Morgunblaðið - 12.06.1955, Side 8

Morgunblaðið - 12.06.1955, Side 8
MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 12. júní 1955 Út« H.í. Árvakur, Reykjavlk. IVamkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vl«it Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni GarSar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriítargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. t lausasölu 1 krónu eintakið. Hvað gerist á fjórveldafundinum ? Helgi Daníelsson markvörður ReykjavíkurliSsins ver hnitmiðað skot frá Þjóðverjunum. — Ljósm. Ól. K. M. ÞAÐ er sannarlega kaldhæðni örlaganna, að gamli stjórnmála- skörungurinn Winston Churchill, skuli nýlega hafa fengið stjórn- artaumana yngri manni í hend- ur, einmitt þegar vonir standa til að fjórveldafundur sé á næstu grösum. Fyrir tæpum tveim árum kom Churchill fyrst fram með þá hugmynd sína, að æðstu menn Bretlands, Banda- ríkjanna, Frakklands og Sovét- ríkjanna, kæmu saman til vin- samlegra og persónulegra við- ræðna, þar sem þeir reyndu að jafna deilumál sín og skapa sam- hug og bróðerni í skiptum sín- um. Huðmynd þessi var Churc- hill svo kær, að hann reyndi að koma henni fram hvað eftir ann- að, en tókst ekki af ýmsum ástæðum. Nú er loks orðið Ijóst að fáum vikum eftir að Churc- hill fór frá völdum verður fjórveldafundurinn loks hald- inn. Mun hann verða í Genf og samkvæmt því sem Sir Anthony Eden tilkynnti í gær hefst hann 18. júlí og lýkur þremur dögum síðar. En þessi fundur kemur til með að verða gjörólíkur því, sem hann hefði orðið, ef Churchill hefði fengið vilja sínum fram- gengt fyrir einu ári. Ástandið í alþjóðamálum hefir gjörbreyzt nú síðustu vikurnar, sökum hinnar nýju utanríkisstefnu Rússa, að með eindæmum er. Eitt helzta umræðuefnið á slík- um fjórveldafundi hefði tví- mælalaust orðið friðarsamning- arnir við Austurríki. Um þá hafði staðið þóf í nær heilan áratug og Rússar komið ávallt í veg fyrir að samkomulag næð- ist. Nýlega ventu þeir skyndi- lega sínu kvæði í kross og gengu til samkomulags um Austurríkis- málin og fluttu her sinn þegjandi og hljóðalaust burt úr landinu. Ef Sovétstjórnin væri fús til að sýna slika stefnubreytingu í fleirum málum væri hægt að leysa flest vandræði Evrópu á íáum vikum og koma friði og ró á i álfunni, og stríðsóttinn myndi jafnramt hverfa sem dögg fyrir sólu. Það er nákvæmlega eins með flest önnur deilumál álf- unnar sem Austurrikismálin, að Rússar einir hafa haldið þar uppi þvermóðskufullri andstöðu og neitað sífellt að ganga til samkomulags. ★ Sem dæmi má nefna skiptingu Þýzkalands. Vesturveldin hafa gert allt, sem í þeirra valdi hefir staðið til þess að búa í haginn fyrir sameiningu landsins. — Sovétstjórnin hefir hinsvegar jafnan staðið sem veggur gegn sameiningu landsins og að baki hennar leppstjórn þeirra Ul- brichts og Piecks ■ í Austur- Þýzkalandi. Það er öllum ljóst, að jafnvægi og friður kemst aldrei að fullu á í álfunni fyrr en hið forna menningar- og iðn- aðarland er aftur orðið eitt ríki. Úrslit málsins hafa Rússar nú í hendi sér; að leyfa írjálsar kosn- ingar um gjörvallt