Morgunblaðið - 23.04.1955, Qupperneq 16
Veðurúilil í dag:
NA-kaldi. Lcttir til.
Frumsýning
í Þjóðleikhúsinu. — Sjá grein á
blaðsíðu 7.
Myndin hér að ofan var tekin á sumardag-inn fyrsta af mannfjöldanum, sem safnaðist saman við útihátíðahöldin í Lækjargötunni. Myndin er samsett og sýnir ljóslega
þann gífurlegt mannfjölda, sem þarna var. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Oddvilinn neilar að ræða við bæjarráð
um sameiningarhugmyndina
Hvernig ætlar hann að sameina án þess að
ræða við hinn sameiningaraðiljann?
AHREPPSNEFNDARFUNDI, sem haldinn var í Kópavogi
s.l. laugardag bar fulltrúi Sjálfstæðismanna, Jósafat
Líndal, fram tillögu um að skora á oddvitann, að gera fyrir-
spurn til bæjarráðs Reykjavíkur um afstöðu bæjarins til
sameiningar hreppsins við Reykjavík.
★ Bar Jósafat þessa tillögu fram vegna þess, að oddvitinn
hefur mikið talað um sameiningu við Reykjavík, en hins
vegar er ekki vitað til að hann hafi minnzt á þetta einu
orði við forráðamenn Reykjavíkur. Ljóst væri að fyrir kosn-
ingar þær sem efna ætti til um þetta, þyrftu kjósendur að
fá að vita, hvort tillögur hreppsnefndarmeirihlutans um
sameiningu við Reykjavík væru ekki út í bláinn. Hér þyrfti
að sjálfsögðu samkomulag tveggja aðilja.
Á- Oddvitinn brást hinn versti við þessari sjálfsögðu tillögu og
neitaði að ræða hana. Það er líka ljóst að hann hefur aldrei
minnzt einu orði á sameiningu við forráðamenn Reykja-
víkur. Sést því greinilega að ætlunin með kosningunum á
sunnudag er aðeins að tefja málið um kaupstaðarréttindi
svo að hann geti setið áfram í oddvitastöðu í nærri 4000
manna „hreppi“.
Brezkur landhelgisbrjótur
ætlaði að komast undan
Var dæmdur og varð að setja
rúml. 150 þús. kr. tryggingu
VARÐSKIPIÐ Ægir lét hart mæta hörðu í viðskiptum sínum
við brezkan nýsköpunartogara, Cape Cleveland frá Hull, er
tekinn var á veiðum í landhelgi á þriðjudagskvöldið. Gerði togar-
inn tilraun til að komast undan, en sá það ráð vænna að hætta við
þau áform, er Ægir fór að skjóta að honum kúluskotum. Skipstjór-
inn var dæmdur í 74000 kr. sekt í gær.
Fiölmenn hátíðahöld í fögru
veðri á sumardaginn fyrsfa
SENNILEGA hafa skrúðgöngur Barnadagsins aldrei verið fjöl-
mennari en í gær og geysimikill mannfjöldi safnaðist saman á
Lækjargötunni til þess að hlýða á 2000 börn syngja þar. Uppselt
var á allar skemmtanir dagsins og fóru þær vel fram.
í TVEIM RATSJÁM
Þetta gerðist um klukkan 11
á þriðjudagskvöldið. Ægir var þá
á eftirliti austur við Ingólfshöfða.
í tveim ratsjám skipsins, kom
fram togari, er reyndist vera 2,1
sjóm. fyrir innan fiskfriðunar-
línuna. — Ægir gaf togaranum,
sem reyndist vera Cape Cleve-
lend, fyrirmæli um að nema stað-
;r.
TIL HAFS — 6 SKOT
En skipstjórinn á togaranum,
mun hafa orðið varðskipsins var
og hafði sett á ferð og stefndi til
hafs. Veitti Ægir honum þegar
eftirför. Þessi brezki togari er
mjög nýr, fallegt skip og hrað-
skreytt. — Ægir skaut nú þrem
lausum skotum að togaranum, en
sk pstjóri hans lét engan bilbug
sér finna. — Tvö kúluskot voru
látin fylgja á eftir og við hið
þriðja nam togarinn staðar.
LIFANDI FISKUR
Var hann þá kominn um 3
sjóm. út fyrir friðunarlínuna. —
Skipverjar á Ægi sem fóru um
borð í togarann, til að tilkynna
skipstjóranum handtökuna fundu
lifandi fisk á þilfari skipsins, sem
.'./nilega var þar nýlega kominn.
Togaraskipstjórinn, sem heitir
Henry Saunderson, kvaðst ekki
hafa verið að veiðum í landhelgi
og var mjög ör og æstur. Hann
neitaði alveg að koma með varð-
skipsmönnum í bát þeirra yfir í
Ægi, til að ræða við skipherrann,
Þórarin Björnsson. — Kvaðst
ekki koma þangað fyrr en brezka
eftirlitsskipið Rathelsnake kæmi
á vettvang. Var beðið eftir því
þar til á miðvikudagsmorguninn.
