Morgunblaðið - 12.05.1955, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.05.1955, Blaðsíða 8
24 MORGVTSBLAÐIÐ Fimmtudagur 12. maí 1955 ★ Dvalið í vörðuhálsi skála Fjallamanna á Fimm- í Dymbilviku UM páskaleytið lögðu fimm ungir háskólastúdentar land undir fót, héldu austur undir Eyjafjöll og ætluðu að ganga á Eyjafjallajökul. Voru það þeir Magnús Hallgrímsson, Jóhann Lárus Jónasson, Haukur Árna- son, Eiríkur Sveinsson og Leifur Jónsson. Eru þeir félagar allir vanir skíðaferðum og fjallgöng- um. Fréttamaður Mbl. hitti Magnús að máli — önnum kaf- inn við próflestur — og skýrði hann stuttiega frá páskaför þeirra félaga. Á föstudag fyrir Pálmasunnu- dag héldu þeir austur að Skóg- um. Um þessa helgi stóð einmitt yfir árshátíð Skógaskóla, og fengu ferðafélagarnir þar hinar prýðilegustu viðtökur. Höfðu þeir ætlað að halda þaðan beint til skála Fjallamanna á Fimm- vörðuhálsi, en að Skógum var þeim tjáð, að skálinn hefði ekki verið notaður all lengi og mundi því ekki vera í sem beztu ásig- komuiagi. Þótti þeim félögum því viss- ara að ganga úr skugga um að skálinn væri íbúðhrb.æfur, áður en þeir ákvæðu að dvelja þar alla dymbilvikuna. Á laugardag héldu þeir Magnús, Johann og Haukur á brattann til að kynna sér aðstæður í skálanum. Aðkoman var ekki fýsileg. Ganga varð röskiega tii verks með skóflu og ísöxi, áður en hægt var að komast í húsaskjól. Tveir fimmmenninganna sjást hér vinna að því að moka snjóinn úr dyrum skálans. Skálinn ttendur i 1000 m hæð, hæsti skáli á landinu, Annar hæsti skáiinn er á Tindfjallajökli í 800 m hæð. Aðkoman að skál- Skelft hafði inn um hverja smáglufu og talsvert snjólag var á gólfinu í skálanum á Fimmvörðuhálsi. Á leið upp á Sólheimajökul. anum var nokkuð kuldaleg, ís- hella fyrir dyrunum, en virtist þó sæmilega byggilegur, ef vand- lega yrði mokað út úr honum. Á Pálmasunnudag gengu þeir á Sólheimajökul, skriðjökul út úr Mýrdalsjökli. Jökullinn er sprunginn nokkuð að framan þar,1 sem hann tellur niður fjallshlíð- ! ina, en greiðfær og sléttur, eftir ( að komið er upp á brún. ' — ★ — Veður vai ágætt á mánudags- morguninn, og lögðu fimmmenn- ingarnir þá upp á hálsinn, klyfj- aðir svefnpokum og matvælum. j Skálinn liggur fjögra til fimm ! klukkustunda gang fiá Skógum. Ekki var gengt í skálann fyrr en mokað hafði verið ut snjón- , um í forstofunni, og næstu tveir I dagar fóru að mestu leyti í að j skafa hrímið úr rjáfrinu, af veggjunum og moka skaflana úr hornunum. Ekki var hægt að hita skálann fyrr en að snjómokstr- inum afloknum. Notuðu þeir félagar skóflur og ísaxir við verkið. — ★ — Á þriðjudag og miðvikudag var ofstopaveður, rok, snjókoma og j dimmt yfir. Hættu þeir félagar sér ekki út til að ná í matvæli er þeir höfðu grafið í fönn, á þriðjudag, nema með því að hafa menn „í línu“, þar sem varla var stætt úti fvrir. Veður var einnig vont fyrri hluta fimmtudags, og urðu fjall- göngumennirnir að láta.sér nægja að renna sér á skíðum í nágrenni skálans, þó að þá fýsti að klífa Eyjafjallajökul. Nokkuð stytti upp síðdegis, og fóru þeir þá stutta hringferð upp á jökulinn, en þoka var á og úrkoma og heldur ógreiðfært. — ★ — inni. — Myndin er tekin af Ileljarkambi norður yfir. Til vinstri á miðri myndinni sjást Krossáreyrarnar, norður af þeim rísa Sleppugils- hryggir og Tindfjallajökull sést í baksýn. ÍJtsýn yfir Þórsmörk af Heljarkambi. Fremst á myndinni sést ÍJtigönguháls, Réttarfell til vinstri og Valahnjúkur á miðri mynd- Að morgni föstudagsms langa var þokuslæðingur en heldur bjartara, og ákváðu ferðalang- arnir að ganga yfir Morisheið- ina niður í Þórsmörk. Bjuggust þeir við að hitta þar fyrir Ferða- félagið, er áformað hafði Þórs- merkurför um páskana. Fóru þeir niður Heljarkamb, sem er eini færi staðurinn niður af jöklin- um norðanverðum á skíðum. Óðu þeir síðan Krossá og gengu að skála Ferðafélagsins, er stendur undir Valahnjúki. Dvöldust þeir félagar' í skálan- um allan iaugardagmn og fram á Páskadagsmorgun, þar sem úr- koma var mikil — allt að því skýfall og