Morgunblaðið - 07.08.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.08.1955, Blaðsíða 1
43. árgangw 176. tbl. — Sunnudagur 7. ágúst 1955. PrentsmíS)# Morgunblaðsina Sumarog sól Adenauer fer til Moskvu með hirð manna með sér 30 HANDTEKNIR HONG KONG, 6. ágúst. — Kín- verka fréttastofan tilkynnti í gær, að 30 „andbyltingaseggir" hafi verið handteknir fyrir að reyna að ráða æðstu menn Rauða-Kína af dögum. — Fréttastofan segir enn fremur, að tvær konur hafi komið upp um samsærið. —Reuter. Þar ræðir hann við Bulganin um sameiningu Þýzkalands. BONN, 6. ágúst. VESTUR-ÞÝZKA ríkisstjórnin sendi Sovétstjórninni fyrir skömmu orðsendingu, þar sem frá því var skýrt, með hvaða skilyrðum Adenauer kanzlari færi til Moskvu. — Sovétstjórnin hefir nú svarað þessari orðsendingu og kveðst fallast á alla skil- mála vestur-þýzku stjórnarinnar. Hitabylgja mikii hefur gengið yfir Evrópu í sumar. — Hér sjást tveir danskir landbúnaðarverkamenn bjarga heyinu í hús. Heimsmeistarinn grét — og heimtaði að fara heim Haíii ofreynl siq daginn áiur KAUPMANNAHÖFN, 6. júlí. IGÆR kom hingað heimsmeistarinn í 800 metra hlaupi, Belgíu- maðurinn Roger Moens og átti hann að keppa um kvöldið við danska og bandarkkg^hlaupara. Eins og kunnugt er, hnekkti Moens 16 ára gömlu meti HSU'bígs í 800 metrum á íþróttamóti í Ósló í fyrradag og var tími hans 1.45,7 mín. Var gífurleg keppni milli hans og norska hlauparans Boysens, sem einnig hljóp undir gamla« metinu — eða á 1.45.9. j Heimsmet Harbigs var 1.46.6 og þótti afburða gott, þegar það -) var sett 1936. Færeyingar vilja örva atvinnulífið i eyjnnnm Hafa fengið viiyrði fyrir aðsfoð frá Danmörku FÆREYSKA blaðið Dimmalættingurinn skýrir frá því nýlega, að lög hafi verið sett um það í Danmörku í október s. 1., að verzlunarmálaráðuneytinu sé heimilt að nota allt að 500 millj. danskra króna til stuðnings útflutningsframleiðslunni. STUÐNINGUR VIÐ FÆREYINGA Nú hefir Djuurhus lögmaður varpað þeirri spurninga fram í Danmörku, hvort þessi lög nái ekki jafnt til Færeyja og annarra hluta danska ríkisins, því að Fær eyingar vilja gjama fá stuðning við útflutningsframleiðslu sína, svo að unnt verði að örva svo- lítið atvinnulífið í eyjunum. ÓVÍST HVE MIKIL AÐSTOÐ Mun lögmaðurinn hafa feng ið vilyrði fyrir því, að dönsku fjármagni verði veitt í at- vinnulíf Færeyja, en óvíst er, hversu mikið það verður. Peron rólegur BUENOS AIRES, 6. ágúst. For- seti Argentínu ráðlagði fylgis- mönnum sinum í ræðu í fyrradag að geyma púðrið, þangað til „þingkosningar fara fram á næstunni“ — Forsetinn bað flokksmenn sína einnig vera ró- lega og láta ekki andstöðuflokk- ana egna sig til „reiði og óheilla- verka“. — „Allt er á tjá og tundri í herbúðum þeirra,“ hætti hann við, „en hjá okkur er regla á hverjum hlut. — Ef við höldum rétt á spilunum, vinnum við kosningarnar með yfirburðum“. ^RÆÐA SAMEININGU ÞÝZKALANDS Fréttamenn segja, að Adenauer hafi skýrt Sovétstjórninni m. a. frá þvi, að hann vilji ræða um samein- ingu Þýzkalands og byggja á þeim árangri, sem náðist á Genfarráðstefnunni Þá vill kansiarinn einnig ræða um heimsendingu þeirra þýzku stríðsfanga, sem enn eru í rússneskum fangabúðum. MEÐ LUFTHANSA Menn gera því skóna, að Ad- enauer kanslari fljúgi með Luft- hansavél austur til Moskvu i byrjun næsta mánaðar og dvelj- ist þar í tæpa viku Með hon- um verða fjölmargir ráðherrar, sérfræðingar og blaðamenn, m. a. Brentano utanríkisráðherra, Blankenhorn, fulltrúi Þjóðverja hjá Atlantshafsbandalaginu, próf. Grewe, áheyrnarfulltrúi Þjóð- verja hjá S Þ. og sennilega eínnig fjármálaráðherra Vestur Þýzka- lands, próf Erhard. Málgagn kristilegra demókrata sagði í gær: Þjóðverjar, beggja vegna Járntjaldsins vona, að unnið verði að því af kappi, á næslu vikum, að sameina landið í eitt ríki. Við vonum öll, að sameinað og sjálfstætt Þýzkaland megi lifa í I friði í framtíðinni og eiga góða samvinnu við