Þá kom hann yfir í Ægi með
brezka skipherranum á eftirlits-
skipinu. — Var þar ákveðið að
sigla til Reykjavíkur.
RÚMLEGA 150 ÞÚS. KR.
TRYGGING
Á sumardaginn fyrsta var mál
skipstjórans tekið fyrir í saka-
dómi, og dæmdi Valdimar Stef-
ánsson sakadómari skipstjórann
í 74000 kr. sekt. Afli skipsins og
veiðarfæri voru og upptæk gerð
með dómnum. — í gærkvöldi
sigldi togarinn héðan og mun
hann hafa þurft að setja 155 þús.
króna tryggingu, en dómnum,
sem skipstjórinn neitaði, skaut
hann til Hæstaréttar.
Ein les! í nel
STYKKISHÓLMI, 20. apríl —
Bátar héðan eru nú almennt að
búa sig undir netjaveiðar. Vél-
báturinn Brimnes fór út í gær
með tíu net og fékk í þau 10 lest-
ir, eða eina lest í net að jafnaði.
Er það mokafli. Lagði hann netin
innarlega í Breiðafirði.
Fljól ferð með
mikinn farm
„LAGARFOSS" kom til Reykja-
víkur kl. 16 í gær, eftir fjögra
sólarhringa og átta stunda sigl-
ingu frá Hamborg. Tafðist skipið
þó rúma tvo tíma við það, að
það varð að fara til Cuxhaven og
flytja þar á land skipverja, sem
slasazt hafði í vélarrúminu svo
alvarlega, að ekki var þorandi að
sigla með hann til Reykjavíkur.
„Lagarfoss“ hafði að þessu
sinni óvenju stóran farm með-
ferðis. í Lettlandi tók skipið m.a.
65 bíla. Níu þeirra var komið
fyrir í lestarrúminu, en 56 voru
settir á þilfarið. Ofan á þessa bíla
voru settar 32 stórar dráttarvél-
ar og auk þessa var á þilfarinu
stór 52-manna bíll, sem verður í
föstum ferðum milli Akureyrar
og Dalvíkur. Allar lestar skipsins
voru troðfullar af vörum, samtals
um 2200 smálestir. Til Vestmanna
eyja hafði skipið meðferðis 10
smálestir af vörum, mest nælon-
net til útgerðarmanna. Skipið
kom þangað kl. 12 í fyrrakvöld.
en komst ekki inn í höfnina fyr
en 4 stundum síðar. Þar sem
Vestmannaeyingar stunduðu sjó-
róðra af svo miklu kappi, að
varla fékkst fólk til annarra
starfa, ákvað hinn góðkunni skip-
stjóri og dugnaðarmaður Harald-
ur Ólafsson að biðja fólk sitt að
afferma skipið, til að flýta ferð-
inni. Skipverjar afköstuðu þeirri
vinnu á 2V2 tíma, svo rösklega
hefur verið unnið. Gat skipið
þannig komizt út úr höfninni á
sama flóði.
Þessi ferð „Lagarfoss" mun
vera metferð, bæði hvað fljóta
ferð snertir og það vörumagn,
sem skipið flutti að landi.
Hrifning áheyrenda
mikil á lónleikum
sinfóflitihljómsveil-
arinnar
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Ríkis-
útvarpsins hélt hljómleika í gær
í Þjóðleikhúsinu undir stjórn
Olavs Kiellands. Efnisskráin var
mjög fjöibreytt og skemmtileg,
enda fögnuðu áheyrendur tón-
listarmönnunum óspart. Einleik-
ari með hljómsveitinni var
spánski hörpusnillingurinn Nic-
anor Zabaleta, og Guðmundur
Jónsson söng einsöng með hljóm-
sveitinni.
Á efnisskránni voru: Forleik-
ur að „Síðdegisævintýri skógar-
púkans“ eftir Claude Debussy,
Konsertþáttur fyrir hörpu og
hljómsveit eftir Camille Saint-
Saens, sex sönglög eftir Olav
Kielland við ljóð eftir Per Sivle
og Sinfónía nr. 7 í A-dúr eftir
Beethoven Þessi sinfónía varð
til árið 1812 og var fyrst flutt
opinberlega árið eftir Hún er oft
nefnd dans-sinfónían og skoðuð
sem einskonar lofsöngur dansin-
um til handa. Annar þáttur sin-
fóníunnar er talinn einhver full-
komnasti sinfóníuþáttur Beet-
hovens.
Hátíðahold dagsins hófust með
skrúðgöngum frá bæði Melaskól-
anum og Austurbæjarskólanum.
