Morgunblaðið - 07.08.1955, Side 11
Sunnudagur 7. ágúst 1955
MORGUNBLAÐIÐ
II
Betra minna og fafnara
ÉG FÓR í ferðalag frá Noregi 13.
maí í vor. Þá var enn vetur og
fólk sagði að vorið væri orðið
heilum mánuði eftir áætlun, og
að sumarið mundi verða kalt og
hryssingslegt eins og í fyrra. En
sumarið í fyrra var það bezta,
sem ég hef upplifað í þessu landi,
mátulega svalt og gustasamt —
álíka og meðalsumar á Suður-
landi heima. — Svo kom ég aftur
hingað í landið 22. júlí og hitinn
var kringum 30 stig í Osló og
þrem stigum meiri víða austan-
fjalls í Noregi. Og fólkið var más-
andi, blásandi, stynjandi og lóðr-
andi í svita og talaði um „den
deilige sommervarme". Það var
níu stiga hiti þegar ég fór frá
Reykjavík sex tímum áður, og
mér fannst sannast að segja þessi
„deilighet“ sumarsins ekki meiri
en svo, aS ég óskaði mér að vera
kominn í Reykjavíkurrigninguna
aftur.
Svona eru veðurgoðin dyntótt
Btundum. í Reykjavík hafði rignt
evo að segja látlaust í heilan mán
uið, svo að voði var fyrir dyrum
með heyskapinn Sunnanlands. í
Austur-Noregi haíði jörð kalið
VÍða í vorkuldunum en um hvíta
Bunnu komu hlýindin. En vætan
mun öll hafa lent. á íslandi. Að
minnsta kosti komst hún ekki
austur fyrir norsku suðurfjöllin.
Þess vegna horfir nú til vand-
ræða með allan jarðargróða hér
austanfjalls, jafnvel títuberja-
lyngið skrælnar af vatnsleysi
samtímis því sem taðan verður
að hrakningi og fúnar í rosan-
um á íslandi. Betra minna og
jafnara.
Þegar þrjár vikur voru liðnar
af júlí tilkynnti veðurstofan hér,
að júlí væri sá heitasti sem kom-
ið hefði yfir Austur-Noreg siðan
1901: Frá 7. til 21. júlí hafði há-
markshitinn á hverjum sólar-
hring verið 28.9 stig á dag, í Osló
en víða talsvert hærri. Og síð-
ustu dagana hefur hann fremur
hækkað en hitt, og veðurfræðing-
arnir telja ekki líkur fyrir neinni
breytingu fyrst um sinn.
I
FLÓTTI TIL FJALLS
Borgarfólkið, sem ekki er svo
heppið að geta tekið sér sumar-
leyfi, reynir að kæla sig með
SÓdavatni, bjór eða Coca-Cola og
flýtir sér að komast í sjóbað und-
ir eins og vinnutíma lýkur. Aldrei
hefur sést annar eins urmull á
baðstöðunum fyrir utan Osló og
undanfarna daga og er sjórinn
þar þó alls ekki girnilegur. Og
í gosbrunnalaugunum við Ráð-
húsið busla krakkarnir frá
morgní til kvölds, kolbrún á
skrokkinn og ánægð meðan þau
eru í köldu vatninu, en vandræða
leg á svipinn undir eins og þau
eiga að hugsa til þess að fara
heim.
Einhver gamansamur hagfræð
ingur tók sér fyrir hendur, ný-
lega, að reikna út hve ríkið
græddi mikið á hitanum. Gróð-
inn átti að koma af aukinni bjór-
sölu, því að ríkið hirðir bróður-
partinn af því, sem ölið kostar.
En sá vitri maður gleymdi að
reikna um leið hve mikið tapast
á hitanum og þurrkinum. Bænd-
urnir gleyma því hins vegar ekki,
þeir hafa daglega fyrir augum
eyðileggingu, sem tíðaríirið veld-
ur. Ég hef aldrei séð jafn illa
sprottna akra og kirkingslegan
matjurtagróður í Noregi eins og
nú. Og sums staðar nyrst í Nor-
egi er sama sagan að gerast, en
þar er ástæðan kuldatíð fram á
sumar. Betra minna og jafnara.
