Morgunblaðið - 12.06.1955, Page 14

Morgunblaðið - 12.06.1955, Page 14
14 MORGVNBLAÐIB Sunnudagur 12. júní 1955 ] Framnaldssagan 4 minna, þegar hún bókstaflega bauð mér hönd sína og hjarta. Síðar, þegar ég hafði eingast liana íyrir konu, komst ég að raun um það, að hið leyndar- dómsfuila persónuvaid hennar liélzt óbreytt sem fyr. Einnig uppgötvaði ég nána líkingu og sjkyldleika á milli hinna hverfulu, óákveðnu eðliseinkenna fegurðar hennar og margra skapgerðar- einkenna, sem mest bar á. Ég var aldrei öruggur um, að ég ætti hana fullkomlega og síundum, þegar mér hafði loks tekizt að yfirstíga þessar grun- semdir, gat hún með orði eða látbragði gert mig að nýju hræddan um, að ég væri að missa hana aftur. Þessi óvissa og örvænting héldust allt til brúðkaupsdags akkar. Þegar hér var komið sögu, var ég farinn að elska hana af öllu hjarta og mér var fylliiega ljóst, að framar öllu öðru yrði ég að sjá um það, að þessi ást kulnaði ekki út, eins og allar mínar fornu ástir. Knúður af þessum ótta, en jafnframt nauðugur, bað ég hana loks um að giftast mér, sann- færður um að sá ráðahagur mundi verða samþykktur með fögnuði. En svarið, sem ég hlaut var neitandi. Er ég fékk þetta afsvar, þótti mér sem ég væri sokkinn niður 1 myrkasta djúp minnar gömlu örvæntingar. Ég yfirgaf hana og hugsaði með mér, að nú væri einskis að bíða og ef ég væri ekki fyrirlitlegur hugleysingi, þá ikyldi ég nú loks láta verða af því að fremja sjálfsmorð. Nokkrir dagar liðu, en' þá símaði hún til mín og spurði undrandi, hvers vegna ég kæmi aldrei í heimsókn. Ég fór og hún tók á móti mér með hógværri, en óskammfeilinni ásökun fyrir að hafa yfirgefið sig, án þess að gefa nokkurn umhugsunarfrest. Hún lauk svo máli sínu- með því, að lýsa því yfir, að hún hefði ákveðið að taka bónorðinu og verða konan mín. Eftir tvær vikur vorum við svo bundin hjúskaparheiti. Og nú hófst tími hinnar fullkomnu hamingju, slíkrar sem ég hafði aldrei fyrr þekkt. Ég unni Ledu heitt og ákaft, ' en kveið því um leið, að sá tími kynni að koma, að ég annað hvort hætti að elska hana, eða j hætti að vera elskaður af henni. j Þess vegna gerði ég allt sem ég gat til þess að flétta æfiþáttum okkar sem þéttast saman og |kapa þannig órjúfanleg tengsl ^kkar á milli. ’ Þar sem ég vissi, að hún hafði hær alveg farið á mis við alla ú^pfræðslu, þá byrjaði ég á því að veita henni einskonar fagur- fræðilega tilt^gn og fullyrti, að jienni mundi þykja álíka gaman áð læra og mér að kenna henni. Ég komst að raun um, að hún var óvenjulega fróðleiksfús og skilningsgóð. Við sömdum sam- eiginlega stundatöflu og kennslu- skrá og ég tók að mér að veita henni hlutdeild í öllu því, sem ég kunni og felldi mig við. Ekki veit ég hversu langt hún fylgdist með mér, né heldur hve mikið hún skildi. Sennilega þó nokkuð minna, en ég bjóst við. En eins og alltaf, þá fannst mér sökum hins mikla persónuvalds hennar, sem ég hefði unnið glæstan sigur, þegar hún sagði Öfur hógværlega: „Mér geðjast ■Íel að þessu tónverki .... þetta ljóð er fallegt .... lestu þessa grein aftur fyrir mig .... við skulum hlusta enn einu sinni á þessa frásögu". Auk þess kenndi ég henni ensku í tómstundum okkar, og í henni tók hún örum framförum, því minnið var gott og áhuginn vakandi. En lesturinn, útskýringarnar og kennslan, allt varð þetta dá- samlega skemmtilegt í mínum augum, vegna ástúðar hennar og viðmótshlýju. Þannig mátti segja, þótt hún væri nemandinn og ég kennar- inn, að það væri ég, sem fynndi til hræðslu nemandans, sem mið- ar hægt áfram í gegnum náms- greinar sínar. Og það var rétt, vegna þess, að höfuðnámsgrein okkar var ást og með degi hverj- um fannst mér ég fá aukin völd á þeirri námsgrein. Og vissulega var ástalíf okkar öruggasta undirstaðan að ham- ingjh okkar. Ég hefi áður sagt að fegurð hennar, sem stundum raskaðist vegna ljótra kippa í andlitinu og margvíslegrar af- myndunar, hafi aldrei verið ó- virt með neinu slíku á ástafund- um okkar. Ég vil bæta því við, að naútn sú og hamingja, sem þessi fegurð veitti, hafi nú verið