Morgunblaðið - 02.07.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.07.1955, Blaðsíða 16
Veðurúfiii í dag: N kaldi víðast léttskýjað. wggtttÞlftMfe 146. tbl. — Laugardagur 2. júlí 1955 Molofov Sjá skemmtilega grein á bls. 9. Vegleg afmælishátíð SUS í Þrastaskógi á morgun Horfur á mikilli þátttöku AFMÆLISMÓT það, sem stjórn Sambands ungra Sjálfstæðis- manna efnir til í Þrastaskógi í tilefni 25 ára afmælis Sam- bandsins hefst þar á morgun kl. 3 síðdegis. Hefur mjög verið til jrióts þessa vandað, enda má gera ráð fyrir að mikill fjöldi fólks eæki mótið víðsvegar af Suðvesturlandi eftir þeirri þátttöku, sem þegar er vitað um að verður í hópferðum félaganna. Það var eitthvert hinna dönsku Waða, sem komst þannig að orði fyrir skömmu, að á föstudaginn, myndi Loftleiðaflugvél flytja dýrroætustu fætur Danmerkur. — Átti þar við knattspyrnumennina í landsliðinu og ballettflokkinn frá Kgl. Jeikhúsinu í Kaupmannahöfn. — Hér sést hinn stórkostlegS ballettflokkur á landgöngubrúnni, er hann kom í gærkvöldi, undir fararstjórn Inge Sand, sólóballett-< dansmær. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) □- -□ Fjölmennur balletflokkur Kgl. í Höfn í heimsókn Mikill listviðburður — Er á leið f sýningaför til Ameríku 1 SÁ verður talinn meðal hinna helztu listviðburða þessa árs, heimsókn ballettflokksins frá Kgl. leikhúsinu í Kaupmanna- höfn. Flokkurinn kom flugleiðis í gær með Loftleiðaflugvél frS Kaupmannahöfn og hefur hér þrjár sýningar um helgina. , i FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Svo sem áður hefir verið skýrt Jrá, mun formaður Sjálfstæðis- flokksins Ólafur Thors forsætis- ráðherra, heiðra sanitök ungra Sjálfstæðismanna méð því að halda ræðu á afmælismótinu. Þá mun formaður SUS Magnús Jónsson, alþingismaður, einnig flytja ræðu. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur við upphaf mótsins og síðan milli dagskrárliða. Óperusöngvararnir Kristinn Hallsson og Guðrún Á. Símonar syngja og Gerður Hjör- leifsdóttir, leikkona, les upp, en Árni Tryggvason, leikari, flytur gamankvæði. Um kvöldið verð- ur dansað á palli í skóginum. HÓPFERÐIR FÉLAGANNA Félög ungra Sjálfstæðismanna á Suðvesturlandi efna til hóp- ferða á mótið, og er þegar kunn- ugt um mikla þátttöku, enda er Þrastaskógur sérstaklega fagur og eftirsóttur útisamkomustaður. Heimdallur í Reykjavík efnir til ferðar austur þegar í kvöld kl. 6, ef næg þátttaka fæst og er þá gert ráð fyrir að gista í tjöld- um yfir nóttina. Aðalferðin verð- ur svo frá Vonarstræti 4 kl. 1,30 ó sunnudaginn og verða ferðir til baka kl. 6 um kvöldið og á mið- Iiætti. Stefnir í Hafnarfirði efnir til ferðar austur á sunnudaginn kl. í og óskast þátttaka tilkynnt ekrifstofu Sjálfstæðisflokksins kl. 3—5 í dag. Mýrasýsla Hópferð verður á vegum F U. S. í dag. Nánari upplýsingar gefa þeir Eymund- ur Ásmundsson, form. félagsins og Halldór Friðriksson. Akranes. Hópferð verður á vegum F. U. S. á Akranesi kl. 2 í dag. Upplýsingar gefur Þor- valdur Sigurðsson, form. félags- 4jis. Keflavík. Sjálfstæðisfélögin efna til skemmtiferðar austur í Rangárvallasýslu, en koma við á mótinu. Vestmannaeyjar. Hópferð fyrir huguð með flugvél