Hér er allt fullt af útlending-
um, sem ferðast um í kófheitum
járnbrautarvögnum og stórum
bifreiðum og fylla sumargistihús-
in. Og í fjallakofunum er hvert
flet skipað fólkinu úr borgunum,
sem komist hefur í sumarleyfi á
Verstu kvalatímum hitabylgjunn-
ar, upp í 800—1000 metra hæð,
því að þar er lifandi fyrir hita og
Og oftast nær einhver andvari og
Noregsbréf frá Skúla Skúlasyni
kul, í stað mollunnar á láglend-
inu.
Ein afleiðing hitans og úr-
komuleysisins er sú, að skógar-
brunar hafa verið mjög tíðir síð-
ustu vikurnar. Allt er svo skræln
að að bruni getur hlotist af að
fleygja frá sér eldspýtu, þvi að
þá getur kviknað í visnu laufi og
rnosa. Þó hefur tekist að afstýra
stórtjóni, enda eru varðsveitir til
í hverri byggð, sem bregða við
skjótt ef reyk leggur upp úr
skóginum.
BRUNI í BERGEN
Húsbrunar hafa orðið margir í
Noregi undanfarið, einkanlega í
verksmiðjuhúsum. En sá bruni
sem alvarlegastur er talinn, varð
í Bergen í byrjun júlí og vakti
þjóðarsorg, því að þar eyddust
hús, sem verða að teljast mikils
virði fyrir menningar- og bygg-
ingarlistarsögu landsins. Það var
sem sé hluti af „Bryggen" í Ber-
gen sem brann. Eldurinn kom
upp í Söstergaarden svonefndum
og breiddist þaðan til beggja
handa og brann nálægt þriðjung-
ur hinna gömlu, sérkennilegu
húsa, sem settu svip á bæinn, þar
sem þau stóðu þétt, hlið við hlið,
með gaflana út að götunni. Auk
Söstergaarden brunnu Gullskog-
gaarden og Engelsgaarden, en hið
síðarnefnda hús var meðal þeirra
merkustu á Bryggjunni. Og
þarna brunnu og munir og ýms
gögn, sem snertu forna sögu
Björgvinar. Bruninn varð nyrst
á Bryggjunni og efsta húsið sem
brann stóð á horni Bryggjunnar
og Drægsalmenningen, en þar
stendur líkneski Snorra Sturlu-
sonar.
Peningatjónið af brunanum er
talið 10—12 milljónir norskra
króna, en þarna missti borgin
jafnframt söguminjar, sem ekki
verða metnar til peninga. Nefnd
fornfræðinga hefur þegar byrjað
að mæla rústirnar og safna öll-
um fáanlegum gögnum, sem lýst
geti húsunum, sem nú eru orðin
öskuhrúga.
BILLY GRAHAM
Sitji maður í járnbrautarvagni
nokkra klukkutíma og hlusti á
mál manna, verður varla komist
hjá að heyra nafnið Billy Gra-
ham oftar en einu sinni og tvis-
var. Þessi ameríski vakningar-
prédikari hélt samkomu á Ulle-
val Stadion í Osló snemma í júlí
og var þar meira fjölmenni en á
nokkru knattspyrnumóti eða
meistarakeppni, nfl. nær 40 þús-
und manns, enda hafði fjöldi
fólks ferðast langar leiðir til að
hlusta á manninn. Því að mikið
orð hefur af honum farið og blöð-
in eru ósþör á að segja frá hon-
„Bryggjan“ í Bergen
um — bæði lof og last, en hvort
tveggja er góð auglýsing. Og til-
höfun sjálfra fundanna er í allra
fullkomnasta ameríkönskum aug
lýsingastíl, með lúðrasveitum,
söngsveitum, sálmasöng og því-
líku. Þarna var það formaður
móttökunefndarinnar, síra Thor-
leif Boman, sem kvnnti Graham
og föruneyti hans og að svo búnu
las Smemo Oslóarbiskup upp
kafla úr Lúkasarguðspjalli og
flutti bæn á eftir, síðan var sálm-
ur sunginn og því næst kom sóló-
söngur og nú loks steig Graham
upp á pallinn, en kringum hann
var raðað móttökunefndinni, að-
stoðarfólkinu og nokkrum gest-
um. Það kann að vera að svona
umbúnaður sé nauðsynlegur til
að draga forvitinn almúga að, en
viðfeldinn getur hann naumast
talist. Graham hélt 45 mínútna
Gerhardsens sé ekki jafn ákveð-
in í samvinnumálunum við Svía
og stjórn Oskars Torp var. —
Sum stjórnarblöð, svo sem Ber-
gens Arbeiderblad, lýsa vanþókn-
un sinni á neituninni og Reidar
Carlsen, framkvæmdastjóri hinn-
ar miklu áætlunar til viðreisnar
Norður-Noregi, og fyrrverandi
ráðherra í Gerhardsensstjórninni
fyrri, lætur sér fátt um finnast
og telur neitunina mjög mis-
ráðna.