aðrar þjóðir. Þegar Moens kom til Kaup- mannahafnar í gær, var mikill mannfjöldi viðstaddur til að taka á móti honum — og hugs- tiðu menn gott til glóðarinnar, því að hann átti að keppa um kvöldið, eins og fyrr segir. En þegar heimsmeistarinn steig út úr flugvélinni, brast hann í grát, aftók með öllu að keppa í Kaup- mannahöfn um kvöldið og heimt- aði að fara heim til Belgíu hið fyrsta. Menn sáu nú, að hann hafði of- reynt sig á Óslóarmótinu og eng- inn tók það illa upp, þótt hann héldi áfram heim þá um daginn. Faure og Pinay til Moskvu í okléber París, 4. ágúst. FRANSKI forsætisráðherrann, Edgar Faure, og Antoine Pinay, utanríkisráðherra, fara í opinbera heimsókn til Moskvu í byrjun októbermánaðar í haust. — Var þetta tilkynnt að afloknum ráðu- neytisfundi í dag. Frönsk þing- nefnd mun fara í oninbera heim- sókn til Moskvu í september. — I förinni verða tveir jafnaðarmenn, tveir kommúnistar og einn þing- maður úr hverjum hinna flokk- anna. Bændur hirða í brakandi þerri um allt Suðurland f Hey er víða mjög hrakið IFYRRADAG og í gær var mikið að gera í sveitunum sunnan- lands. Afbragðs þurrkur var í fyrradag norðan flæsa og sól- skin. Allir sem vetlingi gátu valdið hjálpuðu til við heyskapinn og í gær munu allmargir Reykjavíkurbúar hafa skroppið í nær- liggjandi sveitir til þess að rétta bændunum hjálparhönd. í gær var sæmilegur þurrkur fyrripartinn en þykknaði upp aftur er kom fram á miðjan dag. Svo slæmt hefur ástandið verið, að á nokkrum stöðum sunnan lands hefur ekki verið borinn ljár í gras vegna óþurrkanna fyrr en þessa dagna. ALDREI TVEIR ÞURRKDAGAR í EINU Fréttaritari blaðsins á Selfossi símaði í gær, að afbragðs þurrk- ur hefði verið í Ölfusinu í fyrra- dag, en í gær var góður þurrkur fyrripartinn en dofnaði er á leið daginn. Voru margir bændur í Ölfusinu ekki farnir að þurrka tuggu fyrir síðustu helgi, en náðu nú inn miklum heyjum víða. — Aldrei í. sumar hafa komið tveir þurrkdagar í einu í Ölfusinu. HAFA GETAÐ BJARGAÐ UNDAN SKEMMDUM Frá Stokkseyri bárust þær fregnir, að margir hefðu alhirt í Flóanum þessa tvo þurrkdaga. Annars hafa bændur þar verið heppnari en Ölfusingar, þar sem meiri flæsur hafa verið þar. — Hafa menn því almennt getað bjargað heyjum sínum undan skemmdum. Eru allflestir nú langt komnir með túnaslátt, og Frh. á bls. 2. □-------------------□ Rússneskur ráðherra seftur ai - fylgdist ekki með límanum Moskvu. RÁÐSTJÓRNIN hefir nýlega vís- að úr embætti ráðherranum, er fjallar um meiri háttar bygging- arframkvæmdir ríkisins, Kazakov. Ástæðan var sú, „að hann fylgd- ist ekki með tímanum", segir í leiðara í Pravda. Segir ennfrem- ur í leiðaranum, að ráðune//ti Kazakovs hafi ekki notfært sér þá tæknilegu þróun, er hefir átt sér stað — t.d. hafi Kazakov ekki fært sér í nyt þær tæknilegu rann- sóknir, er gerðar hafi verið í verk- fræðideild háskólans i Stalingrad og í Rafmálastofnun Moskvu. □—------------------□ ) Hæfniskeppni bindindisfélngs í FUNDARGERÐ Bæjarráðs er skýrt frá því, að Bindindisfélag ökumanna hafi sótt um styrk úr bæjarsjóði til þess að efna til hæfniskeppni í akstri. Var sam- þykkt með 3 atkv. gegn 1, að veita félaginu 5 þúsund króna styrk, en einn bæjarráðsmanna óskaði bókað, að hann greiddi atkvæði gegn erindinu. Ekki er ljóst af skýrslunni, hvernig hæfn iskeppni þessari verður hagað, en e. t v er hún í sambandi við bindindsmál. ★ Er vissulega þörf fyrir að rann- saka og fá úr því skorið, hversu mikið alkóhólmagn bifreiðastjór- ar þola í blóði sinu, ín þess að þeir .aki vagni sínum í tómum krákustigum. En sem kunnugt er, þá er deilt um það í næstum hverju áféngismáli bílstjóra, hvort hann hafi verið í ökufæru ástandi og þykir þá þeim bíl- stjórum, sem þola mikið, hart, að við þá sé beitt sömu reglu og við hænuhausana, sem missa vald á sjálfum sér við eina fingurbjörg af áfengi. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.