Morgunblaðið - 18.09.1955, Síða 16
I Veðurúiiif í dag:
Austan kaldi. Síðar stinnings-
, kaldi. Þykknar upp síðdegis.
JHOTqptttfrteMfr
212. tbl. — Sunnudagur 18. sept. 1955
Reykjavíkarbréf
á bls. 9.
Mikið hefur náðst
inn af heyjum
síðustu daga
MORGUNBLAÐIÐ aflaði sér í gær upplýsinga hjá búnaðar-
málastjóra, Páli Zophohíassyni, um heyfeng bænda, en útlit
Itefur breytzt allmikið í þeim efnum síðustu viku, þar sem tveir
til þrir þurrkdagar hafa verið víðast á óþurrkasvæðinu. — í fyrra-
dag og gær var ágætur þurrkur sunnanlands og einnig suðvestan-
lands. Kvaðst búnaðarmálastjóri ætla, að 200—250 þús. hesta mundi
í lok þessarar viku vanta upp á venjulegan heyfeng bænda.
VÍ»A ALHIRT Á
SUÐ-VESTURLANDI
Búnaðarmálastjóri kvað mikið
hafa náðst inn af heyjum, og víða
allt sem úti var, síðustu daga, á
Snæfellsnesi, Borgarfirði og í Döl-
um. Austan Skarðsheiðar kvað
hann þó allmikil hey úti víða, en
vonir stæðu til að þau næðust að
mestu leyti inn í gær.
MIKIÐ ÓSLEGIÐ Á
SUÐURLANDI
Á Suðurlandi náðist einnig
geysimikið inn af heyjum þessa
daga, þó aðallega í gær. Eru Sunn
lendingar verr staddir með hey-
skap en aðrir, þar sem víða er
ennþá mikið eftir óslegið af fyrri
slætti og hafa bændur keppst við
að slá þessa þurrkdaga og þess-
vegna mikið laust hey úti.
ÞINGEYINGAR FARNIR AÐ
BERA Á TÚN
í Þingeyjarsýslu hefur heyskap-
ur gengið vel í sumar, og hafa
bændur þar náð venjulegum hey-
feng. Eru flestir þar hættir slætti
nú og víða farið að bera á túnin
undir haustið.
1 Húnavatnssýslu hefur hey-
skapur gengið vel þessa viku og
menn yfirleitt búnir að ná heyjum
sínum undir þak.
Golfklúbbur
Árnessýslu sfarfar af
kappi í sumar
Búið að salía 700
funnur afsíld
f Ólafsvík
ÓLAFSVÍK, 17. sept.: — Afli
xeknetabátanna frá Ólafsvík hef-
ur verið tregur undanfarið. Bát-
arnir hafa þó verið á sjó, svo að
segja hvern dag. Átta bátar hafa
stundað veiðarnar, en eru nú
tveir þeirra farnir til Suðurlands
og hyggjast þeir halda veiðun-
um áfram þar.
Alls er búið að salta rúmar 700
tunnur af reknetasíld og frysta
um 3000 tunnur. — Einar.
STARFSEMI Golfklúbbs Árnes-
sýslu í Hveragerði hefur verið
góð síðastliðið sumar. — Þátt-
takendur hafa verið milli 10—20
stöðugt. Haldnar hafa verið tvær
keppnir og er sú þriðja yfirstand-
andi, sem er firmakeppni golf-
klúbbsins.
Á næstunni fer fram meistara-
mót innan klúbbsins. Taka þátt í
því móti þessi fyrirtæki: Mjólk-
urbú Flóamanna, Kaupfélag Ár-
nesinga, Sigurður Ó. Ólafsson &
Co., Landsbanki íslands (útibú á
Selfossi), K. Á., Hveragerði,
Hverabakarí, Fagrihvammur h.f.,
Blómásala Þórðar Snæbjörnsson-
ar, Hveragerði, Bólmaverzlunin
Flóra Reykjavík, Bióm og hús-
gögn, Litla Blómabúðin Reykja-
vík, Almennar Tryggingar, Rvík,
og Andvaka Reykjavík.
Varastykkin lentu í jökulsprungu
Það tók leiðangursmenn
8 klst. að ná k>eim
Þrihymingamætingamar
gengu vel
GUÐMUNDUR JÓNASSON og félagar hans komu úr Vatna-
jökulsleiðangri sínum í fyrrakvöld eftir tólf daga dvöl á jökl-
inum, en þar störfuðu þeir að þríhyrningamælingum. Mælingarnar
gengu vel, þegar hægt var að vinna að þéim, en leiðangursmenn
urðu oft að halda kyrru fyrir vegna illviðris.
VARASTYKKIN LENTU I
JÖKULSPRUNGU
Það varð þeim félögum til nokk
urra óþæginda, að annar bíllinn,
sem þeir höfðu meðferðis, vísillinn,
bilaði. Var flugvél fengin til þess
að kasta kassa með varastykkjum
niður til þeirra. Tókst þá svo illa
til, að kassinn barst langar leiðir
undan vindi og lenti þar niður í
30 metra djúpri jökulsjfrungu.
Höfðu þeir félagar ekki nógu
Langa taug til þess að síga niður
í sprunguna og þurftu að fara fyr
ir endan á henni til þess að kom-
ast að kassanum. Tók ferðin þá
alls 8 kiukkustundir.
Þá lentu þeir félagar í nokkrum
erfiðleikum, er þeir voru á leiðinni
niður af -skriðjöklinum niður í
Tungnaárbotna. Voru þeir þarna
á ferð í myrkri, en himað hafði
yfir sprungurnar. Urðu þeir að
láta menn, bundna í kaðla, ganga
á undan, og einnig bundu þeir bíl-
ana saman.
