segir x NTB fregn) og sitja nú uppi við fjallsbrún og skyggnast eftir hinu danska skipi, Parkeston, sem flytur dönsku lögreglumennina. Allur fiskifloti Klakksvíkur var í dag kallaður heim, um tal- stöð. Ætlunin er að láta skipin leggj- ast sibyrt við innsiglinguna til Klakksvíkur og reyna með því að hindra að lögreglumennirnir geti komizt til bæjarins. Jafn- framt ætla bæjarbúar þó að vera við því búnir að lögreglumenn- irnir geti yfirstigið þetta fyrsta varnarvirki. Fara bæjarbúar ekki dult með það, að þeir ætli að hita lögregluþjónunum dönsku í hamsi og gera sitt ítrasta til þess að koma í v?j* fyrir að brott- flutningur hins vinsæla yfirlækn- is megi takast. Sala á skotvopnum hefur verið bönnuð um allar Færeyjar og einnig sala á skotfærum. Skipstj. á „Tjaldi“, sem flutti fágetann í Þórshöfn og fylgd- arlið hans til Klakksvíkur hefur skýrt svo frá í símtali við Kaup- mannahafnarblaðið „Ekstrablad- et“, að bæjarbúar í Klakksvík muni að því er hann fái bezt séð, ekki víkja um þumlung. Skipstjórinn segir að ekki hafi verið vitað fyrirfram um komu Bergs fógeta í Klakksvík, en fregnin hafi breiðzt út þegar í stað, eins og eldur í sinu, og á nokkrum mínútum voru götur orðnar þéttskipaðar af reiði- þrungnu fólki. Afleiðingin varð sú að aðkomumennirnir höfðu aldrei minnsta tækifæri til þess að koma fram embættisverkura sínum. Hinir óheppnu laganna þjónar, sem höfðu með sér lækninn, Dahl frá Þórshöfn, sem taka átti við embætti Halvorsens til bráða- birgða (segir NTB) áttu ekki annars kost en að taka til fótanna og forða sér um borð í Tjald aftur. Mannfjöldinn fylgdi rétt í hæl- ana á þeim og nokkrir menn hlupu þegar að landfestum og hjuggu þær í sundur. Varð skip- stjórinn að sigla burtu við svo búið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.