En til þess að bæta úr skák
hefur stjórnin heitið því, að tíu
milljón krónum skuli varið til
námurannsókna í Norður-Noregi
á næstu árum.
FJÁRIIAGSMÁLIN
Fjárhagsmálin eru enn sem
sem fyrr aðal umræðuefni
ræðu og mæltist vel, en sagði þó manna’ þratt fy^ h'tann og
eiginlega ekkert nema það, sem !þratt 1fyrir að Storþingið er i
góðir prestar segja af stól. Nær | sumarleyh. Það eru gjaldeyns-
400 manns gáfu sig fram eftir ræð . mah" eða, nanar,thteklð halhnn
1 a utanrikisviðskiftunum, sem
stad og kaupir þar ávexti, leir-
vöru og fatnað fyrir norska seðla,
sem það hefur þó ekki leyfi til
að fara með úr landi (nema 50
kr. á mann) og er gizkað á að í
Stromstad sé selt fyrir 100 þús-
und norskar krónur á dag. Áður
en sykurskömmtunin var afnum-
in í Noregi var það einkum syk-
ur, sem Norðmenn fóru til Sví-
þjóðar til að kaupa, en hins veg-
ar hafa Svíar verið gráðugir í
norskt smjörlíki, því að það var
bæði betra og ódýrara en það
sænska. Varla verður sagt að
nokkur þjóðarvoði stafi af þessu,
en eins og stendur er verzlunin.
Noregi í óhag og kostar þjóðina
talsverðan gjaldeyri
Þó að gjaldeyrisástandið sé
dökkt, skal því ekki neitað að
horfur eru á, að úr því geti rætzt.
Það eru tekjurnar af skipunum
og útflutningurinn á skógarafurð
um, sem mest munar um tekna-
megin í viðskiftunum við önnur
lönd. Eins og stendur fer verð á
tréni stórum hækkandi og getur
sú hækkun numið miklu fyrir
Noreg. Og þó munar meiru um
hitt, að farmgjöld stórhækka. —
Ástæðan til þessa er einkum sú,
að Evrópuþjóðir verða að auka
stórum innflutning kola frá Am-
eríku, og ennfremur sú, að vegna
þurrkanna í flestum Evrópulönd-
um er fyrirsjáanlegur mikill korn
uppskerubrestur þar, en hins veg
ar er talið víst að hveitiuppsker-
an i Bandaríkjunum og Canada
verði fyllilega í meðallagi. — Af
þessu leiðir mjög aukna kola- og
kornflutninga austur yfir Atlants
haf á næstunni, svo að nú þegar
er orðin svo mikil þurrð á venju-
legum flutningaskipum, að farið
er að nota tankskip til að flytja
korn. Tíu þúsund tonna skip, sem
í fyrra var leigt til árs í senn fyr-
ir 20 sh. mánaðarleigu á tonnið,
er nú hægt að leigja fyrir 37/6
shillinga á tonn. Og fyrir þjóð,
sem á 6 milljón smálesta flota
nemur slík hækkun engri 'smá-
upphæð. Þetta eru svo miklar
sveiflur, að segja mætti: betra
minna og jafnara.
una til að hafa tal af aðstoðar- |
mönnunum, og 700 bréf urðu þeir |
að skrifa ýmsum, áður en farið .
var frá Osló. — í Noregi eru til |
heittrúaðri menn en jafnframt '
rammari guðleysingjar en ég hef
orðið var við annars staðar. Betra
minna og jafnara.