landið og stofnun lýðræðislegra stjórnar- hátta. Án efa verður þetta mál eitt af meginatriðum þeim, sem odd- vitar Vesturveldanna reyna að ráða til lykta á Genfarfundinum. Þá munu kjarnorkumálin vafa- laust koma þar og til umræðu. Fyrir löngu hefðu þjóðir heims komizt að lokaniðurstöðu í þeim efnum, ef Sovétríkin hefðu ekki staðið sem veggur gegn öllum tillögum Vesturveldanna um takmörkun og eftirlit með fram- leiðslu kjarnorkuvopna. Rússar hafa ár eftir ár neitað að leyfa hlutlausri eft- irlitsnefnd Sameinuðu þjóð- anna aðgang að landi sínu og kjarnorkubirgðum leppríkj- anna og þannig komið í veg fyrir að um nokkrar raun- hæfar aðgerðir í málinu væri að ræða. ★ Þannig geta Rússar, ef þeim sýnist svo, höggvið á Gordíons- hnút alþjóðamálanna á Genfar- fundinum 18. júlí, og það hlýtur að vera von allra frjálsra þjóða, að þeir hverfi þar að nokkru frá hinni fyrri fjandsamlegu stefnu IMeðra-Saxlands úrvalið fór héðan ósigrað ^ Sigraði Reykjavíkvrúrval með 6:3 ÞÝZKA úrvalsliðið frá Neðra Saxlandi lék síðasta leik sinn að þessu sinni í fyrrakvöld. Mættu Þjóðverjarnir þá úrvali Reykja- víkurfélaganna. Leiknum lauk með sigri hinna þýzku, 6 mörk gegn 3 og hurfu þeir því héðan ósigraðir — eftir fjóra leiki og höfðu þá skorað 13 mörk gegn 7. vitateig, sem markmaður varði naumlega í horn og Hörður Feiixson (KR) átti tvö góð skot — annað rétt yfir þverslá, en bitt framhjá. En þrátt fyrir þessi tækifæri voru það Þjóðverjar, sem skor- uðu næst. Var þar Fesser að verki með góðu skoti — 6:2. VÍTASPYRNA Reykvíkingar gáfust þó ekki upp — áttu góðar sóknartilraun- Framh. á bls. 12 Skógrækísrheim- sókn Norómanna SKIPTIFERÐIR Norðmanna og íslendinga á vegum skógræktar- innar hófust vorið 1949. Ýmsar tafir hafa orðið á því, að þær hafi getað haldið áfram árlega síðan, svo að núverandi skiptiferð, er hófst með því að Gullfaxi flaug til Þrándheims að morgni föstu- dags og kom aftur heim til ís- lands um kvöldið með álíka marga Norðmenn, er hin fjórða skiptiferð í röðinni. í fyrstu ferðinni kom hingað ungt fólk frá Tromsöfylki, en þar er aðalbrautryðjandi skógrækt- armálanna, Jacobsen bankastjóri. Hefir hann aðallega beitt sér fyr- ir að skipuleggja skógræktarmál- in í sínu fylki, en lendur þessa fylkis eru svo norðarlega, að skipulögð skógrækt er ekki norð- ar. Hafa Trömsöbúar ekki hikað við að leggja vinnu í gróðursetn- ingarstarfið. Enda hefur banka- stjóri þar norður frá margoft sagt, að þó fylkið sé mun norðar en ísland, geti íbúarnir ekki feng- ið tryggári grundvöll fyrir spari- fjársöfnun sína en í skógræktinni. Nú sækja Norðmenn okkur heim, sem eru upprunnir sunnar úr Noregi, t. d. úr Þrændalögum og jafnvel sunnar. — Ef að líkum lætur snúa þeir heim með þann kunnleik á islenzkum staðhátt- um, að þeir fá vitneskju um hve stórkostlegt átak þarf til að koma upp skógi hérlendis til að fram- leiða nauðsynlegt timbur, sem fullnægi að mestu timburþörfinni hér. Þeir vinna aðallega við gróð- ursetningarstarfið á skýldum stöðum í birkikjarrinu við Laug- arvatn og í Haukadal. íslenzka þjóðin veit sem er, að norskir skógræktarmenn eru