orðinn sá miðpúnktur, sem hring iða lífs míns snerist um, hring- iða, sem eitt sinn var myrk og ógnandi, en nú björt, skemmti- lega róleg og reglubundin. Hversu oft, þegar ég hvíldi við hlið. hennar í rúminu, virti ég ekki nakipn líkama hennar fyrir mér og hræddist næstum þá feg- urð, sem augu mín litu, fegurð, sem stóðst alla skilgreiningu! — Hversu oft, þegar hún lá á bak- inu með höfuðið grafið niður í koddann, ýfði ég ekki og ólagaði þessar löngu, mjúku og björtu hárfléttur hennar og reyndi að skilja hina leyndardómsfullu til- finningu, sem gaf þeim þetta titr- andi, hverfula útlit! Hversu oft horfði ég ekki í hin stóru, bláu augu hennar og furðaði mig yfir því, hvar leynst gæti leyndardómur hins blíða og áhyggjufulla tilits þeirra! Hversu oft, er ég hafði kysst hana lengi og ákaft, skilgreindi ég ekki í huganum þá tilfinningu, sem ég hafði í vörunum á eftir, bar hana saman við lögun vara hennar og vonaðist til að skilja þýðingu hins veika bros, sem eftir kossinn kom í ljós í öðru munnviki hennar, bros, sem að- eins er hægt að sjá á hinum elztu, grísku myndastyttum. Ég hafði uppgötvað leyndar- dóm, sem að mínum dómi var eins mikill og leyndardómar trú- arbragðanna, leyndardóm, sem var nærri mínu eigin hjarta, leyndardóm, sem augu mín og hugur gátu týnt sjálfum sér í og fundið frið. Hún virtist skilja það mikil- vægi, sem þessi tegund aðdáun- ar hafði í mínum augum, og hún leyfði sjálfri sér að vera elskuð með sömu óþreytandi auðsveipn- inni. Kannske hefði ég átt að vera á verði, mitt í hinni fullkomnu hamingju minni, gagnvart einum þeirra eiginleika, er stjórnuðu allri hegðun konu minnar, eigin- leika, sem ég held að ég sé nú þegar búinn að minnast á, en þ.e. góðvilja hennar. Augsýnilega var ást hennar ekki eins ósjálf- ráð og mín var, en í háttum hennar kom í ljós greinileg og jafnframt leyndardómsfull löng- un til að geðjast mér, fullnægja mér og jafnvel skjalla mig og smjaðra fyrir mér, en slík til- hneiging er oftast og þá ekki alveg án nokkurrar fyrirlitning- ar, nefnd: góðvilji. Nú mun engum blandast hug- ur um það, að örðugt muni reyn- ast fyrir góðviljann að leyna ekki sumu, sem mundi, ef það af hendingu yrði leitt í ljós, berjast gegn honum og stofna áhrifum hans í hættu. En ég tók á móti þessum góð- vilja eins og sönnun á ást henn- ar og hirti ekki um að rannsaka, eða grafast fyrir um það, hverju hann kynni að leyna eða hver tilgangur hans mundi vera. Ég var raunverulega of hamingju- samur til að vera eigingjarn. Ég vissi, að nú var ég í fyrsta skifti á æfinni ástfanginn og í hinum venjulega og frekar ógætilega ákafa mínum tileinkaði ég henni líka þær tilfinningar, sem ég bar í brjósti. Unglingur óskast til að bera blaðið til kaupenda við Borgarholtsbraut, vestan Urðarbrautar. JHorgtmMafctft Sími1600 K.R.R. K.S.I. Islandsmótið í knattspyrnu hefst á íþróttavellinum í kvöld kl. 8,30. — Þá keppa FRAM og VALUR Dómari: Guðjón Einarss. Á morgun mánud. kl. 8,30 keppa: K. R. — Víkingur. Dómari: Hannes Sigurðss. Mótanefndin - Morgunblaðið með morgunkafiinn Crosse & Blackwell ltd í ^lösum og flöskum: Malt edik Olíve olía FRENCH CAPERS Rose syrop Mayonnaise Salad Cream Chef íómatsósa Branston sósa (fiskisósa) Chef sósa Worchestersósa Sveppasósa Sandwich spread í pökkum: Tea ..VEDDA“ Matarlím Jellv Cristals, jarðarberja, hindberja, appelsínubúðingar. í dósum: Lyftiduft Krydd, allskonar Custard Powder Allar þessar heimsþekktu vörur höfum við fyrirliggjandi. H. & Cö. H.F. Hafnarhvoll — Sími 1228 McCall's 9887 Skinnlíki Hvítt, Svart, Hvítt og svart Brún-draop 9 ilkCall-snið Veljið sniðið og efnið samtímis. Skólavörðustíg 12 .................................. í Verzlunaratvinna — Keflavík \ Ungan mann vantar til afgreiðslustarfa í bifreiða- varahlutaverzlun í Keflavík. Nokkur þekking á bifreiða- hlutum æskileg. Umsóknir ásamt kaupkröfu og nauð- synlegum upplýsingum sendist afgr. blaðsins í Keflavík eða Reykjavík fyrir miðvikudagskvöld, merkt „Traust- ur — 525“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.