Krossáin í foráttu- vexti. Lét Magnús vel af dvölinni í skálanum, en „við vorum matar- litlir og höfðum ekki svefnpoka meðferðis" Höfðu þeir ekki búizt við að dv°lja þar svo lengi og haft sem mmnstan farangur með- ferðis til að hann yrði ekki til trafala. — ★ — Ferðin til baka á páskadag gekk greiðlega, þó að þoka skylli á og úrkoma á Heljarkambi. Síð- degis birti aftur til og „vonuð- umst við þá til að geta gengið á Eyjafjallajokul næsta dag, en með morgninum skall enn á ný á stórhríð og ofsarok“. Sáu þeir félagar þá sitt óvænna og lögðu af stað heimleiðis. Urðu þeir að ganga eftir áttavita, því að ekki sá út úr augunum. Er þeir voru komnir niður í 500 m hæð breyHist hríðin í hellirign- ingu og komu þeir holdvotir í Skóga. Þó að þeim félögum reyndist ókleift að ganga á Eyjafjalla- jökul, hefir ferðin vafalaust verið til fjár á sinn hátt — enda er varla hægt að verja páskafríinu betur en í fjallgöngur og í iðkun skíðaíþróttarinnar. AÐALFUNDUR Félags íslenzkra bifreiðaeigenda var haldinn í Skátaheimilinu við Snorrabraut föstudaginn 29. apríl s. 1. For- maður félagsins, Sveinn Torfi Sveinsson gat um helztu störf félagsins á liðna árinu, en þau voru þessi. Eins og undanfarin ár bauð F.Í.B. vistfólki af Elliheimilinu í sumarferðalag til Þingvalla, tókst sú ferð mjög vel og þátt- takendur, sem voru innan við 200, skemmtu sér mjög vel eins og til var ætlast. Á s. 1. sumri sá félagið um að félagsmenn þess gætu fengið ókeypis aðstoð vegna bilaðra bíla þeirra á le'ounum Reykjavík um Hellisheiði i Grímsnes, og Reykja vík um Mosfellsheiði í Grímsnes. Starfsemi þessari var haldið í um 10 helgar og nutu hennar samtals 189 bifreiðar. Margskonar bilan- ir áttu sér stað, allt frá lítilfjör- legri benzínstíflu, upp í bíl á hvolfi. S. 1. haust jók félag’ð enn þjón- ustu sína við félagsmenn með því að bjóða þeim ókeypis aðstoð kranabíls, eða annars tækis til að- stoðar ef bifreið viðkomanda var ekki ökufær vegna bilunar á veg- um úti, þjónusta þessi er miðuð við að farið sé með bifreiðina til næsta viðgerðarstaðar. Á vegum félagsins fóru eins og undanfarin ár margar bifreið- ar til útlanda. Tryggingarmál bifreiöa hefir stjórn félagsins athugað mjög mikið, og mun seinna gera grein fyrir athugasemdum við þau. Gjaldkeri félagsins las upp endurskoðaða reikninga fyrir árið 1954. sem voru einróm.a samþykktir. enda hagur félags- ins góður. Stjórnarkosning: Úr stjórn félagsins gengu tveir menn þeir, Sveinn Ólafsson, og Sigurður Helgason, sem báðir óskuðu ekki eftir endmkosningu, en í þeirra stað voru kosnir til tveggja ára þeir, Björn Þorláksson hd. og Sören Sörensson ftr., en fyrir voru í stjórninni þeir Sveinn Torfi Sveinsson, form., Magnús H. Valdim;-rsson, ritari, og Axel L. Sveins, gjaldkeri. í varastjórn voru endurkosnir peir, Aron Guðbrandsson og Oddgeir Bárð- arson. Endurskoðendur voru og endurkjörnir þeir Jón Helgason og Niels Carlsson. Ritstjóri Öku- þórs var sömuleiðis endurkjör- inn Viggó H. Jónsson. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar á fundinum: Aðalfundur F.Í.B. haldmn föstu daginn 29. apríl 1955 í Skáta- heimilinu, samþykkir að beina þeirri áskorun til stjórnarvald- anna að eígi verði lengur dregið að taka unp hægrihandar akstur hér á landi þar sem slíkur drátt- ur verður aðeins til þess að auka kostnað b; nn sem breytingunni er samfara. Aðalfundur F.Í.B., samþykkir að beina þcirri ósk til hinnar ný- skipuðu Umferðarnefndar að hún leggi til að skilyrðislaust verði krafizt að allar bifreiðar verði útbujnar stefnuljósum og enn- fremur að vanræksla í notkun þeirra og viðhaldi verði látin varða viðuilögum eins og önnur brot á umíerðareglum. Aðalfundur F.Í.B. ‘beinir hér með kröftugum mótmælum til ríkisstjórnarinnar vegna þeirrar óhæfu er f. amkvæmd hefir verið í sambandi við nýafstaðið verk- fall, að gefa sakborningum upp allar sakir iyrir ýms alvarleg af- brot sem f-amkvæmd hafa verið í skjóli þess að slíkar sakir séu Frh. á bls. 31. gst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.