að Hellu í dag. Rangárvallasýsla. F. U. S. Fjöllnir skipuleggur ferðir frá Hellu á sunnudaginn og veitir form. félagsins Jón Þorgilsson allar nánari upplýsingar. Pauker látin laus WIEN, 1. júlí: — Austurríska hlaðið „Die Presse“ skýrir svo frá, að stjórnarvöldin í Rúmeníu hafi látið Aron Martin, hinn ka- þólska prest, sem tekinn var höndum fyrir þremur árum, laus- an. Enn fremur segir blaðið, að Anna Pauker hafi tekið þátt í ferð þingnefndar einnar, sem ferðazt hefir um Rúmeníu að úndanförnu. Fregnir herma, að fyrrverandi titanríkisráðherra Rúmeníu, Georg Tatrescu, muni verða lát- ian laus úr fangelsi innan fikamms. — Reurter-NTB Árnessýsla. Ferðir hafa verið skipulagðar á mótið víðsvegar úr Árnessýslu og verða m. a. ferðir frá Selfossi með stuttu millibili. HITTUMST ÖLL í ÞRASTASKÓGI Þess er sérstaklega að vænta, að ungir Sjálfstæðismenn fjöl- menni á afmælismót þetta og stuðli með almennri bátttöku að því, að það verði sem glæsileg- ast. A vann, B iapaði fyrir Sjálands- drengjunum ÞAÐ voru kartnir strákar, sem kepptu í fótbolta úti á íþrótta- velli í gærkvöldi. — Það voru dönsku drengirnir frá Sjálandi og III. flokks strákar úr KR, en þeir kepptu í fyrsta sinn í gær- kvöldi í hinu fegursta veðri og voru áhorfendur allmargir, enda láta sannir knattspyrnuunnendur ekki leik yngri fótboltamanna fram hjá sér fara. — En allt um það. Dönsku drengirnir og KR skiptu með sér sigrinum. Sjá- landsdrengirnir unnu 3. flokk B með 1 marki gegn 0, en A-flokk- ur vann þá aftur á móti með 4 mörkum gegn 1. í dag fara dönsku drengirnir upp á Akranes og keppa þar við jafnaldra sína. UM s.l. mánaðamót lauk 6. leik- ári Þjóðleikhússins. Hafði leikhúsið 165 sýningar í Reykja- vík á árinu, en 36 úti á landi. Leikhúsgestir á sýningum Þjóð- leikhússins voru um 84 þúsund. Flestar sýningar voru á gam- anleiknum „Fædd í gær“,. sem var sýndur 27 sinnum í Reykja- vík og voru sýningargestir 12.469. Næst flestar sýningar urðu á Silfurtunglinu, óperunum II Pagliacci og Calvalleria Rusti- cana og Gullna hliðinu, en öll þessi verkefni voru sýnd 20 sinn- um hvert. 11 LEIKRIT VORU SÝND Á leikárinu voru ellefu leikrit sýnd í Þjóðleikhúsinu, þar af þrjú íslenzk, Silfurtunglið, eftir Halldór Kiljan Laxness, Þeir koma í haust eftir Agnar Þórð- arson og Gullna hliðið, eftir Davíð Stefánsson, en það var tek ið til sýninga í tilefni af 60 ára afmæli höfundar. Önnur leikrit voru: Tópaz, sem sýndur var 7 sinnum í leikhús- inu í byrjun leikárs, Lokaðar dyr (7 sýn.), Fædd í gær, Ætlar kon- an að deyja? og Antigóna (8 sýn.) én þessi tvö verkefni voru sýnd saman, Krítarhringurinn (9 sýnk og Er á meðan er (11 sýn.). Pósturiníi tefur prestskosinga- seðlana SÍÐDEGIS í gærdag hafði skrif- stofu biskupsembættisins hér í Reykjavík, ekki borizt atkvæða- seðlar frá prestkosningunum aust ur í Fellsmúlasókn í Rangár- vallasýslu. Þar var kosið á sunnu daginn var. Atkvæðaseðlarnir munu þó ekki hafa glatazt, held- ur tafizt í ábyrgðarpósti þar eystra. En þannig er nú um hnút- ana búið, að ábyrgðarpóstur er ekki sendur að austan nema einu sinni í viku, á laugardögum. Er því von á póstinum í dag. ÓPERUR OG BALLETTAR Óperettan Nitouche var tekin upp frá fyrra ári og sýnd 7 sinn- um fyrst á leikárinu. Um jólin voru óperurnar Pagliacci og Cavalleria Rustisana fluttar og sóttu þær sýningar 11.577 manns. Þá var frumsýndur nýr íslenzkur ballett, Dimma- limm, við mikla hylli áhorfenda. Ennfremur komu til landsins á vegum Þjóðleikhússins flokkur japanskra listamanna, sem sýndu japanskan listdans. 