AFTUR í ÓBYGGÐUM
Til gaman má geta þess, að Guð
mundur Jónasson heldur ekki
lengi kyrru fyrir í byggð. Hapn
lagði af stað í gær inn í Tungnaár
botna með hóp ferðalanga. Munu
þeir m. a. ganga suður að Langa-
sjó og á Kerlingar.
<Jr anddyri Melaskólans. Börnin raffa sér upp eftir bekkjum áffur en gengiff er í kennslustofurnar,
í baksýn sést íslandskort, sem málað er á vegg anddyrisins. — Ljósm. Mbl. Ólafur K. Magnússon,
Garðávexlir
illa sprotfnir
í Snæfellsnessýslu
STYKKISHÓLMI, 17. sept.: — í
gær og fyrradag var þurrkur hér
og bjargaðist þá mikið inn af
heyjum. Menn eiga þó allmikið
úti ennþá.
Réttum hefur nú verið frestað
í viku, og munu bændur nota
þann tíma til þess að ganga frá
heyjum sxnum og taka upp úr
görðum. Garðávextir eru í lak-
ara lagi og má búast við lítilli
uppskeru. Ber sjást hvergi hér í
nágrenninu, nema skemmdir vís-
irar. — Árni.
Sfykkishélmsbátar
lands á rekneta-
veiðar
STYKKISHÓLMI, 17. sept.: —
Sáralítill afli og jafnvel enginn
hefur verið undanfarið hjá rek-
netabátunum. Eru þeir nú allir
nema einn, Grettir, farnir til
Suðurlands til reknetaveiða og
leggja þeir aflann upp á Suður-
nesjum. Alls er búið að salta hér
um 800 tunnur af síld. — Árni.
Náttúrulækninga-
lélag slofnað
í Hafnarfirði
FIMMTÁNDA náttúrulækninga-
félagið var stofnað hér á landi
í Hafnarfirði, föstudaginn 16. þ.
m. Stofnendur voru ?0. Bráða-
birgðastjórn var kosin, en hana
skipa: Kristján Dýrfjörð form.
og meðstjórnendur Jón Sigur-
geirsson og Þorsteinn Björnsson.
5. landsþing samtakanna verð-
ur sett í Reykjavík í dag. Þingið
stendur í tvo daga, verður síðari
þingfundurinn haldinn austur í
Hveragerði, í hinu nýja heilsu-
hæli félagsins.
Arnarhólstraðirnar
verða grafnar upp
Ein elzta þjóðbraut hér á landi
ÆJARRÁÐ gerffi á fundi sínum í fyrradag eftirfarandi samþykkt:
„Samþykkt að fela forstöffumanni Minjasafns bæjarins aS
láta rannsaka efri hluta Arnarhólstraffa, næst Ingólfsstræti,
og láta grafa traðirnar út, ef rannsókn gefur tilefni til þesa.
Verkiff verffi framkvæmt í samráði við Þjóffminjavörff.“
MA VERA AÐ
MINJAR FINNIST
Það var samkvæmt uppá-
stungu Lárusar Sigurbjörnssonar,
skjala- og minjavarðar Reykja-
víkur, að þessi samþykkt var
gerð, en hann ritaði borgar-
stjóra bréf fyrir stuttu þar sem
hann lagði til, að gerð yrði vís-
indaleg rannsókn á efri hluta
traðanna í samráði við forn-
minjavörð. Að öðru leyti segir
svo í bréfi skjalavarðar:
„Eins og kunnugt er, sést
enn móía fyrir hinum fornu
Arnarhólströðum skáhallt
Síðasta sýnl
niffur Arnarhól. Traffir þess-
ar voru um langan aldur,
mjög liklega allt frá land-
námstíð, eina almcnningsgat-
an ofan í Reykjavík, því að
lækurinn var illur yfirferffar
nema á vaffi niffur undir sjó
og Tjömin og blautar mýrar
hindruðu eðlilega aðreið allt
suffur undir Skerjafjörff.
Traðirnar eru merkar sem
ein elzta þjóðbraut hér á
landi og vel kann svo aff vera,
aff þær leyni ýmsu smálegu,
sem ferðamenn fyrri alda hafa
týnt og svo troffizt ofan I
traðarsvæðið undir hesthófn-
um. En hvað sem þvi líður,
þarf að varðveita þessar elztu
fornminjar í Rcykjavík svo aS
þær hverfi ekki með öllu niff-
ur í grassvörffinn.“ >
Vöruskiplajöfnuð- I
urinn óhagslæður
um 251,6 millj. kr.
SAMKVÆMT frétt frá Hagstof-
unni hefir vöruskiptajöfnuðurinni
orðið óhagstæður um 251.6 millj.
króna fyrstu átta mánuði þessa
árs. Inn var flutt fyrir 750.9
millj. kr., en út fyrir 498,9 millj.
Skip hafa verið keypt fyrir 5,9
millj.
Á sama tíma í fyrra var vöru.
skiptajöfnuðurinn óhagstæðuí
um 213,8 millj. kr. Þá nam inn-
flutningurinn 714,6 millj. kr., eni
útflutninguiinn 500,8 millj. Skip
í kvöld verffur hinn vinsæli höfðu þá verið flutt inn fyrifl
gamanleikur Nei-iff eftir J. L. 24,3 millj.
Heiberg sýndur í siðasta sinn í j í ágúst var jöfnuðurinn óhag-
Leikhúsi Heimdallar. Hefur Nei- stæður um 45.5 millj. kr. Inn
ið þá veriff sýnt 17. sinnum viff var flutt fyrir 107,2 millj., en
ágætar undirtektir. út fyrir 61,7 millj.