Voru þær báðar ákaflega fjöl-
mennar. Undirbúning skrúðgöng-
unnar önnuðust E. B. Malmquist
og Pétur Sæmundsson.
SUMARDÍSIN OG
FYLGDARSVEINAR
Fyrir skrúðgöngu Vesturbæj-
arins fór Sumardísin (Elsa
Pétursdóttir) og reið hún í söðli
á rauðum gæðing. Sat hún söðul-
inn með mestu prýði. Með henni
fóru tveir fylgdarsveinar einnig
ríðandi. Lúðrasveit lék einnig í
fararbroddi.
SEX RIDDARAR
Fyrir skrúðgöngu Austurbæj-
ar fóru sex riddarar í fornklæð-
um og lúðrasveit. Skrúðgöngurn-
ar mættust í Lækjargötunni fyr-
ir framan Gimli, en á blettinum
fyrir framan Gimli höfðu safnast
saman um 2000 börn og sungu
þau nokkur sumarlög undir
stjóm Ingólfs Guðbrandssonar
og með undirleik Lúðrasveitar
SVO virðist sem einn helzti
andstæðingur kaupstaðarrétt-
inda Kópavogs hafi nú gefizt
upp í andspyrnu sinni við mál-
ið. —
★★★★
Vakti það athygli að Hannibal
Valdimarsson bar fram breyt-
ingartillögur við Kópavogs-
frumvarpið, sem eindregið
virðast benda til þess að þessi
fangi kommúnista hafi nú
skipt um skoðun í meginatrið-
um___
★★★★
I breytingartillögum þessum
er m.a. fallizt á að Kópavogs-
hreppur fái kaupstaðarrétt-
indi. En Hannibal vill láta
skera hreppinn niður. — ViH
hann að kaupastaðarlandið
nái aðeins yfir landareignir
jarðanna Kópavogs og Digra-
ness. Þetta þýðir að hann vill
láta skera af t.d. byggðina við
Lögberg, Gunnarshólma og
kringum Vatnsenda.
★★★★
Þá vill Hannibal að bæjarfó-
getinn í Kópavogskaupstað sé
jafnframt sýslumaður í Kjós-
arsýslu.
★★★★
Að lokum er í frumvarpinu
undarleg grein, sem hlióðar
svo: ,,— — Lög þessi öðlast
þegar gildi, en koma því að-
Reykjavíkur. Einnig voru þai!
sýndir þjóðdansar.
ÆR MEÐ LÖMBIN SÍN
Á túninu við Gimli hafði ver-
ið komið fyrir tveim tvílembd-
um ám með lömbum sínum og
höfðu börnin gaman af að skoða
hin ungu vorlömb. Geysimikill
mannfjöldi safnaðist saman 1
Lækjargötunni og settu börnin
þar sinn svip á með litlum fán-
um sínum og skrautlegum spari-
klæðnaði sínum. En margir voru
þeir, sem söknuðu hinna glæsi-
legu skra itvagna, sem voru !
skrúðgöngunum í fyrra og mörg
voru þau börn er sþurðu mikið
eftir þeim.
I
19 INNTSKEMMTANIR
Á eftir útihátíðahöldunurrí
hófust inniskemmtanirnar. Voru
þær alls 19 og seldust allir mið-
ar að þeim upp á miðvikudag-
inn. Um kvöldið voru svo haldn-
ir dansleikir í þremur samkomu-
húsum. Blöð og merki dagsina
seldust mjög vel. Fóru hátíða-
höldin í alla staði prýðilega frarra
og veður var einnig mjög gott.
eins til framkvæmda, að meiri
hluti kjóseuua í hreppnum
hafi óskað eftir því“. Virðist
þessi grein með öllu óþörf, þat
sem á niunda hundrað kjós-
enda hafa þegar lýst yfir ósk-
um sínum um þetta. j
___________________ 1
Læknar geta fengiS
benzín 1
SEM kunnugt er fá bílat
lækna og ljósmæðra hér í bæra
um ekkert benzín vegna af-
greiðslubanns þess, sem verk-
fallsstjórnin hefir lagt á
benzín tii læknabíla.
Síðdegis í gær tilkynntu
olíufélögin þrjú, B. P., Esso
og Shell, stjórn Læknafélags
Reykjavíkur, að þau séu reiðu
búin til þess að leysa úr þessu
ófremdarástandi með því a3
afhenda benzín á bíla lækna
og Ijósmæðra. Kváðust olíu-
félögin mundu stjórna þessari
benzínafgreiðslu ef læknar
æsktu þess, frá einum og sama
sölustað.
I gærkvöldi hafði olíufélög-
unum ekki borizt svar frá
læknafélaginu, enda tæplega
við því að búast þar eð svo
áliðið var dags er erindi þetta
var serat.
Andstæðingi kaupstaðar-
réttinda snyst hugur
Hannibal vill skera Kópavogshrepp
niður og stofna kaupstað