3.500 gestir voru á 7 sýningum. SÝNINGAR UTAN REYKJAVÍKUR Tvö leikrit voru sýnd úti á landi á leikárinu. Leikflokkur frá Þjóðleikhúsinu sýndi Tópaz 19 sinnum á Austurlandi og víð- ar, í fyrra haust. Nú í vor hefur leikurinn Fædd í gær verið sýnd- ur 17 sinnum bæði norðan lands og sunnan. Sýnt var alls staðar fyrir fullu húsi og við góðar und- irtektir áhorfenda. Sýningargestir urðu á 5. þús. og hafa því alls um 17 þúsund manns séð þennan vinsæla gam- anleik. Síðasta viðfangsefni leikársins, „Er á meðan er“ verður tekið upp að nýju í haust. Á LEIÐ VESTUR Þessi stórkostlegi ballettflokk- ur er hingað kominn á vegum Tívolí. Hin kunna sólódansmær, Inge Sand er fararstjóri flokks- ins. Hann heldur áfram för sinni til Bandaríkjanna á sunnudags- kvöldið, en þetta er í fyrsta sinn sem ballettflokkur frá Danmörku leggur land undir fót og fer til Bandaríkjanna. Þar á flokkur- inn m. a. að koma fram á mikilli tónlistar og balletthátíð, sem fram fer í borginni Lee í Massa- chusettsfylki. DANSKUR BALLETT Þetta er í þriðja skiptið sem Inge Sand kemur hingað, og með henni eru 10 beztu ballettdansar- ar hins konunglega leikhúss. — Hún kvað flokk sinn mundu sýna hér ballett eftir hinn fræga ball- etthöfund Dana, Bournoneville, en auk þess mikið af alþjóðleg- um ballettum. Lét hún þess og getið, við fréttamenn við komu sína í gærkvöldi, að einmitt ball- etta eftir Bournoneville, léki þeim hugur á að sjá vestra. Friðbjörn Björnsson, sem nú er einn helzti sólóisti hins kgl. balletts, kvaðst hafa gerzt ball- ettdansari við Kgl. leikhúsið er hann 18 ára gamall brautskráð- Fædd í gær á Akranesi AKRANESI, 1. júlí. — Á mið- vikudagskvöldið sýndi leikflokk- ur frá Þjóðleikhúsinu sjónleik- inn „Fædd í gær“ í Bíóhöllinni hér. Húsið var troðfullt og leik- endum ágætlega tekið. Var hleg- ið bæði mikið og dátt og leik- endur hylltir að leikslokum. — Oddur. ist frá balletskóla leikhússina. Hann er einn af sex karlmönnum balletflokksins sem dansar sóló. Þetta er í þriðja skiptið sem Friðbjörn kemur hingað sem balletdansari. Ballettsýningar flokksins fara fram á hinu rúmgóða sviði Aust- urbæjarbíós og verða tvær sýn- ingar í dag kl. 5. Á sunnudagina klukkan 3. ♦ I* Eftir sýningaferð sína til Bandarikjanna, en þar munu þatl m. a. sýna í New York, murni þau koma við hér á landi á heim- leið að vestan. t j ♦ ns Ekki er að efa að þeir sem unna fallegum listdans munu fagna þessu einstaka tækifæri til að sjá þennan fræga ballettflokk. — Það er eftirminnileg sjón hverjum þeim sem sér glæsileg- an ballettflokk sýna list sína. ----------------------- { SKÁKEINVÍGiD J RETKJAVÍK fl ABCD5FGH J ABCDEFGH ] STOXKHÖLMUR ) 16. leiknr Reykjavíkur: ] Bg7xRd4 J □- -□ Þjóðleikhúsið sýndi 11 leikrit á síðasta leikári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.