au- fúsugestir til íslands. Morgun- blaðið óskar því af heilum hug að þeir megi njóta veðurblíð- unnar hér og að þeir hljóti bjart- ar minningar frá landi og þjóð. ★ AKVEÐNIR i Það sýndi sig strax er leikur hófst í fyrrakvöld, að Þjóðverj- arnir voru ákveðnir í að gefa ekki hlut sinn. Eftir að 17 mín. voru af leik höfðu þeir skorað þrjú mörk gegn engu. Var þar að verki sami maðurinn í öll skiptin — vinstri innherjinn, Wertmúller, sem alls staðar virt- ist skjóta upp kollinum þar sem knötturinn var. Tvö af þessum þremur fyrstu mörkum má bein- línis skrifa á reikning varnar- innar, sem var helzt til svifasein. ★ REYKJAVÍK SKORAR Þrátt fyrir þessi mörk héldu Reykvíkingar baráttukjarki sin- um óskertum og er um 20 mín. voru liðnar af leiknum léku þeir ■ fallega upp eftir hægri kanti, Hörður Felixson gaf góðan knött fyrir og Ólafur Hannesson skor- aði glæsilega frá vítateig. Við þetta mark jókst Reykvíkingum ásmegin og skömmu síðar skora þeir öðru sinni. Var þar að verki Gunnar Guðmannsson eftir góðan undirbúning Ólafs Hannessonar. Þjóðverjafnir héldu samt ætíð yfirhöndinni í leiknum með sín- um nákvæma samleik og kom- ust hvað eftir annað í færi. Er um 35 mín. voru af leik bætti Fesser fjórða markinu við með góðu skoti frá hægri eftir góðan undirbúning miðframherja. — Þannig lauk fyrri hálfleik með < þýzkum sigri, 4:2. En rétt áður en hálfleiknum lauk var Ólafi Hannessyni vísað úr leik vegna oinbogaskots er hann veitti Wert muller, en nokkrum mín. síðar (í síðari hálfleik) var Ólafur ' aftur með og fréttist það að Þjóðverjar hefðu farið fram á að hann fengi að leika allan leik- inn, enda munu þeir hafa talið fleiri jafnbrotlega Ólafi. ★ GOÐ TÆKIFÆRI i Síðari hálfleikur var ekki likt því eins skemmtilegur og sá . fyrri. Reykjavíkurliðið náði af , og til góðum leik, en samt bar allt of mikið á hinum ónákvæmu spyrnum og hrevfanleik leik- manna var mjög ábótavant. — Leikur Þjóðverjanna mótast nokkuð af leik Reykjavíkurliðs- ins — þannig, að hraðinn varð minni og þeir byggðu upphlaup sín vandlega og höfðu góðan tíma til þess. Aldrei misstu þeir frumkvæðið í leiknum. Er stundarfjórðungur var lið- inn af siðari hálfleik bætti Wert- múller fimmta markinu við. Var kominn einn inn fyrir á miðju og spyrnti lausum en nákvæmum I knetti fram hjá Helga er hljóp út úr markinu á móti honum. Eftir þetta áttu Reykvíkingar nokkur hættuleg tækifæri — einkum Ólafur Hannesson, sem þrisvar átti góð tækifæri innan vítateigs. Gunnar Guðmannsson tók aukaspyrnu rétt utan við VeU andi óhri^ar: Saga frá Skotlanöi FYRIR nokkrum dögum hitti ég ungan skozkan blaða- mann, eða kannske réttara sagt blaðakonu, Mamie Baird, sem er hér stödd um stundarsakir. Við spjölluðum um ýmislegt, m.a. heimabæ hennar í Skotlandi, sem heitir Rutherglen (the red glen). í raun og sannleika er hann ekki annað en eitt úthverfi Glasgow-borgar, sem hefur með tímanum breitt sig út yfir æ stærra svæði og, ef segja má, svelgt í sig margar smáborgir, sem áður lágu utan við hana. — Rutherglen ein hefur staðizt flóðbylgjur hinnar miklu út- þenslu nútímans — og til þess liggja