BOLIDEN NEITAÐ
Það er orðið langt síðan hið
sænska námu- og stórgróðafélag
Boliden gerði norsku stjórninni
tilboð um að taka að sér rann-
sókn málma í jörðu í Norður-
Noregi, gegn því, að félagið fengi
hlutdeild í námugrefti þar, ef eitt
hvað kynni að finnast. Var talið
líklegt að norska stjórnin tæki
þessu boði, því að það þótti að
vmsu leyti girnilegt, og vitað er
að Svíar hafa færari sérfræðing-
um á að skipa í þessari grein en
Norðmenn. Auk þess hefur
norska stjórnin sýnt það hvað eft
ir annað, að hún vill gjarna fá
sænskt fé inn í landið til virkj-
unar á fallvötnum, gegn því að
láta af hendi ódýrt rafmagn til
Svíþjóðar. En fyrir nokkrum
dögum skýrði G. Sjaastad, iðnað-
armálaráðherra, frá því, að Boli-
den fengi ekki levfið, en ekki
skýrði hann til hlítar frá ástæð-
unum fyrir neituninni.
Þetta hefur vakið mikla at-
hygli, því að flestir voru á þeirri
skoðun, að leyfið mundi verða
veitt. Kunnir stjórnarflokksmenn
töldu það verða til mikillar efling
ar norrænni samvinnu, að sem
víðtækast væri sambandið á
efnahagssviðinu í öllum grein-
um, og var Bolidenlevfið þar með
talið, þó að vatnsvirkjanir væri
aðalatriðið. Nú kveður við annan
tón og er svo að sjá, sem stjórn
mest er talað um, og hafa ráð-
stafanir þær, sem Gerhardsens-
stjórnin gerði í vetur, ekki bætt
neitt úr skák. Hagstofan hefur
fyrir skemmstu gefið út yfirlit
um utanríkisverzlunina á fvrri
helmingi þessa árs og reyndist
hallinn á verzlunarveltunni
1759 milljón krónur, en var 1461
, mill.jón á sama tíma í fyrra. Hef-
(ur ástandið því versnað í stað
1 þess að því var ætlað að batna.
Menn eru yfirleitt sammála
um, að eigi sé unnt að auka út-
flutning frá Noregi svo, að hann
geti fyllt í þetta skarð. Og að
draga úr innflutningnum er illa
hægt, því að nauðsynjavörur og
hráefni til iðnaðar verður þjóðin
að fá, hvað sem öðru líður. TJm
innflutning á svonefndum „ó-
þarfa“ er það að segja, að hann
er enn talsverðum takmörkunum
háður í Noregi, svo að margt sést
fleira í búðargluggunum í Revkja
vík en í Osló. Nú þyrptist fólk úr
suð-austur héruðum landsins yf-
ir landamæri Svíþjóðar til Ström-
DR, HAAKON SHF.TELIG
prófessor í Bergen er nýlátinn,
78 ára gamall. Hann var þjóð-
kunnur maður og víðfrægur vis-
indamaður, og meðal íslendinga
átti hann marga vini. Löngu fyrir
stríð heimsótti hann ísland og
hélt fyrirlestra í Reykjavík, sem
gestur Háskólans, og aftur kom
hann til íslands á Snorrahátíðina
1947. Sem fornfræðingur var
hann kunnur meðal stéttar-
bræðra sinna víða um heim og
naut mikils álits. Og í Bergen.
mátti segja að hann væri allt í
öllu, eigi aðeins á Bergens Muse-
um og siðar háskólanum þa*,,
heldur í öliu þvi, sem varðaði
menningu og listir. Þannig sat
hann um fjölda ára í stjórn ieik-
hússins í Bergen, ,,Der. nationala
scene“, listasafnanna, fornmenja-
félagsins, Holbergsklúbbsins,
Sögufélagsins og Lisramannasam-
bandsins. — Þjóðverjar viku hon
um úr embætti 1942, er. 1945 tók
hann við embættinu aftur, en án.
skyldu til að halda fyrir’est.ra.
27. júlí 'í955
Skúii Skúlason.
Oss vantar
AFGREIÐSLUMANN
til starfa nú þegar.
Æskilegt væri að umsækjandi væri kunnugur raf-
magnsvörum. — Upplýsingar um starfið veittar á skrif-
stofu vorri, Vesturgötu 17, á mánudag og þriðjudag n. k.
klukkan 4—6 e. h.
Raftækjasalan h.f.
Vesturgötu 17.
.uuinti»niiiuinnmm»»,1>l