dálítið sérstakar og skemmtilegar ástæður. Þessi borg er nefnilega fyrsta „kon- ungsborgin", svokallaða í Skot- landi, þ.e. hún fékk fyrst skozkra borga hina konunglegu réttinda- skrá — og þetta skeði allt aftur á 13. öld. Hefur gengið á ýmsu AF þessari sögulegu staðreynd, hefur Rutherglen verið stolt og hreykin og vildi með engu móti una því að glata nafni sínu og tilveru sem sjálfstæð borg og gerast eitt rétt og slétt úthverfi í skítugri stóriðnaðarborg. Það hefur gengið á ýmsu í þessu „skilnaðarmáli" Glasgow og Rutherglen. Árið 1912 var farið með mál á hendur hinni síðar- nefndu — og hún vann! Og enn í dag er Rutherglen sérstök borg, með um 26 þús. íbúa, sem heldur uppi gömlum erfðavenjum frá löngu liðnum tímum, sem vissu- lega gefa henni sérstakan svip. Auðvitað getur hún, í landfræði- legu tilliti varla talizt annað en hluti af Glasgow, sem bezt má marka af því að „landamerkin" milli borganna tveggja liggja um miðjan fótboltavöll borgar- innar! — Þess vegna er það líka oft sagt til gamans — og samt með réttu, að boltanum sé spark- að af stað í Rutherglen og í markið í Glasgow! oc Kunnum betur við þaS G auðvitað lifum við líka að miklu leyti á Glasgow, sagði skozki blaðamaðurinn, og kímdi, við notum samgöngukerfi henn- ar, vatnsleiðslukerfi og fjölda margt annað, sem okkar eigið. En það er nú sama, við kunnum mikiu betur við að heita Rut- herglen-búar og, að litið sé á okkur sem slíka. Víst má segja, að það sé heimskulegt, en við erum nú svona, Skotarnir. V1 Af stað í Rutherglen - í Glasgow! í markið Hugmynd útvarpshlustanda ELVAKANDI sæll! Oft heyrast kvartanir og að- finnslur í sambandi við dagskrá útvarpsins okkar. Finnst sitt hverjum í þessu efni sem öðrum. Þess vegna kemur mér í hug, hvort ekki væri snjallt hjá út- varpinu, að það hefði sérstakan þátt, t.d. einu sinni í mánuði, sem fjaliaði um gagnrýni á útvarpið. Þar kæmu fram fyrirspurnir og gagnrýni, sem svarað væri af ráðamönnum útvarpsins. Einnig mætti þá lesa upp bréf frá hlust- endum, sem þarna væri svarað. Ef til vill er ekki ástæða til að taka upp slíkan þátt undir sum- arið, er útvarpið dregur heldur saman seglin, en það mætti hafa hugmyndina bak við eyrað, er vetrardagskráin verður skipu- lögð að hausti. — Útvarpshlust- andi“. Laugardagurinn — Þrándur í götu HEFUR orðið: „Þjóðhátíðardag okkar, 17. júní, ber upp á föstudag í ár. — Skrifstofufólk og aðrir, sem að jafnaði vinna til kl. 12 á iaugar- dögum, fengju þarna þriggja daga skemmtilegt frí, ef þessir þrír tímar á laugardaginn kæmu ekki inn á milli. Ég veit til, að margt fólk, sem þannig er ástatt með hefði hug á að nota sér þetta frí til að fara í eitthvert hressilegt ferðalag burt úr bæn- um, ef ólukku laugardagurinn kæmi ekki í veginn. — Nú lang- ar mig til að skjóta fram þeirri hugmynd, hvort vinnuveitendur sæju sér ekki fært að lofa fólk- inu að vinna þessa þrjá tíma af sér yfir vikuna, t.d. einum tíma lengur í þrjá daga til að laugar- dagurinn gæti verið alveg laus. Fjölda fólks væri það mjög kær- komin ráðstöfun. — P.P.“ PP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.